Morgunblaðið - 06.09.1978, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR, 6. SEPTEMBER 1978
15
20 drukkna
á einum degi
Nýja Delhf, Indlandi.
5. september. AP. Reuter.
YAMUNAÁIN flæddi í dag inn
yfir úthverfi Nýju Delhí og
tilkynnt heíur verið að að
minnsta kosti 20 manns hafi
drukknað í dag. Flóð hafa aldrei
verið jafnmikil í ánni og vatns-
borð hennar hækkar um 10
sentimetra á hverjum klukku-
ti'ma.
Fólkið drukknaði þegar herbát-
ur sökk í Yamuna. Var verið að
flytja fólk, er flúið hafði heimili
sín vegna flóðanna sagði D.R.
Kohl landsstjóri. Meðal hinna 20
voru konur og börn.
Öll umferð til að frá Nýju Delhí
hefur raskast vegna flóðanna og
meðal annars hefur fjórum mikil-
vægum brúm verið lokað.
Frá því monsúnrigningarnar
hófust seint í júní hafa um 850
manns drukknað á Indlandi. Nú
hafa um tvær milljónir manna í
Vestur-Bengal flúið heimili sín og
nokkur hundruð þúsund á svæð-
inu kringum Nýju Delhí hafa
gert slíkt hið sama.
Iri felldur
Newry, Norðurfrlandi
5. september — Reuter
ÍRSKIR hryðjuverkamenn skutu í
dag til bana mann, sem er í
varaliði hersins, að þvi er lögregla
skýrði frá í dag. Talið er líklegt að
IRA hafi staðið fyrir morðinu.
Dansaði í
145 tíma
Corner Brook, Nýfundna-
landi,
4. september. Reuter.
HIN 24 ára gamla Anna Hall
kvaðst í dag hafa sett heims-
met í samfelldum dansi, en hún
dansaði í 145 klukkustundir
stanzlaust á diskóteki í bænum
Corner Brook. Þar með endur-
bætti hún gamla heimsmetið
um eina klukkustund, en það
var sett í fyrra.
íhaldið með
meira fylgi
London — 5. scptember — Reuter
DAGBLAÐIÐ Daily Express
skýrði í dag frá niðurstöðum
skoðanakönnunar blaðsins, en þar
kemur fram að fylgi brezka
Ihaldsflokksins er tveimur
prósentum meira en fylgi Verka*
mannaflokksins, sem nú er við
stjórnvölinn í Bretlandi. Alls
svöruðu 47% því að þeir myndu
kjósa íhaldsflokkinn, 45% kusu
Verkamannaflokkinn og aðeins
5% frjálslynda.
Þetta gerdist
1976 — Rússneskur herþotu-
flugmaður flýr til Japans.
1970 — Palestínskir skæru-
liðar ræna þremur vestrænum
farþegaflugvélum og valda
neyðarástandi.
1966 — Verwoerd veginn á
þingfundi í Höfðaborg.
1965 — Indverjar gera innrás
í Vestur-Pakistan.
1940 — Antonescu tekur sér
alræðisvald við valdaafsal
Varols Rúmeníukonungs.
1926 — Chiang Kai-shek tek-
ur Hankow.
1909 — Peary tilkynnir að
hann hafi komizt á Norður-
skautið fimm mánuðum áður.
1901 — McKinley forseti
særður banvænu sári í Buffalo,
New York.
Fimmmenningarnir hér á myndinni hafa allir gengizt undir
andlitsskurðaðgerðir til að líkjast látnum rokk-stjörnum, sem þeir
halda mikið upp á. Fremst er Erin Rhyne, en hann á að líkjast
Elvis Presley, í miðröðinni til vinstri er Mona Caywood-Moore
(Janis Joplin) og við hliðina á henni Jesse Bolt (Elvis Presley)
en í efstu röðinni eru það Marc Hazebrouck (Jim Croce) til vinstri
og Duke 0‘Connell (Jim Morrison).
Heitir auknum
lýðréttindum
Rómaborg — 5. sept. — AP
VIDELA, forseti Argentínu, sem
nú er í fyrstu heimsókn sinni í
Evrópu og var m.a. viðstaddur
krýningu Jóhannesar Páls I. á
sunnudag, sagði við fréttamenn í
dag, að starfsemi stjórnmála-
flokka yrði leyfð aftur í Argen-
tínu „í fyllingu tímans“, en ekki
strax.
— Okkur er vel ljóst, að lýðræði
án starfsemi stjórnmálaflokka er í
raun ekkert lýðræði, sagði hann í
viðtali við AP. „Þeim flokkum sem
nú er bannað að starfa, verður
leyft að starfa síðar meir. Hvenær
get ég ekki sagt til úm. Það verður
á réttu augnabliki, þegar þjóðfé-
lagið hefur verið endurskipulagt
og stjórnmálaflokkar hætta bein-
um atkvæðaveiðum og taka upp
baráttumál, sem verða almenningi
til hagsbóta", sagði hann.
Um þá hörðu gagnrýni sem
stjórn hans hefur sætt víða
erlendis sagði hann, að hún væri
mat viðkomandi ríkisstjórna oft á
tíðum fengju óupplýstir einstakl-
ingar erlendis alranga mynd .af
ástandi mála í Argentínu.
I heimsókn sinni í Italíu hefur
Videla átt í viðræðum við fjöl-
marga háttsetta stjórnmálamenn
þeirra á meðal Andreotti forsætis-
ráðherra Italíu, Mondale varafor-
seta Bandaríkjanna og Raymond
Barre forsætisráðherra Frakka.
Andaðist er hann
ræddi við páfann
Vatíkaninú 5. september AP
RÚSSNESKI grísk-kaþólski erki-
hiskupinn Nikodim fékk hjarta-
slag er hann ræddi einslega við
Jóhannes Pál páfa I. í dag. Að
sögn veitti páfi sjálfur honum
síðustu þjónustu.
Um 20 fulltrúar annarra
söfnuða biðu fyrir utan viðtalsher-
bergi páfa eftir að fá að ræða við
hann og sló miklum óhug á þá, er
þeim voru sögð tíðindin. Margir
hinna 20 fyrirmanna kirkjunnar
Hvikum hvergi þrátt
fyrir handtökurnar
Managua — 5. sept. — Reuter
ANDSTÆÐINGAR stjórnar Som-
oza forseta Nicaragua sögðust í
dag mundu halda áfram allsherj-
arverkfallinu og stuðla að því að
áhrif þess verði sem víðtækust,
þrátt fyrir handtökur 60 forystu-
manna þeirra nýverið. Talsmaður
Þessi mynd var tekin á götu úti í Matagalpa, þar sem kom til mikilla
átaka þjóðvarðliða og andstæðinga Somoza og sýnir hvar nunna á
vegum Rauða kossins gerir að sárum skæruliða.
andstæðinga Somoza sagðist
gizka á, að þjóðvarðliðar hefðu
handtekið 4—600 stjórnarand-
stæðinga í götubardögum síðast-
liðnar tvær vikur. Talsmenn
þjóðvarðliðsins neituðu hins veg-
ar að tjá sig nokkuð um handtök-
urnar. en viðurkenndu um síð-
ustu helgi að hafa handtekið um
200 „æsingamenn“.
Þrátt fyrir þessar handtökur
þjóðvarðliðsins og ýmsar aðgerðir
stjórnarinnar að undanförnu hef-
ur verkfallsmönnum bætzt liðs-
auki þar sem margir bankar og
bensínstöðvar hafa lokað. Mest öll
verzlunarstarfsemi liggur niðri í
stærstu borgum landsins og at-
hafnalíf er víða lamað. Stjórn
Somoza stendur nú frammi fyrir
vaxandi erfiðleikum í efnahags-
málum, þótt verkfallið hafi enn
sem komið er ekki bitnað alvarlega
á helztu útflutningsvörum Nicara-
gua, kaffi, baðmull og sykri.
1813 — Prússar sigra Ney
marskálk við Dennewitz.
1782 — Sjóorrusta Breta og
Frakka við Cuddalore, Madras,
Indlandi.
1715 — Uppreisn jakobíta í
Skotlandi.
1688 — Leopold I tekur
Belgrad af Tyrkjum og síðan
Bosníu, Serbíu og Valakíu.
1672 — Vilhjálmur af Óraníu
tekur Naarden í Hollandi.
1620 — Pílagrímarnir sigla
með „Mayflower" frá Plymouth
til Nýja heimsins.
Afmæli dagsinsi Guillaume
Dubois, franskur kardináli —
1 stjórnmálamaður (1652—1723)
— Moses Mendelsohn, þýskur
heimspekingur (1729—1786) —
Marie Joseph de Montier,
franskur stjórnmálamaður
(1757—1834) — Montague
Norman, brezkur hagfræðingur
(1872-1950).
Innlenti Ölfusárbrú brestur
1944 — Jarðskálftakippur legg-
ur Ölfusið í rúst 1896— F.
Sveinn lögmaður Sölvason 1722
— Útför Jóns biskups Vídalíns
í Skálholti 1720 - Narfeyrar-
fundur Jóns Vídalíns og Odds
lögmanns Sigurðssonar 1713 —
Þórður kakali kemur til Eyja-
fjarðar af konungsfundl 1237 —
F. Jón Oddgeir Jónsson 1905 —
Ásgeir Bjarnason 1914 — Iðn-
sýningin opnuð 1952.
Orð dagsinsi Ef við höfum
hugfast að aliir eru brjálaðir
hverfur leyndardómurinn og við
fáum skýringu á lífsgátunni —
Mark Twain, bándarískur rit-
höfundur (1835—1910).
voru gamlir kunningjar og vinir
Nikodims.
Dauði hans „varpaði skugga á
athöfnina", sagði dr. Carl Mau,
prestur, en hann er aðalformaður
alheimssamtaka lútherskra safn-
aða, sem aðalstöðvar sínar hafa í
Genf.
Nikodim sem var 49 ára gamall
og erkibiskup af Leningrad og
Novgorod, var sá fyrsti af
fulltrúunum, sem fékk áheyrn hjá
páfa. Hann hafði nýlokið við að
færa páfa árnaðaróskir rússnesku
grísk-kaþólsku kirkjunnar og páfi
ætlaði að fara að svara honum, er
Nikodim féll látinn niður í stól
sinn. Einn af starfsmönnum páf-
ans fór strax og náði í lyf, sem
Nikodim notaði og voru í tösku
fyrir utan viðtalsherbergið og
einnig var læknir kallaður á
staðinn. Litlu síðar var skýrt frá
því að Nikodim væri allur.
Fékk 68
milljónir í
getraunum
Ósló 5. september. AP
NORÐMAÐUR nokkur datt heldur
betur í lukkupottinn í dag, er hann
vann 1.157.000 norskar krónur (jafn-
virði 68 milljóna króna) í norsku
getraununum. Norðmaðurinn gat sér
rétt til um úrslit sex leikja í ensku
deildarkeppninni og sex í þeirri
norsku og fékk fyrir það þessa
dágóðu upphæð, sem þar að auki er
skattfrjáls. Heldur betur búbót það.
Þess má geta að getraunaseðillinn
kostaði jafnvirði tæpra 30 króna
íslenskra.
Veður
víða um heim
Akureyri 12 lóttskýjað
Amsterdam 17 skýjað
Aþena 31 heiöríkt
Bercelona 24 skýjað
Berlín 16 skýjað x
BrUssel 16 skýjað
Chicago 28 heiöríkt
Frankfurt 19 skýjað
Gent 20 skýjað
Helsinki 14 skýjað
Jerúsalem 25 heiðríkt
Jóhannesarb. 15 lóttskýjað
Kaupmannah. 16 heiðríkt
Lissabon 24 rigning
London 21 heiðríkt
Los Angeles 32 rigning
Madríd 24 heiðrfkt
Malaga 29 ióttskýjað
Mallorca 27 lóttskýjað
Miami 30 rigning
Moakva 20 rigning
New York 25 heiðríkt
Ósló 16 heiðríkt
París 22 léttskýjað
Reykjavík Rio de 12 lóttskýjað
Janeiro 31 lóttskýjaö
Rómaborg 19 rigning
Stokkhólmur 15 skýjað
Tel Aviv 29 heiðríkt
Tókýó 23 rigning
Vancouver 18 skýjað
Vínarborg 20 heiðríkt