Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 32
í/{(U /)vV\\V\\ studio-line l.atisia\'Ciíi <Sá (',<>('» ojöter dulls i’oikli Verzlið sérverzlun meö litasjónvörp og hljómtæki. V ^ * Skipholti 19 l BUÐIN sími ' ' 29800 FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978 Borgarstjórnarfundur í gærkvöldi: 300 millión króna sorphirðugjald fellt — með atkvæðum borg- arfulltrúa Sjálfetæðis- flokksins og Sjafnar Sigurbjörnsdóttur Á FUNDl borgarstjórnar í gærkvöldi var tillaga meirihlutans um sérstakt sorphirðugjald felld með 8 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og annars borgarfulltrúa Alþýðuflokksins, Sjafnar Sigurbjörnsdótt- ur, gegn 7 atkvæðum annarra meirihlutamanna. Áður en til þessarar atkvæðagreiðslu kom hafði Sjöfn lýst því yfir í umræðum að hún væri andvíg gjaldinu og myndi greiða atkvæði gegn því og bar þá Kristján Benediktsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins fram tillögu um að málinu yrði frestað. Tillaga Kristjáns fékk 7 atkvæði og því ekki nægan stuðning til að ná fram. í umræðum um sorphirðugjaldið lýstu borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins yfir andstöðu sinni við þessar auknu álögur á borgarbúa, en forystumenn meirihlutans héldu fast fram málstað sorp- hirðugjaldsins. Þá kvaddi Sjöfn sér hljóðs og lýsti yfir andstöðu sinni. Vakti sú yfirlýsing mikið fjaðrafok meðal annarra meiri- hlutamanna og reyndu þeir að beita Sjöfn þrýstingi, en hún hélt fast við sína skoðun. Bar þá Námsmenn buðu til fundar: Tómas kom Ragnar ekki KJARABARÁTTUNEFND náms- manna hélt í fyrrakvöld fund um málefni Lánasjóðs fslenzkra náms- manna. Var boðið ailmörgum al- þingismönnum og ráðherrunum Tómasi Árnasyni fjármálaráðherra og Ragnari Árnaids menntamála- ráðherra. Tómas sótti fundinn og að sögn forystumai.na námsmanna lofaði hann að auka fjárframlag til sjóðsins um 900 milijónir króna. Ragnar Arnalds sá sér ekki fært að sækja fundinn. Sjá nánar um málefni Lánasjóðs- ins og námsmanna á bls 17. Kristján Benediktsson fram til- lögú um að málinu yrði frestað til að meirihlutamenn gætu rætt það sín í milli. Tillaga meirihlutans var um að borgarstjórn óskaði eftir því við félagsmálaráðherra að hann beitti sér fyrir að'sett yrði í lög heimild fyrir sveitarfélög til innheimtu sorphirðúgjalds, sem þýða myndi 300 milljón króna auknar álögur á borgarbúa. ÞAÐVIRÐIST sem þessum sæ- fara verði ekki um storma og stórsjói Norðuríshafsins. Skútan kom til hafnar á ísafirði s.I. þriðjudag. Aðeins einn skipverji er um borð. en þrátt fyrir ftrekaðac tiiraunir fréttamanns tókst ekki að ná sambandi við hann. Haft var samband við þýska ræðismanninn á ísafirði, en honum er ókunnugt um ferðir skútunnar, sem heitir Solaris og er frá Hamborg. Þykir ísfirðing- um forvitnilegt að vita hvað einn maður á skútu er að gera hér í skammdeginu. Ljósm. Úlíar. ....................,.'1., -vszékfrC'', -' ' ....................... - ■; ■-< ...........\,w. 25 skip selja afla sinn erlendis í næstu viku Algengt að fjórum sinnum hærra verð fáist fyrir fiskinn ytra í NÆSTU viku er áætlað að 18 fiskiskip selji aíla sinn f Bretlandi og 7—8 skip landi í V-Þýzkalandi. Langt er sfðan, ef það hefur þá nokkurn tfmann gerzt, að svo mörg skip selji erlendis á einni viku. Ástæður þess að skipin sigia í svo mikium mæli er hátt fiskverð ytra og þá einkum f Bretlandi á sama tíma og útgerðarmenn og sjómenn eru óánægðir með fiskverð hér á landi. Lætur nærri að þrefalt til fjórfalt hærra verð fáist fyrir þorsk í Bretlandi en hér heima og verð á karfa og ufsa er rösklega fjórum sinnum hærra ytra. — Ástæða þessara miklu siglinga er hið háa verð ytra og að fiskverð hér heima hefur ekki fylgt öðrum verðbreytingum, sagði Kristján Ragnarsson fram- kvæmdastjóri LÍÚ í samtali við Morgunblaðið í gær. — Þetta á sérstaklega við fiskverðsbreyting- una 1. október, en hún hefur beinlínis orðið til þess að ýta skipunum til útlanda. Sjómennirn- ir, ekki síður en útgerðarmennirn- ir, njóta þessa háa verðs og þetta er því sameiginlegt áhugamál þeirra, sagði Kristján. Aðspurður um hvort greiðslu- erfiðleikar frystihúsanna ættu þátt í þessu sagði hann að svo væri vissulega í mörgum tilfellum. Erfiðlega hefði gengið að fá greitt fyrir það hráefni, sem lagt hefði verið á land hér. Því gætu menn Frv. Matthíasar Á. Mathiesen og Geirs Hallgrímssonar: Afturvirk og íþyngjandi skattiagn ing bönnuð í stjórnarskránni MATTHÍAS Á. Mathiesen og Geir Hallgrimsson lögðu fram á Alþingi í gær frv. um breytingu á stjórn- arskránni á þann veg, að bannað yrði að setja „íþyngjandi reglur um skatta á tekjur eða eignir liðins árs“ eða „afturvirk- ar og íþyngjandi reglur um breytta eða nýja skatt- stofna“. Verði þessi breyt* ing á stjórnarskránni sam- þykkt hafa ríkisstjórnir og Alþingi ekki heimild til að ákveða á því ári, sem skattar greiðast meiri skattbyrði af tekjum liðins árs en lög sögðu til um á því ári. Markmiðið með frumvarpi þessu er skv. greinargerð þessi • að auka réttaröryggi á sviði skattamála • að setja skorður við því, að afturvirk og íþyngjandi ákvæði séu sett um skatta á tekjur og eignir. í greinargerðinni benda flutn- ingsmenn á, að ákvæði um afturvirka og fþyngjandi skatt- heimtu geti valdið skattþegnum verulegum erfiðleikum, þar sem þeir hafi gert ráðstafanir í réttmætu trausti þess, að skatt- lagning á tekjur og eignir verði í samræmi við gildandi löggjöf á þeim tíma, sem slíkar ráðstafanir eru gerðar. Sem dæmi um þetta er nefnt, að það geti verið mjög bagalegt, ef afturvirk og íþyngj- andi ákvæði breyti skattstofni eða ákveði nýjar, t.d. lýsi óheimilt að draga viðhaldskostnað íbúðar skattþegns frá tekjum, þó að slíkt hafi verið heimilt, þegar ráðizt var í dýra viðgerð. ekki unað því að eiga kost á að selja í Bretlandi fyrir hátt verð og nota það ekki þegar hinn kostur- inn væri að landa hér og fá fiskinn ekki greiddan. Kristján var spurður hvort það ylli ekki atvinnuleysi meðal starfs- fólks í frystihúsum ef svo stór hluti flotans sigldi á sama tíma. Sagði hann að meðal fólksins í húsunum væri mikill vilji fyrir að taka sér frí þessar vikur í kringum hátíðirnar. — Meginástæðan fyrir þessu er náttúrulega lágt fiskverð hér á landi á sama tíma og mikil eftirspurn er ytra vegna lítils framboðs, sagði Kristján. — Þessi tími ársins er sá albezti til að selja erlendis og það eru bæði eigendur fiskvinnslustöðva og skipa og báta, sem ekki eru í sameign, sem láta skip sín sigla. Við höfum orðið varir við nokkra gagnrýni í sambandi við þessar siglingar, en í margra áratugi hefur það viðgeng- ist að ferskur fiskur væri seldur erlendis í ríkum mæli. Engin ríkisstjórn hefur haft afskipti til að hindra þetta og ég tel fjarri lagi annað en að menn séu frjálsir að því að selja sinn fisk þar sem þeir telja hagkvæmast á hverjum tíma. Staðan er þannig nú, að mun hagkvæmara er að selja fiskinn ferskan erlendis heldur en að vinna hann heima, sagði Kristján Ragnarsson, Þess má að lokum geta, að íslenzk skip selja nú afla sinn í 5 borgum erlendis, Hull, Grimsby og Fleetwood í Bretlandi, en Cuxhaven og Bremerhaven í V-Þýzkalandi. Þessir markaðir hafa verið meira og minna lokaðir tvö síðastliðin ár og truflun á þeim í mörg ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.