Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978 27 Furðulegur ferðalangur Ein á hesti. Líísreisa Jónu Sigríðar Jónsdótt- ur. Andrés Kristjánsson endursagði. Skuggsjá 1978. Þessi bók segir frá Jónu Sigríði Jónsdóttur, sem varð ef til allt í einu frægasta kona á íslandi, þegar hún á sjötugsaldri reikaði um öræfin milli Borgarfjarðar og Húnavatnssýslu rammvillt og matarlaus í blindbyl og síðan svartaþoku í sex sólarhringa og mátti heita jafngóð eftir og meira að segja fljótlega tilbúin í dans að lokinni hinni óskaplegu þrekraun. Nú hefur þessi áttræða kona eða vel það ritað sögu sinnar lífsreisu, og er það 12 arka bók í stóru broti með frekar smáu letri. Sá ágæti rithöfundur og íslenzkumaður Andrés Kristjánsson hefur snurfusað handritið með sannri Bókmenntlr eftir GUÐMUND G. HAGALÍN prýði, en öll er atburðarásin skráð af sögukonunni. Hún er stuttorð um flest og margt til tínt, svo að enginn skáldsögu-, hvað þá spenn- andi reyfarablær eru á sögunni, en sá maður, sem ekki endist til að lesa hana, hlýtur að hafa fengið naumt skammtað ímyndunarafl. Þarna er frá sagt allt að því furðulegri bernsku og æsku, ótal áföllum, sem sögukonan verður að þola, svo sem lungnabólgur, hrygg- brot í bókstaflegri merkingu, handleggs- og fingrabrot- og fótbrot oftar en einu sinni. Þá missir hún kornungan barnunga, sem hún vildi eiga ein, enda verður hún fyrir tryggðarofi. Hún vinnur hvers konar erfiðisvinnu, en þegar hún hálfþrítug eignast Gullfaxa sinn, leggur hún fyrir sig ferðalög vítt um land og heldur því áfram, þá er Gullfaxi er felldur og hún eignast Ljóma. Hún annast hrossakaup, fer ýmissa erinda í annarra þarfir, en þó einkum lystireisur um Vestur-, Norður-, Austur- og Suðurland, og leggur oftast leið sína 'yfir óbyggðir og öræfi. Þegar reiðskjótar hennar hafa verið jarðsettir, fer hún í ferðalög í langferðabílum til þeirra héraða á landinu, sem hún hefur ekki gist áður — og ekki lætur hún deigan síga fyrr en hún hefur lokað hringnum, farið til Vestfjarða og austur á bóginn allt að Hornafjarðarfljóti. Þó að Andrés Kristjánsson hafi gengið frá handritinu, er auðsætt, hvern hlut sögukonan á í því, og koma þar fram ýmsir kostir hennar. Mynd af henni er framan við lesmálið. Hún sýnir unga mey, að heita má fríða, en fyrst og fremst gáfulega, og af frásögn hennar verður ljóst, að hún hefur verið gædd góðum gáfum. Minnið hefur verið og er enn með afbrigð- um trútt. Hún hefur og verið gædd næmri athyglisgáfu og vissulega kunnað að meta íslenzka náttúru- fegurð og þá ekki sízt hrikafögur fjöll, jökla og öræfi og því unað sér vel ein á ferð á góðhestum sínum í faðmi landsins þar sem „náttúran talar ein við sjálfa sig“, svo sem Grímur Thomsen orðaði það. Hún hefur auðsjáanlega margt lesið þjóðlegra bókmennta og lagt áherzlu á að eignast góðar bækur. Hagmælt hefur hún verið, og oft er auðsætt af frásögn hennar, að hún hefur kunnað að svara fyrir sig. Þá verður og séð af bókinni, að þegar hún hefur viljað það við hafa, hefur hún haft gaman af að koma í samkvæmi og á dansleiki, og sjá má af því, hve velkomin hún var, hvar sem hana bar að garði, að hún muni hafa verið viðræðu- góð og því vel þokkuð. Loks verður þess ekki dulizt við lestur sögunn- ar, að hún hefur verið góður mannþekkjari og svo skilningsrík á aðstæður, að hún hefur ekki gerzt dómhörð. En furðulegast al!s er þrek hennar, áræði og seigla. Þegar litið Jóna Sigríður Jónsdóttir er á kjör hennar á bernsku- og unglingsárum og svo allt, sem fyrir hana kóm síðar á ævinni og hefði mátt nægja til að gera hana að kararmanneskju og jafnvel svipta hana líftórunni, verður hún dæmigerður fulltrúi þeirra karla og kvenna á liðnum öldum, sem á voru lagðar slíkar hörmungar hungurs, þrælkunar og margvís- legra písla, að hver, sem hefur kynnt sér nauðaldirnar rækilega, fyllist sársaukaþrunginni undrun yfir því, að fólkið skyldi fá slíkt afborið og eins og Sigríður iðkað vísnagerð og dáð og geymt fornan kveðskap og sagnir og sögur. Eg fagna því og, að þessi saga hefur verið rituð og gefin út og ekki tel ég ólíklegt, að hún verði lesin, jafnvel í skólum landsins, þegar þjóðin hefur lært betur en hún kann það nú að meta mann- gildið meira en það, sem nú er hæst hossað og veldur íslenzku þjóðinni þeim erfiðleikum, er hún mætti fyrirverða sig fyrir frekar en flest annað, sem saga hennar tjáir okkur. Guðmundur Gíslason Hagalín 'Halló krakkar! nú er pað verðlaunagetraun! Hvað er Lilli klifurmús að segja, hve margir sögumögu- leikar eru í bókinni sem Lilli heldur um og hvað heitir sjó- rœninginn í „hasa-vasabókun- um Allir, ungir sem aldnir, eiga þess kost að svara þeim spurn- ingum og senda okkur svarið fyrir 10. þessa mánaðar. Síðan verður dregið úr svörunum og veitt tíu bókaverðlaun eftir eig- in vali. Verðlaunin eru öll jafnhá, þ. e. a. s. bœkur frá okkur fyrir tuttugu og fimm þúsund krónur fyrir hvern vinningshafa. Munið að setja svarið í póst fyrir 10. þessa mánaðar. Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. Vesturgötu 42, Reykjavík. Lilli klifurmús segir:_____________ Sögumöguleikarnir í Gömlu góðu œvintýrin eru: Sjórœninginn heitir: (nafn sendanda) (heimilisfang) (póststöð) (símanúmer) Börn og foreldrar athugið Auglýsingin um Lilla klifurmús og Mikka ref verður sýnd í sjónvarpinu í kvöld kl. 8:30 og frestur til þess að setja svar við getrauninni í póst er framlengdur til mánudagsins 11. þessa mánaðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.