Morgunblaðið - 14.03.1979, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979
5
Jónas Haralz Jón G. Sólnes
Efnahagsstefna Sjálf-
staeðisflokks til umneðu
á fundi í Valhöll í kvöld
EFNAHAGSSTEFNA Sjálfstæð-
isflokksins verður kynnt á fundi
sem landsmálafélagið Vörður efn-
ir til í Valhöll við Háaleitisbraut í
kvöld klukkan 20.30.
Framsöguræður flytja þeir Jón
G. Sólnes alþingismaður og Jónas
Haralz bankastjóri, en síðan verða
almennar umræður og fyrirspurn-
ir. Fundurinn er öllum opinn.
Bandarískur rabbí flyt-
ur fyrirlestra á veg-
um guðfræðideildar Hf
JOHN Bosenblatt, rabbí frá
Bandaríkjunum, flytur tvo fyrir-
lestra í V. stofu aðalbyggingar
Iláskólans á vegum guðfræði-
deildar Háskóla íslands.
Fyrri fyrirlesturinn sem flutt-
ur verður á morgun fjallar um þær
samræður sem hafa verið stundað-
ar milli gyðinglegra og kristinna
guðfræðinga til skilningsauka
hvors á annars viðhorfum. Fyrir-
lesturinn ber heitið „The Jew-
ish-Christian Dialogue" og verður
fluttur á morgun, fimmtudag, kl.
10.15.
Síðari fyrirlesturinn verður
fluttur á föstudag kl. 17.15 og
fjallar um guðsþjónustur synagóg-
unnar, hina kristnu guðsþjónustu
og rætur hennar í guðsþjónustu
samkunduhúsanna og musterisins
á tíma Jesú.
Fyrirlestrarnir verða fluttir á
ensku og er öllum heimill aðgang-
ur.
Fyrstu leiksýningar Fjöl-
brautaskólans á Akranesi
:
flauelisbuxur
meö fellingum
og án fellinga
STÆRÐIR: 26“ TIL 38“ • ALLIR TÍSKULITIR • VERÐ KR. 9500.-
LEIKKLÚBBUR nemendafé-
lags Fjölbrautaskólans á Akra-
nesi sýndi s.l. mánudagskvöld
einþáttungana, „Bónorðið", eft-
ir Anton Tjekov og „Nakinn
maður og annar í kjólfötum"
eftir Darío Fó. Leikstjóri var
Jón Júlíusson leikari. Uppselt
var á frumsýninguna en þetta
er í fyrsta sinn sem nemendur
skólans efna til leiksýningar.
Næsta sýning á þessum
tveimur einþáttungum verður í
skólanum á morgun, fimmtu-
Hau 1R moT»o 1(1 Ol AA