Morgunblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 32
Í9 dagár til jóla & i§>ilfttr Laugavcjíi 35 Verzlið sérverzlun með litasjónvörp og hljómtæki. Skipholti 19, BUÐIN sími FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978 UNGU STÖLLURNAR á myndinni horfa hugsi yfir afgreiðsluborðið; ef til vill hafa þær ekki átt nógu mikla peninga í bauknum sínum til að kaupa það sem hugurinn girntist. (Ljósm. Mbl. RAX). Flokksstjórnarfundurinn stóð fram á nótt: Miklar sviptingar í Alþýðuflokki um fjárlagaafgreiðslu „FRAMTÍÐ stjórnarsamstarfsins veltur á niðurstöðum þessa fundar,“ sagði einn af alþingismönnum Alþýðuflokksins, er Mbl. hitti hann að máli fyrir fund flokksstjórnar Alþýðuflokksins í gærkvöldi, en þar átti að taka afstöðu til þeirra tekjuöflunarfrumvarpa, sem samkomulag hefur orðið um í ríkisstjórninni og einnig átti að ræða efnahagsmálafrumvarp það, eða drög að slíku frumvarpi, sem þingflokkur Alþýðuflokkksins hefur unnið. þykkta, sem ríkisstjórnin hefði nú gert um tekjuöflun og fleira. Þingflokkur Alþýðuflokksins tók ekki formlega afstöðu í fyrrinótt til þess samkomulags, sem lagt var fyrir þingflokka stjórnarflokkanna í fyrrakvöld. Alþýðubandalagið og Framsókn- arflokkur samþykktu það og síðan var það samþykkt á ríkisstjórnar- fundi í gærmorgun. Allir ráðherr- ar Alþýðuflokksins stóðu að þeirri samþykkt, en hins vegar munu Loftleiðaflugmenn hóta aðgerðum fljúgierlendir flugmenn breiðþotunni — ÉG GERI fastlega ráð fyrir að eitthvert samkomulag þurfi að gera við okkur um flug erlendra fiugmanna á DC-10 þotunni, þvi að annars munum við gripa tii einhverra aðgerða, sagði einn stjórnarmanna Félags Loftleiða- flugmanna 1 samtali við Mbl. í gær. — Við félagsmenn stöndum Sement hækkar um 20% — Tap verksmiðjmmar 250 milljónir á árinu SEMENT hækkar í dag í verði um 20%. Að sögn Gylfa Þórðarsonar framkvæmdastjóra Sementsverk- smiðjunnar nægir þessi hækkun hvergi til þess að mæta auknum kostnaði við verksmiðjureksturinn og er fyrirsjáanlegt að tap verk- smiðjunnar verði 250 milljónir á þessu ári. Á verksmiðjan í miklum greiðslu- erfiðleikum og var yfirvofandi stöðv- un uppúr næstu helgi, þar sem olía hefur ekki fengist afgreidd til verksmiðjunnar síðan í nóvember en að sögn Gylfa standa vonir til að Landsbankinn hlaupi undir bagga með verksmiðjunni. Gylfi Þórðarson sagði að Sements- verksmiðjan hefði beðið um 20% hækkun í ágúst sl. sem hefði átt að taka gildi 15. september. Sú hækkun hefði ekki fengist og hefði síðan sigið stöðugt á ógæfuhliðina og þyrfti hækkunin nú að vera 30—35% til þess að endar næðu saman. Gylfi sagði að allir kostnaðarliðir við verksmiðjureksturinn hefðu stór- hækkað á árinu. Nefndi hann sem dæmi að 30% gengisfall síðan í marz hefði stórhækkað allt innflutt efni til sementsframleiðslunnar og sið- asta olíu.hækkun hefði í för með sér 75 milljóna króna kostnaðarauka fyrir verksmiðjuna á ári. Verðið á sementi hefði ekki staðið undir kostnaði og hefði hallinn verið röskar 100 milljónir fyrstu 9 mánuði ársins og síðustu þrjá mánuðina myndi hann nema sömu upphæð. Tap væri einnig á flutningasjóði og næmi það 35 milljónum. allir vel saman um þessi mál og okkur hefur fundizt stjórn Flug- leiða nokkuð undarleg að undan- förnu. Við teljum að samvinna við starfsfólkið sé betri en þetta eilífa stríð og ég veit ekki hvort búið er að afla atvinnuleyfis fyrir þessa erlendu flugmenn, en til þess þarf sjálfsagt að sækja til ráðuneytis- ins. — Við munum ekki una því að sitja aðgerðarlausir á meðan erlendir flugmenn vinna okkar störf, en kannski er það ætlun stjórnar Flugleiða að senda okkur á námskeið á meðan. Við höfum boðað komu okkar á þeirra fund og ég vona að sú krafa okkar, að samningarnir séu virtir, verði tekin til greina, annað förum við ekki fram á. ýmsir þingmenn hafa haft ýmis- legt við samkomulagið að athuga á þingflokksfundinum og meirihluti þeirra talið það ófullnægjandi. Kjartan Jóhannsson sjávarútvegs- ráðherra var ekki á flokksstjórn- arfundinum í gærkvöldi vegna veikinda. Fundurinn stóð enn er Mbl. leitaði síðast frétta og er því ekki hægt að skýra frá niðurstöð- um hans í blaðinu í dag. „Greiðsluafgangur fjárlaga- frumvarpsins virðist nú fallinn brott, en hann var veigamesta ástæðan fyrir stuðningi okkar við fjárlagafrumvarpið," sagði Sig- hvatur Björgvinsson formaður iþingflokks Alþýðuflokksins er Mbl. ræddi við hann í gær. [„Fjármálaráðherra og ríkisstjórn- in hafa lýst því yfir að fjárlaga- frumvarpið verði afgreitt með greiðsluafgangi, sem verði nokk- urn veginn í samræmi við það sem upphaflega var ætlað. Verði niður- staða okkar sú, að svo sé, verður ekki um að ræða andstöðu hjá Alþýðuflokknum. Ef við komumst hins vegar að þeirri niðurstöðu að sama gamla afgreiðsluformið eigi að gilda og allt látið vaða á súðum, þá er ekki meirihluti innan þingflokksins fyrir því að sam- þykkja slíkt fjárlagafrumvarp." „Það var samþykkt á ríkis- stjórnarfundinum í morgun að stefna að því að afgreiða fjárlaga- frumvarpið fyrir jól,“ sagði Tómas Árnason fjármálaráðherra er Mbl. ræddi við hann í gærkvöldi. Tómas sagði stefnt að því að fjárlögin yrðu afgreidd með svipuðum greiðsluafgangi og upphaflega var ætlað, en það voru 7,2 milljarðar króna og sagði Tómas að hann sæi ekki betur en að það ætti að vera hægt innan ramma þeirra sam- Ástæðan ekki prent- tæknileg „ÞAÐ ER ekki rétt að bera við einhverjum prenttæknilegum ástæðum og segja að þess vegna hafi þessi frumvörp ekki verið tilbúin frá prentsmiðjunni í tæka tíð,“ sagði Þórir Guðjóns- son verkstjóri hjá Ríkisprent- smiðjunni Gutenberg, þegar Mbl. spurði hann f gærkvöldi hvaða prenttæknilegu ástæður það væru, sem hefðu komið í veg fyrir að rfkisstjórnin gæti lagt fram tekjuöflunarfrumvörp sfn klukkan 18>30 f gærkvöldi, eins og til stóð en forsætisráðherra, fjármálaráðherra og forseti neðri deildar sögðu allir í samtölum við Mbl. að ekki hefði reynzt unnt að leggja frumvörp- in fram af prenttæknilegum ástæðum. „Það hefur komið fyrir einu sinni áður í vetur að prentsmiðj- unni hefur verið kennt um á frumvarp væri ekki til í tæka tíð. Það var rangt þá. Til þess lágu aðrar ástæður," sagði Þórir. „Það lágu líka aðrar ástæður en prenttæknilegar til þessa í dag. Um þær vil ég hins vegar ekkert segja.„ Fundi neðri deildar var frestað í gær til klukkan 18:30 að leggja átti fram tekjuöflunarfrumvörp- in. Alþýðuflokksmenn lögðust hins vegar gegn því að frumvörp- in yrðu lögð fram og vísuðu til þess að flokksstjórnarfundur Alþýðuflokksins væri eftir, en þar yrði afstaða flokksins endan- lega ákveðin. Svo fór eftir mikið baktjaldamakk að andstaða Alþýðuflokksins varð til þess að fundinum var slitið klukkan hálfsjö án þess að frumvörpin væru lögð fram og var nýr fundur boðaður klukkan 14 i dag. SAMBAND íslenzkra rafveitna hefur í bréfi til orkumálaráðherra mótmælt þeim hugmyndum, sem fram hafa komið um framlengingu laga um verðjöfnunargjald og hækkun þess úr 13% í 19% að auki, en frumvarp þessa efnis var lagt fram á Alþingi í gær. f bréfinu er bent á að gjald af þessu tagi gangi beint inn í raforkuverð í landinu og leiði til hækkunar framfærsluvísitölu og rekstrarkostnaðar atvinnufyrir- tækja. Rafmagnsveitur ríkisins eiga við mikinn fjárhagsvanda að stríða og mun stjórn fyrirtækisins hafa lagt til að ríkissjóður yfirtaki hluta af skuldunum og veiti einnig óaftur- kræf framlög til hins félagslega þáttar framkvæmda. I tillögum RARIK er ekki gert ráð fyrir hækkun verðjöfnunargjaldsins. I bréfi Sambands rafveitnanna segir að ef þessar tvær leiðir væru valdar og þeirri þriðju bætt við, þ.e. að stöðva aukningu á sölu RARIK til rafhitunar á of lágu verði og marktaxtar væru leiðréttir mætti koma fjárhags- stöðu fyrirtækisins á réttan kjöl en jafnframt að fella hið óréttláta verðjöfnunargjald niður. Á næsta ári mun áætlað að verðjöfnunargjald mundi nema nálægt 1500 milljónum króna með óbreyttu orkuverði. Af því kæmu um 1200 milljónir í hlut Raf- magnsveitna ríkisins en 300 milljónir í hlut Orkubús Vest- fjarða. Hækkun úr 13% í 19% mundi auka gjaldið úr 1500 milljónum í tæpar 2200 milljónir króna eða um 700 milljónir. Af þeirri upphæð kæmu um 560 milljónir í hlut Rafmagnsveitna ríkisins. í bréfi Sambands ísl. rafveitna er bent á að sala á orku samkvæmt heimilistaxta hefur aðeins vaxið um 26% á síðastliðnum 10 árum og véltaxta um 136%, en sala sam- kvæmt marktaxta jókst um 962% og hitunartaxta um 1023% á sama tímabili. Til rökstuðnings fyrir hækkun verðjöfnunargjalds RARIK var einmitt bent á heimilistaxta og véltaxta og bent á að þeir væru 80—90% hærri hjá Rafmagnsveitum Reykjavíkur en RARIK. Þessar tölur væru réttar, segir í bréfi rafveitnanna, en gæfu ranga mynd og staðfestu of lágt verð á orkusölu samkvæmt marktaxta og hitunartaxta sem ætti sinn þátt í sívaxandi erfið- leikum fyrirtækisins á síðastliðn- um árum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.