Morgunblaðið - 19.01.1979, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1979
15
Diplómatar frá Phnom Pcnh í Kambódíu bíða í biðröð með pinkla sína við landamæri Thailands í síðustu
viku.
Fyrrum utanríkisráðherra
Kambódíu horfinn frá Peking
Peking, 18. janúar. Reuter.
IENG SARY fyrrverandi
utanríkisráðherra Kam-
bódíu í stjórn Pol Pots sem
flúði land í kjölfar innrás-
ar Víetnama hefur að því
er áreiðanlegar heimildir
telja yfirgefið verustað
sinn í Peking.
í fréttum frá Peking segir að
Sary hafi ekki komið til veizlu þar
sem búist var við að hann myndi
flytja ræðu í tilefni stofnunar
„Byltingahers Kambódíu“ sem í
eru liðsmenn Pol Pots fyrrverandi
þjóðarleiðtoga.
Utanríkisráðherrann var einn
fárra embættismanna Pot-stjórn-
arinnar sem náði að flýja land
áður en landið var hernumið.
Engin opinber yfirlýsing var
birt þess efnis að Sary hefði
yfirgefið Kína en haft var eftir
Sary fyrir nokkrum dögum að
hann hygðist halda aftur til
Kambódíu og taka þátt í starfsemi
gegn hinum nýju valdhöfum.
Gerðu upptæk
100 tonn af klám-
varningi í Osló
Ósló, 18. janúar. frá fréttaritara Mbl. Jan Erik-Laure.
LÖGREGLAN í Ósló gerði upptæk um eitt hundrað
tonn af klámritum og öðrum klámvarningi í áhleupi
á leynilega klámvörugeymslu í miðborg Óslóar á
miðvikudagskvöld. Er þetta mesta herfang lög-
reglunnar til þessa í baráttu hennar við þá, sem
dreifa ólöglegum klámvarningi í Noregi. Talið er að
útsöluverðmæti varningsins, sem náðist í gær, sé um
10 milljónir norskra króna, eða um 63 milljónir
íslenzkra.
Um 15 lögregluþjónar gerðu áhlaupið á geymslu í
eigu Leifs nokkurs Hagen, sem oft hefur verið
dæmdur í fjársektir fyrir að höndla með klám-
varning. Síðasta sekt Hagens, sem hann fékk fyrir
skömmu, hljóðaði upp á rúmar sex milljónir
íslenzkra króna.
í áhlaupinu fundust um 30
þúsund klámkvikmyndir og
þúsundir blaða og bóka af
„grófustu gerð“. Það hefur lengi
verið ljóst lögreglunni, að ólög-
leg klámrit og annar varningur
af sama toga hefur verið á
boðstólum víða í Ósló og á
öðrum stöðum í Noregi. Lítið
hefur verið aðhafst við þessu
þar sem lögreglan hefur ekki
getað sinnt málinu vegna
fámennis. Að undanförnu hefur
lögreglan þó aukið aðgerðir
sínar gegn klámvöruseljendum,
enda undir miklum þrýstingi frá
kristilegum samtökum og öðrum
hreyfingum.
Smíða öfiugasta
ísbrjót í heimi
Ottawa, 18. janúar. Reuter.
KANADAMENN hafa í hyggju
að smíða öflugasta ísbrjót sem til
þessa hefur siglt um höfin til að
geta haldið uppi olíuflutningum
frá heimsskautasvæðum landsins
til markaða sunnar að því er
ríkisrekna olíufyrirtækið
Petro-Canada tilkynnti í dag.
Akveðið hefur verið að byggja
tvo slíka ísbrjótá sem munu geta
klofið ís allt að 20 metra á þykkt
og að sögn forráðamanna fyrir-
tækisins er búist við að þeir þurfi
að sigla allt að 400 kílómetra á
undan olíuskipunum þegar verst
lætur.
Hvor ísbrjótur um sig mun
verða 331 metra langur og er
áætlaður kostnaður við hvorn
þeirra um 210 milljónir dollara
eða sem næst 67 milljarðar
íslenzkra króna.
Þá má geta þess að olíufyrirtæk-
in hafa til þessa eytt um 500
milljónum dollara í ýmiss konar
rannsóknir á heimskautasvæðum
Kanada, en það eru um 200
milljarðar íslenzkra króna.
Utanríkisráðherra
Rúmeníu til Moskvu
Moskvu, 18. janúar. AP.
Sovóska fréttastofan TASS
skyí-ði frá því í dag. að Stefan
Andrei utanríkisráðherra
Rúmeníu væri væntanlegur í
opinbera heimsókn til
Sovétríkjanna í hoði Sovét-
stjórnarinnar scinna í þessum
mánuði.
Samskipti Sovétríkjanna og
Rúmeníu hafa verið nokkuð stirð
frá því að Nicolae Ceausescu
Rúmeníuforseti neitaði að undir-
rita samnþykkt ráðstefnu Varsjár-
bandalagsríkja þar sem farið var
fram á að ríki bandalagsins veittu
meira fé til hernaðarmála. Ekki er
vitað hvort heimsókn Andreis er
farin í þeim tilgangi að „lappa"
upp á samband ríkjanna.
1966 — Indira Gandhi tekur við
embætti forsætisráðherra Ind-
lands.
1899 — Sameiginlegri stjórn
Breta og Egypta í Súdan komið
á laggirnar.
1840 — Wilkes skipherra finnur
strönd Suðurskautssvæðisins.
1563 — Zacharias Ursinus og
Caspar Olevianus birta Heidei-
bergtrúarsetningarnar að und-
irlagi Friðriks kjörfursta III.
Afmælii Franz II Frakkakon-
ungur (1544—1560) — James
Watt, skozkur uppfinningamað-
ur (1736—1819) — Auguste
Comte, franskur heimspekingur
(1798-1857) - Robert E. Lee,
bandarískur hermaður
(1807-1870) - Edgar Allan
Poe, bandarískur rithöfundur
(1809-1849) - Paul Cézanne,
franskur Jistmálari
(1839-1906).
Andlát: Auguste Mariette, forn-
leifafræðingur, 1881.
Innlent: Heklugos hefst 1158 —
Magnús kapteinn Arason land-
mælingamaður drukknar í Kap-
teinsvík við Hrappsey 1728 —
Samningar heimila brezka
kaupskipinu „Clarence" að
verzla við íslendinga 1809 — d.
Kristján VIII 1848 — f. Ólafur
Thors 1892 — „Friedrich Al-
bert“ strandar á Svínafellsfjöru
1903 — „Laxfoss" strandar á
Kjalarnesi 1952 — Sr. Pétur
Magnússon handtekinn í
Reykjavík 1950 — Doktorsvörn
Kristjáns Eldjárns forseta 1957.
Orð dagsins: Vísindunum
skjátlast alltaf: þau leysa aldrei
vandamál án þess að búa til tíu
önnur í staðinn — George
Bernard Shaw, írskfæddur leik-
ritahöfundur (1856-1950).
SKODEILD
Austurstræti 22, sími 28155, frá skiptiborði