Morgunblaðið - 19.11.1978, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978
15
Úr ferdabók Úlriks
Sérstæð sýning stendur nú
yfir í Bókasafni Norræna huss-
ins. Þar eru til sýnis handskrif-
aðar síður úr ferðabók og
teikningar, sem fylgja þessari
frásögn af mikilli reisu, sem
farin hefur verið um Evrópu og
Suður-Ameríku. Ferðamaðurinn
er arkitekt og skíðakennari,
fæddur í Þýskalandi, en auðsjá-
anlega orðinn ríkisborgari hér-
lendis, þar sem hann ber eftir
íslenskum lögum föðurnafn sitt
Arthúrsson. Hann mun vera
búsettur hérlendis og kona hans
mun íslensk, eftir því sem mér
skildist á stuttum formála, sem
komið hefur verið fyrir við
inngang að sýningunni.
Ekki man ég eftir að hafa séð
sýningu af þessu tagi hér á landi
áður og heldur ekki erlendis. Að
mínu áliti er það skemmtilegt að
kynnast dagbók og teikningum
Úlriks Arthúrssonar, og ég held,
að það sé ágæt hugmynd, sem
hann framkvæmir, að láta
Myndllst
eftir VALTÝ
PÉTURSSON
póstkort fylgja, þannig að hægt
er að sjá hvernig hann fer með
fyrirmyndir sínar. En ég held,
að það sé ekki löstur á þessum
unga manni, að margar af þeim
teikningum, sem hann sýnir nú í
Norræna húsinu, minna dálítið
á teikningr þess fræga meistara
DUFY. Þetta er ef til vill heldur
mikið sagt, en það er skyldleiki í
verkum þessara teiknara, sem
leynir sér ekki. Þeta er lífleg
sýning, og skrifuðu síðurnar líta
mjög vel út. Teikningarnar eru
snöggar, en samt yfirvegaðar,
en stúndum er eins og vanti það,
sem mestu máli skiptir, og þær
verða ekki nægilega kraftmikl-
ar. Það ér sannast sagna, að
þessi sýning ber meir vitni um
fjörlegt handbragð en yfirveg-
aða og þrauthugsaða meðferð
línu. Enda held ég, að hér sé
fyrst og fremst um augnabliks-
myndir að ræða, en þær hafa
margar hverjar sérstakt fjörlegf
yfirbragð, sem mundi fara
forgörðum með meiri natni og
hnitmiðaðri vinnubrögðum.
Mér þótti skemmtilegt að líta
á þessi reisubókarblöð, og ég
vildi gjarnan, að maður fengi
oftar að sjá eins léttar sýningar,
sem ekki gera nokkurt tilkall til
að verða heimslist í þeim eina
rétta skilningi. Það væri ekki
fráleitt, að til dæmis teiknari
Morgunblaðsins, Sigmund, héldi
sýningu á sínum bestu verkum,
þótt þar sé um að ræða verk af
öðrum meiði. Mér datt þetta
svona í hug, er ég skoðaði þessa
sýningu Úlriks. Hver veit, nema
að einhverjir lumi á skemmti-
legum hlutum, sem þeim hefur
ekki dottið í hug, að væru
sýningarefni. Það er aftur á
móti mikið á ferð af hlutum,
sem varla verða taldir sýningar-
efni, en það er önnur saga, sem
ekkert erindi á hér.
Eins og ég sagði í upphafi, er
þetta sérstæð sýning, sem vel er
þess virði að líta á. Það er einnig
ágæt hugmynd að hafa sýningar
í Bókasafni Norræna hússins, og
hefur það sannarlega aukið á
starfsemi þar. Læt þetta nægja
að sinni.
Ljóðakver
ungs manns
„Sýnir“ heitir dálítið ljóðakver
eftir Sigurjón Birgi Sigurðsson,
sem kom út á dögunum. Höfundur,
sem er námsmaður hér í Reykja-
vík, samdi ljóðin þegar hann var
fimmtán ára og gaf svo út í
takmörkuðu upplagi núna á
sextánda afmælisdeginum sínum.
Kverið er prýtt teikningum eftir
„Vision". Letur h.f. fjölritaði.
HVAÐ HEITA
MARANTZ TÆKIN
A STRÆTISI/OGNUNUM ?
/ nóvembermánuöi auglýsum við fjögur
MARANTZ-tæki á strætisvögnum Reykjavikur
og Kópavogs. Hver sá sem sendir inn eyðu-
blaðið, hér til hliðar, rétt útfyllt á kost á þvi að
vinna 300.000 króna vöruúttekt hjá okkur. Dregið
verður úr réttum lausnum og vinningur afhentur
hinum heppna á Þorláksmessu. Enginn er of
ungur, gamall eða ófróður um MARANTZ hljóm-
tæki tii að taka þátt i getrauninni, þvi að heiti
tækjanna standa skýrum stöfum i auglýsing-
unum. Aðeins smáathygli, annað ekki.______________
Siöasti innsendingardagur er 5. desember.
leióandi fyrirtæki
á sviðt sjónvarps
útvarps og btjómtækja
VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGi 10. SIMAR: 27788,19192,19150
MARANTZ magnarinn heitir:.
MARANTZ útvarpsmagnarinn heitir:.
MARANTZ plötuspitarinn heitir:
MARANTZ kassettutækið heitir:
Nafn þátttakanda.
Heimiii. Sfmi.
Fæðingardagur.
Sendist Nesco hf. Laugaveg 10, 101 Reykjavik
fyrir 5. desember W78