Morgunblaðið - 19.01.1979, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 19.01.1979, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1979 3 Efnahagsvandinn: „ Valkostur Sjálfctœð- isflokksins lagður fram í febrúar” — segir Birgir ísleifur Gunnarsson formaður framkvæmdastjórnar Sjálfstœðisflokksins Tveir bátar seldu í Grimsby Tveir bátar seldu í Grimsby á Bretlandi í gaer. Ýmir seldi alls 89,7 tonn fyrir 31,9 milljónir króna eða meðalverð kr. 357 og Gullver seldi alls 63,4 lestir fyrir 25,5 milljónir, meðalverð 402 krónur. r I gæzlu vegna fíkni- efnamáls FRAMKVÆMDASTJÓRN Sjálfstæðisflokksins var sett á laggirnar í nóvemberlok s.l. og síðan hefur hún unnið að mörgum þáttum í starfi Sjálfstæðisflokksins. Morgunblaðið hafði tal af Birgi ísleifi Gunnarssyni formanni framkvæmda- stjórnar og spurði hann um hclztu verkefni sem unnið væri að. „Valkostur viö efna- hagsstefnu vinstri flokkanna" „Nefndir hafa unnið allmikið starf til þess að samræma málefnalega stefnumótun Sjálf- stæðisflokksins, en fyrirhugað- ur Landsfundur Sjálfstæðis- flokksins í vor mun síðan afgreiða þau mál,“ sagði Birgir ísleifur, „en segja má að stefnu- mótunin sem unnið er að sé þríþætt. Mikilvægur þáttur í stefnumótun Sjálfstæðisflokks- ins sem stefnt er að að verði tilbúinn á næstu vikum er ýtarleg stefna í efnahagsmálum þar sem tilgangurinn er að móta ákveðna stefnu sem geti orðið valkostur í efnahagsmálum við þá stefnu sem vinstri flokkarnir eru nú að reyna að koma saman, hvernig sem það nú tekst. Starf okkar er unnið á þann veg að sérstök nefnd innan fiokksins undir forystu Guðmundar Magnússonar prófessors er langt komin með að undirbúa sínar tillögur sem síðan verða teknar til ýtarlegra umræðna í þingflokki Sjálf- stæðisflokksins og öðrum stofnunum flokksins sem um þær þurfa að fjalla. Hér er um mjög víðtæka og nákvæma efnahagsmálastefnu að ræða, sem á að vera tilbúin ekki síðar en um miðjan febrúar. „Þróun Þjóöfélagsins í stórum dráttum til aldamóta“ Þá eru það önnur stór mál sem unnið er að til lengri tíma,“ sagði Birgir ísleifur, „og annar þáttur stefnumótunarstarfsins er nefndarstarf vísinda- og menntamanna sem vinna að undirbúningi stefnuyfirlýsingar Sjálfstæðisflokksins, hvernig flokkurinn vill móta þróun íslenzks þjóðfélags í stórum dráttum til aldamóta. í þessari nefnd eru Jónas Bjarnason formaður nefndarinnar, Gunnar G. Schram varaformaður og aðrir í nefndinni eru Már Elísson, Valdimar Kristinsson, Halldór Elíasson, Þráinn Eggertsson, Björn Sigurbjörns- son, Guðrún Erlendsdóttir og Skúli Johnsen. Markviss stefna í 14 Þáttum Þjóðmála Þriðji þátturinn í undir- búningi að málefnalegri stefnu- mótun Sjálfstæðisflokksins til afgreiðslu á landsfundi er starf 14 málefnanefnda um jafn marga þætti þjóðmálanna, en þær nefndir eru nú að störfum auk þess sem þær verða ráðgef- andi fyrir þingflokkinn. Stefnu- mótun þessara nefnda í viðkom- andi málum verður síðan lögð fyrir landsfund. Almennt fundahald og stjórnmálanámskeiö Þá hefur all mikið starf farið í að undirbúa þá fundi sem nú eru byrjaðir víða um land, en eins og sagt hefur verið frá í Morgun- blaðinu er þar um 35 fundi að ræða með 30 ræðumönnum úr hópi þingmanna, verkalýðsleið- toga, ungra sjálfstæðismanna og annarra forystumanna. Þessi fundaherferð er byrjuð og hefur hún gengið vel til þessa. Þá er rétt að nefna að landssamtök Sjálfstæðisflokksins í samráði við framkvæmdastjórnina eru nú að hefja víðtækt námskeiða- hald í stjórnmálum og er stefnt að slíkum námskeiðum í öllum kjördæmum landsins. Það fyrsta var í Eyjum um sl. helgi, Þá er stefnt að því að, heimsækja sem flest samtök flokksins á næstu vikum af framkvæmdastjórn eða full- trúum hennar, en slík fundahöld eru þegar hafin í tengslum við hina almennu fundi sem haldnir hafa verið. Þá hefur framkvæmda- stjórnin ýmis önnur mál á prjónunum sem snerta flokks- starfið, bæði frekari fundahöld og ýmis mál um innra skipulag flokksins." TVÍTUGUR maður var úrskurðað- ur í 5 daga gæzluvarðhald í Vestmannaeyjum í fyrrakvöld grunaður um aðild að fíkniefna- máli. Maðurinn, sem var aðkomu- maður í Eyjum, var fluttur til Reykjavíkur í yfirheyrslu. Tillaga Alberts í borgarstjóm samþykkt' Þjónustumiðstöð fyrir aldraða BORGARSTJÓRN Reykjavíkur samþykkti 4 fundi sínum í gær- kvöldi tillögu Alberts Guðmunds- sonar um _ þjónustumiðstöð fyrir aldraða. Áður hafði borgarráð samþykkt, að stjórn þjónustumið- stöðvar fyrir aldraða skyldi skipuð fimm aðilum, þremur frá félags- málaráði. einum frá stjórn Borgar spítalans og einum frá heilbrigðis- ráði. Borgarráð skal gera tillögur um starfsreglur fyrir þessa þjónustu- miðstöð, að fenginni umsögn félags- málaráðs og félagsmálastjóra, en ætlunin mun vera að þjónustumið- stöðin hafi yfirumsjón með og samræmi ýmsa þjónustu sem öldruð- um stendur til boða í Reykjavík. Þorrabakkinn kr. 1600.- 15 tegundir. Úrvals glerhákarl, skyrhákarl, sviða- sulta, svínasulta, hrútspungar, lunda- baggi, smjör, bringukollar, hvalsulta hvalrengi, flatköfcur, reykt slld, marin- eruö sfld, seitt rúgbrauö, harðtiskur, úrvals hangikjöl, litrarpylsa, blöömör. r SMIÖR jÖR j SMIÖR iTöR 'iSMJÖR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.