Morgunblaðið - 19.11.1978, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.11.1978, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978 Svona er raunar lífið Ása Sólveigi Einkamál Stefaníu. Útgefandii Örn og Örlygur. Reykjavík 1978. Fyrir nokkrum árum var um þaö rætt, að skáldsagan væri' brátt úr söjíunni sem tjáninfjarform. Ég var ekki á sama máli. Enn og alltaf munu menn segja sögur, og meðan svo er, munu menn með skáldgáfu finna hjá sér hvöt til að gera það í því formi, að efnið njóti sín sem best; rétt eins og höfundar Mósebóka og Islendingasagna end- ur fyrir löngu. Ég held, að þeir, sem boðuðu dauða skáldsögunnar, hafi og einkum verið menn, sem helguðu sig öðrum tjáningarform- Bókmenntir eftir GUÐMUND G. HAGALÍN um og fannst þá, að þau ein væru tímabær. Og hvað er svo nú að gerast á Islandi? í fyrra komu út nokkrar misgóðar skáldsögur, og í ár hygg ég þær muni fylla tuginn. Ég hef þegar ið tvær vandlega og litiö ofan í t'leiri, og ég sé ekki betur, en þarna sé að skjóta upp þroskavænlegum gróðri. Með ánægju las ég sögu Asu Sólveigar, Einkamál Stefaníu og fæ ekki betur séð en þar sé á ferð skáldkona, sem veigur er í. Hún segir söguna ósköp blátt áfram, mál og stíll hvort tveggja hagan- lega mótað til samræmis við efni sögunnar, án allra tiktúra og hundakúnsta. Sagan er sögð i Ég-formi, og aðalpersónan er sú, sem segir hana og bókin dregur nafn af. En auðvitað kemur fleira fólk við sögu, en svo til allt er það í nánum tengslum ættar eða mágsemda, en söguþráðurinn er fyrst og fremst tvö hjónabönd og út frá þeim hin margumtöluðu samskipti kynj- anna og réttur þeirra og skyldur innan takmarka hjónabandsins og að nokkru út á við. Mest fer þar fyrir „einkamálum Stefaníu" og lýsingin á þeim er það, sem gefur bókinni að mínum dómi óvenjulegt gildi. Skáldkon- unni hefur sem sé tekizt að fjalla á eðlilegan, grómlausan og næsta eftirminnilegan hátt um þar efni, sem ýmist hefur verið tæp. á af allt að Ijví kátlegri hispurs- mennsku eða svo klúrt og klaufa- lega, að oft hefur úr orðið andstyggilegt klám. Hjá Ásu Sólveigu verða samfarir karls og konu og leit þeirra að kynferðis- legri fullnægingu veigamikill og náttúrulegur þáttur i eðlisbund- inni hamingjuleit. Blátt áfram lýsir hún síðan tilfinningum og viðhorfi skynsamrar og skapfastr- ar konu til þungunar og þá einnig meðgöngu barns, allt frá því hún verður þess vís, hvað í vændum er, og þar til hún kennir sín, barnið fæðist og er laugað og lagt við brjóst. Er lýsingin á tilfinningum hennar um meðgöngutímann og því, sem á hverja konu er lagt, þegar þar að kemur að hún verður að lifa hið fornkveðna: með þraut skalt þú þín börn fæða, — svo nákvæm, að þar virðist ekkert undan dregið. Öllu þessu er lýst jafn hispurslaust og af slíkum hreinleika hugarfarsins, að á betra verður ekki kosið, og mætti það verða til fyrirmyndar, þegar höf- undar fjalla um þessi mikilvægu mál í lífi hverrar konu, sem verður barns auðið. Svo er það andstæðan, hjóna- band Rúnu og Einars, sonar hinnar reyndu og skapmiklu gerð- arkonu, Hólmfríðar, móðursystur Stefaníu. Þar er annað uppi á teningnum en í hjónabandi þeirra „vel gefnu konu", sem skilur, hvar hún verður að fara sínu fram og hvar og hvenær hún verður að fara að vilja bónda síns, þó að henni sé það ekki ljúft. Rúna er dul og mjög viðkvæm, og hana skortir rögg- semi og raunsæi Stefaníu. Einar skilur hana ekki, enda tengsl þeirra ekki svo náin, sem æskilegt hefði verið. Hún gerist einræn og meira og meira miður sín, og þá er Stefanía vill hjálpa henni, reynist það árangurslaust, Rúna getur ekki tjáð sig og því ekki unnt að liðsinna henni, enda gerir hún sér sjálf ekki grein fyrir því, í hverju óhamingja hennar er fólgin. Ein- ari verður það ekki fyrir að reyna að fá trúnað hennar, og svo hleðst upp innra með honum múr beiskju og tortryggni. Hann grípur svo til þess ráðs að sýna henni sitt karlmannlega vald, henni tjói ekkert víl eða vol, hvað þá að fara á bak við hann, enda skorti hana ekkert af þvi, sem honum beri að sjá henni fyrir. Til mikils harms fyrir hann sjálfan og allt frændlið- ið fyrirfer hún sér á þann áberandi hátt að fleygja sér út um glugga á íbúð þeirra hjóna, sem er á sjöttu hæð í háhýsi. Ég get svo bætt því við, að hver einasta persóna, sem við sögu kemur, er dregin skýrum dráttum, og ekki held ég að neinn, sem byrjar að lesa þessa bók, muni þurfa að láta sér leiðast. Og hann mun segja eins og ég: Svona er raunar lífið, ef maður gefur sér tóm til að skyggnast hugsandi í kringum sig. Guðmundur Gfslason Hagalfn. N áttúru vernd á Snæf ellsnesi Fréttabréf úr Breidu víkurhreppi 8. nóvember 1978 Tíðarfar Siðan um miðjan október hefur tíð verið mjög stirð, miklar úrkomur, stormasamt og um- hleypingar. Snjór hefur ekki komið hér enn svo teljandi sé og fáar frostnætur. Sauðfé er ekki komið á hús nema á 3 bæjum. Sauðfjárheimtur eru ekki góðar, marga vantar talsvert enn. Útgerð Ekkert hefur verið róið í haust, enda mjög sjaldan komið sjóveður. Veturnótta tilstilla kom ekki að þessu sinni. Fóðurforði bænda Ég hef nú lokið haustskoðun hjá bændum og er ásetningur góður hjá flestum og heyin mjög góð hjá sumum og vel í meðallagi þegar á heildina er litið. Mannafundir Á sunnudaginn 5. nóvember hélt Náttúruverndarráð fund í félags- heimilinu á Arnarstapa. Öllum hreppsbúum var boðið á fundinn og einnig mættu nokkrir utan- hreppsmenn á fundinn, jarðanefnd o.fl. Náttúruverndarráð veitti öllum fundarmönnum kaffi og kökur og voru veitingar þessar framreiddar af miklum myndarbrag, og þeim til sóma er veittu og konum hreppsins sem framreiddu. Um 30 manns sátu þennan fund, sem var óformlegur. Á fundinum var aðalumræðuefni náttúruvernd í Breiðuvíkurhreppi þó að víðar væri við komið. Einnig urðu nokkrar umræður um sumar- bústaðabyggingar. Frá Náttúru- verndarráði mættu á fundinn Eyþór Einarsson, Árni Reynisson, Páll Líndal og Jón Gauti Jónsson. Þeir gáfu fundarmönnum í upp- hafi fundar mjög góðar og glöggar upplýsingar um náttúruvernd og friðun. Ég held að fundarmenn hafi orðið miklum mun fróðari um þessi mál eftir þennan fund en áður. Þótt á þessum fundi heyrð- ust greinilega hjáróma raddir, mátti ráða að yfirgnæfandi meiri- hluti fundarmanna var hlynntur náttúruvernd og friðun. Náttúruverndarráð kom með tillögu um friðun á svæði meðfram ströndinni við Hellna og Stapa og sýndi kort og uppdrætti þar að lútandi. Þetta fyrirhugaða friðaða svæði nær að vestan frá Brún- kolluholti og að Grísaforsá að austan, misjafnlega breitt eftir staðháttum en óslitið. Talsvert \ ; um þessa friðunar- tillögu rætt. Orfáir gerðu athuga- semdir við hana, en flestir voru henni samþykkir. Skiptar skoðanir voru um hvort hafnarsvæðið við Arnarstapa skyldi vera inni á friðaða svæðinu. Sumir voru því hiynntir, aðrir ekki. Varðandi sumarbústaðabygg- ingar var minnst á þá ásókn sem orðin er í að fá lóðir undir sumarbústaði hér á nesinu og þann vanda sem því fylgir að útvega land undir þá. Og í því sambandi bentu sumir fundar- manna á að ekki mætti ske, að jarðir yrðu lagðar í eyði undir sumarbústaðabyggingar. Þessi fundur var mjög fræðandi og fór vel fram. Náttúruverndar- ráð á miklar þakkir skilið fyrir þennaan fund og fyrir öll þau storf, er það vinnur að verndun náttúru Islands. — FinnboKÍ G. Lárusson. ...OG ÞAÐ. VARÐIJOS Þrátt fyrir þaö er alltaf þörf annarra Ijósa. Þaö er þörf margbreytilegra Ijósa og PHILIPS framleiöir flest þeirra. Hjá okkur eru til milli 400 og 500 tegundir Ijósapera. Þaö er m.a. venjulegar Ijósaperur, kertaperur, kúluperur, flúorpípur, halógenljós, kvikasilfursperur, bílaperur, merkjaljósaperur o.s.frv., o.s.frv. Þaö er næstum sama hvaöa nöfnum þær nefnast: PHILIPS framleiöir þær, viö seljum þær. heimilistæki sf _ -.■■■■■ ■ ■ r-a. djé £>3^ ■ ' HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTUN 8 — 15655 PHILIPS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.