Morgunblaðið - 14.03.1979, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979
Pagliacci
— eftir Leoncavallo
Stjórn tónlistar:
Garðar Cortes
Leikstjórn:
Þuríður Pálsdóttir
ÍSLENSKA óperan frum-
flutti Pagliacci fyrir troð-
fullu húsi og við góðar
undirtektir áheyrenda í
Háskólabíói s.l. sunnudags-
kvöld. Pagliacci er annar
tveggja hyrningarsteina
„verismo" í ítalskri óperu-
sögu á móti Cavalleria
rusticana eftir Mascagni,
enda deila þær oft sýning-
arkvöldum saman.
Hér var óneitanlega mik-
ið færst í fang við hin
erfiðustu skilyrði (sem þeg-
ar hefur verið tíundað í
fjölmiðlum) og má segja, að
allvel hafi tekist eftir atvik-
um.
Tveir flytjendanna báru
sýninguna uppi, bæði hvað
snerti söng og leik, en það
voru þau Ólöf K. Harðar-
dóttir (Nedda) og Halldór
Vilhelmsson (Tonio).
Það var fyrirfram vitað,
að ein glæsilegasta söng-
kona landsins gæti vel farið
með þetta hlutverk, hún
Tónllst
eftir ÞORKEL
SIGURBJÖRNSSON
hefur ekki aðeins röddina
fyrir hvaða óperuhús sem
er, heldur og hreyfingarn-
ar. Hins vegar kom Halldór
á óvart, þekktari fyrir „inn-
hverfan" söng, en birti nú
alveg nýja hlið á sér með
góðum tilþrifum. Önnur
hlutverk stóðu í skugga
þessara tveggja, Canio (sem
á „hryggjarstykki" óper-
unnar, Vesti la giubba) sem
Magnús Jónsson söng,
Silvio, sem Hákon Odd-
geirsson söng, og Peppe,
sem Friðbjörn G. Jónsson
flutti.
Ein önnur rödd fékk
mann til að sperra eyrun,
en það var 1. óbó, Duncan
Campell, í hljómsveitinni,
sem átti þarna hrífandi
tónafléttur.
Kórinn var allgóður og
stundum prýðilegur í
söngnum, en rápaði of mik-
ið um sviðið og oflék á
köflum. Svipað má og segja
um einstakar persónur.
Hljómsveitin var fullstór
fyrir þau skilyrði, sem
þarna voru, og sett saman
af töluverðum ósamstæð-
um.
Sviðsmynd Jóns Þóris-
sonar var haganleg og
hæfileg.
Augljóst er, að íslenska
óperan reynir að virkja
mikinn áhuga og ósérhlífni,
og má óska öllum aðstand-
endum til hamingju með
þennan áfanga. Fyrirtækið
á sjálft næsta leik: stóra
sporið í átt til atvinnu-
mennsku.
Nu geta
allir eignast
vönduö
litsjónvörp.
. . :
■
vv iY~Ví»7TV3r.Ví<£
nordÍTIende
nordíÍIende
Dæmi 20“ útb. 160
Hvers vegna? — '
Þaö hefur sýnt sig aö íslendingar eru vandlátir, vanda valið og velja NordMende.
Okkur er það ánægja að kynna yður árgerö 1979. Sjaldan hefur tæknin þjónaö manninum jafn
dyggilega. Ein mesta byltingin á árgerð 1979 er nýr myndlampi PIL (precicion in-line) sjálfvírk
samhæfing á lit, sem gefur miklu skarpari mynd en á,öur þekktist, jafnvel þó bjart sé inni.
BUÐIN
Skipholtí 19, sími 29800.
n ? nn? msm
(uj ju) [ I jjfoII llln