Morgunblaðið - 10.12.1978, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1978
53
Gjafabækur
Almenna
bókafélagið
Austurstrætí 16 — sími 19707
Skemmuvegi 36, Kópavogi — Sími 73055.
HQBBIT
Fáar bækur hafa hlotið jafn almenna aðdáun og vinsældir og
ævintýrasagan um Hobblt og á það jafnt viö um foreldra, kennara
og ritdómara, en umfram allt börn og unglinga.
PÉSI REFUR
er létt og kátleg dýrasaga — viðfetldinn lestur hverjum sem er og
ágæt til upplestrar fyrir lítil börn.
TÓTATÍKARSPENI
var lítil stelpa sem enginn vildi hlusta á því að allir voru svo
uppteknir. En svo fann hún tréð og þaö hafði tíma til aó hlusta.
Höfundar myndanna í bókinni Hlynur Örn og Kristinn Rúnar eru 11
og 13 ára.
SAGAN UM SÁM
Hin fræga saga eins kunnasta af núlifandi höfundum Svía Per Olof
Sundmans. Hún er byggö á Hrafnkels sögu Freysgoða, en er færö
til nútímans. Hrafnkell Freysgoði akandi í Range Rover um
víöáttur Austurlands.
NJÓSNARI í INNSTA HRING
Geysispennandi njósnasaga eftir einn frægasta njósnasagnahöf-
und heimsins Helenu Maclnnes. Saga um ótrúleg svik og furöuleg
klækjabrögö.
BLÓÐ
Þessi nýja saga skáldbóndans á Egilsá gerist á heiðum uppi og er
harla nýstárleg íslenzkum sagnaskáldskap. Sagan er jafnt fyrir
aldna sem unga full af húmor en undir niðri er alvarlegur tónn.
SPILAÐ OG SPAUGAÐ
Ævisaga Rögnvalds Sigurjónssonar píanóleikara skráð eftir
frásögn listamannsins af Guörúnu Egilsson, kátleg létt og
hreinskilin
HÆGARAPÆLT EN KÝLT
. . . þeim tíma er vel varið sem fer í að lesa Hægara pælt en kylt
spjaldanna á milli (Kristján Jóh. Jónsson, Þjóöviljinn).
. . bókin geturoröiö holl lesning þeim, sem trúa því að íslenzkt mál
sé á hraðri leiö til helvítis. (Heimir Pálsson Vísir).
AFDREP í OFVIÐRI
Minningabók 8 ára norsks drengs sem flýði voriö 1940 ásamt
fjölskyldu sinni í fiskibát undan Þjóðverjum. Þau ætluöu til ameriku
en lentu í Klakksvík í Færeyjum.
KALLAÐ í KREMLARMÚR
Skemmtileg frásögn um ferð þeirra Agnars Þóröarsonar/Steins
Steinars o. fl. í boði Friðarsamtaka Sovétríkjanna til Rússlands
sumarið 1956.
MATREIÐSLUBÓK
handa ungu fólki á öllum aldri
i þessari bók eru ekki uppskriftir aö öllum mat, en vonandi góöar
uppskriftir að margs konar mat og góð tilbreyting frá því venjulega.
MOZART
sannkallaö undrabarn var farinn að leika á hljóöfæri og semja lög
áður en hann varð 6 ára. Þessi bók segir í aðalatriðum frá ævi hans
og störfum á tónlistarsviðinu.
HVERNIG KAUPIN GERAST
Á EYRINNI
fjallar um aöferðir, sem viðhafðar eru hér á landi við kaupdeilur og
kjarasamninga. \
Hvernig fara slíkir samningar fram?
Hvernig er háttað skipulagi, stefnu og stöðu launþega — og
vinnuveitenda samtaka við lausn kjaradeilna?
Hver er þáttur ríkisvaldsins í þessum málum?
Hvers vegna eru kjarasamningar eins margir, margvíslegir og
misheppnaðir og raun er á?
Sé einhverju ábótavant við lausn kjaradeilna hvað er þá til úrbóta?
Slíkum spurningum og mörgum fleirum, sem varöa kaup og
kjaramálin er svarað í þessari bók.
FYRIR STRÍÐ
Þriöja Ijóöabók Erlends Jónssonar Minningar frá bernskuárum
skáldsins við þjóöveginn fyrir norðan.
MORGUNN í MAÍ
níunda Ijóöabók Matthíasar Johannesens. Sviðið er bernska
skáldsins og stríðsárin í Reykjavík. Léttleiki með þungum undirtón.
fcistamaðurinn Erró hefur gert í bóklna 25 litmyndir í sínum
sérstæða stíl.
FRJÁLSHYGGJA ALRÆOISHYGGJA
hlutlæg skilgreining á tveimur meginstefnum stjórnmálanna fyrr og
síöar — hvort einstaklingurinn eigi að ákveöa sjálfur markmiö sín,
orð og athafnir eða hvort ríkisvald og stjórnendur eigi aö ákveða
það fyrir hann
VÆNGIR DRAUMSINS
30 úrvalsijóð eftir Ingólf Jónsson, frá Prestbakka.
ALT ARISBERGIÐ
Tíunda Ijóðabók Jóns úr Vör. eins aðalfrumherjans í Ijóðagerð hins
frjálsa forms. Fögur Ijóö, ferskar hugmyndir.