Morgunblaðið - 19.11.1978, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978
27
Meat
Loaf!
• Meat Loaf er svo sannarlega
ekki „týpískur" bandarískur
rokkari. Meat Loaf, sem er frá
Texas, hlaut fyrst almenna
athygli sem aöalsöngvari á plötu
Ted Nugent „Free For All“. Þar
fyrir utan hefur hann komið fram
í „Roeky Horror Picture Show“,
þar sem hann fór með hlutverk
Eddies. Meat Loaf var líka
viðriðinn National Lampoon Show
ásamt Jim Steinman. Meat Loaf
og Steinman tóku svo síðasta ár
upp plötuna sem kom út undir
heitinu „Bat Out Of Hell“ en
Steinman semur þar öll lög og
leikur á píanó, en Meat Loaf
syngur. Þeim til aðstoðar er svo
Todd Rundgren sem stjórnaði
upptökunum, hljómsveit Rund-
grens, Utepia, og tveir sliðsmanna
Bruce Springsteen, Roy Bittan og
Max Weinberg. Síðan „Bat Out Of
Hell“ kom út á síðasta ári hafa
vinsældir Meat Loaf aukist stig af
stigi. Fyrst náðu litlu plöturnar,
Plötudómur:
„You Took The Words Right Out
Óf My Mouth" og „Two Out Of
Three Ain’t Bad“, vinsældum í
Bandaríkjunum. Eftir það varð
stóra platan vinsæl þar vestra.
„Bat Out Of Hell“ kom út í
Bretlandi í janúar á þessu ári. I
júní fór Meat Loaf ásamt fylgdar-
liði í hljómleikaferð til Bretlands.
Á ferðalagi þessu hlaut M'eat Loaf
verðskuldaða athygli, en vinsæld-
irnar hafa samt setið nokkuð á sér
þarlendis. En öðru máli gegnir
hérlendis, þó að hér hafi platan
sjálf ein séð fyrir því. Lögin á
plötunni eru flest athyglffeverð
eins og „Bat Out Of Hell“,
„Paradise By The Dashboard
Light“, „All Revved Up With No
Place To Go“, „You Took The
Words Right Out Of My Mouth“,
og „Two Out Of Three Áin’t Bad“
en þau hafa öll nema titillagið
verið gefin út á litlar plötur.
Þó að Meat Loaf hafi vegnað vel
var hljómsveitin ekki stofnuð fyrr
en eftir að platan kom út og Ellen
Foley, sú er syngur aðalkven-
röddina á plötunni, er ekki í
hljómsveitinni, en í hennar stað er
Karla Devito, sem er sérlega
tilþrifagóð söngkona.
Hljómsveitin Meat Loaf, en
hljómsveitin stendur undir því
nafni jafnt og söngvarinn sjálfur,
lét taka upp myndsegulbandsspólu
þar sem Meat Loaf fluttu efni af
plötunni. Þáttur þessi er um
hálftíma á lengd og var frum-
sýndur í breska sjónvarpinu í júní
síðastliðnum við góðar undir-
tektir, og var þá talinn með
merkilegri poppþáttum. í þættin-
um fara Meat Loaf (sjálfur) og
Karla Dev.ito á kostum, sérstak-
lega í laginu „Paradise By The
Dashboard Light“.
Slagbrandur hefur fregnað að
þáttur þessi liggi hjá sjónvarpinu
enda hafa tveir bútar úr honum
birst.
Við skulum vona að sjónvarpið
sjái sóma sinn í því að sýna
þennan margrómaða þátt á meðan
hann býðst og vinsældir Meat Loaf
hérlendis eru jafn miklar og raun
ber vitni.
Nh Joel - 52ND Street
• Billy Joel er í dag með skærari
stjörnum í heimi dægurtónlistarinn-
ar, og á það við hér á íslandi eins og
annars staðar í heiminum. Joel sló
fyrst í gegn árið 1973 með laginu
„Piano Man“ sem var hans fyrsta
plata fyrir CBS plötuútgáfuna. Áður
hafði Billy Joel leikið í tveim
hljómsveitum, Hassles og Attila.
Hassles gaf út 2 breiðskífur,
„Hassles" og „Hour Of The Wolf“, og
Attila gaf út eina breiðskífu sem hét
„Attila". Eftir hljómsveitabrasið
gerðist Joel píanóleikari á bar undir
nafninu Bill Martin, en hann heitir
fullu nafni William Joseph Martin
Joel.
1972 gaf hann út sína fyrstu plötu
einn síns liðs, „Cold Spring Harbor",
og stofnaði hljómsveit sem lék í sex
mánuði. Eftir það hélt Joel aftur út í
bar—tónlistina. 1973 kom síðan
„Piano Man“ eins og fyrr segir og
síðan hefur Billy Joel verið þekktur
um allan heim. Stórar plötur sem
komið hafa út síðan eru þessar:
„Streetlife Serenade“ (1976), „The
Stranger" OG NÚ FYRIR SKÖMMU
„52nd Street". Á eftir „Piano Man“
varð „The Entertainer" næst vin-
sælt, 1974, síðan komu „Say Goodbye
To Hollywood", „Just The Way You
Are“ og „Movin'Out" en tvö þau
síðastnefndu voru mjög vinsæl
hérlendis fyrr á þessu ári, líkt og
breiðskífan „The Stranger".
„52ND STREET,,
Það er alltaf vandkvæðum bundið
að fjalla um góða plötu, en það á við í
þessu dæmi. Á „52nd Street" kemur í
sjálfu sér afar lítið nýtt fram í
tónlist Joels, en þess í stað er bæði
tónlistin, lögin og jafnvel flutningur-
inn vandaðri en áður. Hann hefur
alltaf verið mikils metinn fyrir
efnismikla texta, og á „52nd Street"
bregst hann ekki aðdáendum sínum,
því textar eins og í „My Life", „Big
Shot“ og „Until The Night" standa
ekki að baki fyrri textum hans. Á
plötunni eru 9 lög, og af þessum
lögum eru 6 laganna það góð að þau
geta fullkomlega sómt sér á forhlið
lítillar plötu og náð þannig vinsæld-
um.
Óvenjulegasta lagið á plötunni er
lagið „My Life“, sem er einna ólíkast
því sem hann hefur gert áður. Samt
sem áður fer ekki á milli mála að það
er Billy Joel—lag. Lagiö er í
meðalhraða og sungið afar skýrt eins
og honum er lagið. Þar sem enn
hefur ekki verið gefin út lítil plata af
„52nd Street" er ekki úr vegi að spá
að þetta lag komi fyrst út í þeirri
mynd. „Honesty, sem er sérlega
fallegt með texta sem jaðrar þó við
væmni, hefði verið líklegast ef „Just
The Way You Are“ hefði ekki komið
út á árinu, en „Honesty" er jafnvel
betra en það, en bara full keimlíkt.
„Until The Night" er lengsta lag
plötunnar og líklega ætlað það
hlutverk að vera styrkasta stoðin í
uppbyggingu efnisins á plötunni,
sem það og næstum fullnægir, en
ekki alveg þó. Lagið er byggt upp
sem „ballaða", rólegt og þrungið. Það
má strax hugsa sér t.d. söngvara eins
og Scott Walker eða jafnvel Andy
Williams taka lagið fyrir.
Tvö keimlík, hröð lög koma líka til
greina á litla plötu, „Big Shot“ og
„Zanzibar". Bæði lögin standa á
styrkum grunni góðra texta, sem
segja sínar sögur, fullkomlega undir-
strikaðar af lögunum og flutningi
þeirra.
Síðasta lagið sem líklegt er til
vinsælda er hið líflega „Half A
Mile“, sem er einfaldlega létt
popplag.
Einkenni Billy Joels, góðir, efnis-
miklir og myndrænir textar, sér-
hæfður latneskur rokkstíll hans í
lagasmíðum auk góðrar raddar, eru
öll til staðar á þessari plötu, sem
reyndar gefur ekki neitt nýtt. Enn
eitt einkenni Joels, lipur og
skemmtilegur píanóleikur hans, er
aftur á móti ekki eins áberandi á
þessari plötu og oft áður. En engu að
síður verður enginn Billy Joel-aðdá-
andi fyrir vonbrigðum með plötuna,
því hún er góð og heilsteypt.
HIA
Vinsœldalistar
raftaverkin gerast enn. Það sannaðist nú í vikunni, er írska
Khljómsveitin Boomtown Rats batt enda á einokun diskólag-
anna í efsta sæti brezka vinsældalistans. Hvort rotturnar
eiga eftir að dvelja lengi í þessu sæti er annað mál, Olivia
Newton-John, sem nú siglir hraðbyri upp vinsældalistann, er
allt eins vís til að hreppa þetta eftirsóknarverða sæti áður en langt um
líður. Á heildina litið er brezki vinsældalistinn með fjölbreyttasta móti
þessa vikuna og á honum eru þrjú ný lög.
í Bandaríkjunum situr allt við hið sama, að því undanskildu að tvö ný
lög eru á þeim lista. Annað þeirra er flutt af Króki lækni og hitt af
Barböru og Neil.
Þá víkur sögunni til Vestur-Þýzkalands, en síðast er við skildum við
það land, voru Smokie í efsta sæti með „Mexican girl“. Svo er reyndar
enn og raunar má segja það um þennan lista að flest lögin séu á sama
stað eða sviðuðum og í síðustu viku. Þetta er þó ekki við Bay City Rollers,
sem eiga miklu fylgi að fagna meðal u'gra Vestur-Þjóðverja.
Cars.
London
1. ( 2) Rat trap
2. ( 9) Hopelessly devoted
3. ( 4) MacArthur park
4. ( 1) Sandy
5. ( 3) Summer nights
6. ( 7) Darlin’
7. (14) Instant replay
8. ( -) My best friend’s girl
9. (18) Pretty little angels eyes
10. ( 5) Blame it on the boogie
Boomtown Rats.
O. Newton-John.
Donna Summer.
John Travolta.
Travolta og Newton-John.
Frankie Miller.
Dan Hartman.
Cars.
Showaddywaddy.
Jacksons.
New York
1- (
(
1)
6)
2)
3)
5)
(16)
7. ( 4)
8. ( 4)
9. (11)
10. (12)
2
3. (
4. (
5. (
6.
MacArthur park
How much I feel
Hot child in the city
Kiss you all over
Double vision
You don’t bring me fl.
Ready to take a chance
You needed me
I just wanna stop
Sharing the night together
Donna Summer.
Ambrosia.
Nick Gilder.
Exile.
Foreigner.
Barbara og Neil.
Barry Manilow.
Anne Murray.
Gino Vannelli.
Dr. Hook.
Bonn
1. (x1) Mexican girl Smokie.
2. ( 2) You are the one J. Travolta og O. Newton-John.
3. ( 3) Summer night city ABBA.
4. ( 4) Substitute Clout.
5. ( 7) Gimme gimme you love Teens.
7. ( -) Wher will I be now Bay City Rollers.
8. ( 6) Dancing in the city Marshall og Hain.
8. ( 6) Dancing in the city Marshall og Hain.
9. ( 9) Summer nights Travoltaog Newton-John.
10. (17) Lovemachine
Supermax.