Morgunblaðið - 19.11.1978, Page 16

Morgunblaðið - 19.11.1978, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978 Pltrfw Útgefandi nXiIníiit* hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson Ritstjórn og afgreiósla Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar Aóalstræti 6, sími 22480. Askriftargjald 2200.00 kr. á mánuói innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakió. Nýting en ekki rányrkja fiskstofna Imerkri ræðu, sem Kristján Ragnarsson, for- maður Landssambands íslenzkra útvegsmanna, flutti við setningu þings þess sl. miðvikudag, veik hann m.a. að aflabrögðum og ástandi fiskstofna. Hann minnti á fyrri samþykktir þings útvegsmanna um aukna fiskvernd og tak- markanir á þorskveiðum í því skyni að efla þorskstofn- inn að nýju og auka kyn- þroska hluta hans til öryggis fyrir vexti hans og viðgangi. Þessar samþykktir hafa stutt tillögur fiskifræðinga um að takmarka þorsk- veiðarnar við 275 þús. lestir á þessu og næsta ári. Á hinn bóginn er talið, að þorskafl- inn verði um 340 þús. lestir á þessu ári eða svipaður og sl. ár. Það sem úrslitum ræður í því sambandi er það, að sóknin hefur aukizt með fleiri skuttogurum, þótt afli hafi minnkað á úthaldsdag. Þá hefur orðið samdráttur í bátaaflanum, sem er sér- staklega tilfinnanlegur á svæðinu frá Vestmannaeyj- um til Stykkishólms, þar sem hann hefur minnkað um fjórðung á tveim árum. Eins og fram kemur í ályktun þings útvegsmanna hafa þær samdráttar- aðgerðir, sem beitt hefur verið að undanförnu með þorskveiðibanni á ákveðnum tímabilum, skyndilokun veiðisvæða og stækkun möskva í botn- og flotvörp- um og ekki sízt útfærsla og friðun landhelginnar í 200 mílur ótvírætt skilað jákvæðum árangri. En betur má ef duga skal, og nú ríður á, að áfram verði haldið með það verk, sem ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar hóf til friðunar og hámarks- nýtingar þorskstofnsins. Eins og Kristján Ragnarsson lagði áherzlu á höfum við nú sérstakt tækifæri til þess að byggja upp nýjan hrygningarstofn, því að við eigum nú í uppvexti tvo mjög sterka árganga, þ.e. frá árunum 1973 og 1976. En til þess að það megi verða er nauðsynlegt að takmarka sóknina í þorskstofninn enn frekar, að áliti fiski- fræðinga. — „Það er skylda okkar við komandi kynslóðir að tryggja vöxt og viðgang þorskstofnsins, þess fisks, sem við aðallega byggjum lífsafkomu okkar á,“ sagði Kristján Ragnarsson. „Það gerum við með því að minnka sóknina í millifisk og smáfisk í ríkari mæli en gert hefur verið.“ Það ætti að auðvelda okkur að ná þessu marki, að við nýtum ekki karfastofn- inn sem skyldi. Þannig er Iræðu Kristjáns Ragnars- sonar kom fram, að miðað við núgildandi fiskverð og rekstrarskilyrði í október er fiskiskipaflotinn í heild rek- inn með halla. Bátar á loðnuveiðum skila rekstrar- afgangi, hallinn á minni skuttogurum er óverulegur yfir heildina, en rekstraraf- koman misjöfn eftir lands- hlutum, verulegur hagnaður á þeim togurum, sem gerðir eru út frá Vestfjörðum, en að sama skapi mikill halli á þeim togurum, sem gerðir eru út frá Suð-Vesturlandi. Verulegur halli er á stærri skuttogurunum og ískyggi- legur halli á þeim hluta bátaflotans, sem ekki stundar loðnuveiðar, talið, að á þessu ári munum við fiska innan við helming þess afla, sem fiskifræðingar telja að stofninn þoli. Þetta svigrúm eigum við að nota til hins ítrasta, jafnframt því sem enn verður að leggja áherzlu á betri meðferð aflans. eða 11,3% af tekjum. Eins og áður segir hefur aflaminnkunin verið mjög tilfinnanleg á svæðinu frá Vestmannaeyjum til Stykkishólms eða um 25% á tveim árum og víða annars staðar á bátaútgerðin undir högg að sækja. Það er því ástæða til að taka undir þau orð Kristjáns Ragnarssonar, að afkomuskilyrði þeirra báta, sem ekki veiða loðnu, séu nú óbærileg og verði að finna lausn á því vandamáli hið bráðasta, því að heilir landshlutar eiga afkomu sína undir því, að hægt verði að gera út þennan hluta fiskiskipaflotans með eðli- legum hætti. Enginn rekstrar- grundvöllur fyrir bátaútgerð Rey ki aví kurbréf ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦Laugardagur 18. nóvember, Ignazio Silone I grein, sem birtist hér í blaðinu laugardaginn 21. október sl., Hvatir Marx, ræðir Hannes Hólm- steinn Gissurarson um hið merka tímarit andófsmanna úr komm- únistaríkjunum sem búa útlagar á Vesturlöndum, Kontinent, og telur upp marga snjöllustu andans menn Norðurálfu, sem eigi aðild að ritstjórn tímaritsins, en lýkur upptalningu sinni með því að nefna ítalska rithöfundinn Ignazio Silone. Ignazio Silone er einn af merk- ustu rithöfundum á Vesturlöndum á þessari öld, skáldsagnahöfundur og skarpskyggn baráttumaður gegn fasisma, en síðar kommún- isma. Það er því rétt að nefna hann í sömu andrá og aðra „snjöllustu andans menn Norður- álfu“, en sá hængur er þó á, að Silone var látinn, þegar hann var sagður eiga aðild að ritstjórn Kontinent. Það er í raun og veru tímanna tákn og segir mikla sögu um yfirborðsgárur samtímalífs og brenglað verðmætamat, að íslend- ingum skuli ekki enn vera kunnugt um, að'svo hugrakkur frumkvöðull frjálshyggju í Evrópu og svo merkur rithöfundur mikillar og rótgróinnar menningarþjóðar, hafi látizt fyrr á þessu ári. Ef poppstjarna tekur inn eiturpillu er fréttin lögð undir forsíður síð- degisblaða um öll Vesturlönd, ef önnur poppstjarna lætur græðá á sig nokkra hárbrúska til að hylja yfirvofandi skalla er það jafnvel frétt í Morgunblaðinu(I). En þó Ignazio Silone kveðji þetta líf sem einn af höfðingjum heimsmenn- ingar á Vesturlöndum, láta menn sér fátt um finnast. Og við hér á Morgunblaðinu gerum okkur jafn- vel sek um að hafa látið dauða hans framhjá okkur fara. Ignazio Silone lézt í sjúkrahúsi í Genf 78 ára gamall. Hann var bóndasonur frá Norður-Italíu, gekk 17 ára gamall í lið með sósíalistum og barðist gegn fas- isma frá æskuárum. Hann notaði umgjörð uppruna síns og æsku í verk sín, þó að ekki sé hægt að segja, að þau séu ævisögur í þeim skilningi, sem við leggjum í orðið. Hann lýsir þessum uppruna sínum m.a.. í merkri grein, sem birtist í íslenzkri þyðingu í bókinni Guðinn sem brást, en þar tíundar hann afskipti sín af stjórnmálunj frá fyrsta fari, rekur það, hvernig hann gengur kommúnisma á hönd, sér síðan í gegnum þann hrikalega blekkingarvef, sem marxisminn hefur ofið í löndum eins og Sovétríkjunum og víðar, segir skilið við marxismann og boðar ræktun og frelsi einstaklingsins í frjálsu þjóðfélagi. Líf Ignazio Silones og störf drógu að sér athygli allra þeirra, sem létu sig skipta þróun stjórnmála og menn- ingar fyrir og um miðbik þessarar aldar. Hann var í fararbroddi, rödd hans heyrðist um víða veröld. Hann varð einna fyrstur til þess að kasta trúnni og lýsa því, hvernig goð kommúnismans er ekki annað en maðksmognar fúa- spýtur. Menn ættu að kynna sér rækilega ritgerð hans og ævisögu- brot í fyrrnefndri bók Guðinn sem brást, en hún var gefin út í þýðingu Hersteins Pálssonar 1950. Það eru engir aukvisar, sem gera upp við kommúnismann í þeirri bók, Arthur Koestler, Ignazio Silone, Richard Wright, André Gide, Louis Fishcer og brezka ljóðskáldið Stephen Spender, sem er, ásamt Robert Graves, höfundi bókarinnar Eg, Kládíus, í fremstu röð ljóðskálda á enska tungu. Ignazio Silone var einn af stofnendum ítalska kommúnista- flokksins 1921, en sagði sig úr flokknum 1930 af ástæðum, sem hann lýsir í Guðinum sem brást. Hann þurfti marga hildi að há og er fullyrt, að líf hans hafi einatt verið í hættu vegna afskipta hans af stjórnmálum heima á Ítalíu. Hann var handtekinn og settur í fangelsi, en komst frá Ítalíu og bjó í Sviss um 14 ára skeið. Að stríði loknu hvarf hann aftur heim, tók enn þátt í ítölskum stjórnmálum, blaðamennsku og skrifum um bókmenntir og menningarmál. Silone var þekktur af skáldsögum sínum, leikritum og stjórnmálarit- gerðum og var allfrjór höfundur í fremstu röð og virður vel. Segja má með nokkrum sanni, að verk hans séu samfelld heild, reist á persónulegri reynslu og nálgist einatt að vera skáldsögur í rit- gerðarformi. Einhverju sinni komst hann svo að orði, að hann væri „sósíalisti án flokks, kristinn maður án kirkju". Segja má að hann hafi smám saman losað sig við alla pólitíska afstöðu og tilheyrt hvorki sérstökum flokki né stefnu. Velferð meðbræðra hans í frjálsu þjóðfélagi var honum nægilegt og verðugt viðfangsefni. í ævisögugrein sinni í Guðinum, sem brást, eru ýmis íhugunarefni fyrir okkur, sem nú lifum, ekki sízt ungt fólk. Hann segir t.a.m. m.a. í V kafla: „Hinar sálfræðilegu aðferðir, sem af leiðir, að hver einstakur baráttumaður verður jafnt og þétt óaðskiljanlegri hluti heildarinnar, eru af sama toga og þær, sem beitt er af sumum trúarfélögum og herforingjaskól- um, og árangurinn næstum hinn sami. Hverri fórn var fagnað sem persónulegu framlagi á fórnarstall „sameiginlegrar frelsunar" og leggja verður áherzlu á það, að böndin, sem tengdu okkur flokkn- um, urðu jafnt og þétt sterkari, ekki þrátt fyrir hætturnar og fórnirnar, sem krafizt var, heldur einmitt vegna þeirra. Þetta er skýringin á því, hvers vegna kommúnisminn hefur haft svo mikið aðdráttarafl á vissa tegund ungra karla og kvenna, á mennta- menn og það ákaflega viðkvæma og örláta fólk, sem þjáist mest af sóun borgaralegs þjóðfélags. Hver sá, sem heldur, að hann geti fengið hin beztu og alvarlegast hugsandi ungmenni til þess að snúa baki við kommúnismanum með því að ginna þau inn í hlý salarkynni til að leika ballskák, hefur ákaflega takmarkaðar og óskynsamlegar hugmyndir um mannkynið." Og Silone segir ennfremur svo í V kafla: „Dag nokkurn eyddi ég klukkustundum í að reyna að skýra fyrir konu, sem var fram- kvæmdastjóri við útgáfuhring ríkisins, hvers vegna hún ætti að minnsta kosti að skammast sín fyrir þann sífellda ótta, sem rússneskir rithöfundar lifðu í. Hún skildi ekki það, sem ég var að reyna að koma henni í skilning um. Ég reyndi að sýna henni fram á þetta með dæmum. „Frelsi,“ sagði ég, „er möguleikinn til að efast, möguleikinn til að skjátlast, möguleikinn til að leita og gera tilraunir, möguleikinn til að segja nei við hvaða yfirvald sem er — bókmenntalegt, listrænt, heim- spekilegt, trúarlegt, félagslegt og jafnvel stjórnmálalegt yfirvald." „En það,“ tautaði þessi ágæti embættismaður Sovétmenningar- innar með hryllingi, „er gagnbylt- ing.“ Svo bætti hún við, til þess að reyna að ná sér niðri á mér: „Við erum fegin því að njóta ekki frelsisins ykkar, en við höfum heilsuhæli í staðinn." Þegar ég benti henni á, að orðatiltæki hennar „í staðinn" væri alveg út í hött, „frelsi er ekki verzlunarvara, sem hægt er að nota til skipta", og að ég hefði séð heilsuhæli í öðrum löndum, hló hún upp í opið geðið á mér. „Þú ert í skapi til að gera að gamni þínu við mig í dag,“ sagði hún við mig. Og mig rak svo í rogastanz við einlægni hennar að ég þorði ekki að andmæla henni frekar. Það var fullkomlega sannfær- andi að sjá hrifning rússneskrar æsku á þessum fyrstu árum sköpunar hins nýja heims, sem við vonuðum allir, að mundi verða mannúðlegri en hinn gamli. En hversu beizk voru ekki vonbrigðin, þegar árin liðu fram og hin nýja stjórn festist í sessi, efnahagskerfi hennar byrjaði að taka á sig mynd og hernaðarárásum utan frá var hætt, — vonbrigðin af að sjá ekki bóla á hinu fyrirheitna lýðræðis- fyrirkomulagi en verða þess hins vegar var, að einræðið varð enn harðsvíraðra en áður.“ Og í þessari merku ritgerð Silones segist hann hafa skotið þeirri viðvörun að ítalska kommúnistaforingjanum Togliatti, að „síðasti bardaginn verður háður milli kommúnista og uppgjafa- kommúnista". Dario Fo Menn verða kommúnistar eða marxistar af ólíkum ástæðum; sumir vegna biturrar reynslu í æsku, aðrir af sálfræðilegum ástæðum, og svo eru þeir, sem gerast marxistar eða kommúnist- ar í sama tilgangi og kamelljónið MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978 17 Skæruliðaforinginn Joshua Nkomo á fundi með fréttamönnum þar sem hann lýsir yfir andstöðu skæru- liða við seinkun kosn- inga í landinu þar til 20. apríl nk., en þær áttu upphaflega að fara fram 31. desem- ber. ,. DýíR'IAý So“"> ««Cd .... 'í',lan Mos|cm d surgeon found hanged m eell slruRRled Iwlee »„h ^ Ule day brfore h, dmJP ,n^Ml °°ur1 wastold The inquest at the Du mag,strates court ls Meer"|U;-P °< Dr the predawi V\ Hn. thi Ualian eomir 'Uthorof MiMen. Buf manv othersuicessful nd supportei togethei > actress wife Fruncu ' 'he extreme left. was 'l Þaruehutist ln hls . , maRazine Gente U*n noosen Hf f,e)el who died ,n the h°Urs ,asl Aug 3. P HaH h'm UprforTu«Lon,S,Ce ,h. Ck lea,,or B,ko W"""■ and hí* Ueath nattona, upraar *"ne” Biho haVf M ™*,nd.' Ju.if .1 0en,e Publ lh ,l,<’ arro« indie; "S-ýctor Dario Fo fascist parachutist in Plins Dario Fo lodt as a f>anca Rame. 144. Belou, actresjj Wif(. st fascism y grXr S.”a, his ,o»l íi^rcs,ub5í .«* hi, comp'ete pern ÍTpitt. >" <“,-*'V1h'”,ul from his contemporan« u» Hecades remarkable tor A political trimming, cantl( ihoddiness, includm* tbo^ might have rlnsest to him. I* was P' as Orwcll offended left J as right with tl,?sf .“Jjfes: ties, refusmg to be hoo&m however P°\*uca“y it might be. |>v "p* fashionablc labeis-_ Silone rang true ir and in every as it were. a. He was born Secondo Tr«n- ouilli u»S Labour Day. May L 1900 in a small town m thc and changed his name later to avoid involvmg bts family in his poliUcal actmues. Hc wrote somctimes. too. “ Pasquini ”. Altliough not a birth—his íather was landowner—it «a* Eeasants tha imself when ca’Jy active at — - as a socialist and. earliest days o, anti-fascist, Tlns his ..jrouth- portant which was peasant by M a small the t hc associated JgM he becaine politi- ZmÆ thc age of 1/. MHð .„.J. from thc BKWBs ’/JN of fnscism. an x*.l» backgroundot Bread and Wine are _i, ....... -its rural, anaWt, a . Qwn in many langu traditionál charactcr—was i - • (particularly in Bn ---* throughout his wora, w best loved; families, and ínctdents iiae great satires of his pol earthquake that wiped out rnost R He wrote plays 5 his own íamily but was wo. k heyday. and l í based on symparhy Wttn. a g00d deal. His I intuitive. long nnderstarKÍing f vy ali a .jniiy .and conn £ I * 1™>"« £)d„™ (S."ííp?cíi« 1930. W . Thf, í. 1967 (9 added to h>s * .er motive German circus d of Israel hypnotizes 10: mr rhysdavies the land of hij being íp any vd 1971 hd was aJ pal prize fr°m 1 Council for h| contrilfution tol of Wales. A N tributor, he waf America’s m fiterary prize t for thc best sb year. He rece 1968. Rbys Daviel dedicated pr< ing every day i rt„_ 21 in St Pancrus Hos- K%idon. foIUwing l painful íllness. at the agc kitically dedgnated as « Ih Chekhov, Rhys Davies Bhom in 1903.at Cydach ■Éh^e Rhondda Valley rn "MaS' 1n hU classir ancl • ■HhUíLI,. !.<• ' . skiptir um lit, þ.e. til að hylja fyrri veikleika, glæpi, sem mega ekki komast upp, og umfram allt: til að falla inn í umhverfi óvinarins og halda lífi — á sama hátt og kamelljónið. Þannig hafa fyrrver- andi nasistaforingjar orðið kommúnistaleiðtogar í Austur-Þýzkalandi, að því er fregnir herma, og nú hefur verið upplýst sú ótrúlega staðreynd, að einn byltingarsinnaðasti rit- höfundur ítala, maður, sem hefur varla haldizt við í kommúnista- flokki Ítalíu vegna þess að hann er ekki nógu róttækur fyrir hann, ítalska leikritaskáldið Dario Fo, er fyrrverandi fasisti og barðist meira að segja ótilneyddur fyrir málstað Mussolinis. Dario Fo er einn af vinsælustu leikritahöfundum samtímans. Af þeim verkum, sem leikin hafa verið eftir hann í Leikfélagi Reykjavíkur, vita íslendingar mætavel, að hann kann svo vel til verka, að fáir standa honum á sporði í óborganlegri farsagerð. Hann er í senn frábærlega skemmtilegur leikritahöfundur og stórsnjall hugmyndasmiður í erfiðustu grein leiklistar, fyndinni farsaádeilu. Enginn erlendur leik- ritahöfundur hefur náð meiri vinsældum hér á landi en Dario Fo og sýningarnar á verkum hans hafa ekki einungis verið eftir- minnilegar, heldur ógleymanlegar. Dario Fo hefur ekki eyðilagt þau leikverk sín, sem hér hafa verið sýnd, með ómerkilegu þjóðfélags- þvaðri eða pólitísku bulli, sem gengur aftur í fjölda verka nú um stundir eins og kækur. Hann er alltof góður höfundur til að láta sér detta í hug að eyðileggja verk sín með þeim hætti. En þó „prédikar" hann eins og honum sýnist, en með þeim hætti, að vekur í senn kátínu og umhugsun. Það hefur ekki farið framhjá nokkrum manni, sem fylgzt hefur með rithöfundarferli Dario Fos, að hann er marxisti og hefur raunar þótzt vera svo langt til vinstri, að jafnvel ítalskir kommúnistar hafa lent í útistöðum við hann vegna róttækni hans. En nú hefur það verið afhjúpað á Ítalíu, að hann er fyrrum fasisti. Þannig hefur hann farið úr einum öfgum í aðrar og það þarf engan frumlegan sálfræðing til að láta sér detta í hug, hvers vegna hinum fyrrverandi fasista hafi þótt henta að hylja sig reykskýi kommúnism- Mikki mús fimmtugur Washington, 18. nóvember. AP. FORSETAFJÖLSKYLDA Bandaríkjanna hélt samkvæmi til heiðurs teiknimyndahetjunni Mikka mús í Hvíta húsinu í gær, en í dag eru liðin 50 ár frá því að frumsýnd var fyrsta teiknimyndin með Mikka í aðalhlutverkum. Jimmy Carter forseti tók óvænt þátt í samkvæminu, en til þess hafði um 100 þroskaheftum börnum verið boðið. Ríkti mikil kátína í austurherbergi Hvíta hússins þegar Mikki birtist, og virtist forsetinn skemmta sér jafnvel og börnin. Áður en Mikki mús kom til Hvíta hússins lauk hann 5.000 km ferðalagi frá Disneylandi, um Bandaríkin, í tilefni afmælisins. Þetta var i fjórða skiptið sem hann kemur til Hvíta hússins, en í fyrsta sinn sem heiðursgestur. Bandaríska sjónvarstöðin NBC mun minnast afmælis Mikka með sérstakri dagskrá á morgun, sunnudag, og mun Gerald Ford fyrrum forseti verða meðal þeirra sem munu minnast barnahetjunnar þá. Gerald Ford fyrrver- andi Bandaríkjafor- seti og Mikki mús. Blaðamenn vægt dæmdir London, 18. nóvember. Reuter TVEIR brezkir blaðamenn sem voru fundnir sekir um að hafa brotið reglur um þagnarskyldu varðandi rikisleyndarmál, fengu í dag þriggja ára skilorðsbund- inn dóm fyrir brot sitt. Grein sem blaðamennirnir skrifuðu í tímaritið Time í maí 1976 var sögð brot á reglunum um þagnarskyldu varðandi ríkis- leyndarmál, en reglur þessar er mjög umdeildar innan jiings sem utan í Bretlandi. Þykir úrskurður- inn í máli blaðamannanna vera vatn á myllu þeirra sem vilja að hinar gömlu reglur verði felldar úr gildi. ans, þegar búið var að uppræta þriðja ríki Hitlers og Mussolini hafði verið hengdur upp á fótun- um. Samt hefur þessi uppgötvun komið mönnum í opna skjöldu og á Ítalíu hefur það vakið athygli, að Dario Fo skyldi hafa viðurkennt það fyrir réttinum í Varese, að hann hefði ekki verið kommúnisti í seinna stríði og því ekki getað tekið þátt í fjöldamorðum kommúnista á Ítalíu í stríðinu, heldur hefði hann verið í fasista- sveitum Mussolinis og gengið m.a. í fallhlífasveit hans á N-Italíu. Mynd hefur verið birt af Dario Fo þar sem hann er í hermanna- búningi fastista í stríðinu, tekin 1944. Fyrir réttinum sagðist hann hafa gengið í þessa frægu fall- hlífasveit fasista til að eyða tortryggni í garð föður síns, en fjölskyldan bjó, að sögn hans, í einhverju fegursta umhverfi Evrópu, við Lago Maggiore. Dario Fo kvaðst hafa verið í sveitum fasista frá september 1944 — jan. 1945, þegar hann sagðist hafa gengið í andspyrnuhreyfingu Lazzarinis. En leiðtogi þessarar andspyrnuhreyfingar, Giacinto Lazzarini, hefur lýst því yfir í samtali við ítalska vikublaðið Gente, að hann sé undrandi á yfirlýsingu Dario Fos, af því að hann hafi aldrei verið í and- spyrnuhreyfingu hans, né heldur hafi heimkynni Dario Fos og foreldra hans nokkurn tíma verið bækistöðvar andspyrnuhreyfingar gegn fasistum. Aftur á móti birti vikuritið samtöl við nokkra fyrr- verandi félaga Dario Fos í fasista- herdeildinni og mundu þeir eftir því, hversu áhugasamur hann hefði verið, meðan hann var í þjónustu Mussolinis og gat einn þessara fyrrverandi félaga Dario Fos í fasistahreyfingunni þess, að hann hefði barizt við hlið hans, þegar fallhlífasveitin gerði árás á andspyrnusveitir kommúnista við Cannobio við Lago Maggiore, en í þeim bardaga börðust fasistar gegn andspyrnuhreyfingu kommúnista frá Domodossola, sem er ein helzta samgönguborg á þessu svæði á N-Italiu, með mikilvægri járnbrautarstöð á leiðinni til Brig í Svisslandi. Ólíkt hlut- verk í harmleik En hvað sem þessu líður, þá er augljóst, að hlutverk þessara tveggja merku ítölsku rithöfunda, Ignazio Silones og Dario Fos, í síðustu heimsstyrjöid, voru eins ólík og verða mátti. Það er því kannski ekki undarlegt, þó að pólitískt hlutverk þeirra hafi einnig orðið ólíkt eftir styrjöldina. í styrjöldinni var Silone sósíalisti og harður andstæðingur fasista, en Dario Fo barðist undir merkjum Mussolinis með frægri fasistasveit, m.a. við andspyrnu- hreyfingu kommúnista. En eftir stríð verður Ignazio Silone einn merkasti andstæðingur kommúnismans í Evrópu, en Dario Fo aftur á móti kröfuharðastur allra um marxíska byltingu á Italíu. Þessi samanburður segir ekki ómerka sögu. En hann verður líklega aldrei efniviður í skemmti- legan farsa eða merkt ádeiluverk eftir Dario Fo. En kannski þeir ættu að gera þessa örlagafléttu að rannsóknarefni í sálfræði- og þjóðfélagsvísindum við Háskóla Islands. Það hlýtur að vera eftirsóknarvert rannsóknarefni að komast að raun um, hvers vegna fyrrverandi kommúnistar hætta að vera kommúnistar og fyrr- verandi fasistar gerast byltingar- sinnaðir marxistar við hentugt tækifæri. Róttækir leikarar gætu einnig e.t.v. haldið fund um fyrirbrigðið og Alþýðubandalagið sett nefnd í málið, nú þegar íslenzkir kommúnistar hafa lýst því yfir að þeir ætli að stjórna heimsbyltingunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.