Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978 11 George Lucas Stjörnustríð Logi geimgengill ögraði stormsveitar- mönnum fjarlægs stjörnukerfis í hættu- legri sendiför — þar sem lífsmáttur varð að dauðaorku. Meö hugrekki sitt eitt að vopni ásamt geislasverði því, sem veriö hafði í eigu föður hans, lendir Logi í grimmilegasta geimstríði, sem háð hefur verið — og á þá í höggi við öflugasta virki fjandmannanna, Helstirnið. Óstytt útgáfa — engu sleppt og engar endursagnir. Æsilegasta vísindaskáld- saga sem samin hefur verið. Hammond Innes Gulldíki Gulldíki gerist í Ástralíu. Gjaldþrota breskur námuverkfræðingur á flótta undan réttvísinni kemst á snoðir um gamla gullnámu. Spennan í sögunni magnast stig af stigi um leið og atburöir fortíðarinnar skýrast. Gullþorsti. Nikkel- æði. Og græðgin nær yfirhondinni. Fáum höfundum er eins lagið og Hammond nnes að gefa sannfærandi lýsingar af staðháttum og atburóum í sögum sínum. Gulldíki hefur til að bera alla kosti þessa vel metna höfundar. MacLean Svartagull Á vissum stöóum og hjá vissu fólki var nafnið Sænornin mjög illa séö. En aö langmestu leyti beindist andúðin aö Worth nokkrum lávaröi og milljónamæringi, sem var eig- andi olíuborpallsins Sænornarinnar... Æsispennandi skáldsaga um átök og spillingu í fjármála- heiminum — átök sem kunna aö kosta líf milljóna. Hér er barist um auö og völd — og engum hlíft. Höfundurinn, Alistair MacLean, kann þá list aö halda lesandanum í spennu fram á síóustu blaðsíöu — og taugum lesandans er ekki heldur hlíft í þessari bók hans, sem er ein sú magnaðasta sem hann hefur látið frá sér fara. David Morreli Síðasta herförin Mexíkanskur skæruliðaforingi og upp- reisnarseggur rænir bandaríska landa- mærastöð. Bandaríkjamenn gera út refsi- leiöangur á hendur honum, gegn vilja mexíkanskra yfirvalda. Það er engin misk- unn í Síðustu herförinni eftir höfund bók- anna í greipum dauðans og Angist sem seldúst upp jafnskjótt og þær komu út. Síðasta herförin hefur af bandarískum gagnrýnanda veriö kölluð langbesta verk Morrells. iii Wm Brian Callison Banvænn farmur Okkur er hrint inn í æsilegustu atburði síðasta áratugs, þar sem samviskulausir ofstækismenn hafa tekið gerlavopn í þjónustu sína. Kaupskip klýfuröldur Mið- jarðarhafsins hlaðið átta þúsund tonnum af eitri. Atburðarásin veldur andköfum hjé lesandanum. í Banvænum farmi er líf heillar þjóðar lagt að veði og áhættan er eftirþví. Brian Callison varð víðfrægur fyrir bók sína Hin feigu skip. Menn veltu því fyrir sér hvort honum tækist að skrifa aðra bók sem jafnaðist á við hana. Honum tókst það. Og miklu meira en það. Bræóraborgarstíg 16 Slml 12923-19156

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.