Morgunblaðið - 06.09.1978, Page 18

Morgunblaðið - 06.09.1978, Page 18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR, 6. SEPTEMBER 1978 18 19. skákinni frestað - en hvers vegna? Han if Golombek skrifar fyrir Morgan blaöiö 19. skákinni, sem tefla átti í dag, þriðjudag, í heims- meistaraeinvíginu, var frest- að að beiðni Karpovs. Mér sýnast í fljótu bragði einkum þrjár ástæður koma til greina af hálfu Karpovs fyrir frestuninni. I fyrsta lagi sú, að heimsmeistarinn hafi í kvöldverðarboðinu, sem forsetafrú Filippseyja hélt þeim Korchnoi í gær- kveldi, hvort tveggja etið og drukkið yfir sig. En það getur þó varla verið, því að eftir því sem ég sá til Karpovs í veizlúnni var hann afar hófsamur bæði á mat og drykk. Önnur ástæðan er sú, að dularsálfræðingurinn Zoukar, sem einnig var í kvöldverðarboðinu og hrellt hefur Korchnoi með óþægi- legri nærveru sinni í einvíg- inu, hafi gerzt fullfrekur á fljótandi og fast og því ekki verið upplagður í dag til að senda Korchnoi vafasamar hugbylgjur. Þessi ástæða er þó í meira lagi hæpin eins og hin fyrri. En að slepptu gamni finnst mér þó líkleg- ast, að Karpov hafi frestað skákinni til að setja Korchnoi út af laginu;. Karchnoi hafði fastlega verið við því búinn að tefla í dag eftir að tekizt hafði að lægja þær margvíslegu ásak- anir sem gengið hafa á báða bóga að undanförnu. Frestun á 19. skákinni í dag hafi því verið enn eitt sálfræðiher- bragðið í heimsmeistaraein- víginu og í þetta sinn ættað frá Karpov og hans nótum. „ÞÓTT Iðnaðardeild Sam- bandsins sé stærsti útflytjandi almennra iðnaðarvara frá ís- landi, þá hefur innanlands markaðurinn samt sem áður verið stærsta og þýðingarmesta sölusvæðið, en á síðastliðnu ári seldi Iðnaðardeild vörur á heimamarkaði fyrir rúma 2,8 milljarða króna.“ Svo fórust Erlendi Einarssyni forstjóra S.I.S., orð við opnun svokallaðr- ar „Markaðsviku Iðnaðardeild- ar“ Sambandsins. Markaðsvik- an er nýjung í starfsháttum deildarinnar og cr tilgangur hennar að kynna innlendum aðilum framleiðslu verksmiðja Sambandsins. Vörukynningin er fyrst og fremst ætluð inn- kaupafólki frá kaupfélögum og öðrum aðilum sem selja vörur verksmiðjanna, cn hún er ekki opin almenningi. Við opnunina vakti Erlendur athygli á ýmsum nýjungum í framleiðslu verksmiðjanna, svo sem á peysum úr blöndu af íslenzkri ull og orlon, sém þvo má í þvottavél, og nýrri tegund af gallabuxum frá fataverk- smiðjunni Heklu undir vöru- merkinu „duffys". Ræddi Er- lendur samkeppnisaðstöðu íslenzks iðnaðar við erlendan, og kvað samanburðinn gefa kjör- orðinu „Veljum íslenzkt" byr undir vængi. Erlendur Einarsson drap og á nokkrar staðreyndir sem hann sagði sýna, að íslenzkur iðnaður ætti í vök að verjast nú og aðbúnaður hans væri verulega Erlendur Einarsson forstjóri Sambandsins opnar „Markaðs- vikuna“. Myndiri Emilía. lakari en í helstu samkeppnis- löndum. Nefndi hann þar óstöðugleik íslenzks efnahags- lífs, þar sem röng gengis- skráning hefði haft mjög trufl- andi áhrif á markaði innlendra iðnaðarvara bæði hér og erlend- is. Einnig sagði hann ekki verða hjá því komizt, að verðmyndun- arkerfi það sem nú væri við lýði yrði tekið til endurskoðunar og þess þá gætt að fullt tillit væri tekið til iðnaðarhagsmuna. Einnig benti hann á, hve ýmis opinber gjöld þrengdu að innlendum iðnaði; til dæmis greiddi iðnaður mun hærri aðstöðugjöld en aðrir atvinnu- vegir. Erlendur minntist sérstak- lega á þá erfiðu samkeppni sem innlendur skóiðnaður ætti í á heimamarkaði, og kvað hann nú vera svo komið, að áframhald- andi rekstur einu skóverk- smiðjunnar í landinu væri óviss, ef ekki kæmu til einhverjar ráðstafanir af hálfu opinberra aðila. Hann reifaði einnig það vandamál, sem skapazt hefði vegna útflutnings í lopa, sem notaður væri í Evrópu og láglaunalöndum Asíu til endur- vinnslu og eftirlíkingar á hefð- bundnum íslenzkum vörum. Stefndi slíkur iðnaður í hættu því nafni, sem íslenzkur iðnaður hefði skapað sér á alþjóðamark- aði. „Það er ekki aðeins ósk þeirra sem fást við íslenzkan iðnað, heldur vinsamleg krafa til stjórnvalda, að þau taki nú á sig rögg og kippi í lag ýmsu því sem ábótavant hefur verið og gert hefur stöðu iðnaðarins svo erfiða," sagði Erlendur Einars- son að lokum. Að lokinni opnun „Markaðs- vikunnar“ var eínt til tízku- sýningar á íslenzkum fötum. Stjórnvöld tatóásigrögg Frá opnun „Markaðsviku Iðnaðardeildar”S.Í.S Ilér er Leifur Breiðfjörð að taka niður myndina í Esjubergi ásamt konu sinni, en myndin, sem nefnist „Vorblót“, verður annað tveggja verka Leifs á sýningunni „Glass America“. Ljósm. Mbl.i Kristinn. Leifur Breiðfjörð: Einn af 40 listamönnum sem boðið var að sýna á „Glass America LEIFUR Breiðfjörð hefur fengið boð um að sýna á sýningunni ^Glass America“, sem haldin verður í Lever House í New York dagana 9. til 27. október næst komandi. Á sýningunni verða sýnd nútíma glerlistaverk, auk franskra gler- skurðarverka, sem eru meira en tveggja alda gömul. Aðeins 40 listamenn hafa fengið boð um að sýna á þessari sýningu, og er það talinn mikill heiður að fá að sýna þar. Leifur Breiðfjörð mun eiga tvær myndir á sýningunni. Myndirnar sem Leifur mun sýna, eru „Vorblót" og „Máttur viljans". Sú fyrrnefnda er í Esjubergi að Hótel Esju, en sú Lever House í New York, þar sem Leifi Breiðfjörð hefur verið boðið að sýna ásamt 40 öðrum lista- mönnum. síðarnefnda er nýlega fullgerð, en hana vinnur listamaðurinn fyrir Reykjalund. Nú er unnið að því að taka myndina „Vorblót" niður í Esju- bergi, en myndin er 5 -metra löng og 1,50 m á hæð. Hún er úr steindu gleri, og er unnt að taka hana niður í sjö hlutum. Myndin er ekki sú eina sem Leifur hefur gert fyrir Flugleiðir, því að loftskreytingar í Skálafelli, á níundu hæð Hótels Esju eru einnig eftir hann. Lever House, húsið þar sem sýningin í New York fer fram, er þekkt sýningarhúsnæði, en það er skammt frá Museum of Modern Art, á horni Park Avenue og 53. strætis. Sovézkir dagar 1978: Úkraínukynning HÓPUR listafólks frá Úkraínu er væntanlegur hingað til íslands 12. september n.k. til að taka þátt í „Sovéskum dögum“ sem félagið MIR efnir orðið árlega til. Listafólkið kemur fram á tónleik- um og danssýningum á nokkrum stöðum á Austur- og Norðurlandi, auk Reykjavíkur. Þetta er þriðja árið í röð sem eitt 15 lýðvelda Sovétríkjanna er sérstaklega kynnt á „Sovéskum dögum“ MÍR, Menningartengsla Islands og Ráðstjórnarríkjanna: Armeníukynning var 1976, Lett- landskynning í fyrra og nú Úkraínukynning. í hópi Úkraínumannanna, sem hingað koma í tilefni „Sovésku daganna", eru 12 þjóðdansarar, óperusöngvarinn Anatólí Mokr- enko og bandúruleikararnir Maja Golenko og Nína Pisarenko. Með þeim verður einnig rithöfundurinn Pavel Zagrebeliní. Tónlistarfólkið og dansararnir halda skemmtanir í Neskaupstað 13. og 14. september og á Egils- stöðum 15. september, en síðan á Húsavík og/eða Akureyri, og í Þjóðleikhúsinu verður sýning mánudagskvöldið 18. september. í tengslum við „Sovésku dagana" verður sýning haldin í Neskaup- stað á myndlist frá Úkraínu og í Reykjavík verður sýnd nytjalist og skrautmunir. Einnig verða ljós- myndir og bækur frá Sovét-Úkra- ínu sýndar í MÍR-salnum, Lauga- vegi 178, og þar og e.t.v. víðar verður einnig efnt til fyrirlestra- halds pg kvikmyndasýninga í tilefni Úkraínukynningarinnar. MÍR 1978 Efnafræði fyrir menntaskólanema ÚT ER komin hjá Almenna bókafélaginu Efnafræði 2. sem er kennslubók menntaskóla og fram- hald á Efnafræði I, sem kom út í fyrra. Höfundarnir eru þrír sænskir efnafræðikennarar, þeir Stig Anderson, Ido Leden og Artur Sonesson og þýðendur Sigurður Elíasson og Hannes Jónsson. Þessar efnafræðibækur voru upphaflega samdar fyrir sænska skóla. I þeim er notað framsetn- ingarkerfi, sem er algerlega nýtt í kennslubókum í efnafræði og miðastdvið að nemandinn geti hagnýtt sér efni bókarinnar á eigin spýtur. Efnafræði 2 er 126 bls. í brotinu A4. Bókin er í 7 köflum sem heita: Sýrur og basar, Hvörf málma með sýrum, Efnisfræði I. Málm- ieysingjarnir, Sölt, Loft, haf og berg jarðar, Efnisfræði II, Málm- arnir, Rafefnafræði. Auk þess eru verkefni og orða- skrár aftast í bókinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.