Morgunblaðið - 15.12.1978, Qupperneq 3
3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978
„Unrwui áfangi
í jafnrétt-
isbaráttunni”
Sr. Auður Eir Vilhjálmsdótt-
ir kjörin lögmætri kosningu
TALIN hafa verið atkvæði á skrifstofu biskups frá prestskosningu í
Kirkjuhvolsprestakalli í Rangárvallaprófastsdómi, en kosning fór þar
fram sl. sunnudag. Einn umsækjandi var um prestakallið, sr. Auður
Eir Vilhjálmsdóttir og hlaut hún 176 atkvæði af 220 sem kusu, en 44
seðlar voru auðir og voru 365 á kjörskrá. Kosningin var lögmæt, en
þetta mun í fyrsta sinn sem kona er kjörin til preststarfa lögmætri
kosningu.
Mbl. ræddi stuttlega við sr. Auði Eir Vilhjálmsdóttur í gær og var
hún fyrst spurð hvað henni væri efst í huga þegar úrslit þessara
kosninga væru kunm
Hjólbarðamálið:
Tugmilljóna svik
FYRIR liggja játningar fimm manna um fjársvik hjá
varnariiðinu og eftir því sem Mbl. kemst næst skipta
svikin tugum milljóna króna. Hagnaðinum munu
fyrrnefndir menn hafa skipt bróðurlega á milli sín.
Eins og fram hefur komið í varnarliðinu með því að falsa
Mbl. voru svikin í því fólgin að bókhald birgðadeildar og falsa
Sr Auður Eir Vilhjálmsdóttir
varnarliðið var látið greiða
fyrir fleiri hjólbarða en það í
raun og veru fékk. Að þessum
svikum stóðu starfsmenn hjá
birgðadeild varnarliðsins og
innflytjandi hjólbarðanna,
sem eru af Mohawk-gerð.
Tókst þeim að hafa féð út úr
„Tilhlökkunin til að taka aftur
til starfa sem prestur, vonin um að
við í Kirkjuhvolsprestakalli
munum starfa af þrótti sem
lifandi kristilegt félag. Gleði yfir
viðbrögðum safnaðarfólksins þar.
Þakklæti til manns míns og dætra,
fjölskyldu og fjölmargra vina, sem
jafnan hafa stutt mig í prestkosn-
ingum og ég met meira en orð fá
lýst, þar með hlýhugur til safn-
aðarins í Súgandafirði sem ég
vígðist til 1974. Og síðast en ekki
sízt gleði yfir unnum áfanga í
j afnréttisbaráttunni.
Þetta er í fyrsta sinn sem kona
er kjörin til preststarfa á íslandi
og sagði sr. Auður Eir af því
tilefni:
„Mér finnst það gleðilegt að
viðleitni til þess að fá jafnrétti í
þessu embætti sé nú viðurkennd
með lögmætri kosningu."
Að síðustu var hún spurð hvort
hún teldi að úrslitin í þessum
Ógnaði
konu með
hnífi
LEITAÐ er ákaft að manni
nokkrum, sem brauzt inn 1
íbúð ungra hjóna í miðborg
Reykjavíkur um s.l. helgi, stal
50 þúsund krónum í peningum
og ógnaði konunni með hnífi,
en hún var ein heima.
Unga konan vaknaði við það
um miðja nótt að maðurinn var
kominn inn í svefnherbergið
með hníf á lofti. Gerði maður-
inn sig líklegan til kynferðis-
legra athafna en áður en til
slíks kom gat konan vakið
athygli annarra íbúa hússins á
því að ekki væri allt með felldu
í íbúðinni. Hjálp barst fljótlega
en þá hafði maðurinn hypjað
sig. Konan þekkti ekkert til
mannsins enda var hann dulbú-
inn. Leitar Rannsóknarlögregla
ríkisins mannsins ákaft.
106 lestir
af rækju
RÆKJUVEIÐAR voru leyfðar
á Húnaflóa 14. nóvember, en
vegna mikillar seiðagengdar
hafa veiðar ekki verið leyfðar í
Arnarfirði og ísafjarðardjúpi.
Litlar líkur eru á, að veiðar
hefjist fyrir áramót, nema
skyndileg breyting verði á
ástandinu á þessum miðum.
Frá Hólmavík og Drangsnesi
stunduðu 14 rækjubátar veiðar
og öfluðu 106 lestir. Voru flestir
með 8,4 lestir í mánuðinum. Til
vinnslu á Hólmavík fóru 58
lestir og Drangsnesi 48 lestir. I
fyrra voru 13 bátar við veiðar
og öfluðu 126 lestir í nóvember.
kosningum gætu haft einhver
áhrif á sókn kvenna í guðfræði-
nám og preststörf:
„Ég vona að þessi úrslit hafi
mikil og góð áhrif á möguleika
þeirra ágætu kvenna, sem nú
stunda nám við guðfræðideildina,
til að taka til starfa í prestskap
þegar þar að kemur. Ég vona að
þau verði þeim hvatning til að
koma til starfa því að kirkjan
þarfnast þeirra." .
Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir er
gift Þórði Erni Sigurðssyni
háskólakennara og eiga þau 4
dætur. Sr. Auður Eir lauk guð-
fræðiprófi árið 1962, hefur starfað
í kvenlögreglunni bæði með
guðfræðináminu og að því loknu
og árin 1974—1975 var hún prestur
í Súgandafirði. Þá hefur hún verið
búsett í Frakklandi í 6 ár.
Enn gott fisk-
verð í Englandi
FIMM fiskiskip seldu afla í Bretlandi í gær og enn
sem fyrr gerðu þau öll góða sölu og lægsta
meðalverð skipanna varð 429 krónur sem er mjög
gott verð. Þá seldi eitt skip í V-Þýzkalandi.
Sigurbára VE seldi 48,3 tonn í
Fleetwood fyrir 20,8 milljónir,
meðalverð 473 krónur. Ólafur
Bekkur seldi 81.4 tonn í Hull
fyrir 35,2 milljónir króna,
meðalverð 432 krónur. Gissur
hvíti landaði 43.3 tonnum í
Grimsby og fékk 19,8 milljónir
króna fyrir aflann, meðalverð
456 krónur. Gullver seldi 66.9
tonn í Fleetwood fyrir 28,7
milljónir meðalverð 429 krónur.
Gyllir landaði í gær og í
fyrradag 112 tonnum í Grimsby
og fékk 53 milljónir fyrir aflann,
meðalverð 473 krónur.
Loks seldi Kópur 46.7 tonn i
Bremerhaven fyrir 11,8 milljón-
ir, meðalverð 252 krónur.
aðra pappíra. Svikastarfsemi
þessi hefur staðið yfir í tvö ár
og er talið að varnarliðið hafi
verið látið greiða fyrir nær
1800 fleiri hjólbarða en það
fékk.
Tveir menn sitja enn í
gæzluvarðhaldi vegna málsins.
Aðilar málsins hafa verið í
stöðugum yfirheyrslum síðustu
dagana og liggja nú fyrir
játningar í málinu að sögn
Rannsóknarlögreglunnar.
Múlafoss
tók niðri
Hornafirði. 14. desember.
MÚLAFOSS tók niðri á sandrifi
hér í Ósnum um klukkan 14 í gær.
Mikið innfall var þegar atburður-
inn gerðist og hefur það trúlega
valdið því að skipið fór utan í
eyrina. Múlafoss náðist út á
flóðinu undir morgun í dag af
eigin vélarafli og er ekki talið að
neinar teljandi skemmdir hafi
orðið á skipinu.
— Jens.
MEST selda tæi
1977 og 1976
R-aaiJAL:,'
LANDSINS
CROWN
meðmæli.
Þetta
eru
1979 árgerðin
komm
V BÚÐIN
kipholti 19. Simi 29800
Verð 298.980
SHC-3250/3220
Arm-elevation Auto PlHyer for SHC-3250, BSR Record Changer for SHC 3220
CROWN RADIO CORP
JAPAN