Morgunblaðið - 06.09.1978, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 06.09.1978, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR, 6. SEPTEMBER 1978 5 Hluti starfsfólks Leikfélags Reykjavíkur fyrir utan lönó. Sex frumsýningar hjá L.R, Sex ný verkefni verða frumsýnd á því leikári Leikfélags Reykjavíkur, sem nú er aö hefjast. í samtali viö Morgunblaðið sagöi Vigdís Finn- bogadóttir leikhússtjóri að svo mörg leikrit heföu aldrei verið frumsýnd á einu leikári hjá Leikfélaginu. Smæö hússins gerði hins vegar að verkum að verkin væru sýnd oftar, og því heföi t.d. ekki verið unnt aö frumsýna eitt þeirra á síöustu verkefnaskrá. Er það nýtt leikrit eftir Jónas Jónasson, sem verður frumsýnt um miöjan september. Verk Jónasar ber nafniö Glerhúsiö, og er þaö byggt í kringum hugaróra og umhverfi ofdrykkjumanns. Leik- stjóri sýningarinnar er Sigríöur Hagalín. Almenna bókafélagiö gefur leikritiö út á prenti, og kemur það út á frumsýningardag. Önnur verkefni L.R. í vetur verða: Lífsháski (Deathtrap) eftir banda- ríska leikskáldiö Ira Levin. „Thriller", sem frumsýndur var í New York fyrir skömmu og fékk þar frábæra dóma og vinsældir, en þetta mun fyrsta sýning leiksins utan Bandaríkjanna. Það verður frumsýnt í byrjun nóvem- ber, undir leikstjórn Gísla Halldórs- sonar. Geggjaöa konan í París (La folle de Chaillot) eftir franska skáldiö Jean Giraudoux. Giraudoux er eitt virtasta leikritaskáld Frakka á fyrri hluta aldarinnar, en ekkert verka hans hefur verið sýnt hér fram aö þessu. Verkiö er gamansöm lýsing á olíu- í vetur fundi í hjarta Parísar á tímum nasista. Steindór Hjörleifsson leikstýrir sýningunni, en frumsýning veröur í byrjun janúar. Innrásin (Los Invasores), leikrit frá Chile eftir Egon Wolff, sem er meðal kunnustu leikskálda í Suöur- Ameríku. Þetta er fyrsta sýning á leikverki frá Chile hér á landi, en verkiö fjallar um afleiðingar þess, aö tötrum klæddur lýöur sezt upp á heimili góöborgara. Frumsýning þessa leikrits veröur í byrjun marz, og þar leikstýrir Þórhildur Þorleifs- dóttir í fyrsta sinn fyrir L.R. Vorverkefni Leikfélagsins veröur væntanlega nýtt íslenzkt leikrit, sem enn er ófullbúiö. Auk framangreindra verka veröur svo ein frumsýning á leikárinu í Austurbæjarbíói. Þar veröur settur á svið gamanleikurinn Rúmrusk (Bedroom Farce) eftir Englendinginn Alan Aykbourne, sem sýndur hefur verið í brezka Þjóöleik- húsinu síðan í fyrra. Guörún Ás- mundsdóttir setur leikinn á sviö. Auk nýrra verkefna sýnir Leikfélag Reykjavíkur áfram leikritin Valmúinn springur út á nóttunni eftir Jónas Árnason, Skáld-Rósu eftir Birgi Sigurösson og Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson. Vigdís Finnbogadóttir kvaöst vilja kalla næsta leikár Leikfélags Reykja- víkur „ár nýjunganna", þar sem þess væri freistað aö bjóða upp á margt það sem væri aö gerast um þessar mundir í erlendu leikhúslífi. Verðlagsráð og verð- lagsst jóri deila enn um norrænu verðkönnunina Verzlunarráð íslands heíur látið kanna hjá verðlagsstofn- uninni í Noretfi á dögunum hvaða mcðferð hin norræna verðkönnun verðlagsyfirvalda í viðkomandi löndum hefði fengið. Aðþví er Þorvarður Elíasson, framkvæmdastjóri verzlunarráðsins tjáði Mbl. er það ekki rétt að verðlagsstjór- arnir hafi gert samkomulag um að birta heildarniðurstöðu verðkönnunarinnar heldur hafi það komið fram í svörum, sem verzlunarráðið fékk frá Noregi fyrir milligöngu verzlunar- ráðsins norska, að ekki væri búið að taka afstöðu til þess hvort könnunin yrði birt vegna þess að menn ættu eftir að gera upp hug sinn um hvort þeir teldu niðurstöður könnunar- innar marktækar. Yrði tekin formleg afstaða til þessa á fundi í næstu viku. Morgunblaðið bar þetta undir Georg Ólafsson verðlagsstjóra. „Mér virðist Þorvarður Elíasson láta að því liggja að ég hafi brotið einhvern trúnað með því að birta niðurstöðu af samnor- rænu verðkönnuninni og byggir á upplýsingum frá norska verð- lagsstjóranum. Eg óska því eftir að fá að taka það fram, að ég taldi það embættisskyldu mína að gera viðskiptaráðuneytinu þegar í stað grein fyrir niður- stöðum könnunarinnar, þegar þær lágu fyrir. Taldi ég mér einnig skylt að skýra niðurstöð- urnar fyrir samtökum stórkaup- manna og forráðamönnum SÍS. Loks skýrði ég verðlagsnefnd frá niðurstöðunum. Á fundi verðlagsnefndar kom það fram, að rétt væri að birta opinberlega niðurstöðurnar og mælti aðeins 1 eða 2 af 9 nefndarmönnum gegn því og var annar þeirra fulltrúi vérzlunarráðsins í nefndinni." A,Á fundi norrænna verðlags- yfirvalda, sem haldinn var 15. ágúst sl. eftir að niðurstöður könnunarinnar lágu fyrir var ítrekuð samþykkt frá fyrri fundi að aðeins skyldu birtar heildar- niðurstöður könnunarinnar en ekki gefnar upplýsingar um einstakar vörutegundir," sagði Georg ennfremur. „Þetta er gangur málsins og ég hef hvorki brotið trúnað gagnvart starfs- bræðrum mínum á Norðurlönd- um né öðrum aðilum. Niðurstöð- urnar voru fyrst og fremst afgerarrdi fyrir okkur Islend- inga, þar sem við skárum okkur algjörlega úr með hátt inn- kaupsverð, og það ætti því ekki að koma neinum á óvart, hvorki innlendum né erlendum aðilum, þó að niðurstöðurnar birtust hér fyrst." „Gat nu verið! Hun er líka í Duffys“ Frumsnið tölvureiknuð. 100% amerísk bómull — bvegin. Stærðir: 27, — 28, — 29, — 30, — 31, — 32, — 33, — 34, — 36, — 38. ^ a&jm gallabuxurnar oi>Ýk Mmbuk simi: 27211 Austurstræti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.