Morgunblaðið - 19.11.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.11.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978 Minning—Sigurö urRafn Jósefsson Ilver kynslóð er örstutt un^ aftur til Krafar her. en eilifðar aldan þunK lyftir annarri á brjósti sér. I>á kveðjum við öll, voru kvöldi hallar. en kynslóð nýja til starfa kallar sá daKur. sem órisinn er. Tómas Guðmundsson. Sijíurður Rafn Jósefsson vél- stjóri lézt hinn 26. ágúst s.l. á sjúkrahúsi í Halifax 54- ára að aldri. Rafn eins o}< hann var venjulega kallaður, var fæddur á ísafirði hinn 29/10 1923, sonur hjónanna InKÍbjarjjar Fr. Björnsdóttur oj< Jósefs Gíslasonar bryta. Hann ólst upp ásamt tvíbura- bróður sínum, Guðmundi Gretti, hjá foreldrum sínum á ísafirði og á Patreksfirði til 9 ára aldurs en þá veiktist móðir þeirra alvarlega oíí vegna langvarandi veikinda hennar var dren>ýunum komið í fóstur. Rafn fór til föðurfrænku sinnar, Guðrúnar Þórðardóttur, og manns hennar, Egils Jónssonar, í fóstur, er þá bjuggu á Guílhúsá á Snæfjallaströnd en fluttust síðar í Arnardal við ísafjörð. Þarna átti Rafn aðeins að vera til hráðabirgða, en þarna varð hans heimili og skjól til tvítugs- aldurs, að hann fer að stunda sjómennsku á bátum frá ísafirði. Rafn stóð alla tíð í mikilli þakkarskuld við þetta ágæta fólk sem reyndist honum sem bestu foreldrar, og börn þeirra honum ævilangir vinir. Árið 1948 tók Rafn vélstjórapróf í Reykjavík með ágætiseinkunn og starfaði hann síðan sem vélstjóri á fiskiskipum frá Isafirði. Um vorið 1949, þegar Björgvin Bjarnason útgerðarmaður gerði sína frægu tilraun með línuveiðar við Grænland, og sendi þangað sín fjögur skip, Hugann 1., Hugann 2., Richard og Gróttu, þá réðst Rafn sem fyrsti vélstjóri á Gróttu, sem var þeirra stærst, hjá Guðjóni Halldórssyni, sem þá var skip- stjóri á skipinu. Með þeim á skipinu var einnig Guðmundur Grettir bróðir Rafns sem stýrimaður, og Ólafur Egils- son, fósturbróðir Rafns, 15 ára, sem háseti. Um haustið 1949 sendir Björg- vin Bjarnason síðan skipin öll á Nýfundnalandsmið, stofnar þar síðan hlutafélag til útgerðar og leggur skipin þar inn sem sitt framlag. Skipin komu síðan aldrei aftur til Islands. Rafn starfaði áfram á skipinu og Ólafur fósturbróðir hans, þar til þessi útgerð lagðist niður, en flestir aðrir af áhöfninni héldu heim, svo var og á hinum skipun- um. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúö og hluttekningu viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu HLÍFAR SIGURDARDÓTTUR Sigfúni 7, Selfosai, Sigríöir Þorvaldsdóftir, Sigurgeir Ingvaeon Böövar Guömundaaon, Magnea Bjarnadóttir Béróur Guómundsson, Anna K. Kriatinsdóttir og barnabörn. t Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, SIGRÍÐAR SIGURDARDÓTTUR, fré Aai, Hringbraut 1, Hafnarfiröi. Ingimundur Guömundsson börn, tengdabörn og barnabörn. + POVL CHR. AMMENDRUP kaupmaúur, Tunguvagi 7 er lézt í Borgarspítalanum þann 12. nóv. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 21. nóvember kl. 13.30. Taga Ammendrup, María M. Ammendrup Péll Ammendrup, Axel Ammendrup María J. Ammendrup, Þórdia H. Ammendrup Sigrún Ammendrup, Fríóa Ammendrup Emelía Samúeledóttir, Ebba Ammendrup Jóhann Georg Möller, Rita og Nils Sloth Emmy Ratmusen, t Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför fööur okkar oq bróöur, STEINGRÍMS KL. GUÐMUNDSSONAR, mélarameistara. Guðmundur Steingrímaaon, Halldór Steingrímsson, Karl J. Steingrímason, Ágústa Guðmundsson, Veiga Hammarström. t Þökkum hjartanlega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, sonar, tengdasonar og bróöur VIGNIS SIGURÐSSONAR vélstjóra, Dverghamri 41, Vestmannaeyjum Sandra ísleifsdóttir, ísleifur Vignisson, Siguróur Vignisson Anita Vignisdóttir, Oktavfa Guömundsdóttir Adda Magnúsdóttir, Engilbert Jóhannsson Elsa Siguróardóttir, Oddný Sigurðardóttir. Síðar fer Rafn til Halifax og starfar hann þar seiii vélstjóri en nú á vélaverkstæði og líkar þar vel, kynnist þar og kvænist ungri innlendri stúlku, Mavis að nafni, og hafa þau nú eignast 5 mann- vænleg börn, það elsta, Bruce, 23 ára, og það yngsta, Kristján Rafn, 9 ára. Á Nýfundnalandi stundar Rafn síðan mest vélstjórastörf eða er með báta, meira og minna viðrið- inn útgerð og veiðar. Fyrir nokkrum árum fór hann til Vancouver á vesturströnd Bandaríkjanna og var þar skip- stjóri á 70 lesta bát er hann átti með öðrum, og stunduðu þeir þar lúðuveiðar um nokkur ár með sæmilegum árangri. Síðan flyzt hann aftur austur á bóginn og nú á vesturströnd Nýfundnalands, og fer að vinna þar við framleiðslu á hydroliskum vindum fyrir fiski- skip hjá HAWBOLDT industry Co, og hafði hann líka með niðursetn- ingu á spilunum og frágang allan að gera í skipunum og vann elsti sonur hans, Bruce, að þessu með honum, og nú, að Rafni látnum, hefur Bruce sonur hans tekið við þessu starfi föður síns. í maí á þessu ári kenndi Rafn sér lasleika og fór til Halifax til rannsóknar, skömmu síðar var hann skorinn við meinsemd í höfði og reiknaði hann með að hafa fengið bata og var kominn heim aftur, en það var skammvinn bót, því að þremur mánuðum síðar var hann allur. Hann var jarðsettur að Queensport, þar sem heimili tengdaforeldra hans er, og hann og eftirlifandi kona hans kynntust, en þetta pláss er um 200 km austur af Halifax. Þegar litið er yfir ævibraut þessa vinar míns, sem ég hef reynt að rekja í stórum dráttum, þá sér maður, að menn lenda oft inn á örlaga- eða forlagaleið sína óvart, óvænt eða óafvitandi og óvið- ráðaniega. Svo og þá staðreynd, að enginn veit nær kallið kemur, og enginn veit hvar staðar nemur í þessu lífi. Þær eru margar hinar eilífu ósvöruðu spurningar lífs og til- veru. Hver faðir, hver móðir, hvert barn, allir verða að taka með tilveru sinni þá áhættu að lifa, hvernig svo sem þar ræðst úr málum. Við eigum þar alla hluti í voninni og trúnni á þann herra er stýrir stjarnanna her og stjórnar veröldinni, um lífsafkomu og lífshamingju, og um þennan vanda og tilveruárangur stendur svo öll vor lífsbarátta. Rafn fer að heiman með þann ásetning og fyrirætlan að koma fljótlega aftur til síns heimalands, líkþ var og á komið hjá Olafi fósturbróður hans, en báðir þessir, þá ungu menn, eru enn ósnúnir til Islands, og staðfesta þá gömlu speki, að maðurinn upphugsi sinn veg, en Drottinn stýri hans gangi. Þeir finna báðir sitt lífsljós, ástina, lífsstarf og lífsvettvang vestan hafs og stofna þar sitt heimili og setjast þar að. Veröldin knýr í dag á dyr okkar allra og alla vora daga á margvís- legan og margslunginn hátt, og kemur innfyrir í sama hlutfalli og við opnum dyrnar að sjálfum okkur fyrir henni. Öfl og töfrar þessarar áleitni veraldarinnar knýja og hvetja ævintýraþrána, innblása í hug okkar uppörvun, dug til dáða og afreka. Margir af bestu sonum þessarar jarðar hafa lagt út í óvissuna, til þess óþekkta og framandi, og opinberast víðsýni og þekking, sem gjörbreytt hefur lífi okkar og tilveru og gert hefur heiminn að því sem hann er í dag. Nú á dögum eru leiðir þessara frumherja öllum opnar, kunnar og færar, aðeins ef við viljum greiða það gjald er ferðin útheimtir. Hvert þjóðernið er eða hvar er lifað hverju lífi í veröld vorri, skiptir kannski ekki mestu máli, heldur hitt, að maðurinn sé maður, sem ávaxtar líf sitt og störf öðrum til gagns og biessunar, og þannig þjóni lífinu, þróuninni og framför- unum, hinum mikilvæga tilgangi mannlegs lífs. Það er bjart yfir minningu Sigurðar Rafns Jósefssonar í hugum vina hans og vandamanna, og það er gott að minnast góðra drengja, sem ávallt voru vaxandi menn og batnandi. I Rafni voru ofnir saman margir þeir lifsþræðir, sem mest mega prýða mætan mann, háttvísi, hófsemi, þrautseigja og þolgæði. Rafn barðist áfram hörðum höndum í anda dugnaðar og manndóms, harðhugaður og ósér- hlífinn, það er allsstaðar skortur á slíkum mönnum. Líkt má segja um Ólaf Egilsson fósturbróður hans, er 15 ára leggur út4 heiminn og óvissuna, en er nú mikils metinn starfsmaður hjá Department of Fisheries í Nova Scotia. Ólafi og systkinum hans vil ég á þessari stundu þakka ævilanga vináttu og tryggð við Rafn og fjölskyldu hans. Þessi fátæklegu kveðjuorð mín sanna mér enn einu sinni þann veruleika, að á skilnaðarstund góðra vina, og í þeim punkti er lífið hættir og eilífðin tekur við, og maður á á bak að sjá atburðarás heillar mannsævi, þá verða orð aflvana, hljómlaus og óþörf. Þær tilfinningar tómleika, trega og saknaðar verða aldrei sagðar eða tjáðar í orðum, aðeins lifaðar sem reynsluþungi og einkamál, er maður varðveitir í þögn og leynum hjarta síns. Ollum er okkur afmörkuð ævi- stund, því örlagahjólið snýst. Dauðinn er, hefur verið og verður ávallt hið eilífa og heilaga grund- vallarlögmál lífs okkar og tilveru, og örlaganauðsyn, líkt og nótt fylgir degi og vetur sumri. Líf vort er aðeins stundarblik eða leiftur hins eilífa ljóss. Á kveðjustund þessa vinar míns er það mér huggun að vita, að hvarvetna í hinum helgu bókum er skráð: „Að maðurinn sé ekki aðeins forgengilegur líkami, held- ur og ódauðleg sál.“ Mikilvægi tilvistar okkar sé því í sálinni, sem glæöir duftið lífi. Veruleiki okkar sé ekki í líkaman- um, heldur utan við hann í sálareiginleikum vorum, hinum andlega mikilleik mannssálarinn- ar — Megi niðjar Rafns taka í arf drenglyndi hans, þrek, áræði og heiðarleik. Eftirlifandi konu hans og börnum og vinum hans öllum, velunnurum og ættingjum votta ég mína einlægustu samúð. Endurútgáfa á verk- um Jóhanns Kúld ÆGISÚTGÁFAN hefur sent frá sér í einu bindi tvær bækur eftir Jóhann Kúld, „Svt'fðu segli þiindu" og „íshafsævintýri." Á bókarkápu segir svoi „Þessar tvær bækur Jóhanns Kúld eru hér endurprentaðar í einu bindi. Þær komu út fyrir hartnær 4 áratugum og hafa um fjölda ára verið algerlega ófáan- legar. Lýsingar sem hér er að finna eru skáldskap líkastar, þótt þar sé hvert orð satt, enda vænir enginn Jóhann Kúld um að ara með fleipur. Selveiðar í Norðurísnum — Hrikaleikur æðisgenginna náttúruafla — Barátta um líf eða dauða — Línuveiðar með norskum á Islandsmiðum — Ævintýraleg slagsmál um borð — Ótrúleg útgerðarsaga á Siglufirði — Land- leguróstur og kvennamál og áfram mætti telja, því svona er öll þessi bók, æsispennandi frá upphafi til enda. Bók sem enginn sjómaður getur látið ólesna." Vísnasögur Richards Scarry KOMIN er út hý Scarry-bók hjá Bókaútgáfunni Erni og Örlygi og nefnist hún Myndskreyttar VÍSNASÖGUR. Þýðandi er Andrés Kristjánsson. Svo sem nafn bókarinnar ber með sér þá eru sögurnar sagðar með myndum og léttbundnu máli. Alls eru sögurnar um fimmtíu talsins og kennir þar hinna ólíkustu grasa. „Bækur Richards Scarry hafa farið sigurför um allan heim á síðustu árum, en þær höfða aðallega til yngstu lesendanna,“ segir í fréttatilkynningu frá útgef- anda. Lítid barn hef ur lítið sjónsvið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.