Morgunblaðið - 19.01.1979, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1979
25
fclk í
fréttum
+ EMBÆTTISINNSETNING. — Þessi mynd er tekin við athöfn þá austur í Seoul höfuðborg S-Kóreu,
er forseti landsins var settur inn i embætti og er það sjötta kjörtímabil hans, sem nú hefst. —
Forsetinn, Park Chung Hee, er nú 61 árs gamall. — Hann er herforingi að menntun og var t.d. í
japanska hernum á árunum fyrir síðustu heimsstyrjöld. Park er ekkjumaður. Hann á þrjú börn, son
og tvær dætur. Er sú eldi Ken-hae á myndinni með föður sínum, — að þakka krökkunum fyrir
blómvendi. — Við athöfnina, sem fram fór í skólabyggingu einni í höfuðborginni, voru gestirnir alls
um 2700 að tölu.
+ TELPAN og ljónynjan eiga heima í
Salisbury, höfuðborg Ródesíu. —
Telpan, litla fröken Ferguson, er 11
ára, ljónynjan eins árs. Foreldrar
telpunnar tóku dýrið sem kettling inn
á heimili sitt. Hefur farið vel á með
dýrinu og heimilisfólkinu. — En nú
eru tímamót í lífi þessa dýrs.
Húsbóndinn á heimilinu ætlar að
senda dýrið til tamningar og þjálfun-
ar til að verða varðdýr við heimili
hans í Salisbury (sbr. varðhundur).
Þykir ljónynjan hafa sýnt tilþrif í
þessa átt, því hún hafði stokkið á
einhvern skuggalegan náunga er
óvænt bar að garði dag nokkurn.
Ekki er þess getið að slys hafi hlotizt.
af þessu.
+ SUMIR GRÉTU. — bessi kvöldmynd er tekin í Washingtonborg nokkru eftir sólarlag, skömmu
cftir að Bandarikjamenn höfðu tilkynnt að þeir hefðu ákveðið að taka upp stjórnmálasamband við
stjórnina í Kína — og þá jafnframt að rjúfa stjórnmálasambandið við stjórnina á Taiwan. — bað
leiddi til lokunar sendiráðs Taiwan í borginni. Kvöldið sem fáni Taiwan var dreginn niður í síðasta
skipti söfnuðust um 300 manns saman við sendiráðið. — Þetta var alvarleg stund í augum þi >a fólks
og grétu sumir nærstaddra. Myndin er tekin er þetta gerðist, þ.e. er Taiwan-fáninn var dreginn niður.
Hugleiðingar
um geisladeild
Landspítalans
Geisladeild Landspítalans hefur
starfað um áraraðir og þar hafa
starfað ágætustu geislalæknar. Á
deildinni er fullkomið geislunar-
tæki, og annað í litlu herbergi. Eg,
sem þetta skrifa, er ein af þeim
sem notið hafa góðs af þessu
geislunartæki, því að þangað kom
ég inn farlama sjúklingur, gang-
andi við hækjur í janúar 1978, ég
er með krabbamein í lærlegg og
þurfti að taka 8 töflur á dag af
kvalastillandi meðulum á þessum
tíma. I dag er ég svo að segja óhölt
og nota sárasjaldan verkjalyf.
í nóvember í fyrra kom hingað
til landsins Þórarinn Sveinsson,
sérfræðingur í krabbameinslækn-
ingum, og var ég svo heppin að
komast til hans. Ég álít að
Þórarinn sé eins fær og þeir bestu,
sem nú starfa að krabbameins-
lækningum í heiminum við full-
komnustu aðstæður, hann lærði í
Danmörku. I ágúst eða september
s.l. kom hingað til lands Sigurður
Björnsson, sem lært hafði í
Bandaríkjunum, og hlotið þar
sömu menntun og Þórarinn í
Danmörku. Hann tók einnig til
starfa við Geisladeildina.
Það var um aðstöðuna, eða
aðstöðuleysið á þessari deild, sem
ég vildi fjalla í þessum línum.
Aðstaðan þarna er slík, að þetta er
göngudeild, og enda þótt þessir
færu sérfræðingar hafi komið til
starfa við hana, þá hefur ekki
verið bætt við hana einum einasta
fermetra af plássi né heldur hefur
þar komið til starfa nein hjúkrun-
arkona. Læknarnir geta ekki gefið
lyfin báðir í einu, heldur verða
þeir að gefa þau til skiptis í því
herbergi sem annað geislatækið er
staðsett í, og er það því þar með
óvirkt á meðan lyfin eru gefin. Þá
hafa þeir eitt borð báðir til afnota,
(ekki einu sinni skrifborð) og
verða þeir því að notast við sitt
hornið á því hvor til að gera þar
skýrslur sínar.
Mér er kunnugt um það, að
öðrum þessara lækna, Þórarni
Sveinssyni, hefur boðist staða úti í
Danmörku, þar sem unnið er að
lækningu krabbameins við full-
komnustu aðstæður, og efast ég
ekki um að Sigurður getur einnig
fengið stöðu erlendis.
En þrátt fyrir lélega aðstöðu,
svo ekki sé meira sagt, vilja þeir
heldur starfa hér og hjálpa okkur,
landsmönnum sínum, sem þessi
sjúkdómur herjar á.
Mér er fullkunnugt um að nú er
verið að úthluta plássi og bæta við
deildum á Landspítalanum, en
þrátt fyrir það virðist ekki vera
skilningur fyrir hendi til að bæta
einum fermetra við Geisladeildina,
eða ráða eina hjúkrunarkonu þar
til starfa. Það munu fáar þær
fjölskyldur á þessu landi, að
einhver fjölskyldumeðlimur hafi
ekki orðið fyrir barðinu á krabba-
meininu. Ég, sem krabbameins-
sjúklingur, sem notið hef hjálpar
þessara færu lækna og ágætis
manna, spyr: Ef svo verður fram-
vegis búið að þessari deild, sem nú
er, er þá ekki hætta á að þeir
hrökklist fyrr eða síðar frá henni
til útlanda vegna þess aðstöðuleys-
is sem þeim er búið þar? Hvar
stöndum við íslendingar þá í
baráttu við krabbameinið?
Ég vil skora á heilbrigðisyfir-
völd að kynna sér þessi mál.
Hvernig væri að tryggingamála-
ráðherra gerði sér eina ferð upp á
Geisladeild til að skoða starfsað-
stæður læknanna? Einnig mættu
blaðamenn koma þangað og sjá
hvernig að henni er búið, og vekja
athygli almennings á því ef það
kynni að verða þessum málum til
framdráttar.
Guðrún Þorsteinsdóttir,
Ölduslóð 17, Hafnarfirði.
beint úr tönkum okkar í brúsana ykkar
- eins marga litra og þið viljið á aðeins / 75 krónur lítrann.
EG/LS HVÍTÖL, drykkur fyrir alla fjölsk vlduna.
HF. ÖLGERÐIN
EGILL SKALLAGRÍMSSON
Þverholti 22