Morgunblaðið - 19.01.1979, Page 23

Morgunblaðið - 19.01.1979, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1979 Eyrún Runólfsdótt- ir - Minningarorö F. 17. júni' 1909. D. 11. janúar 1979. Kveðja frá börnum Það rökkvar hægt og hljóðnár. Þú hlýtur stundarfrið. Og litlar, ljósar varir þú leggur brjóstið við. Þú gleymir þreytu og þykkju og þungri, duldri sorg. Og loginn helgi leiftrar og lýsir hugarborg. Með þökk í þagnarhljóði þú þrýstir vör á kinn. Af ásýnd leggur ljóma á litla drenginn þinn. Þó falli margt í fyrnsku og fjölgi hríðarél; þó liði langt á ævi þann ljóma man hann vel. Það var enginn, enginn nema þú, elsku móðir — glöggt ég sé það nú. Nú sé ég fyrst, að vinafár ég er, því enginn móðurelsku til mín ber. Þér þakka‘ eg, móðir, fyrir trú og tryggð; á traustum grunni var þín hugsun byggð. Þú stríddir vel, unz stríðið endað var, og starf þitt vott um mannkærleika bar. Hvíl þig, móðir, hvíl þig, þú varst þreytt; þinni hvíld ei raskar framar neitt. Á þína gröf um mörg ókomin ár, ótal munu falla þakkartár. (S. Friðjónsson) Fimmtudainn 11. janúar 1979 lést í Landspítalanum Eyrún Runólfsdóttir, Langholtsvegi 29, eftir skamma sjúkrahúsvist. Við munum ekki rekja æviferil hennar hér, en í þess stað langar okkur að koma á framfæri þakkarkveðju fyrir allt það fagra og góða sem hún gaf okkur. Það er ómetanlegt bæði fyrir unga og aldna að eiga þess kost að verða samferðamaður slíkrar konu sem Eyrún var. Alltaf hafði hún afiögu tíma til að rétta öðrum hjálparhönd og rósemi hennar og stilling hafði djúp áhrif á alla sem henni kynntust og ekki síst á okkur barnabörnin sem oft nutum þess að dvelja um stund hjá ömmu, þangað sóttum við fróðleik og nutum góðvildar hennar í einu og öllu. Nú legg ég augun aftur, og Guð þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. Blessuð veri minning hennar. Við viljum biðja hann sem öllu ræður að halda verndarhendi sinni yfir tengdapabba og afa og styðja hann og styrkja í hans þungbæra missi. Tengdabörn og barnabörn. Eyrún vinkona mín verður jarðsett í dag. Ekki datt mér í hug þegar ég kom til hennar síðast í nóvember í haust að ég ætti ekki eftir að hitta hana oftar. Hún er ein af þeim fáu mann- eskjum sem ég þekki sem er alltaf eins, róleg, jafnlynd og mér fannst hún aldrei eldast. Ég var innan við fermingu þegar ég kom fyrst á heimili hennar með Ragnheiði. Síðan var ég heima- gangur þar í mörg ár og komið þar ætíð síðan að vísu með lengra millibili en alltaf jafn vel tekið. Aldrei varð ég þess vör að hana skorti tíma þótt hún hefði alltaf stórt heimili og ynni jafnan úti með því. Hún hafði alltaf tíma til að rabba við okkur sem vorum oft fjögur og fimm utanaðkomandi unglingar, gefa okkur kakó eða kaffi. Ósjaldan var maður svo þaulsetinn að kominn var matar- tími og þá var ekkert sjálfsagðara en allir fengju bita. Ekki gerði ég mér grein fyrir því hvað plássið var í rauninni sannaðist á henni að þar sem hjartarúm er nóg er húsrúm nóg. Þrengslum fann enginn utanað- komandi fyrir á Langholtsvegi 29. Ég vil með þessum fátæklegu orðum þakka henni allt gott, þá hlýju og elskulegheit sem hún ætíð sýndi mér. Erlendi mínum bið ég blessunar, hann hefur misst mest. Ég votta öllum, Hafsteini, Ragn- heiði, Þóru, Þóreyju og fjölskyld- um þeirra dýpstu samúð. Ég kveð Eyrúnu mína með þökk. Villa. l>ú Kjörðir lönKum bjart á vegum vorum l>ú varst í kvennahópnum prýði sönn. Sem liljur Kreri hið KÓða í þínum sporum Aí köIkí. tign og þýðri kærleiks önn. Þó mörg sé tárin moldum þínum yfir. þó mikið skarð oss dauðinn hafi gjört, það mildar harm, að mynd 1 hugum lifir, að minning er svo hrein og sólarbjört. Steingrímur Thorsteinsson Eyrún var fædd í Bakkakoti á Seltjarnarnesi, dóttir hjónanna Sigurbjargar Eiríksdóttur og Runólfs Guðmundssonar. Hún var yngst barna þeirra. Eldri voru bræðurnir Sigurður og Guðmundur. Foreldrar hennar slitu samvistum. Árs gömul var hún tekin í fóstur að Óskoti i Mosfellssveit. Þá bjó þar ekkjan Þóra Pálsdóttir ásamt syni sínum Eiríki Einarssyni. Þóra var kona óvenju barngóð og ríkti ástúð milli mæðginanna og Eyrúnar. Víst má telja að Þóra og Eiríkur hafi reynst Eyrúnu sem bestu foreldrar. Tíú ára að aldri fór Eyrún til Reykjavíkur og hóf skólagöngu. Flutti hún til móður sinnar, sem bjó í Reykjavík. Tengslin við heimilið í Óskoti rofnuðu ekki þó til Reykjavíkur kæmi og minntist hún veru sinnar í Óskoti með virðingu og þakklæti ævilangt. Árið 1931 giftist Eyrún Erlendi Þórðarsyni, sjómanni. Duglegum 23 sómamanni. Þau eignuðust fjögur efnileg börn. Þau eru Hafsteinn, vélvirki, kvæntur Erlu Kristjáns- dóttur, tækniteiknara, Ragn- heiður, gift Birni Haraldssyni, tæknifræðing, Þóra Sigurbjörg, gift Gunnari Jónssyni, múrara, Þórey, gift Guðbirni Geirssyni, bónda. Auk þess ólu þau upp dótturdóttur sína, Erlen Óla- dóttur. Barnabörnin eru orðin mörg og barnabarnabörnin eru fjögur. Eyrún unni fjölskyldu sinni mikið. Heimilið var vettvangur daglegra starfa. Þar var gott að koma og dvelja. Hjónin voru samhent að gera heimilið aðlað- andi, sem einnkenndist af gest- risni og myndarskap. Kynni Eyrúnar og móður minnar hófust þegar þær voru á unglingsaldri. Tengdust þær strax sterkum vináttuböndum, sem aldrei bar skugga á. Langt var á milli heimila þeirra, en samt voru samskipti mikil og góð vinátta tókst á milli okkar barnanna. Ljúfar eru minningarn- ar frá bernskudögum þegar Eyrún og Erlendur og börn þeirra komu í heimsókn til okkar. Það voru dagar sem við hlökkuðum til og lengi var minnst. Ég, foreldrar mínir og systkini sendum Erlendi, börnum þeirra hjóna og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. Kristín Eggerstdóttir. ATIIYGLI skal vakin á því. að afma>lis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í miðvikudagshlaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu h'nuhili. Skemmtileg frásögn af Reykjanesmótinu Velunnari þáttarins sendi okkur pistil um Reykjanes- mótið sem fram fór um síðustu helgi við óvenjulegar aðstæður. Við birtum það að sjálfsögðu í heild og þökkum fyrir. „Kraftabridge á Reykjanesi Bridgespilarar eru ekkert „venjulegt fólk“ þegar íþrótt þeirra er annars vegar. Þetta sannaðist rækilega laugardag- inn 12. jan. þegar Reykjanesmót í sveitakeppni skyldi hefjast í Stapa í Njarðvík. Til keppni voru skráðar 14 sveitir úr Reykjaneskjördæmi og ætlað að leika 7 umferðir eftir Monad- kerfi. Á föstudagskvöldi virtist veður lítt fallið til Suðurnesja- ferða, en veðurvitar höfðu uppi góð orð um hláku. Þeir vita sem reyndu, að hláka þessi skipti um skoðun og lét í minni pokann fyrir bandvitlausum skafrenn- ingi og ofanfári. Mótstjórn lét sét þetta í léttu rúmi liggja, enda eflaust ættuð af Hóls- fjöllum eða ennú verri veðra- vítum og aflýsti hvergi. Kapps- fullir spilarar héldu tímanlega af stað til mótsstaðar og fyrir harðfylgi, en meðal ferðalanga voru ýtustjórar og jafnvel jarð- ýtur í mannslíki, komust sjö sveitir á mótsstað á tilskildum tíma. Ekki þótti fýsilegt að hefja keppni sjö sveita og voru því smalamennskur hafnar með þeim árangri að um kl. 15.30 voru 10 sveitir mættar og mál að hefjast handa. Gamlir unnendur íþróttarinn- ar hefðu eflaust tárast við að líta yfir salinn. Þarna sátu þessir tryggu dýrkendur þessar- ar göfugu íþróttar klæddir úlpum, húfum og treflum, krókloppnir við spilaborðin. Það brast í froststífum kjúkum og hrímið glitraði á sultardropum, því auðvitað hafði hitaveitan brugðizt og húsið ískalt. Á eftir fylgdi að veitingafólk var teppt heima og því engin von á kaffi, en fólk lét sér í léttu rúmi liggja. „Hvað á að líka að vera að tefja stórmót í bridge með kaffi- þambi.“ Að áliðnum degi bárust boð frá lögreglu þess efnis, að Reykjanesbraut væri lokuð og ekki yrði reynt að ryðja fyrr en að morgni. Torkennileg stuna leið um salinn. Fagnaðarstuna, auðvitað, því nú sáu menn fram á að geta gripið spil að gagni. Snarlega var áætlun breytt og einni umferð aukið við dag- Vilhjálmur Sigurðsson var einn af sveitarmeðlimum í sveit Vilhjálms Vilhjálmssonar sem sigraði í Reykjanesmótinu sl. helgi. Ásamt þeim eru í sveit- innii Sigurður Vilhjálmsson. Runólfur Pálsson, Jónatan Líndal og Þórir Sveinsson. skrána. Langt gengið í 10 var henni lokið og tók fólk að tínast á brott til gistingar hjá vinum og kunningjum, en eftir sat harðsnúinn kjarni víkinga er hugðist láta fyrirberast í íshús- inu. Boð komu um það að björgunarsveit myndi leggja til dýnur og teppi. Að vísu kom á daginn að dýnur fundust engar og teppin reyndust meira í ætt við hnjáskjól en værðarvoðir. Kappar létu þetta ekki á sig fá en hófu að drepa tímann viö spilamennsku. Einstaklega skemmtilegt tómstundagaman. Er leið að morgni urpu menn sig hnjáskjólunum góðu og freistuðu svefns, undir borðum eða þar sem bezt lét. Tókst það að vonum misjafnlega. Tignar- legt þótti sumum að fylgjast með „mennsku jarðýtunni" sem sveipaði dulu um herðar sér og stikaði um í rökkrinu. Sýndist mönnum þar Stapadraugurinn' ljóslifandi kominn. í bítið um morguninn var víkingum smalað í salatfat lögreglunnar til brottflutnings. Ekki lá leiðin í „steinhúsið" í þetta skiptið, heldur til árbíts í nálægri veitingabúð. Urðu víkingar lög- reglu afar þakklátir fyrir um- hyggjuna og þótti stólti ekki í neinu misboðið. Lauk hér ævintýrum, en spilamennska hófst um kl. 11 við allt aðrar og ágætari aðstæður en áður: upphitað hús, kaffi og stríðstertur. Spilamennsku lauk svo um kl. 18 og virtust menn í heild ánægðir með viðburði helgarinnar. Öruggir sigur- vegarar mótsins urðu Vilhjálm- ur Vilhjálmsson og félagar frá Bridgefélagi Kópavogs með 96 stig af 120 mögulegum, en í næstu sætum urðu: Grímur Thorarensen Bridgefél. Kópavogs 71 „Jogi Björn“ Bridgefél. Ásunum 71 Albert Þorsteinss. Bridgefél. Hafnarfjarðar 71 Jafnræði mikið svo sem sjá má enda Reykjanes eitt sterk- asta vígi „krata“ hér á landi.“ Bridgefélag kvenna Nýlega hófst hjá félaginu aðalsveitakeppni þess með þátt- töku alls 18 sveita, sem er með því mesta sem spilað hefur hjá félaginu. Sveitum er skipt í 2 flokka, Meistaraflokk og 1. Brldge Umsjón: ARNÓR RAGNARSSON flokk. Eru 8 sveitir í þcim fyrrnefnda. Eftir 2 umferðir er staða efstu sveita þessi: M.fl. Sveit stig Aldísar Schram 39 Önnu Lúðvíksdóttur 24 Kristínar Jónsdóttur 24 Gróu Eiðsdóttur 22 Keppni verður framhaldið n.k. mánudag. Bridgefélagið Ásarnir, Kópavogi S.l. mánudag hófst hjá félag- inu aðalsveitakeppni félagsins með þátttöku alls 10 sveita. Er það svipað og sl. ár. Spilaðir eru 2 leikir á kvöldi. allir við alla en í lokin verða spilaðir 3 leikir með Monrad fyrirkomu- lagi. Gefur það mótinu nokkuð ferskan blæ. Eftir 2 umferðir er staða efstu sveita þessi: Sveit stig Guðbrands Sigurbergssonar 40 (Guðbr., Oddur, Jón Páll, Hrólfur, ísak, Jón H.) Ármanns J. Lárussonar 34 (Haukur, Ragnar B., Sverrir, Sigurður, Ármann) Ólafs Lárussonar 33 (Hermann, Lárus, Rúnar, Óli Már, Þórarinn, Ólafur) Jóns Baldurssonar 26 (Jón B. Einar, Jakob, Jón Hj. Guðmundur Páll) Guðmundur Baldurssonar 15 Jóns Þorvarðarsonar 15 Keppni verður framhaldið n.k. mánudag. Keppni hefst kl. 19.30. Frá Reykjavíkur- sambandinu í bridge Skoraö er á fyrirliða sveita að skrá sveitir hið fyrsta til félaganna á svæðinu. Keppni hefst laugardaginn 27. janúar nk. kl. 13.00 í Hreyfils-húsinu v/Grensásveg. Keppnisstjóri er Guðmundur Kr. Sigurðsson. Öllum er frjáls þátttaka. Keppni verður með nokkuð nýstárlegum hætti, ef næg þátttaka næst. Képpt er um silfurstig. Aðeins verður spilað um helgar. Skráningu lýkur næsta fimmtudag. Fulltrúar félaganna í sambandinu taka við þátttökutilkynningum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.