Morgunblaðið - 06.09.1978, Page 30

Morgunblaðið - 06.09.1978, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR, 6. SEPTEMBER 1978 ENGIR AUKVISAR I LAUGARDAL í KVÖLD Fyrsti Evrópuleikur landsliðsins gegn pólska knattspyrnustórveldinu ÞAÐ ERU engir aukvisar. sem íslenzku landsliðsmennirnir mæta á Laugardalsvellinum í kvöld. Eí litið er á árangur Pólverja í stórmótum knattspyrnumanna síðustu G árin kemur í ljós. að þeir urðu Ólympíumeistarar 1972 og hlutu silfurverðlaunin á ÓL í Montreal 1976, töpuðu þá naumlega fyrir A-Þjóðverjum. I heimsmeistarakeppninni hafa þeir verið í úrslitum í tvö síðustu skipti, í Miinchen 1974 og Argentínu 1978. Framhjá þessum staðreyndum verður ekki gengið þó svo að Pólverjar standi nú á nokkrum tímamótum með lið sitt. I lands- liðshópnum, sem hingað kemur, eru átta leikmenn, sem tóku þátt í leikjum liðsins í Argentínu. Sá ,sem íslenzkir knattspyrnuáhuga- menn þekkja bezt úr landsliðshópi Pólverja er vafalaust Grezegorz Lato, en hann hefur verið einn helzti markaskorari Pólverja á velgengnistímum undanfarinna Úr hópnum er saknað manna eins og Deyna, Lubanski og Tomazewski, en það þarf enginn að halda að Pólverjar haldi til leiks í Evrópukeppni með landslið skipað byrjendum. Þeir leggja örugglega mikla áherzlu á þennan leik og ætla sér ekkert nema sigur í honum. Pólverjar tilkynntu nöfn 18 leikmanna sem kæmu hingað til lands og þeirra á meðal erú nöfn Latos og Boniek, en þessir tveir leikmenn voru hins vegar ekki í 16 manna hópi í Finnlandi í síðustu viku. Þá sigraði Pólland 1:0 í vináttulandsleik. Þá voru eftirtaldir 11 menn í byrjunariiði Pólverja. 1. Z. Kukla 2. A. Szymanowski, fyrirliði 3. 11. Maculewics 4. W. Rudy 5. S. Majewski 6. T. Blachno 7. M. Kusto 8. B. Maztaler 9. R. Ogaza 10. J. Kupewica 11. S. Terlecki íslenzka liðið hefur dvalið á Þingvöllum meira og minna síðan á fimmtudag ásamt landsliðsþjálf- aranum Youri Ilytchev. Landsleik- urinn á sunnudag var örugglega mjög góð æfing fyrir landsliðs- mennina. Þar var æfð leikaðferð, sem væntanlega verður notuð á svipaðan hátt í kvöld. Árni Stefánsson verður væntanlega í markinu með þá Árna Sveinsson, Jóhannes Eðvaldsson, Jón Péturs- son og Gísla Torfason fyrir framan sig. Á miðsvæðinu yrðu þá væntanlega sömu leikmenn og gegn Bandaríkjunum, Karl Þórð- arson, Hörður Hilmarsson, Janus Guðlaugsson og Atli Eðvaldsson. Frammi yrðu síðan Pétur Péturs- son og Guðmundur Þorbjörnsson. Youri Ilytchev sagði á blaða- mannafundi í fyrradag, að hann myndi gera ákveðnar breytingai', en væntanlega hefur hann þar átt við stöðubreytingar frekar en aðrar breytingar á byrjunarliði en urðu við heimkomu „útlending- Reyndar vekur nokkra athygli að þeir Árni Stefánsson og Jón Pétursson skuli vera sóttir í þennan leik og ekki sízt eftir góða frammistöðu nýliða í stöðum þessara kappa í landsleiknum við Bandaríkjamenn. Youri segir, að meiri reynslu vanti í liðið og það eru góðar fréttir sem undanfarið hafa borizt frá Svíþjóð um frammistöðu þessara leikmanna. Um Jóhannes Eðvaldsson verður varla deilt, hann hefur lengi verið kjölfesta í landsliðinu og stjórnað því af ákveðni sem fyrirliði í mörgum erfiðum leikjum. Enn eru 18 leikmenn í landsliðs- hópnum íslenzka, en þeim verður fækkað niður í 16 fyrir leikinn í kvöld. Eftirtaldir eru í hópnum, landsleikjafjöldi í svigum: Þorstcinn Bjarnason. iBK (1) Diörik Ólafsson, VíkinKÍ (3) Árni Stefansson, JönköpinK (13) Árni Sveinsson, ÍA (16) Dýri Guömundsson, Val (1) Róbert Airnarsson. VfkinKÍ (1) Gísli Torfason, ÍBK (27) Janus GuðlauKsson, FH (8) SÍKurður Björgvinsson. iBK (1) Atli Eðvaldsson, Val (8) Hörður Hilmarsson, Val (12) Karl Þórðarson, ÍA (3) Pétur Pétursson. ÍA (2) Guðmundur Þorbjörnsson, Val (9) Ingi Björn Albertsson. Vai (11) Ólafur Júlíusson. IBK (15) Jóhannes Eðvaldsson, Celtic (24) Jón Pétursson. JönköpinK (20) Leikurinn í kvöld hefst klukkan 18.15 og dómari verður T. Perry frá N-írlandi, en línuverðir þeir Lorimer og Haughey landar hans. -áij • Árni Stefánsson bjargar á síðustu stundu í leik Jönköping og Saab sem fram fór um síðustu helgi og endaði 0-0. í þessu úthlaupi sínu fékk Árni mikið spark í brjóstið og þurfti að fara á sjúkrahús. Sem betur fer reyndust meiðslin þó ekki vcra alvarleg. ÆTLUÐU AÐ BERJA TEIT Árni hetja Jönköping TEITUR Þórðarson hefur staðið sig mjög að undanförnu í sænsku knattspyrnunni eins og þegar hefur komið fram. Hefur mikið verið rætt og ritað um hann 1 sænsku blöðunum að undanförnu, og f einu sænska dagblaðanna fyrir skömmu var heilsíðuviðtal við Teit. Teitur hefur gert mótherjum sínum erfitt fyrir með því að skora mörk á þýðingarmiklum augna- blikum. Hljóp þetta svo í skap nokkra leikmanna Malmö eftir leik þeirra við Öster, lið Teits, fyrir skömmu að eftir leikinn ætluðu þrír Jyeirra að gera aðsúg að Teit og slá til hans. Urðu annar línuvörður leiksins og markvörður Öster-liðsins að ganga á milli. Teitur skoraði sigurmark Öster í leik þessum, og hafði hann einnig í leiknum lent í návígi við leikmenn þá sem ætluðu að gera aðsúg að honum eftir leikinn. En Teitur er ekki sá eini sem gerir það gott. íslendingarnir tveir í liði Jönköbing, þeir Jón Péturs- son og Árni Stefánsson mark- vörður, hafa báðir staðið sig vel að undanförnu. Sérstaklega þó Árni sem hefur átt hvern stórleikinn í markinu að undanförnu að sögn Jóns Péturssonar. I síðasta leik Jönköping sem var á móti Saab nú um síðustu helgi, var Árni maðurinn á bak við jafntefli Jönköpings. Saab sótti mun meira í leiknum en hvað eftir annað bjargaði Árni Stefánsson á meistaralegan hátt. Fóru sænsku blöðin lofsamlegum orðum um leik Árna. Er gott til þess að vita að Árni er í svo góðri æfingu um þessar mundir. Því ekki mun víst veita af í leiknum á móti Pólverj- um í kvöld. Þr. • Friðfinnur Finnbogason hefur betur en Billy Gaskey að þessu sinni, Einar Friðþjófsson er Friðfinni til trausts og halds. (Ljósm. Kristján) Fjöldinn allur af dauðafærum nægði ekki ÍBV EFTIR jafntefli ÍBV gegn Glen- toran í fyrri leik liðanna í UEFA-bikarkeppninni, eru marg- ir á því, að möguleikar Vest- mannacyinga á frekari þátttöku séu nú frekar litlir, útivöllur er oftast erfiðari viðureignar. En Eyjamenn geta sjálfum sér um kennt, því að þeir sóttu lengst af mun meira og þeir fengu slík færi, að manni þótti ótrúlegt eftir á, að leiknum skyldi ljúka án marka. Lið Glentoran var slakt, en eigi að síður fengu þeir einnig tvö mjög góð færi, sem hefðu átt að enda með mörkum. Fyrstu fimmtán mínúturnar léku Eyjamenn mjög vel og Glentoran að sama skapi mjög illa. Fengu Eyjapeyjar þá þrívegis ágæt færi, en aldrei hæfðu þeir markið, og einu sinni hæfðu þeir ekki einu sinni knöttinn og var það hugsanlega besta færið af þessum þrem. Leikurinn jafnaðist eilítið eftir þetta, en ÍBV var þó ávallt meira í sókn. Um leið og leikurinn jafnaðist varð hann einnig mun leiðinlegri þeim sem á hann horfðu. Glentoran átti í fyrri hálfleik aðeins eitt umtalsvert færi, en það var þegar Caskey skallaði naumlega framhjá mark- inu. Snemma í síðari hálfleik, komst Sigurlás einn inn fyrir vörn Glentoran og tókst að koma skoti á markið, þrátt fyrir að varnar- maður væri að bisa við að toga í peysu hans aftan frá, knötturinn hrökk í stöngina, áhorfendur ærðust, boltinn hrökk þvert fyrir markið og útaf hinum megin. Áhorfendur tóku ró sína á ný. Þegar á hálfleikinnn leið, fóru Eyjamenn smám saman að missa tökin sem þeir höfðu óumdeilan- lega haft á honum. Það er ekki þar með sagt, að Irarnir hafi farið Sjá einnig blaðsíðu 19 batnandi, þvert á móti, þeir hjökkuðu í sama farinu og síðari hluti síðari hálfleiks var tíðinda- snauður og beinlínis lélegur. Hann átti þó sín augnablik, Caskey skaut naumlega yfir um miðjan hálfleikinn og á síðustu mínút- unum komst hann einn inn fyrir vörn ÍBV, en skot hans hæfði þverslána. í sóknarlotu Eyja- manna, sem í kjölfarið fylgdi, fengu þeir hornspyrnu og upp úr henni var bjargað af línu skalla frá Friðfinni Finnbogasyni. Það verður því erfiður róðurinn hjá ÍBV, þegar þeir sækja írana heim með ekki svo mikið sem eitt mark í pokahorninu. Langbesti leikmaður ÍBV í gærkvöldi var Sigurlás Þorleifs- son, einkum í fyrri hálfleik og framan af þeim síðari, en síðan fór hann dofnandi eins og flestir leikmannanna á vellinum. Örn var einnig góður, Þórður, Friðfinnur og Kart á köflum. Billi Caskey átti þau færi sem Glentoran fékk og mátti vart af honum líta. Um aðra í írska liðinu er vart talandi, nema ef vera skyldi til þess að skamma þá fyrir tuddaskapinn, en nú eins og gegn Val fyrir ári, virtust sumir Iranna hafa meiri áhuga á að sparka í mótherjana en boltann. Og í beinu framhaldi af því komum við að dómaranum, sem dæmdi leikinn illa. Hann var skosk sending og heitir R.B. Valantine. Engu var líkara en hann hefði gleymt gulu spjöld- unum heima og svo þegar hann fann þau loksins, var það Óskar Valtýsson sem var bókaður, en áður hefði verið ástæða til þess að bóka minnst hálfa tylft íra. Eftir leikinn voru framkvæmda- stjórarnir báðir mjög hressir og sá írski þó sýnu hressari eins og gefur að skilja. — Ég er mjög ánægður, já mjög ánægður, við leggjum þá örugglega að velli heima. George Skinner tók jafnteflinu með jafnaðargeði og sagði sem var að ekki hefði verið ósanngjarnt að ÍBV hefði skorað 2—3 mörk í fyrri hálfleik, en svona væri nú knatt- spyrnan. — Kg-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.