Morgunblaðið - 19.01.1979, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.01.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1979 19 Eru einhverjir sem þurfa að ná af sér 1—2 kg? Ég vil byrja á því aö óska öllum landsmönn- um gleöilegs árs. Eins og allir vita eru jólin og áramótin — og allir þessir dagar í kringum hátíöina — afskaplega rólegir og þá er etiö og snætt, sofiö og lesiö o.s.frv. Þetta veröur aö sjálfsögöu til þess, aö flestir þyngjast um 1-2 kg. í þessum þætti og tveimur þeim næstu munum viö koma meö nokkrar leikfimiæfing- ar,, sem eiga aö auð- velda fólki aö ná af sér þessum aukapundum. Því fyrr sem þeim er náö af því betra, ann- ars vilja þau bara sitja, og kannski bætist ofan á þau síöar meir og svo koll af kolli. Þessar æfingar sem hér koma eru aöallega fyrir fæturna. hendinni. Reynið síðan að teygja alveg úr fætinum. Til aö byrja meö má halda um ökklann til að auðvelda æfinguna, en síðan færa höndina undir ilina. Endurtakið æfinguna 12—16 sinnum á hvern fót. Reynið smám saman að ná það miklu jafnvægi að bið Þurfið ekki að styðja ykkur viö vegginn. Umsjón: HILDUR FRIDRIKSDÓTTIR Byrjið æfinguna eins og efri myndin sýnir. Látið síðan fótinn renna áfram og hallið ykkur sam- tímis yfir fótinn, eins og sýnt er á neðri myndinni. Farið síðan aftur í upphaflegu stell- inguna með snöggri hreyf- ingu. Gerið æf- inguna 8—10 sinnum á hvorum fæti. Gotl er að vita. . ... að ef börnin eiga mörg púsluspil í sömu stærð vilja pau gjarnan ruglast saman. Hægt er að lita kubbana að aftan, hvert púsluspil með sínum lit, og jafnvel yngstu börnin geta áttað sig á hvaða litur tilheyrir hvaöa púsluspili. ... aö kælt kartöflusoö er ágætis áburður fyrir blómin. En pvoið ekki kartöflurnar áöur en pær eru settar í pottinn. ... aö ætli maður að búa til hveitijafning, á að setja saltið saman við hveiti, sem hrærist par meö auðveldar út og fer ekki í kekki. ... að hægt er aö hreinsa karöflur og vasa með pví að blanda saman heitu vatni, 1 matskeið af ediki og 1 matskeiö af teblöðum. Það er látiö standa í karöflunni eða vasanum í nokkra tíma og hrist öðru hvoru. ... aö auðveldast er að hreinsa blúndu með pví að vefja henni um hreina flösku. Hrista flöskuna fram og til baka í sápuvatni og skola síðan. Blúndan er látin vera áfram á flöskunni, pangað til hún er purr. Þá á ekki að purfa að strauja hana. ... að ef erfitt er aö ná hlaupi úr formi eða skál á að setja formið í mjög heitt vatn augnablik. Þá bráönar hlaupið, sem er fast viö formiö og auðvelt er að ná pví úr. ... að karrý á alltaf að leysa upp í heitri feitinni til aö fá rétta bragðið. ... að örsmá glerbrot er auðveldast aö hreinsa upp úr gólfinu með lítið blautri bómull. ... aö nýta má gömul frotte- handklæði með pví að klippa pau til og sauma úr peim pvottapoka. ... að hægt er aö hreinsa kókos- og strámottur upp úr saltvatni. Þær eru síðan skolað- ar vel og purrkaðar úti. Mjólkursamsalan í Reykjavík AUGLYSINGASTOFA KRISTÍNAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.