Morgunblaðið - 06.09.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR, 6. SEPTEMBER 1978
7
Hin rauöa
lína
Þegar samstaöa tókst
meö hinum ýmsu laun-
þegasamtökum um fund-
arhöld um allt land og
verkfallsaögerðír vegna
efnahagsráöstafana frá-
farandi ríkisstjórnar var
Þaó undir kjörorðinu
„samningana í gildi“ og á
grundvelli Þess, að fullar
verðbætur skyldu koma á
öll laun, há sem lág. Það
var af Þessum sökum
sem háskólamenn tóku
Þátt í Þessum aðgerðum
og töluðu á fundum. Þá
var látin í Ijós gagnkvæm
ánægja yfir hinni miklu
samstöðu, sem náðst
hafði, og dreift línuritum
um Það, hversu mikið hin
hæstu laun heföu verið
skert. Þar sem raddir
komu fram um Það, að
fullar verðbætur skyldu
aðeins taka til almennra
launatekna, var Því kröft-
uglega mótmælt, bæði af
fulltrúum Verkamanna-
sambandsins og BSRB.
AlÞýðuflokkur og Al-
Þýðubandalag tóku kjör-
orðiö „samningana í
gildi“ svo upp fyrir síö-
ustu kosningar; fram-
bjóðendum peirra varð
tíðrætt um „kaupráns-
lög“ og helgan samn-
ingsrétt.
Það var pví ekki aö
ófyrirsynju sem kjósend-
ur Þessara flokka töldu
Þingmenn Þeirra skuld-
bundna eftir kosningar.
En sá sem er háll eins
og áll finnur víða smugur.
Nú hafa menn eins og
Ragnar Arnalds og Kjart-
an Ólafsson lýst Því yfir,
að Þeir hafi aldrei talað
um samningana í gildi.
Fullyrðingar í Þá átt séu
íhaldsáróöur og runnar
undan rifum kaldrifjaðra
manna. Fyrir AlÞýðu-
bandalaginu hafi ávallt
vakað aö skerða laun
hátekjumanna. Og í sjón-
varpsÞætti talaöi hinn
síðarnefndi um 200 til 250
Þús. kr. mánaðarlaun í
Því sambandi. Hann hafði
ekki alveg gert Þaö upp
við sig, hvar ætti að
draga hið rauða strik.
„Grípum til
okkar ráöa“
Borgaralega Þenkjandi
mönnum kemur Það sízt
á óvart, Þótt AlÞýðu-
bandalagsmenn eöa
kommúnistar Þykist
aldrei hafa sagt Þaö, sem
Þeir lögðu höfuðáherzlu
á, Þegar Þeim Þótti svo
henta. En hinir óborgara-
legu lifa áfram sælir í
sinni trú og Þeir verða
einatt fyrir beiskum von-
brigðum. Einn Þessara
manna er Jón Hannes-
son, formaður launa-
málaráðs BHM, en hann
komst m.a. svo að orði í
Morgunblaöinu í gær,
Þegar hann var spurður
um pau ummæli Ragnars
Arnalds, aö með 230
Þúsund króna launaÞak-
inu hafi hann aðeins
verið aö efna gefin kosn-
ingaloforð:
„Ég hef fylgzt Það náið
með Þessu, að ég veit að
Það hefur hvorki verið
almennur vilji fyrir Þess-
ari leið innan AlÞýöusam-
bandsins né AlÞýöu-
bandalagsins. Það er al-
veg út í hött og Það
samstarf sem hófst 1. og
2. marz var alltaf með Því
fororði að samningar
allra ættu að fara í gildi.
Að vísu mölduöu aðilar
innan Verkamannasam-
bandsins í móinn og
vildu aö Þeirra samtök
hefðu forgang. Mótmælt-
um við Því ekki Þegar
bráðabirgðalögin voru
sett, en að Því er okkur
snertir Þá er Þessi bið-
tími búinn. Menn bjugg-
ust við Því að Þessi
sameiginlega staöa laun-
Þegasamtakanna myndi
nægja til Þess að brjóta
fyrri lög á bak aftur að
fullu og síðan að úrslit
kosninganna myndu líka
duga. Hvorttveggja hefur
brugðizt og Þá veröum
við einfaldlega að grípa
til okkar ráða.“
Þessi ummæli verða
ekki misskilin. Launa-
hnúturinn hefur alls ekki
verið leystur og menn
geta búizt við Því, aö til
tíðinda kunni að draga
fyrr en varir. Um leiö
skýrist fyrir mönnum,
hvaða skollaleikur hefur
verið leikinn á undan-
förnum mánuðum, —
óheilindin skína í gegn
eins og úlfshárin undan
sauðagærunni forðum.
Sterk stjórn-
arandstaða
„Ég reikna með harðri
stjórnarandstöðu Sjálf-
stæðisflokksins,“ eru ný-
leg ummæli Lúðvíks Jós-
epssonar og hann heldur
áfram: „Það sem verður
eftirtektarvert er að fylgj-
ast meö Því hvort Sjálf-
stæðisflokkurínn fer inn
á svipaða braut og áöur,
Þ.e. ræðst á stjórnina úr
hinni áttinni. Hér á ég við,
hvort hann gagnrýnir
okkur harkalega fyrir að
halda niðri kaupi meö
samningum við stóru
samtökin."
Hinn gamli stjórnmála-
refur hrósar sér að vísu
yfir Því aö vera guöfaðir
ríkisstjórnarinnar. Samt
er hann ofboö lítið óró-
legur yfir Því, hvernig til
hefur tekizt. Hann finnur
sem sé glöggt, að efna-
hagsdæmið hefur ekki
gengið upp og pó er
gengið út frá margvís-
legri kaupskerðingu og
nýjum sköttum.
Og Lúðvík Jósepsson
kann að reikna rétt,
Þegar honum býður svo
við að horfa. Vitaskyld
verður stjórnarandstaða
Sjálfstæðisflokksins
sterk. Framundan eru
upplausnartímar í ís-
lenzku efnahagslífi og
óróleiki á vinnumarkaðn-
um.
Hitt er svo eftir öðru,
aö peir AlÞýðubanda-
lagsmenn eru alltaf að
reyna að sannfæra sjálfa
sig um Það, aö Þeir einir
séu málsvarar hins vinn-
andi manns í landinu.
Það er mikill misskilning-
ur. Þvert á móti hafa áhrif
Þeirra meðal hinna lægst
launuðu farið dvínandi til
lengri tíma litið og í
kjölfar Þeirra atburða,
sem nú eru að gerast,
munu Þeir finna fyrir
vaxandi tortryggni innan
verkalýöshreyfingarinn-
ar. Menn uppskera eins
og sáö er til. Og varla er
við pví aö búast, að
ráðherrum og launÞega-
foringjum AlÞýöubanda-
lagsins veröi tekið fagn-
andi eins og boðskapur
Þeirra er nú til almenn-
ings í landinu.
Af hverju gráta
börn um nætur?
OFT Á tíðum kvarta mæður
ungbarna um að börn þeirra
vakni upp á nóttunni og gráti
eða ambri og víst er að slíkt er
ákaflega hvimleitt fyrir for-
eldra. Margar mæður fá það á
tilfinninguna að þær meðhöndli
börn sín ekki rétt og að þær eigi
alfarið sökina á vökum barn-
anna, en svo er þó ekki.
í fjölda rita uppeldisfræðinga
eru gefin margvísleg ráð við
næturgráti barna og eitt af þeim
er t.d. að láta barnið bara gráta,
það þagni eftir smástund o.s.frv.
en það er haldlítil aðferð.
í nýlegri skýrslu um þetta
vándamál, sem þrír læknar við
Heilsugæzlustofnunina í Lond-
on hafa látið frá sér fara kemur
fram að grát barna og vökur um
nætur er á engan hátt hægt að
rekja til rangrar meðferðar
móður eða foreldra. Læknarnir
komust að raun um, að nætur-
vökur og grátur ungbarna eru
bein afleiðing fjölda minni
háttar erfiðleika við fæðingu og
þar sé skýringarinnar helzt að
leita.
Læknarnir höfðu annars veg-
ar til athugunar hóp ungbarna
á aldrinum 15, 21, 33, og 39
mánaða gömul, sem vöknuðu
upp á nóttunni og grétu og hins
vegar hóp barna á sama aldri
sem sváfu eðlilega. í ljós kom að
börnin í fyrri hópnum höfðu
vaknað upp á nóttunni og grátið
allt frá fæðingu og héldu
uppteknum hætti fram til 2—3
ára aldurs. Fæðing langflestra
þessara barna hefði verið ein-
hverjum erfiðleikum bundin á
einn og annan hátt, sem ekki var
nánar tilgreint í skýrslunni.
Fæðing barna í „eðlilega hópn-
um“ hafði undantekningarlítið
gengið nokkuð greiðlega fyrir
sig.
Læknarnir fylgdust einnig
með mæðrum í báðum hópum og
varð niðurstaðan sú, að með-
höndlun þeirra átti lítinn sem
engan þátt í gráti barnanna.
Það var að vísu mismunandi og
fyrir kom, að viðbrögð móður
sem brá alltaf skjótt við ef barn
hennar vaknaði upp um nótt og
grét gátu ýtt undir það, að
barnið héldi áfram að vakna upp
á nóttunni.
I rannsókninni segja lækn-
arnir, að í mörgum tilfellum sé
við fæðingu hægt að segja til um
hvort ungabörn komi til með að
gráta þegar fram líða stundir og
gefa ráð í samræmi við það.
Útsala — Útsala
Mikil verðlækkun.
Glugginn,
Laugavegi 49.
Lærið
vélritun
Ný námskeið hefjast á morgun.
Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin heimavinna.
Innritun og upplýsingar í síma 41311
Vélritunarskólinn
Suðurlandsbraut 20
Hestamenn
Vegna mikillar eftirspurnar um pláss fyrir hesta á
vetri komanda er nauðsynlegt fyrir þá sem voru
með hesta hjá okkur í fyrra og eins fyrir þá sem
eiga viötökuskírteini og ætla að vera meö hesta
í vetur aö panta pláss nú þegar og eigi síðar en
15. september.
Nokkrum plássum er óráöstafaö núna. Skrifstof-
an er opin kl. 14—17 sími 30178.
Hestamannafélagið Fákur.
MÍMIR
Fjölbreytt og skemmtilegt tungumálanám,
enska, þýzka, franska, spánska, ítalska, norður-
landamálin, íslenzka fyrir útlendinga.
Áhersla er lögð á létt og skemmtileg samtöl í
kennslustundum. Samtölin fara fram á því máli
sem nemandinn er að læra, svo að hann æfist í
talmáli. Síðdegistímar — Kvöldtímar
Símar 11109-10004
(kl. 1 — 7 e.h.)
Málaskólinn Mímir,
Brautarholti 4
Kvennatímar í badminton
6 vikna námskeið að hefjast. Einkum fyrir heimavinn-
andi húsmæður. Holl og góð hreyfing. Leiðbeinandi
Garðar Alfonsson.
r ’TWm Upplýsingar i sima 82266.
Tennis- og badmintonfélag Reykjavikur.
Gnoðavogi 1.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480