Morgunblaðið - 19.11.1978, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.11.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978 29 . . starf mitt er bæði skemmtilegt og tilbreytinga- ríkt.“ Reykjavík, leik á orgel við jarðarfarir, stjórna kórum og er nú söngstjóri hjá Söngsveitinni Fílharmóníu. Eg er ánægður með starf mitt, það er bæði skemmtilegt og tilbreytingaríkt. Fjölbreytt nám „Ég hef alltaf stefnt að því að mennta mig sem kirkjutónlist- armann. Sú atvinna sem organ- leikari hefur er ekki eingöngu að leika á hljóðfæri heldur og að stjórna kór, hljómsveit og sjá um útsetningar. Þess vegna reyndi ég að afla mér sem fjölbreytilegastrar menntunar. Eg tók B- og A-próf í kirkjutón- list en aukalega próf í hljóm- sveitarstjórn og tónfræðigrein- um. Því miður eru ekki nógu margir sem leggja út í þetta nám. Starfið býður upp á svo mikla möguleika að mér er það með öllu óskiljanlegt hvers vegna ungt fólk aflar sér ekki organleikaramenntunar. Því að á öðrum sviðum tónlistar eru ánægjulega margir við nám.“ „íslendingar eru bjartsýnir“ „Mér finnst ekki Þjóðverjar vera svo ólíkir íslendingum, það er jafn mikið skap í þeim og dugnaður. Islendingar hafa það fram yfir að láta hlutina bjarg- ast. Sem betur fer hef ég ekki fundið fyrir því að vera útlend- ingur og því er ég feginn. Þegar maður er búinn að vera í nýju landi um tíma verður maður að aðlagast landinu, taka kostum þess og göllum. Mér finnst gaman að vinna í skorpum þegar skólinn starfar og öll félagsstarfsemi er í fullum gangi, og njóta þess svo á sumrin að gera sem minnst, ferðast um og skoða landið. Ég vil líka ferðast til annarra landa til að halda tengslum og fylgjast með því sem er að gerast í minni atvinnugrein erlendis. í sumar var ég t.d. í Þýskalandi og spilaði þá m.a. í heimakirkjunni. „Kominn tími til aö breyta messugjöröinni“ „Mitt fólk er kirkjusinnað og ég er trúaður maður, þó að ég sé ekki endilega sammála öllu því sem gert er í kirkjunum. Mér finnst tími kominn til að breyta messugjörðinni og það má jafn- vel vera á róttækan hátt. Við lítum í því efni of mikið til baka, hugsum um venjur og hefðir, en gleymum að spyrja um tilgang. Mest er um vert að menn séu ólatir og starfsglaðir. Organ- leikarar hafa margir sýnt að þeir taka starf sitt alvarlega og gera eins mikið og þeim er unnt. I Háteigskirkju höfum við reynt að halda tónleika fyrir utan starfsemina við messurnar og höfum jafnvel fengið dönsk og íslensk tónskáld til að semja fyrir okkur tónverk. Við reynum að láta fólk njóta þess að hlusta á kórverk, einsöng og orgelverk. Háteigskirkja er líka mjög gott tónleikahús. Mér finnst óvenju mikill áhugi hjá Islendingum fyrir sönglist. Ég held að hér séu fleiri kórar miðað við fólks- fjölda en gerist annars staðar. Ef einhvern langar til að syngja og veit ekki hvert hann á að snúa sér getur hann valið sér einn af þeim kórum sem ég vinn með.“ Og með þessum orðum kvödd- um við organleikarann, kennar- ann, söngstjóra kirkjukórs, kórs Tónlistarskólans og Söngsveit- arinnar Fílharmóníu. R.M.N. Morgunblaðiö óskar eftir blaðburðarfólki □ Lambastaðahverfi Austurbær: □ Laugavegur 1—33, Vesturbær: □ Miöbær Uppl. í síma 35408 Uthverffi □ Sogavegur Öllum þelm, sem glöddu mlg á áttræöisafmæll mínu meö gjöf- um eöa á annan hátt, flyt ég hér með hjartans þakklr og biö þeim blessunar guös. Staddur í Reykjavík 17. nóy. 1978. Guðmundur Gíslason Hagalín. Spönsku efnin í breidd 2.70 loksins komin. Pantanir óskast sóttar. Einnig mikiö úrval af dralon efnum í breidd 1.73 cm. Velour frá kr. 3.500 per m. Vcfnaðarvörubúð W.B.di. h.f. Vesturgötu 4, sími 13386. ■' Lítið barn hef ur lítið sjónsvið J ■ r' y n Jm ÆSÖpl a • • • ^mmmmm ýmsar ráöstafanir heföi mátt gera til Þess aö fyrirbyggja aö svona fceri, t.d. setja upp -+4I utr d iTi c^m— eldviövörunarkerfi. Þaö er vel pekkt kerfi, sem hefur bjargaö miklum verömrotum og groti líka bjargaö fyrirtroki yöar. Leitiö upplýsinga strax í dag um -►fl utronich-s— kerfin. Þaö getur borgaö sig. -►41 utrdnich-i— eldviövörunarkerfi fyrir fyrirtroki. verksmiöjur sjúkrahús o.fl. SKIPUIAGNING • RAÐGIOF- MONUSTA. heimilistæki sf Tæknideild. Sætuni 8. sími 24000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.