Morgunblaðið - 19.11.1978, Side 32

Morgunblaðið - 19.11.1978, Side 32
Lækkar hitakostnaðinn Verzlid sérverzlun með litasjónvörp og hljómtæki. á?£*c£w V BUÐIN —^ J Skipholti 19, sími 29800 SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978 Vertíðarlok í Vinnslustöðinni ..VÁ. EKKERT SMÁ.“ sagöi hún Katrín dótturdóttir Binna í Gröf þegar hún opnaði umslafíið og dró upp „fimm brúna“. Katrín var svo heppin að salta 10 þúsundustu síldartunn- una á vertíðinni hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum og hún fékk aukabónus fyrir, 25 þúsund krónur. Stúlkurnar sem söltuðu tunnur númer 9999 og 10001 fengu 10 þúsund krónur í verðlaun. Hjá Vinnslustöð- inni hefur aldrei verið saltað jafn mikið og var ákveðið að halda upp á vel- heppnaða vertíð á þennan hátt í vertíðarlokin. Guðmundur verkstjóri færði stúlkunum umslögin á miðvikudaginn og vakti koma hans athygli, því að stúlkurnar eru vanar að fá launaumslög sín á föstudögum. En gleði stúlknanna varð að vonum mikil og Guðmundur fékk líka bónus, rembingskoss á kinnina. Meirihlutinn vill láta borga sorphreinsun sérstaklega: „Hundruð milljáia auka- álögur á borgarbúa” segir Davíð Oddsson borgarfulltrúi FRAMKVÆMDARÁÐ Reykja- víkurborgar hefur samþykkt að leggja til við borgarráð að borgarbúar verði framvegis látn- ir greiða sérstakt gjald fyrir sorphreinsun, en til þessa hafa sorphreinsunargjold verið inni- falin í fasteignagjöldum. Kostn- aður við sorphreinsun mun áætl- aður 6—800 milljónir á þessu ári. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins lögðu til í framkvæmda- ráði að fasteignagjöld yrðu lækkuð á móti en þessi tillaga var felld af fulltrúum Alþýðuflokks, Alþýðu- bandalags og Framsóknarflokks. „Hér er nýi borgarstjórnar- meirihlutinn einfaldlega að leggja aukaskatt á borgarana," sagði Davíð Oddsson borgarfulltrúi í samtali við Morgunblaðið í gær. Sagði Davíð að það hefði komið fram í málflutningi Björgvins Guðmundssonar forseta borgar- ráðs að til að byrja með myndu borgarbúar látnir borga 25% af kostnaði við sorphreinsun beint en þetta væri aðeins fyrsta skrefið, og bein gjöld vegna sorphreinsunar yrðu smám saman hækkuð. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins létu gera sérstaka bókun um þetta mál í framkvæmdaráði og lýstu yfir mótmælum sínum. Fulltrúar Alþýðubandalagsins, Þröstur Ólafsson og Adda Bára Sigfúsdótt- ir, munu hafa undirbúið tillögu- flutning um málið, að sögn Davíðs. Tillaga samþykkt í borgarstjórn: Fólk fær sjálft að ráða litnum á gluggat jöldum BORGARSTJÓRN hefur sam- þykkt tillögu frá Davíð Oddssyni þess efnis að fólki í leiguíbúðum borgarinnar sé heimilt að ráða sjálft hvernig gluggatjöld það hefur fyrir skjám á heimilum sínum. Þessi einkennilega tillaga er ekki flutt að tilefnislausu því að í leiguíbúðum aldraðra í Furugerði 1 var sú kvöð að gluggtjöld yrðu að vera eins í öllum íbúðum. Var þessi kvöð sett að kröfu arkitekta hússins. Einn leigjandanna mun ekki hafa verið á sama máli og setti upp gluggatjöld í öðrum lit en þau voru óðara tekin niður af ráðamönnum. Enn einn bílasali handtekinn BÍLASALI einn í Reykjavík var handtckinn á Keflavíkur- flugvelli í fyrranótt er hann var að koma úr skemmtiferð frá útlöndum. Var hann flutt- ur í Sfðumúlafangelsið og hefur hann verið í stöðugum yfirheyrslum þar siðan. Grunur leikur á því að þessi bílasali hafi stundað fjársvik í bílaviðskiptum og mun mál hans keimlíkt málum annarra bílasala, sem handteknir hafa verið undanfarið grunaðir um fjársvik. Þá var annar maður hand- tekinn í gær vegna rannsóknar málsins. Hann neitaði í fyrstu að gefa sig fram við lögregluna og var þá leitað til sakadóms Reykjavíkur og óskað eftir úrskurði um handtöku. Áður en til þess kom gaf maðurinn sig fram og var hann einnig fluttur í Síðumúlafangelsið. Ekki lá fyrir í gær hvort óskað verður eftir gæzluvarð- haldsúrskurðum yfir mönnun- um tveim. Vonabaraaðég fái starfsfrið — segir Friðrik Ólafsson, nýkjörinn forseti FIDE fyrsta verk yrði að skipuleggja sambandið milli Reykjavíkur og ritaraskrifstofunnar í Amsterdam og að koma upp aðstöðu fyrir FIDE í Reykja- vík. Mbl. spurði Friðrik út í ágreining hans og forystu Skáksambands Islands varð- „MÉR ER það ljóst. að geysi- mikið starf er framundan og að það tekur sinn tíma bæði að kynna sér þau mál, sem fyrir liggja ög síðan að samræma mín stefnumá) annarri starf- semi Alþjóðaskáksambands- ins“, sagði Friðrik ólafsson nýkjörinn forseti FIDE, er Mbl. ræddi við hann í gær. „Mér er það ljóst að það er ekki hægt að gera allt f einu eða vinna þetta verk á skömm- um tíma, en ég er staðráðinn í að verja öllum minum kröft- um til forsetastarfans og vona bara að ég fái starfsfrið.“ Friðrik sagði að eitt hans Friðrik ólafsson og Auður Júlíusdóttir með dætrum sínum Áslaugu og Bergljóti, á heimili þeirra í gær. Ljósm. MbL RAX. andi skipan gjaldkerastöðu Fide. „Ég hef þegar sagt í samtali við Mbl. að af minni hálfu átti þetta aidrei að komast í hámæli og persónulega harma ég, að svo skyldi fara. En það er framtíðin sem gildir nú. Það er við mörg vandamál að glíma og enginn tími til að tefja sig á lítilfjör- legum ágreiningi, sem heyrir fortíðinni til og breytir engu nú til eða frá“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.