Morgunblaðið - 06.09.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.09.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR, 6. SEPTEMBER 1978 V estmannaeyjar: Undrapysja með hvítan fjaðrahatt EINSTAKT fyrirbæri af hana nú upp um sinn og er lundapysju fannst í Eyjum hún hin fjörugasta í sam- um helgina, en hún var býli við aðrar lundapysjur. Venjuleg lundapysja, hattlaus. skrýdd miklum fjaðrahatti og bar hún túrbaninn með mikilli reisn. Það voru tveir Eyjapeyjar, Tómas og Geir, sem fóru í lundapysjuleit föstudagskvöldið 1. sept. með afa og ömmu sem höfðu langa reynslu í slík- um ferðum. Og það bar aldeilis vel í veiði því þau fengu þessa undrapysju. Pysjan er eðlileg í útliti á allan hátt, nema að upp úr miðjum hausnum standa þessir feiknafiðurbrúskar, alhvítir úr vel gerðum fjöðrum eins og þeim sem eru á bringunni. Þeir Tómas og Geir ala Fullvaxinn „prófastur“. Ljósmyndir Mbl. Undrapysjan með hvíta fjaðrahattinn. Sigurgeir Jónasson. Tómas og Geir með fjórar pysjur og fyrirbærið sker sig aldeilis úr. Sovézkir stærdfrædingar: Stór hópur fékk ekki að sæk ja alþjóðlegt þing FIMM íslenzkir stærð- fræðingar voru nýlega á alþjóðlegu þingi stærð- fræðinga í Helsinki, þar sem mannréttindamál so- vézkra visindamanna komu nokkuð við sögu þótt hvergi væri ráð fyrir því gert í opinberri dag- skrá þingsins. Stærðfræðingarnir íslenzku voru þeir Eggert Briem, Jón R. Stefánsson, Ottó Björnsson, Reynir Axelsson og Halldór Elíasson, sem Mbl. náði tali áf og spurði frekar um þetta mál. „Jú, það er rétt,“ sagði Hall- dór, „það kom í ljós á þessu þingi, að það hafði aðeins um helmingur sovézku vísinda- mannanna, sem ætluðu að sækja þingið, fengið vegabréfsáritun á það og það má geta þess að meðal þeirra sem heima sátu var einn af fjórum stærðfræð- ingum, sem átti að heiðra sérstaklega á þessu þingi, eins og vandi er að gera á hverju þingi.“ Halldór sagði, að miklar umræður hefðu orðið um það meðal þingfulltrúa hvernig komið væri fyrir sovézkum stærðfræðingum, þegar þeir fengju ekki að halda uppi eðlilegum og nauðsynlegum samskiptum við starfsbræður í öðrum löndum. Hann kvað hafa verið dreift á þinginu bækling- um þar sem lýst er aðstöðu sovézkra stærðfræðinga í þess- um efnum, en þeir teldu sjálfir að verið væri að skerða frelsi þeirrameira en hefði verið áður. Viðgerð á Breka gengur vel VIÐGERÐ á Vestmannaeyjatog- aranum Breka sækist vel, að því cr Gunnar Ragnars, fram- kvæmdastjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri, tjáði Mbl. í gær. Verkið er á áætlun og kvaðst Gunnar gera ráð fyrir að því lyki innan tveggja mánaða. Hann sagði einnig að ekkert benti til þess enn sem komið væri, að viðgerðin færi fram úr kostnaðar- áætlun. Nú er aðallega verið að vinna að ýmsu innan skips. Gunnar kvaðst engu kvíða varð- andi verkefni Slippstöðvarinnar i næstu framtíð og forráðamenn fyrirtækisisn hefðu oft séð útlitið svartara en nú. Innan skamms hæfist til að mynda viðamikil viðgerð og endubygging á aflaskip- inu Þórði Jónassyni og framundan væru mörg meiriháttar verkefni bæði varðandi viðgerðir og ný- smíði. Togari Hríseyinga bilaður SNÆFELL, togari Hríseyinga, er bilaður og mun viðgerðin taka um tvo mánuði, að því er fréttaritari Mbl. sagði í símtali í gær. Skipið er nú til viðgerðar á Akureyri en það er aflvél skipsins sem er biluð. Snæfell er smíðaður í Noregi og hefur reynzt ágætlega fram til þessa. Enda þótt ekki blási byrlega í atvinnumálum Hríseyinga eru þeir þó vongóðir um að Dalvíking- ar og jafnvel Akureyringar muni létta undir með þeim og sjá þeim fyrir hráefni að einhverju leyti. Auk þess er töluverð smábátaút- gerð frá Hrísey, en þeir bátar hafa aflað lítið að undanförnu. Börkur fyllti sig við Jan Mayen: Loðnuflot- inn allur á leið þangað BÖRKUR frá Neskaupstað fyllti sig af loðnu um 70 mílur NNV af Jan Mayen um hádegisbil í gær og síðdegis var allur íslenzki loðnuflotinn á leiðinni á þessi mið, en undanfarin tvö dægur hefur verið frekar tregt á miðum íslenzku loðnuskipanna norður af Norðurlandi. Færeysk og norsk skip hafa síðustu viku verið á loðnuveiðum við Jan Mayen og samkvæmt þeim upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, munu þessi skip vera búin að fá um 50 þús. tonn af loðnu á þessum slóðum að undanförnu. Af miðunum frá Jan Mayen er stytzt til hafnar á Raufarhöfn og síðan til Austfjarða, og er Börkur væntanlegur til Neskaupstaðar í nótt eða fyrramálið með aflann, en tæplega 40 klst. sigling er af miðunum. Frá því kl. 17 í fyrradag til kl. 14 í gær tllkynntu átta skip um afla til loðnunefndar og eru þau þessi: Bergur 2. VE 400 lestir, Stapavík SI 150, Faxi GK 300, Albert GK 400, Seley SU 330, Húnaröst ÁR 570, Magnús NK 350 og Börkur NK 1120.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.