Morgunblaðið - 15.12.1978, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978
Þetta gerdist 15. desember
1976 — Frjálsar kosningar
samþykktar í þjóðaratkvæði á
Spáni.
1975 — Fimmtánda vopnahléið
í Líbanon á átta dögum.
1974 — Haig hershöfðingi tekur
við yfirherstjórn NATO.
1966 — Walt Disney andast, 65
ára gamall.
1961 — Adolf Eichmann
dæmdur til dauða í Jerúsalem.
1948 — Alger Hiss ákærður
fyrir meinsæri.
1916 — Frakkar sigra
Þjóðverja í orrustunni um
Verdun.
1890 — Sioux-höfðinginn
Sitjandi boli skotinn til bana eftir
orrustu í Suður-Dakóta.
1875 — Fljúgandi vél gerð úr
regnhlíf og flugdreka nær 30
metra hæð og hrapar í Chatham,
Englandi.
1840 — Jarðneskar leifar
Napoleons fluttar til Les Invalides
í París.
1806 — Innreið Napoleons í
Varsjá.
1789 — Frakkar taka Róm og
leggja undir sig konungsríkið
Napoii.
1781 — Bandaríska réttinda-
skráin tekur gildi — Gústaf III
Svíakonungur býðst til að stjórna
krossferð gegn Frökkum.
1745 — Saxar bíða ósigur fyrir
Prússum Leopolds von Dessau.
1711 — Plágan gýs upp í Kaup-
mannahöfn.
Innlenti F. Níels Finsen 1860 —
D. Þórhallur Bjarnason biskup
1916 — Fyrsti sjúklingurinn
fluttur í Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri 1953.
endurnýja bakgrunn
heimilisins
fýrir hátíðar?
'iPJ Slippfélagið íReykjavíkhf
Málningarverksmiðjan Dugguvogi
Símar 33433og 33414
ífts:
Tandberg
gjaldþrota
Frá fréttaritara Morgunblaðs-
ins í Ósló í gær.
Tandberg-verksmiðjurnar
ákváðu í gær að lýsa sig gjald-
þrota í dag og fréttinni laust
niður eins og sprengju í Ósló.
Vonir hafa staðið til þess síðustu
daga að þetta brautryðjendafyrir-
tæki gæti komizt hjá gjaldþroti.
Stjórn fyrirtækisins lagði fram
á almennum hluthafafundi
greinargerð um möguleikana á því
að halda rekstrinum áfram. Meiri-
hluti stjórnarinnar lagði til að
fyrirtækið lýsti sig gjaldþrota, en
tveir fulltrúar sem starfsmenn
eiga í stjórninni lögðu til að
rekstrinum yrði haldið áfram.
Ekki er með öllu ljóst hver
margir munu missa atvinnuna, en
gefið hefur verið í skyn að aðeins
500 starfsmönnum af 2.000 verði
gert kleift að starfa áfram hjá
Tandberg. Fyrirtækið mun halda
áfram framleiðslu á tölvubúnaði
og myndsegulstækjum til notkun-
ar í tungumála-rannsóknarstofum.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
Tandberg skuli fá fjárveitingu að
upphæð 50 milljónir norskra
króna og sú ákvörðun stendur enn
í fullu gildi. Þessum fjármunum
verður varið til þess að bjarga
þeim þáttum rekstrarins sem
borgar sig. Hins vegar lítur út
fyrir að framleiðsla útvarps- og
sjónvarpstækja og stereófram-
leiðslan verði lögð niður.
Stjórnmálamenn borgaraflokk-
anna beita sér fyrir því að fram
fari opinber rannsókn á því
hvernig 240 milljónum norskra
króna sem var úthlutað til Tand-
berg í fyrra, hafi verið varið.
— Lauré.
víða um heim
Akureyri 2 skýjað
Amsterdam 8 rigning
Apena 17 heiðskírt
Berlín 7 skýjað
BrUssel 10 rigning
Chicago -1 heiðskirt
Frankfurt 9 rigning
Genf 10 skýjað
Jóhannesarb. 25 sólskin
Kaupmannah. 7 sðlskin
Lissabon 18 rigning
London 10 skýjað
Los Angeles 25 heiðskírt
Madríd 15 skýjaö
Malaga 22 bjart
Miami 24 skýjað
Moskva -9 snjókoma
New York 10 skýjað
Óslð -1 snjókoma
Palma 19 bjart
París 9 skýjað
Reykjavík 1 skýjað
Róm 19 skýjað
Stokkhólmur 0 skýjað
Tel Aviv 19 sólskin
Tokýó 14 skýjað
Vancouver 3 skýjað
Vinarborg 9 akýjað
Litill blástur
mikill hraói
Einn aðalkostur Braun hringburstans er hita-
og blástursstillingin, sem nýtist sérlega vel
fyrir greiðslu jafnt sem þurrkun.
Braun hringburstinn er með tveim hraða- og
hitastillingum: — lítill blástur til að greiða og
,,forma“ hárið
mikill blástur til að þurrka hárið
Braun hringburstinn fæst í tveim útgáfum.
R-61 með greiðu og bursta.
RS-66 með 2 aukaburstum og lokkajárni.
Báðar gerðir með snúningssnúru.
Braun hringburstinn er góð gjöf og nytsamleg.
' VERSLUNIN
PFAFF
Skólavöróustig 1-3 Bergstaóastræti 7 Simi 26788