Morgunblaðið - 15.12.1978, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978
Kassettulöskur
og hiUu^glSð"
Dag Strömback
prófessor í Uppsöl-
um—Mirmmgarorö
C’AMBKA
International Ltd
í bílinn og heima fyrir Margar geröir
Tilvaldar jólagjafir á ótrúlega góóu verói.
Fást á bensínstöóvum Shell og í fjölda verslana.
Olíufélagið
Skeljungur hf
Shell
Heildsölubírgðir:
Smávörudeild,
Laugavegi 180,
sími 81722.
í dag mun verða borinn til
moldar Dag Alvar Strömbáck,
prófessor í Uppsölum. Hann er
mörgum íslendingum kunnur, og
ég fullyrði, að allir, sem kynntust
honum mátu hann mikils; hann
kom aftur og aftur til íslands og
unni af alhug landi voru og þjóð og
greiddi götu íslenzkra manna sem
á vegi hans urðu og lagði mikla
stund á rannsókn þjóðar vorrar og
sögu hennar.
Dag Strömbáck var fæddur 13.
ágúst 1900. Foreldrar hans voru
Hjalmar Strömbáck, prestur í
Járbo í Gávleborgarléni, og móðir
Ida f. Steinmetz. Hann nam
norræn fræði og þjóðfræði við
Uppsalaháskóla, og tók fil. lic.-
próf þar 1926.
Þá fór hann um sumarið í fyrsta
sinn til íslands og stundaði nám
við háskólann og var lektor þar um
veturinn. Varð hann fljótlega vel
að sér í máli voru og bókmenntum.
Hann var einkar viðfelldinn mað-
ur og skemmtilegur, og eignaðist
hér marga vini. Sá er þetta ritar
kynntist honum þá, og hefur
vinátta okkar staðið óhögguð
síðan. Dagur var maður hár vexti
eins og margir Svíar eru, göfug-
menni og glæsimenni í framkomu,
sem vann hugi þeirra, sem kynnt-
ust honum. Eins konar inngangs-
kafli að veru og starfi hans við
háskólann var dvöl hjá Björgvin
sýslumanni Vigfússyni á sumrinu
1926, og markég ekki betur en hann
talaði íslenzku í Reykjavík haustið
SÖGUSAFN HEIMILANNA
NÝÚTKOMNAR SKÁLDSÖGUR
FORLAGALEIKURINN eftir Herman Bjursten og BJARNAR-
GREIFARNIR eftir Nataly von Eschstruth eru 23. og24. bókin í
bókaflokknum Sígildar skemmtisögur Sögusafns heimilanna.
Spennandi og viðburðaríkar skáldsögur, eins og allar sögurnar í
þessum vinsæla bókaflokki. VINNAN GÖFGAR MANNINN og
AF ÖLLU HJARTA, 6. og 7. bókin í þessum flokki hafa verið
endurprentaðar.
KYNLEGUR ÞJÓFUR eftir George E. Walsh ogSELD Á UPP-
BOÐI eftir Charles Carvice eru 3. og 4. bókin í bókaflokknum
Sígildar skemmtisögur - 2. flokkur. í fyrra komu út fyrstu tvær
bækurnar: BÖRN ÓVEÐURSINS og ÆVINTÝRIÐ í ÞANG-
HAFINU. Allt eru þetta úrvals skemmtisögur.
SVONA STÓR eftir Ednu Feberog ÁSTOG GRUNSEMDIR
eftir Anne Maybury eru 6. og 7. bókin í bókaflokknum Grænu
skáldsögurnar. Eignist þessar úrvals skáldsögur frá byrjun.
ERFINGINN eftir Morten Korch er 4. skáldsagan, sem kemur út
eftir þennan vinsæla höfund.
ÆVINTÝRI SHERLOCK HOLMES eftir A. Conan Doyle í
heildarútgáfu. I fyrsta bindinu eru tvær langar sögur: R ÉTTLÁT
HEFND ogTÝNDI FJÁRSJÓÐURINN. Tryggiðykkur eintak
af ævintýrum mesta leynilögreglukappa allra tíma.
1926, hnökralaust og liðugt. I
Háskólanum sótti hann tíma,
einkum hjá Sigurði Nordal. Voru
þar fluttir margir fyrirlestrar um
Njálssögu, og voru umræður um
efni þeirra á eftir.
Síðan hélt Dagur aftur til
Svíþjóðar. Sama ár (1927) stað-
festi hann ráð sitt og gekk að eiga
Ester Olivencrona, hina merkustu
konu; voru þau jafnaldra; hún var
dóttir Axels Olivencrona héraðs-
höfðingja og konu hans Ebbu
Mörner. Varð þeim Degi og Ester
fimm barna auðið, tveggja sona og
þriggja dætra.
Árið 1935 kom út doktorsritgerð
hans, „Sejd“, merkileg rannsókn á
norrænum frásögnum um seið, en
síðan er efni þeirra heimilda borið
saman við frásagnir af seiði Lappa
og Finna og siðan annarra þjóða.
Getur oft að líta sömu aðferð í
rannsóknum hans, að hann byrjar
á einhverri norrænni heimild, en
rekur síðan þræði, sem liggja til
annarra þjóða; öll vinnubrögð
hans vandvirknisleg og þekking
hans víðtæk.
Á árunum 1929—40 var Ström-
báck í Lundi og vann við orðabók
Sænsku akademíunnar, sem þá var
í smíðum, og er vitaskuld ekkert
flýtisverk.
Á árunum 1935—40 var hann
einnig dósent í Uppsölum í ís-
lenzkri málvísi. Síðan verður hann
forstöðumaður fyrir „Landsmáls
ock folkminnesarkivet" þar í borg
á árunum 1940—70 og loks
prófessor í samanburðarþjóðfræð-
um á Norðurlöndum og annars-
staðar 1946 til dauðadags.
En því fer fjarri, að þar með sé
allt upp talið. Hann var gisti-
prófessor í Chicago-háskóla
1937—38, í Aberdeen-háskóla 1962,
University College í Lundúnum
1962. Þá skal þess getið, að hann
var kjörinn heiðursdoktor við
háskólann í Aberdeen 1958, Há-
skóla Islands 1961, en heiðurs-
félagi í Hinu íslenzka bókmennta-
félagi 1951, Folklore Society í
Lundúnum 1958 og í Royal Irish
Academy í Dyflinni 1967. Þó að
þessi upptalning sé löng, þykir mér
ólíkiegt, að allt sé upp talið af
þessu tagi. Þá skal þess getið, að
hann var snemma kosinn félagi í
Kgl. Gustav Adolfs akademíunni,
og var forseti hennar á árunum
1965—73. Að vonum var hann og
félagi í „Islándska selskapet" í
Uppsölum (stofnað 1949). Verð-
laun hlaut hann fyrir ritverk af
Sænsku akademíunni 1969.
Víðförull maður var Dag Ström-
báck, svo sem þegar má ráða af
því, sem fyrr var talið. Sá er þetta
ritar, hitti hann á mörgum mál-
þingum vísindamanna, svo sem á
víkingafundum á Hjaltlandi, í
Kiel, i Dyflinni og á íslandi, á
fundum þjóðsagnafræðinga o.s.frv.
Lágu leiðir hans harla víða.
Þegar líður á ævi hans, fjölgar
ferðum hans til íslands. Hann var
hér á ferð 1953. Þá var látinn hinn
gamli kennari hans í íslenzku,
Björgvin sýslumaður, en þegar við
hjónin fórum með hann um
Njáluslóðir, hitti hann Pál Björg-
vinsson, og varð með þeim
fagnaðarfundur. Síðan var hann
leiðtogi stúdentakórsins „Orfei-
drángar", og héldu þeir samsöng
hér. Þetta síðasta sýnir fjölhæfi
Dags Strömbácks, að ekki voru
honum ókunnir töfrar sönglistar-
Þó að mönnum þyki hér nokkuð
mikið um upptalningar, sýna þess-
ar staðreyndir, að hér var að ræða
um fjölhæfan mann, víðförulan
sem Ódysseif, mann, sem unni