Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978 5 Félag sjálfstædismanna í Árbæ og Seláshverfi: F járöflun til félagsheim ilis med vinningsáheiti Félag sjálfstæðismanna í Árbæ og Selási er um þessar mundir að hrinda af stað svokölluðu vinningsáheiti, sem byggist á því að stuðningsmenn Sjálfstæðis- flokksins styrki fjárhagslega lokaátak við frágang á félags- heimili í hverfinu. „Þessi fjáröflun er nýstárleg að því leiti að þeir sem fá senda vinningaáheitaseðla eru beðnir um að vísa félaginu á 1—2 aðila, sem hugsanlega vildu styrkja málefn- ið,“ sagði Guttormur Einarsson sem er í stjórn félagsheimilissjóðs í hverfinu, „en að þessari fjáröflun lokinni verður fógeti fenginn til þess að draga úr þremur verðlaunum úr greiddum seðlum og munu þeir aðilar fá allt að 400 þús. kr., en það fer þó eftir því hvernig fjáröflunin gengur." Guttormur sagði að það hefði komið fram í sambandi við undir- búning þessa máls að pólitískir Skólastjórastaða V er zlunar skólans laus til umsóknar Staða skólastjóra Verzlunarskóla íslands hefur verið auglýst laus til umsóknar. Tímaritið Frjáls verzlun segir að Valdimar Hergeirsson viðskiptafræðingur, sem lengi hefur kennt við skólann, sé sterklega orðaður við skólastjórastöðuna. andstæðingar sjálfstæðismanna hefðu talið að þessi nýbreytni í fjáröflun bryti í bága við lög, „en að sjálfsögðu var gengið úr skugga um það atriði áður en hafist var handa," sagði Guttormur. Félag Sjálfstæðismanna i Ár- bæjar- og Seláshverfi keypti á sínum tíma liðlega 100 fermetra húsnæði, fokhelt, í Hraunbæ og á s.l. tveimur árum hafa félagar unnið af og til við innréttingar á húsnæðinu þannig að þar er nú hægt að halda fundi, en vegna fjárhagserfiðleika við framkvæmd verksins er þessari fjáröflun hrundið af stað í þeirri von að sjálfstæðismenn taki höndum saman til þess að ljúka málinu fljótt og vel. Leikstjóri og leikendur. Sýnir Dansinn í Hrrnia Syðra-Langholti 7. des. U.M.F. HRUNAMANNA frumsýnir leikritið Dansinn í Hruna eftir Indriða Einarsson að Flúðum föstu- daginn 9. des. kl. 9 sd. Leikstjóri er Jón Sigurbjörnsson, tónlist í leikritinu er eftir Sigvalda Kaldalóns. Söngva æfði Sigurður Ágústsson. Dansa æfðu Ásta G. Daníelsdóttir og Halldór Guðnason. Yfir 30 manns taka þátt í sýning- unni, sem hafa lagt á sig mikla vinnu undanfarið ásamt leiktjaldasmiðum til að koma þessu leikriti á fjalirnir. Ungmennafélagið hefur sýnt leirit flest ár síðan það var stofnað 1908 og nú er þetta verk fært upp í tilefni 70 ára afmælis þess sem var fyrr á árinu. Sig. Sigm. FÖT — FÖT — FÖT OG AFTUR FÖT ALDREIMEIRA ÚRVAL. Austurstræti 22. Simi frá skiptiborði 28155 mi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.