Morgunblaðið - 19.11.1978, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978
23
Jámkrossínn
(Begonia masoniana)
Begóníuaettkvíslin er
geysistór og nær yfir
nálægt 900 tegundir
hvorki meira né minna
og að sama skapi er hún
fjölskrúðug. Langflestar
vaxa þær í hitabeltinu og
þaðan kom líka sú teg-
und sem nú verður sagt
frá.
Hún fannst fyrst í
Assam í Indlandi — það
var fyrir seinni heims-
styrjöld. — Englending-
ur að nafni Morris
Mason, mikill ferðagarp-
ur og plöntusafnari fann
hana, tók með sér heim
og fjölgaði henni í
kom á markað bæði í
Hollandi og Þýskalandi.
Þar vissi enginn að um
nýja tegund væri að
ræða og héldu að hún
væri aðeins nýtt af-
brigði, og var nefnd
JÁRNKROSSINN (Iron
Cross). Nafnið er dregið
af lit laufblaðanna, sem
eru mjög sérkennileg.
Þau eru mosagræn með
breiðum dökkbrúnum
greinum eða geirum sem
kvíslast frá miðju blað-
anna meðfram aðaltaug-
unum. Þá er áferð blað-
anna líka óvenjuleg, en
gróðurhúsi á sveitasetri
sínu. Mason hefur flutt
fjölda nýrra plöntuteg-
unda til Englands. Hann
gekk úr skugga um að
begónía þessi var áður
óþekkt tegund svo að
hann gaf henni nafnið
Begonia masoniana og
sendi síðan afar stórar
og fallegar plöntur af
henni á garðyrkjusýn-
ingu í Gent. Þar fékk
hún gullpening í verð-
laun sem nýung, en
plönturnar sem samtals
voru með 125 stór lauf-
blöð þegar þær fóru á
sýninguna komu heim
aftur með aðeins 5 blöð,
— hinum var öllum
stolið á sýningunni, —
en begóníu þessari er
fjölgað með blaðgræðl-
ingum eins og fleirum af
þeirri ætt.
Eftir sýninguna leið
ekki á löngu þar til hún
þau eru öll með grófum
hrukkum.
Þessi begónía er ein-
göngu ræktuð vegna
blaðfegurðar eins og
Kóngabegónía, sem líka
er frá Assam. Báðar
þurfa þær jafnan og
góðan hita, raka mold og
rakt loft. Þær mega því
ekki vera nálægt ofni. Þá
vilja þær bjartan stað en
þola þó ekki að standa í
sólskini. Þótt mikið af
b.löðunum faili um
háveturinn má ekki færa
þær úr stað, en vökvun
skal minnka.
Þetta er e.t.v. ekki
beinlínis heppileg tegund
fyrir byrjendur í blóma-
rækt, en gaman fyrir þá
sem natnir eru að
spreyta sig á henni. Hún
hefur oft verið fáanleg
hér í blómaverzlunum.
H.Sig.