Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978 Sýningu Jóhanns lýkur á sunnudag MálverkasýninK Jóhanns G. Jóhannssonar hefur verið framlengd fram yfir helgi og er sfðasti dajfur sýningarinnar á sunnudag. Sýningin er haldin í veitingastaðniim Ártúni, Vagn- höfða II, og er opin alla daga frá 14—22. Auk nýrra mynda eftir Jóhann er á sýningunni einnig að finna eftirprentanir af myndum hans og ljóðabók hans en einnig margar mynda Jóhanns, sem eru f einkaeign. Meðfylgjandi mynd RAX sýnir þrjár blómarósir, sem starfa á sýningunni, og fyrir aftan þær má.sjá eftirprentan ir af verkum Jóhanns. Ákvörðun verðlagsnefndar og ríkisstjórnar: Leyfð 4,5% hækkun Fyr irtækin bera sjálf 1,6% SAMÞYKKT hefur verið 4,5% hækkun á verðskrám efnalauga, þvottahúsa og hárskera og hefur hækkunin þegar tekið gildi. Hækkunin er tilkomin vegna launahækkana 1. desember en hækkun launa var sem kunnugt er 6,1%. Hins vegar sagði í athugasemdum með nýsam- þykktu efnahagsfrumvarpi ríkis- stjórnarinnar að þeirri hækkun skyldi ekki hleypt allri út f verðlagið heldur yrðu fyrirtækin sjálf að bera einhvern hluta hækkunarinnar. í samræmi við þetta er 4,5% hleypt út í verðlagið en fyrirtækin bera sjálf 1,6% launahækkunarinnar. Þessi af- greiðsla var gerð í verðlagsnefnd með atkvæðum fulltrúa launþega og oddamanns nefndarinnar, sem er skipaður af viðskiptaráðherra, gegn atkvæðum fulltrúa vinnu- veitenda. Afgreiðsla verðlags- nefndar var staðfest í ríkisstjórn- inni f gærmorgun. Á sama hátt var meistaraálag skert um nær 2% við ákvörðun áútseldri vinnu í verðlagsnefnd. Hins vegar var frestað afgreiðslu á tillögu um hækkun verzlunar- álagningar. Narfi fastur á Syðra-Laugalandi Borinn Narfi er nú fastur á 1080 metra dýpi á 1610 metra djúpri holu, sem boruð hefur verið á Syðra Laugarlandi fyrir Hitaveitu Akureyrar. Gunnar A. Sverrisson hitaveitustjóri segir í samtali við Akureyrarblaðið ís- lending, að vonir standi þó til að holunni megi bjarga að einhverju leyti, en kostnaður við holuna var 52 milljónir króna um sfðustu mánaðamót og virtist hún fyrir óhappið ætla að verða ein bezta holan á svæðinu. Islendingur segir að þegar taka átti borinn upp úr holunni að borun lokinni, hafi hann festst og þegar reynt var að losa hann, skrúfaðist krónan af og féll niður ásamt 29 metrum af borstöngum. Og þegar reynt var að ná þeim upp aftur kom fram hrun í holunni. Er nú borinn fastur á 1080 metra dýpi og ofan við krónuna og stangirnar er holan full af sandi. Gunnar A. Sverrisson segir að ekki sé með öllu útilokað að ná megi bornum upp aftur og síðan verði reynt að fóðra holuna til að fyrirbyggja frekara hrun. Fundur í Hinu íslenzka prentarafélagi: Onnur dísilrafstöð til Bolungarvíkur — línan frá Mjólká í notkun í janúar Bolungarvík 6. des. 1978 Undanfarnar vikur hefur rfkt hér hálfgert neyðarástand í raforkumálum staðarins, en ástæðan er sú að þeir spennar sem fyrir eru eru orðnir yfirlest- aðir, sem veldur svo verulegu spennifalli f bænum. S.l. sumar var unnið að línulögn frá Mjólká og í Breiðadal og þaðan yfir til Bolungarvíkur. Þessari línulögn er að mestu lokið en verið er að vinna við uppsetningu aðveitustöðvar í Syðridal. Gert er ráð fyrir, að því verki verði lokið í janúar og á þá það vandamál sem nú hefur upp komið að verða úr sögunni. Undanfarna daga hafa starfsmenn Orkubús Vestfjarða unnið að því að koma fyrir dísilrafstöð sem bæta mun ástand- ið þar til aðveitustöðin verður komin í gagnið. Dísilrafstöð þessi, sem er 420 kw, var fengin frá Patreksfirði í þessu skyni. Hér er önnur díselstöð fyrir sem er 420 kw og hefur hún verið keyrð allan sólarhringinn undanfarna mánuði en gert er ráð fyrir, að þegar aðveitustöðin verður komin í gagnið þá verði hægt að nota þá vél einungis sem varastöð og í framtíðinni er henni ætlaður staður í byggingu aðveitustöðvar- innar. Þar á að rísa 300 fm stálgrindarhús en ekki er fullvíst hvenær því verki verður lokið þar sem ekki hefur tekist að tryggja fjármagn til verksins en vonast er Vilja úti- markað á Akureyri BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur af skipulagsástæðum synjað „að svo stöddu“ umsókn um starfrækslu útimarkaðs á Ráðhústorgi eða í hugsanlegri göngugötu í Hafnarstræti. Akureyrarblaðið íslendingur skýrir frá því, að þeir Valtýr Hreiðarsson og Gunnar Jónsson hafi sótt um heimild fyrir Fell sf. til að starfrækja útimarkaðinn. Segir Valtýr í samtali við blaðið, að hugmyndin hafi verið að hafa svipað skipulag og á útimarkaðn- um á Lækjartorgi í Reykjavík. til, að hægt verði að ljúka því á næsta ári. Um síðustu helgi var endanlega gengið frá samningi á milli Orkubús Vestfjarða og Bolungarvíkurkaupstaðar og er Bolungarvík þar með orðin full- gildur aðili að Orkubúi Vestfjarða. Gunnar. Skipulags- sýning á Akureyri Akureyri, 7. desember SÝNING á tillöguuppdráttum arkitekta að skipulagi miðbæjar á Akureyri verður opnuð í kjallara Möðruvalla, húss Menntaskólans á Akureyri, á morgun, föstudaginn 8. desem- ber, klukkan 16. Um er að ræða þrjár megintillögur að gerð miðbæjarskipulags og verða þær síðan lagðar fyrir skipulagsnefnd Akureyrar og bæjarstjórn. Ætl- unin er að bæjarstjórn samþykki nýtt dciliskipulag að miðbæ á Akureyri í upphafi næsta árs, og farið verði að vinna að skipulag- inu næsta vor. Sýningin að Möðruvöllum er síðasti liðurinn í kynningu skipu- lagsnefndar Akureyrar á skipulagi miðbæjarins. Sýningunni lýkur sunnudaginn 10. desember klukkan 16 en þá hefst almennur borgarafundur á sama stað. Þar verða arkitektarnir Haraldur V. Haraldsson og Svan- ur Eiríksson sem unnið hafa að gerð tillagnanna og auk þeirra fulltrúar í skipulagsnefnd og bæjarfulltrúar á Akureyri ásamt Helga M. Bergs bæjarstjóra. Sv. P. Utanríkis- ráðherra á NATO-fundi BENEDIKT Gröndal utanríkis- ráðherra situr nú utanríkisráð- herrafund NATO í Brussel og fóru þeir Henrik Sv. Björnsson ráðu- neytisstjóri og Hörður Helgason skrifstofustjóri utanríkisráðu- neytisins til fundarins með ráð- herra. Þetta er tveggja daga fundur og lýkur honum í dag. Mótmælir vinnubrögð- um forystumanna ASl FUNDUR í Hinu íslenzka prentarafélagi hefur mótmælt þeim vinnubrögðum forystumanna Álþýðusambands íslands að boða ekki til formanna- eða kjaramálaráðstefnu nú eins og áður, þar sem stefna verkalýðshreyfingarinnar yrði mörkuð í kaup- og kjaramálum fyrir næsta ár. Fundurinn mótmælir því harðlega, að nokkrar pólitískar ráðstafanir séu gerðar af stjórnvöldum og einstaka forystumönnum ASÍ í efnahagsmálum, sem leiða til skerðingar á kaupmætti iauna og breytinga á frjálsum samningum. I framangreindri fundarsam- þykkt HÍP segir orðrétt: Fundur í Hinu íslenzka prent- arafélagi, haldinn 5. desember 1978, fordæmir harðlega, að enn einu sinni skuli stjórnvöld lands- ins grípa inn í gildandi kjara- samninga aðila vinnumarkaðarins, nú með því að skerða uppbætur á laun sem koma áttu til greiðslu vegna hækkunar framfærsluvísi- tölu. Fundurinn vill minna á, að verðbótavísitala á laun var eitt aðalatriði „sólstöðusamninganna" sem nú er verið að skerða. Enda þótt ríkisstjórn sú, er nú situr, hafi haft samráð við fulltrúa ASÍ um breytingar á vísitölubót- um, gegn óljósum loforðum varð- andi félagslegar umbætur, sem margar hverjar var búið að semja um áður, þá breytir það engu um gildi kjarasamninga einstakra félaga, þar sem einskis umboðs hefur verið leitað frá þeim af hálfu heildarsamtakanna um heimild til breytinga á gildandi kjarasamn- ingum. Fundurinn mótmælir þeim vinnubrögðum forystumanna ASI að boða ekki til formanna- eða Dýpsta borhola landsins léleg miðlungshola „HOLAN hefur ekkert batnað við þessar tilraunir til að reyna að hreinsa aðstreymisopin, þannig að við gerum okkur ekki meir vonir en það, að hún verði léleg miðlungshoia, ef farið verður í það að virkja hana,“ sagði Jóhannes Zoega hitaveitustjóri Reykjavíkurborgar, er Mbl. spurði hann í gær um árangurinn af borun dýpstu holu landsins við Sjómannaskólann. Holan við Sjómannaskólann er 3100 metrar. Jóhannes sagði að hitinn í holunni hefði farið vax- andi niður á við en hins vegar gæfu neðstu lögin lítið vatn sem þau efri. Nokkurt hrun varð í holunni, en Jóhannes sagði að tekizt hefði að lagfæra það, en hins vegar hafa dælingar til að hreinsa aðstreymisopin í holunni engan árangur borið. Holan við Suðurlandsbraut er nú um 2000 metra djúp og sagði Jóhannes ætlunina að dýpka hana í um 3000 metra. Frekari djúpbor- anir á Reykjavíkursvæðinu eru ekki ákveðnar, en Jóhannes sagði að áhugi væri á því að bora á Laugavegarsvæðinu, þegar efni og aðstæður Ieyfðu. kjaramálaráðstefnu nú eins og áður, þar sem stefna verkalýðs- hreyfingarinnar yrði mörkuð í kaup- og kjaramálum fyrir næsta ár, þar eð þá má búast við frekari kjaraskerðingu, skv. athugasemd- um sem fylgdu frumvarpi um viðnám gegn verðbólgu. Fundurinn mótmælir því harð- lega, að verðbólguþróunin stafi af of háu kaupgjaldi hjá fólki sem fær greitt samkvæmt samningum verkalýðsfélaganna. Það er al- mennt viðurkennt, að engum er mögulegt að lifa af dagvinnutekj- um einum saman og kaupgjald verkafólks á Islandi er sannanlega mikið lægra miðað við kaupmátt en í öllum nágrannalöndum okkar, þar sem verðbólga er aðeins brot af því sem hér þekkist. Þess vegna mótmælir fundurinn því harðlega, að nokkrar pólitískar ráðstafanir séu gerðar af stjórn- völdum, og einstaka forystumönn- um ASÍ, í efnahagsmálum, sem leiða til skerðingar á kaupmætti launa eða breytinga á frjálsum samningum. Fundurinn lítur svo á, að kjaraskerðingin nú sé bráða- birgðaráðstöfun sem ekki leysi þann verðbólguvanda sem við er að glíma, heldur aðeins frestur til stjórnvalda — ekki frestur sem hvetur þau ekki til að leggja fram lausn til frambúðar — lausn sem dregur úr verðbólgu og tryggir kaupmátt launa, sem var þó eitt af mörgum loforðum núverandi stjórnarflokka.(pr.ttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.