Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978 9 Sigrún f lytur SIGRÚN FLYTUR Sagai Njörður P. Njarðvík. Myndiri Sigrún Eldjárn. Prentuni Offsetmyndir sf. Útgáfai Iðunn. Þetta er mjög hugþekk bók, og kemur þar margt til. Fyrst það, að hún bendir á vandamál sem lítið fólk, er skiptir um um- hverfi, á við að glíma, vandamál Bðkmenntlr eftir SIGURÐ HAUK GUÐJQNSSON sem foreldrum gleymist oft og hafa því iðulega valdið rótleysi og tilfinningalegum sárum, sem seint eða aldrei verða bætt. Satt er það, Sigrún er vart nógu gömul t.þ.a. leiða fram þann vanda er í lífi eldri krakka verður, aðlöðunarhæfi hinna ungu meiri en hinna eldri, en sagan er þó hverju hugsandi foreldri umhugsunarefni, lóð á vogaskál er meta skal kosti og galla íbúðaskipta. I annan stað kemur um ágæti þessarar sögu, að hún er listavel sögð. Njörður er vandvirkur höfundur sem kemur efni sínu til skila á fögru máli, máli sem ungu fólki er þroski af að nema. Nú svo eru það myndirnar hennar Sigrúnar. Það er eitt- hvað undarlega einfalt og barnslegt við þær, þær eru ekki glanskort sölumennskunnar, heldur blik frá amstri lífsins sjálfs. Það læddist að mér við lestur þessarar bókar, að gaman iiæri ef þeir höfundarnir halda sögum sínum áfram af Sigrúnu, að þeir leiddu hana í sömu spor eldri, t.d. um fermingar aldur. Slíkt efni væri vert úrlausnar sam- starfshóps: kennara, læknis, lögreglu,, foreldra og prests. Slíkrar bókar er þörf, og „for- eldrar" Sigrúnar litlu væru vísir til að gera því efni góð skil. Hafi höfundar og útgáfa þökk fyrir gott verk og vandaðan frágang. Sigrún litla er orðin vinur margra. Emmu-bækur Emma fer í leikskóla og Emmu finnst gaman í leikskól- anum. Höfunduri Gunilia Wolde Þýðingi Þuríður Baxter Prentuni Purnell & Sons Ltd. Útgefandii Iðunn Þetta eru snotur kver fyrir börn á leikskólaaldri. Áherzla er lögð á myndirnar, þær eru líka afbragðs góðar, spanna margt úr lífi lítillar manneskju í leikskóla. Myndtextinn er stuttur, svona stiklur að viðræðum við þsc er kverin höfða til. Það er ^man að setjast með þau á rúmstokk, eftir eril dagsins, og ræða þau við lítil börn, finna, hvernig heimur kveranna og barnanna haldast í hendur. Þýðing er góð. Frágangur allur til fyrirmyndar. Hafið þökk fyrir. „Upp á líf og dauða” — ný skáldsaga eftir Charles Williams KOMIN er út í íslenzkri þýðingu ný skáldsaga eftir Charles Willi- ams, „Upp á líf og dauða“. „Hún gerist á sjó úti eins og fyrri bækur höfundar,“ segir á kápusíðu. „Síðbúin brúðkaupsferð er farin á skemmtisrekkju. Einn dag sést til skips. Til þessa hafði verið algjör ládeyða, en með komu skipsins verður ókyrrð í logninu. Ungur maður kemur róandi frá skipinu, en með komu þessa unga manns gerast æsispennandi atburðir hver af öðrum. Þetta er saga, þar sem barist er upp á líf og dauða, og enginn leggur frá sér fyrr en að lestri loknurn." Þetta er þriðja bók Williams, sem gefin er út á íslenzku. — Útgefandi er Suðri. Sýningin i Grindavík Grindavík, 6. desember. SÍÐASTI sýningardagur mál- verkasýningar þeirra sem nú stendur yfir í Festi í Grindavík verður í dag, fimmtudag. Sýning þessi er haldin í fjáröflunarskyni til að reisa minnismerki um drukknaða menn í Grindavík, og ýmsir landskunnir listamenn hafa gefið verk á þessa sýningu. Tölu- vert hefur selzt af myndum það sem af er. — Guðfinnur. Lítið born hefur ■ r* •% mm • \ litið S|0nsvið 43466 - 43805 OPIÐ VIRKA DAGA TIL KL. 19 OG LAUGARDAGA KL. 10—16. a söluskrá. EIGNABORG sL FASTEIGNA HÖLUN FASTEIGNAVIÐSKIPTI MIÐBÆR- HAALEITISBRAUT 58 60 SÍMfR-35300435301 Viö Sörlaskjól 3ia herb. mjög góö kjallara- íbúð. Ný eldhúsinnrétting. Nýtt tvöfalt verksmlójugler í glugg- um. Laus fljótlega. Viö Blöndubakka 4ra herb. íbúö á 2. hæö ásamt herb. í kjallara. Viö Tómasarhaga 4ra herb. íbúö á jaröhæö í þríbýllshúsi. Viö Krummahóla Penthouse íbúð á tveim hæö- um. Samtals 6 herb. og eldhús. Rúmlega tilb. undir tréverk. Bílskýli fylgir. í smíöum við Ásbúa í Garöabæ, raöhús á tveim hæöum meö innbyggð- um tvöföldum bílskúr. Selst fokhelt. Viö Smyrilshóla 3ja herb. íbúö á 2. hæö meö bílskúr. Selst tilb. undir tréverk. Til afhendingar í júní ’79. Beöiö eftir hluta húsnæöismálastjórn- arláns aö upphæð 4,5 millj. í Seljahverfi Elnbýlishús meö tvöföldum bílskúr. Selst fokhelt. Teikning- ar á skrifstofunni. Fasteignaviðskipti Agnar Ólafsson, Arnar Sigurðsson, Hafþór Ingi Jónsson hdl. Heimasimi sölumanns Agnars 71714. Einingahús FRÁ TRÉSMIÐJU SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR SELFOSSI • SÍMI 99-1876 OG 99-1376 Leitið upplýsinga um verð og greiðsluskilmála Stærð 125,4 m 2 SÖGUSAFN HEIMILANNA NÝÚTKOMNAR SKÁLDSÖGUR FORLAGALEIKURINN eftir Herman BjurstenogBJARNAR- GREIFARNIR eftir Nataly von Eschstruth eru 23. og24. bókin í bókaflokknum Sígildar skemmtisögur Sögusafns heimilanna. Spennandi og viðburðaríkar skáldsögur, eins og allar sögurnar í þessum vinsæla bókaflokki. VINNAN GÖFGAR MANNINN og AF ÖLLU HJARTA, 6. og 7. bókin í þessum flokki hafa verið endurprentaðar. KYNLEGUR ÞJÓFUR eftir George E. Walsh ogSELD ÁUPP- BOÐI eftir Charles Carvice eru 3. og 4. bókin í bókaflokknum Sígildar skemmtisögur - 2. flokkur. I fyrra komu út fyrstu tvær bækurnar: BÖRN OVEÐURSINS og ÆVINTÝRIÐ í ÞANG- HAFINU. Alit eru þetta úrvals skemmtisögur. SVONA STÓR eftir Ednu Feber og ÁST OG GRUNSEMDIR eftir Anne Maybury eru 6. og 7. bókin í bókaflokknum Grænu skáldsögurnar. Eignist þessar úrvals skáldsögur frá byrjun. ERFINGINN eftir Morten Korch er 4. skáldsagan, sem kemur út eftir þennan vinsæla höfund. ÆVINTÝRI SHERLOCK HOLMES eftir A. Conan Doyle í heildarútgáfu. í fyrsta bindinu eru tvær langar sögur: RÉTTLAT HEFND ogTÝNDI FJÁRSJÓÐURINN. Tryggiðykkur eintak af ævintýrum mesta leynilögreglukappa allra tíma. I [ITIBI Ný skáldsaga eftir IIII lll DESMOND BAGLEY LEITIN er tólfta bók þessa vinsæla sagnameistara. Sagan er alveg ný af nálinni, kom út í september s.l. í Englandi og hefur verið þar efst í sölu nýrra bóka síðan. Atburðarásin er mjög spennandi, íjallar um leit að flugvélarflaki í eyðimörkinni, sem Englendingur að nafni Staff'ord stendur fyrir ásamt dularfullum Ameríkana, sem gert hafði eyði- mörkina að heimili sínu. En leigumorðingjar eru á hælum þeirra og það hefst kapphlaup um að finna flugvélarflakið og leysa gátuna, kapphlaup upp á líf og dauða. LEITIN er tvímælalaust ein afbestu skáldsögum Desmond Bagleys, ævintýraleg og spennandi. GULLKJÖLURINN fyrsta skáldsagan eftir Desmond Bagley og sú bók, sem gerði hann strax frægan, hefur verið endurprentuð, en þessi bráðskemmtilega saga hefur verið ófáanleg árum saman. UPP Á LÍF OG DAUÐA, ný skáldsaga eftir Charles Williams. Æsispennandi saga, sem gerist á hafi úti, eins og fyrri bækur höf- undar: ELDRAÚN Á ÚTHAFINU og EINN A FLÓTTA.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.