Morgunblaðið - 19.01.1979, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.01.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1979 29 Er heim kom var reynt að fá mismuninn á verði hótelanna greiddan, Var það mögulegt ef við greiddum þess í stað fyrir fæðið. Lauk þar samskiptum okkar við þessa ferðaskrifstofu. Sér nú hver og einn hvers lags brögðum við vorum beitt af skrifstofu þessari. Hún leyfði sér að selja 48 manna hópi rándýrt hótel sem hún á ekkert pláss inni á og sendir því hópinn á miklu iélegra hótel en býður síðan hálft fæði á fölskum forsendum, þetta er það sem við köllum rotin söluaðferð. F.h. hópsins Einar Friðþjófsson. • Góðir sendiherrar Velvakanda hefur borist bréf frá H.G. Burt í Felixstove í Englandi. Bréfið er svohljóðandi (þýtt úr ensku): „Við höfum reglubundið haft þá miklu ánægju að hitta bæði menn og konur af áhöfnum tveggja skipa frá íslandi, M/S Dettifossi og M/S Mánafossi, og hefur skipstjórinn af Mánafossi látið mig fá eintak af Morgunblaðinu. I áhöfnum þessara skipa eru hinir bestu sendiherrar sem þið íslendingar hafið kost á og mikil vinátta hefur skapast milli þess- ara tveggja landa, íslands og Englands, vegna þeirra. Okkur langar því til að senda bestu kveðjur til íslendinga og óska ykkur gleðilegs nýs árs. Kveðjur H.G. Burt.“ • Meira skemmtiefni Velvakanda hefur borist eftir- farandi bréf frá 9 ára stúlku, Láru Bergþóru Long. Kæri Velvakandi! Ég var að enda við að horfa á Stundina okkar í Sjónvarpinu og var ekki ánægð með hana. Mér finnst að þessi eini klukkutími á viku í sjónvarpinu fyrir börn eigi að vera annað en kennslustund. Við börnin viljum fá meira af skemmtiefni, teiknimyndum og svoleiðis. Árið 1979 er ár barnsins og þess vegna á að hlusta á okkur börnin. Ég veit að ég tala fyrir munn margra barna. Ég vona að þeir sem ráða í sjónvarpinu lesi þetta. Bless, Lára Bergþóra Long. • Barnafatnaður Velvakanda hefur borist ann- að bréf þar sem fjallað er um ár barnsins. „í tilefni af ári barnsins langar mig að koma með tillögu til neytendasamtakanna um að þau rannsaki þau gerviefni sem notuð eru í barnafatnað. I sumum af þeim fötum sem fást á börn eru efni sem valda því að börnunum er annaðhvort allt of heitt eða of kalt. Það er einnig hlutverk mömm- unnar að finna með hvaða hætti (og þá hvaða fatnaður er bestur handa barninu) hverjum einstakl- ingi líður best. Hlýja og öryggi er það besta og burtu með streituna, þá líður börnunum vel. Svava Valdimarsdóttir. Þessir hringdu . . • Rætur ekki endursýndar Björn Baldursson starfsmað- ur sjónvarpsins hringdi og vildi koma eftirfarandi á framfæri: „Sjónvarpinu hafa borist um það óskir frá fjölmennum starfs- hópum, einkum vaktavinnufólki og sjómönnum, að myndaflokkurinn Rætur verði endursýndur á sunnu- dögum. Reynt var að verða við þessari ósk og haft samband við seljendur myndaflokksins en þeir settu sjónvarpinu slíka afarkosti að ómögulegt er að ganga að þeim.“ HÖGNI HREKKVÍSI 0£ rön-FóK.ú£!" 83? SVGGA V/öGA £ 'V/LVtRAKí Germaníumyndin GERMANIA sínir á morgun, laugardag. kl. 2 síðd., sem heitir „Sieben Tage Frist“. Er þetta hálfrar annarrar klukkustundar löng mynd. Var hún sýnd í v-Þýzka sjónvarpinu hinn 6. janúar sl. Leikarar í myndinni eru allir frægir í heimalandinu. — Efnisþráður myndarinnar er um hvarf menntaskólanema, Skömmu síðar finnst einn kennar^ anna og hafði hann verið myrtur. I kjölfarið sigla fleiri óhugnanlegir atburðir. — Hræðsla grípur um sig meðal kennaranna í skólanum, unz rekt- or skólans tekst að komast á sporið. Félagsráðgjafi — félagsfr æðingur Hr. ritstjóri Vegna dálítillar fréttaklausu í blaði yðar 30.12. s.l. um ráðningu starfsmanns hjá Félagsmálastofn- un Hafnarfjarðar, („nýr félagsráð- gjafi“), leyfi ég mér að senda stutta athugasemd til birtingar í blaðinu. Félagsráðgjöf er tiltölulega ung starfsgrein, að minnsta kosti hér á landi og er reyndar sömu sögu að segja um fræðigreinina félagsfræði. Nokkuð ber á, að þessum orðum og merkingu þeirra sé ruglað saman. Ekki ómerkari heimild en ráð- herrasamþykkt Evrópuráðsins frá 1967 hljóðar svo: „Félagsráðgjöf er sérhæfð starfsgrein og markmið hennar er að stuðla að betri og gagnkvæmari aðlögun einstakl- inga, fjölskyldna og hópa og félagslegs umhverfis þeirra. Að þroska sjálfsvirðingu og ábyrgða- kennd einstaklinga. Að nýta hæfi- leika fólks, samskipti þess, og þá félagslegu aðstoð, sem fyrir hendi er.“ Áherzlur hafa að sjálfsögðu breytzt á 10 árum, en óbreytt stendur að félagsráðgjöf er sér- hæfð starfsgrein. Nám í félagsráðgjöf tekur 3—4 ár, ýmist við sérháskóla eða almenna háskóla. Það, sem skýr- ast skilur nám í félagsráðgjöf frá námi í öðrum greinum félagsvís- inda, er aðferðarfræði félagsráð- gjafar, sem felur í sér, auk fræðilegs náms, markvissa verk- lega þjálfun undir handleiðslu starfandi félagsráðgjafa. Fram til þessa hefur ekki verið hægt að leggja stund á félagsráðgjafanám hérlendis. í lögum nr. 41 frá 27. maí 1975 um félagsráðgjöf segir, að rétt til þess að kalla sig félagsráðgjafa hafi þeir einir, sem til þess hafi leyfi heilbrigðisráðherra (1. gr.). Slíkt leyfi má aðeins veita þeim, sem lokið hafa prófi frá félagsráð- gjafaskóla, sem viðurkenndur er af heilbrigðisyfirvöldum, að fenginni umsögn Stéttarfélags íslenzkra félagsráðgjafa (2. gr.). í 4. gr. þessara laga segir jafnframt: „Oheimilt er að ráða til félagsráðgjafastarfa aðra en þá, sem starfsleyfi hafa skv. 2. gr. o.sv.frv. Ljóst er af framangreindu, að óheimilt ér að ráða félagsfræðinga eða aðra, sem ekki eru félagsráð- gjafar að mennt til félagsráðgjafa- starfa. Ekki fremur en fólk með menntun á sviði meinafræði eða líffræði er ráðið til hjúkrunar- eða læknisstarfa, svo hliðstætt dæmi sé tekið. Nám í félagsfræði leiðir ekki til sérstakra starfsréttinda svo mér sé kunnugt um. Fel ég öðrum að gera frekari grein fyrir þeim ágætu fræðum, sem flestir þyrftu að vera betur heima í en mér virðist raunin. Með þökk fyrir birtinguna. Gunnar Sandholt. félagsráðgjafi ráðherrabréfi skv. dags. 16.12.1975 6 sækja um stöðu prófessors r í sögu við Háskóla Islands í gær lágu sex umsóknir fyrir um stöðu próíessors í almennri sagnfræði við heimspekideild Iláskóla íslands, en umsóknar- frestur rann út 15. jan. s.l. Þeir sem sóttu um erui Dr. Ingi Sigurðsvson, Jón R. Hjálmarsson fræðslustjóri. Jón Kristvin MarKeirsson saKnfræðinKur. Loftur Guttormsson lektor, dr. Sveinbjörn Rafnsson. dr. J>ór Witehead. A ÖKKOÝn V£SS/ si/f?- \<Ö/-L090 6ÓQVEW' 0A6VAÍS VA iti 06 mai vi/á/:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.