Morgunblaðið - 06.09.1978, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR, 6. SEPTEMBER 1978
fclk í
fréttum
+ Þetta er óvenjuleg frétta mynd af forsætisráðherra ísrael, Menachem Begin. Hann er ottasi a peim
myndum alvarlegur á svipinn á einhverjum fundi með heimspólitíkusum. — Hér brosandi út undir
eyru er forsætisráðherrann í hópi barnabarna sinna, á 65 ára afmæli sínu, um miðjan ágústmánuð
síðastliðinn. Komu krakkarnir þá í heimsókn til afa í Jerúsalem. Er myndin tekin er krakkarnir sungu
fyrir afa sinn „Hann á afmæli í dag! Hann á afmæli f dag, hann afi!“
+ Þegar japanski ofurhuginn og Norðurpólsfarinn Naomi Uemura
kom til Kaupmannahafnar eftir hina frækilegu för til Norðurpóls-
ins og síðan yfir Grænlandsjökul, var tekið á móti honum með
viðhöfn. Grænlandsmálaráðherra í dönsku stjórninni Jörgen Peter
Ilansen (til hægri) afhenti kappanum mynd af grænlenzkri stúlku.
til minja um ferðina yfir Grænlandsjökul. — Sem kunnugt er ætlar
Uemura næst að takast á við Suðurskautið. — Þess má geta, sem
ekki hefur komið fram í fréttum, að hann er kvæntur maður og
kom kona hans Kimiko til móts við hann er hann kom niður af
jöklinum í Grænlandi, í bænum Narssarsuaq.
+ Þessi glaðlegi Arabi er einn
þeirra úr heldri manna hópn-
um þar eystra. Þetta er krón-
prinsinn í Saudi-Arabíu. Fahd
að nafni. Ilann vill að olíuverð-
ið á hcimsmarkaðnum verði
ekki ha’kkað. Ilann segist hafa
tröllatrú á gildi Bandarfkja-
dalsins, og hafði bætt því við
í blaðaviðtali, að dollarinn
væri enn sterkasti gjaldmiðill-
inn í heiminum.
■ 1 ■HHR i 1
l\ : k 1 t m flr1’ m i
IIH. r
+ Þessi fréttamynd er frá París. Á henni sjást þeir skála í frönsku víni Edward I. Koeh borgarstjóri
New York-borgar og Jacques Chirac (til vinstri). Kom New York borgarstjóri í opinbera heimsókn til
hinnar frönsku heimsborgar nú fyrir skömmu. í textanum segir að þeir séu að skála fyrir hinni frækilegu
loftbelgs-för yíir Atlantshafið á dögunum.
25
„Meiri kröfur
gerðar til inn-
lends iðnaðar”
FYRIRTÆKIN Ceres,
Papey og Bláfeldur skipta
með sér sýningarsvæði á
fatasýningunni en þessi
fyrirtæki hafa öll sama
dreifingaraðila, Eddu h.f.
Karl Jóhann Þorsteins,
hluthafi í Eddu, tjáði
okkur að um 95% af
framleiðslu þessara fyrir-
tækja væru til sýnis í
höllinni. Frá Ceres getur
að líta náttfatnað og
morgunsloppa, Papey sýn-
ir sokka og Bláfeldur
úlpur og skíðafatnað.
Er við inntum Karl
eftir því hvort hann héldi
að íslenskur fataiðnaður
gæti staðið þeim erlenda á
sporði kvað hann það vera
hægt ef sniðin væru
nýstárleg og verðið í lagi.
„Eg held að ef eitthvað er
þá séu íslensk föt ódýrari
en þau erlendu.
í mörgum tilfellum eru
íslenskar vörur betur
unnar," sagði Karl, „það
eru líka yfirleitt gerðar
meiri kröfur til innlends
iðnaðar en hins erlenda."
Sigríður Svanbjörnsdóttir og Agnar Svanbjörnsson hjá Gráfeldi.
Sami maður-
inn vinnur flík
ma f rá
Á fatasýningunni í
Laugardalshöll kynnir
Gráfeldur h.f. ný snið sem
eru meðal annars teiknuð
af þýskum hönnuði, Dag-
mar Fellby. Það er í
fyrsta sinn að snið unnin
af henni eru kynnt hér á
landi.
Gráfeldur var stofnað-
ur árið 1970 og er Agnar
Svanbjörnsson fram-
kvæmdastjóri. Verksmiðj-
an framleiðir vörur sínar
úr mokkaskinni sem er
lambsskinn unnið á sér-
stakan hátt hjá Skinna-
verksmiðjunni Iðunni á
byrjun
Akureyri. Hjá Gráfeldi
tíðkast það að sami
maðurinn vinnur flíkina
frá byrjun til enda og
telja forráðamenn að það
tryggi betri vörugæði en
þar sem hin svokallaða
færibandavinna er notuð.
Gráfeldur framleiðir
aðallega fyrir innanlands-
markað og hefur salan, að
sögn forráðamanna, auk-
ist jafnt og þétt frá því að
verksmiðjan tók til starfa.
Auk nýju sniðanna eru
á boðstólum hjá Gráfeldi
lúffur sem þeir kveða
mjög vinsælar.
Karl Jóhann Þorsteins frá Eddu h.f.