Morgunblaðið - 15.12.1978, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978
K
þrjár góðar
/>
Ólafur Einarsson skorar eitt af 8 mörkum sínum í ieiknum gegn Fram í
gærkvöldi.
Ljósm. Emilía.
Víkingur vann
í slagsmálaleik
MIKIÐ var gaman aö horfa ð leik Fram og Víkings í Höllinni í gær. Gaman
fyrir Þá sem hafa gaman af fjölbragöaglímu, kryddaöri meö júdó, Kung fu
og Ju Jitsú og íslenskri glímu. Ekki svo aö skilja, að leikurinn hafi verið
lélegur, Þvert ámóti var hann hinn skemmtilegasti á að horfa og lengst af
geysilega spennandi. Það var feiknaleg barátta í leiknum og gullfalleg sum
mörkin. Dómararnir Óli Ólsen og Haukur Þorvaldsson höfðu hins vegar
minni en engin tök á leiknum og í síðari hálfleik leystist allt upp í logandi
slagsmál, Ólafur Einarsson færöi Atla Hilmarsson úr skónum og Þannig
mætti lengi telja. Það eina sem manni virtist vanta, var að glímudómari lýsti
yfir í leikslok „Víkingur vann“. Hvað sem allir segja, högnuðust Víkingar
frekar ð dómunum og í lokin var gremja Framara orðin slík, að Þegar
*Víkingur fékk aukakast eftir að leiktíma var lokiö, hirtu Þeir ekki um að
stilla sér upp í varnarvegg fyrir framan Viggó Sigurösson. Og Guðjón
Erlendsson hallaði sér makindalega upp að markstönginní og gerði ekki
minnstu tilraun til pess að verja. Lokatölur leiksins urðu 26—21, en staðan í
hálfleik var 9—8 fyrir Víking.
Um fyrri hálfleik er þaö aó segja,
aö hann var gífurlega jafn, Víkingar
höfðu oftast forystuna, en hún varö
aldrei meiri en 2 mörk. í byrjun síöari
hálfleiks komust Víkingar í 4 marka
forystu, en Framarar minnkuöu hana
niöur i' 2 mörk og héldu þannig uppi
spennunni. Síöari hálfleikur var sýnu
grófari heldur en sá fyrri og voru
leikmenn þá langtímum saman meö
fingurna uppi í augum og nösum
mótherjanna. Dómararnir voru einnig
sýnu verri síöari hlutann, en hér
veróur þaö látiö nægja aö segja, aó
þeir félagar hafi áður dæmt betur, þó
aö skrifa mætti mikinn doðrant um
frammistöðu þeirra.
Ólafur Einarsson átti mikinn
markasprett í síöari hálfleik og héldu
honum þá engin bönd, hvaö þá
nokkrir Framarar. Þá áttu Árni, Páll
og Erlendur allir góöan leik, en
sóknarleikur Víkings var oft mjög
góöur. Hjá Fram skoraöi Atli Hilmars-
son stórkostieg mörk með langskot-
um. Gústaf og Guöjón Erlendsson
voru einnig mjög góðir, mesta furða
með Guðjón, miöaö við hve lélegur
varnarleikur Framara var.
( stuttu málii
Laugardalshöll 1. deild Vikineur — Fram
26-21 (9-8)
Mörk VíkinBs. Ólafur Einarsson 8 (4 vfti),
Páll Björgvinsson og Viggó Sigurðsson 4
hvor, Ólafur Jónsson og Erlendur
Hermannsson 3 hvor og Árni Indriðason 2
mörk.
Mörk Fram. Gústaf 9 (5 viti), Atli 4.
Birgir oií Sigurbergur 2 hvor. Erlendur,
Björn og Pétur eitt mark hver.
Misnotuð víti. Kristján Sigmundsson
varði frá Gústaf og Atli skaut í þverslá.
Brottrekstrar. Ólafur Einarsson og
Gústaf Björnsson útilokaðir. Erlendur,
Árni, Skarphéðinn, Viggó og Páll (Vík) 2
mínútur hver. Birgir Pétur og Atli (allir
Fram) í 2 mfnútur hver. —gg.
Einkunnagjöfin
VÍKINGURi Kristján Sigmundsson 2, Eggert
Guðmundsson 1, Erlendur Harmannsson 2,
Ólafur Jónsson 3, Ólafur Einarsson 3,
Skarphéðinn Óskarsson 2, Steinar Birgisson
1, Páll Björgvinsson 3, Guðmundur Skúli
Stefánsson 1, Sigurður Gunnarsson 1,
Frami Guðjón Erlendsson 3, Gissur Ágústs-
son 1, Kristján Unnarsson 1, Viðar Birgisson
2, Atli Hilmarsson 3, Erlendur Davíðsson 2,
Theodór Guðfinnsson 1, Sigurbergur Sig-
steinsson 2, Gústaf Björnsson 3, Birgir
Jóhannesson 2, Pétur Jóhannsson 2.
Elnkunnagjöfin
VALUR . Hafsteinn llafsteinsson 2, Helgi Sigurðsson 1, Kristján Ágústsson 3,
Kristján Elfasson 1. Lárus Hólm 1, Rfkharður Hrafnkelsson 1, Sigurður Hjörleifsson
1, Torfi Magnússon 3, bórir Magnússon 2.
UMFN. Brynjar Sigmundsson 1, Geir Þorsteinsson 2, Guðbrandur Lárusson 1, Guðjón
Þorsteinsson 2, Guösteinn Ingimarsson 2. Gunnar Þorvarðarson 3, Jón V. Matthíasson
1. Jónas Jóhannesson 2. Júlfus Valgeirsson 1.
Sviss — ísland:
Forleikur að stórleik
Það kom fram á fundi KSÍ í
gærkvöldi, að breyting hefur
verið gerð á leiknum sem ísland
átti að leika gegn Svisslendingum
í Bern næsta haust. Hann hcfur
verið færður til og gcrður að
forleik að öðrum og meiri leik.
FIFA á nefnilega 75 ára afmæli
á næsta ári og í tilefni þess, munu
Argentínumenn og Hollendingar
leika landsleik í Bern í Sviss, þar
sem höfuðstöðvar FIFA eru til
húsa. Leikur Islands og Sviss,
hefur verið gerður að forleik að
þessari miklu fótboltasýningu. Þó
að það heiti forleikur, er næsta
víst, að aldrei hafi íslenskir
knattspyrnumenn verið jafn ríju-
lega í sviðsljósinu og þeir verða í
Bern næsta haust. —SS-
Frábær árangur Vals
VALSMENN náðu þeim
írábæra árangri í gær-
kvöldi að gera jafntefli á
útivelli við rúmenska liðið
Dynamo Bucharest 20—20.
Staðan í leikhléi var 11—9
fyrir Val.
Þrátt fyrir þennan góða
árangur á útivelli er Valur
úr keppninni þar sem
Rúmenarnir sigruðu í fyrri
leiknum í Reykjavík
25-19.
Morgunblaðið gerði
ítrekaðar tilraunir til að
ná símasambandi við
Rúmeníu í gærkvöldi en
vegna bilana á sæsíma-
streng reyndist það ómögu-
legt. ~ þr.
KA — Þór
í kvöld
KA og Þór leika f 2. deild íslandsmótsins f
handknattleik f Skemmunni á Akureyri f
kvöld. Leikurinn er eins og flestir í þessari
deiid. geysimikilvægur. enda keppa bæði
liðin að sæti f fyrstu deild að ári.
Electrolux
Æ, Mjög kraftmikil ryksuga (loftflæöi 2.0 rumm/mín.) Hún slekkur sjálfkrafa á
sér, þegar pokinn er fullur. Dregur snúruna inn í hjólið.
Vegur aðeins 7 kg. og er meö 6 m. langa snúru. Verö kr. 104.900 -
ÆKraftmikil ryksuga (loftflæöi 1.9 rúmm/mín.)
Hún sýnir hvenær pokinn er fullur.
Snúran dregst inn í hjólið.
Pokinn er sjálflokandi þ.e. rykiö dreifist ekki þegar skiþt er um poka.
Vegur 7 kg og er meö 6 m langa snúru.
Verö kr. 89.100-
Mjög ódýr og meðfærileg ryksuga en meö góöan sogkraft (loftflæöi 1.65
rúmm/mín.)
Vegur 5,7 kg og er meö 7 m langa snúru.
Verö aöeins kr. 69.500 -
0 >
Electrolux
VörHnarkaðurinnhf.
ARMULA 1A — SÍMI 86117