Morgunblaðið - 14.03.1979, Síða 1
32 SÍÐUR
61. tbl. 66. árg.
MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Begin:
Samningur innan viku
fáist samþykki Knesset
Begin hótar afeögn ella
Carter
og Begin
hvíslast á
Myndin var tekin á Ben
Gurion-flugvelli við Tel Aviv í
gær, nokkru áður en Carter héh
þaðan áleiðis til Egyptalands til
að hitta Sadat.
Kairó, Jerúsalem, 13. marz. AP. Reuter.
BEGIN FORSÆTISRÁÐHERRA ísraels sagði í kvöld, að friðarsamn-
ingur við Egypta yrði undirritaður í Washington, Kairó og Jerúsalem
mjög bráðlega, „og jafnvel innan viku“, svo fremi sem ríkisstjórn
ísraels og síðan Knesset féllust á tillögurnar. Hann sagði að naeðist
ekki samþykki um samninginn myndi hann segja af sér. Talið er
einsýnt að stjórnin muni fallast á þær en óvissa er nokkur um afstöðu
Knesset. í kvöld fagnaði Shimon Peres, formaður Verkamannaflokks-
ins, þessum tíðindum og lét í það skina, að hann myndi hvetja
flokksmenn sína í þinginu til að styðja tillögurnar. Efni þeirra hefur
ekki verið birt að svo stöddu.
Begin skýrði frá þessu í viðtali
tveimur stundum eftir að Carter
Bandaríkjaforseti hafði rætt við
hann í síma frá Kairó. Carter bar
Begin þau skilaboð að Sadat
Egyptalandsforseti hefði fallizt á
þær tillögur og breytingar sem
hann hefði haft meðferðis frá
Israel. Begin sagði að vísu að
eilítill ágreiningur væri um tvö
atriði, en þau væru léttvæg og
myndi samkomulag ekki stranda á
þeim.
Mjög mikil óvissa var um málið
þegar Carter hélt til fundar við
Sadat í Kairó. Höfðu ýmsir fyrir
satt að för Bandaríkjaforseta
hefði nánast runnið út í sandinn,
þar sem Israelar ætluðu bersýni-
lega hvergi að slá af. Þessu neitaði
talsmaður Begins, Dan Pattir, að
vísu, svo og blaðafulltrúi Carters.
Selveiði
gengur vel
St. Anthony, Nýfundnalandi.
13. marz. Reuter. AP.
Á FYRSTA degi selveiðanna við
norðurströnd Nýfundnalands í
gær, mánudag, voru drepnir
9.600 selir, að sögn yfirvalda. Um
300 menn stunda veiðarnar frá
sjö kanadískum og fjórum norsk-
um skipum. Veiða þeir svo til
eingöngu kópa, sem nú eru hvítir,
og skinnin verðmæt. Selveiðum er
hins vegar svo til lokið á St.
Lawrenceflóa, en þær leiddu til
nokkurra átaka milli lögreglu og
fulltrúa samtaka er berjast gegn
seladrápi.
Heildarveiðikvótinn í ár er 195
þúsund selir, en skipin 11, sem
hófu veiðarnar í gær, mega veiða
77 þúsund seli, eða 10 þúsund seli á
skip.
Engu að síður gætti verulegrar
svartsýni hjá mörgum og töldu
þeir ekki að friðarsamningur væri
í þeirri nánd sem Begin og Carter
vildu vera láta við brottför hins
síðarnefnda frá ísrael. Þegar Cart-
er kom til Kairó ræddi hann við
Sadat í forsetastofu Kairóflugvall-
ar og eftir að hann hafði hringt til
Begins héldu þeir blaðamanna-
fund, þar sem Carter kunngerði að
Sadat hefði fallizt á hugmyndir
Israela.
Blaðamenn segja að
spenna hafi ríkt meðal
mikil
frétta-
manna er biðu niðurstöðu á vellin-
um. I upphafi fundarins hafi for-
setarnir tveir verið alvarlegir á
svip og hafi blaðamenn túlkað það
svo að ekkert væri þar meira að
frétta. Carter hefði þá skýrt frá
því að hann hygðist gefa meiri-
háttar yfirlýsingu og greint svo
frá því sem afráðið var. Hefði
mönnum þótt þetta dramatísk
stund og nú væri ljóst að héðan af
gæti varla neitt það gerzt sem
kæmi í veg fyrir að sú þróun í átt
til friðar í þessum heimshluta yrði
stöðvuð, er hafist hefði með Jerú-
salemför Sadats fyrir sextán mán-
uðum tæpum.
Aftökusveit i í ran
líflét tólf í gær
Heimsmet í
einfótarstödu
Colombo, Sir Lanka, 13. marz. Reuter.
SAUTJÁN ára piltur á Sri
Lanka, Chandrasena Gamage,
kvaðst í dag hafa sett heimsmet í
því að standa á öðrum fæti. Stóð
hann í þessari stellingu í tuttugu
og eina klukkustund og sextán
mínútur. Gamage vonast nú til að
fá afrek sitt viðurkennt og skráð í
metabók Guinness. Landi hans
segist eiga fyrra metið sem var
rúmlega tólf stundir og var það
sett á sl. sumri.
Teheran 13. marz. Reuter. AP.
TÓLF embættismenn fyrrverandi keisarastjórnar írans voru teknir af
lífi í dag, þriðjudag, þar af voru tveir hershöfðingjar. Fimm voru
starfsmenn SAVAK leyniþjónustunnar, einn þingmaður, lögreglu-
stjóri í Qom og tveir úr keisaraverðinum. Þar mcð hafa alls 57 menn
verið skotnir af aftökusveit byltingarráðs Khomeinis, og af þeim voru
tólf hershöfðingjar.
Keisaraverðirnir tveir voru
fyrrverandi kommúnistar sem
voro á sínum tíma dæmdir til
dauða en eftir að keisari náðaði þá
gerðust þeir honum handgengnir
og gegndu trúnaðarstöðum.
Talsmaður ríkisstjórnarinnar,
Amir Entezam, vísaði í dag á bug
frásögn í bandaríska vikuritinu
Time, þar sem haft var eftir James
Bill prófessor og sérfræðingi um
írönsk mál, að Entezam væri
hlynntur Bandaríkjamönnum. Bill
Palestínu-skærulidar
ber jast með Ugandaher
Nairobi. 13. marz. Reuter.
Idi Amin forseti Uganda lýsti því
yfir í dag að palestínskir skæru-
liðar berðust nú hlið við hlið
hcrmanna Uganda gegn inn-
rásarher uppreisnarmanna, sem
njóta stuðnings yfirvalda f
Tanzaniu.
Að sögn Uganda-útvarpsins
kom þessi yfirlýsing Amins fram
í ávarpi, sem hann flutti við
opnun íslamska þróunarbankans
í Kampala í dag. „Hersveitir
Uganda cg palestínskir skæru-
liðar, sem standa hlið við hlið á
vígstöðvunum, öðlast nú góða
reynslu. því þeir eru að berjast
við ísraleska hermenn á mála hjá
uppreisnarmiinnum," sagði
Amin.
Að sögn útvarpsins sagði Amin
að hersveitir hans npttn í Viivnri A
40 þúsund manna innrásarher, en
talsmenn uppreisnarmanna halda
því fram að her þeirra hafi aðeins
3.000 mönnum á að skipa.
„Uganda er ekki eingöngu að
verjast innrás Tanzaníumanna,"
sagði Amin ennfremur, „heldur
einnig að berjast gegn óvinum
Islams og kristni, sem drepa sak-
lausa og nauðga jafnvel kaþólsk-
tilgreindi einnig Ibrahim Yazdi
sem hliðhollan Bandaríkjamönn-
um og sagði að þeir hefðu
tvímælalaust mótast af langri
búsetu í Bandaríkjunum. Bill og
Yazdi voru skólabræður á sínum
tíma. Entezam sagði að þetta væri
hinn mesti rógur hvað báða varð-
aði, en hins vegar væri það á allra
vitorði að Time hefði á valdatíma
keisarans iðulega þegið fjárfúlgur
úr sjóðum hans og ýmsar mútur
frá stjórn hans.
I dag komu um eitt hundrað
þúsund manns saman til
mótmælafundar við háskólann í
Teheran til þess að láta í ljós reiði
vegna heimsóknar Carters Banda-
ríkjaforseta til Miðausturlanda.
Báru margir spjöld og borða þar
sem farið var um Bandaríkja-
forseta níðangurslegum orðum.
Meðal annars var sagt að hann
hefði farið til Miðausturlanda til
að sjóða saman ný samsærisáform
sem miðuðu að því að skipuleggja
atlögu gegn Palestínumönnum og
írönskum byltingarmönnum.
Tilkynnt var í Teheran í kvöld að
Iran hefði Sagt sig ur
CENTO-bandalaginu. Ekki kom
KoA ollo 1/Aef or <5 nvort Kor com
þetta hafði legið í loftinu um hríð.
Sérfræðingar segja að þetta kunni
að leiða til þess að bandalagið
leysist upp, en Pakistan hefur nú
alveg nýverið sagt sig úr banda-
laginu. Einu ríkin með full réttindi
sem eftir eru í bandalaginu eru
Bretland og Týrkland.
Bylting
Bridgetown, Barbados. S.þ. New York,
13. marz. AP — Reuter.
LEIÐTOGI stjórnarandstöðunnar á
eynni Grenada í Karabíska hafinu,
Maurice Bishop, kunngerði í dag að
hann væri í fyrirsvari byltingar
sem hefði verið gerð þar og steypt
úr valdastóli stjórn Sir Eric Gairy.
Skýrði Bishop frá þessu í útvarps-
ávarpi og sagði að Sir Eric hefði
flúið land.
Nokkru síðar sagði Sir Eric Gairy
í New York að þetta væri hin mesta
firra, en hann hefði hins vegar farið
fram á hernaðaraðstoð Breta og
Bandaríkjamanna tii þess að
hremma „fámennan hóp kommún-
ista“ sem hefðu reynt að hafa sig í
frammi. Sagði Sir Eric þetta í
símaviðtali við AP-fréttastofuna og
bætti því við að hann væri í stöðugu
sambandi við stjórn sína. Aftur á
móti hefðu andstæðingar hans eina
útvarpsstöð á valdi sínu.
Grenada fékk sjálfstæði árið 1974,
en er í brezka samveldinu. Þar búa