Morgunblaðið - 14.03.1979, Page 14

Morgunblaðið - 14.03.1979, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979 Erfid færd í Borgarfirði: Jafnvel Sæmund- ur sérleyfishafi vard að snúa við Hvanneyri, 13. marz. NÚ að undanförnu hefur verið slæm tíð hérna í Borgarfirði. Bæði er að snjór er með mesta móti, þannig að oft hefur verið skafrenningur og mikil ófærð og hefur það valdið truflun á umferð um héraðið. Flutning- ar á mjólk frá bændum og vörum til þeirra hafa fallið niður. Það telst til tíðinda að áætlunarbifreið frá Borganesi varð að snúa við í Leirársveit 8.1. fimmtudag þó að Sæmund- ur sjálfur væri við stýrið. Dýralæknirinn á Hvanneyri og starfsmaður mjólkursamlags- ins i Borgarnesi sátu í bflum Brúðuleik- húsvika í Leik- brúðulandi Það er bæði hægt að sjá leiksýningu og skoða brúður sem hanga til sýnis að Fríkirkjuvegi 11 á brúðuleik- húsviku í Leikbrúðulandi þessa dagana. Sýning á „Gauksklukkunni" hefst kl. 5 í dag. sínum í 10 klukkustundir þennan sama dag og komust hvorki aftur á bak né áfram vegna dimmviðris. Ekki er mér kunnugt um alvarleg óhöpp í umferðinni hér um slóðir af völdum færðar eða veðurs þessa síðustu daga utan eitt. Jeppi af gerðinni Willys Wagooner fór útaf þjóðveginum við Ytri-Skeljabrekku og slas- aðist ökumaður, en kona og barn, sem voru í bílnum sluppu ómeidd. Ungmennafélag Reykdæla frumsýndi leikrit fyrir stuttu en sýningar hafa fallið niður til þessa vegna veðurs og ófærðar. Sýningar hefjast að nýju á næstunni og er fyrirhugað að sýna eftir því sem aðstæður leyfa en miða þarf að panta í Reykholti. Leikflokkurinn „Sunnan Skarðsheiðar" hefur sýnt Hart í bak ávalt fyrir fullu húsi að undanförnu. Anton á Ytra-Hólmi sagði mér í dag að sýningum færi nú að fækka, aðeins tvær væru eftir, n.k. fimmtudags- og laugardags- kvöld í Fannahlíð. — Ófeigur. bessi ugla er eitt af dýrunum sem koma fram í „Gauksklukkunni*. Leikstjóri er Bríet Héðinsdóttir og tón- list er eftir Atla Heimi Sveinsson. Utanríkisráð- herra hætti við utanför Utanríkisráðherra Benedikt Gröndal hefur hætt við för til Luxemborgar, en hann ætlaði að ræða við þarlenda ráðamenn um samskipti íslands og Luxemburg- ar í flugmálum. Ráðherrann ætlaði utan í gær en frestaði för sinni vegna stjórn- málaástandsins hér innanlands. íslenzkir embættismenn eru hins vegar farnir utan og munu þeir ræða um þessi mál við starfs- bræður sína í Luxemburg, að því er Mbl. var tjáð í gær í utanríkis- ráðuneytinu. Enginvettlingatök Rauðu MAX VINYLglófarnir eru með grófri krumpáferð. Hún auðveldar erfið störf og útilokar öll vettlingatök. Um endinguna vitna þeir sem nota þá. MAX? Rauðu MAX VINYLglófarnir. Heildsölubirgóir og dreifing David S. Jónsson og Co. hf. S 34333. Léku knattspyrnu í 32^ klukkustund Eskifirði. 12.3. SEX Austramenn settu í gær nýtt Islandsmet í maraþonknatt- spyrnu. Hófu þeir að leika um kl. 9 á laugardagsmorgun og léku sleitulaust til kl. 17:30 á sunnudag. Margt manna fylgdist með knatt- spyrnumönnunum og voru þeir hylltir með lófataki er þeir höfðu lokið leiknum, sem stóð í 32'/í> klst., og skoruð voru alls 4.443 mörk. Ævar Nokkrir að- ilar hafa gert kaup- tilboð í tog- arann Font NOKKRIR aðilar hafa sýnt áhuga á því að kaupa togarann Font bH, sem Ríkisábyrgðasjóð- ur hefur auglýst til sölu, en sjóðurinn eignaðist togarann á nauðungaruppboði nýlega sem kunnugt er. Björn Ólafs framkvæmdastjóri sjóðsins sagði í samtali við Mbl. í gær að eftir væri að taka til athugunar þau kauptilboð, sem hafa komið í togarann. Ríkisábyrgðasjóður hefur sett upp 685 milljónir fyrir togarann, en það er sú upphæð sem sjóður- inn þarf að fá til þess að sleppa frá málinu án fjárhagsskaða. Ætla að selja spariskírteini fyrir 1500 milljónir króna SALA verðtryggðra spari- skirteina rfkissjóðs í 1. fl. 1979, samtals að fjárhæð 1.500 milljónir króna hefst á morg- un. Útgáfan er byggð á heim- ild í fjárlögum og verður lánsandvirðinu varið til opin- berra framkvæmda á grund- velli lánsfjáráætlunar ríkis- stjórnarinnar fyrir þetta ár. Kjör skírteinanna eru hin sömu og undanfarinna flokka. Höfuðstóll og vextir eru verð- tryggðir miðað við þær breyt- ingar sem kunna að verða á vísitölu byggingarkostnaðar, er tekur gildi 1. apríl n.k. Skírteinin eru bundin fyrstu fimm árin, en frá 25. febrúar 1984 eru þau innléysanleg hvenær sem er næstu fimmtán árin. Skírteinin eru framtals- FLUGVÉL Landhelgisgæzl- unnar fór í ískönnunarflug í gær og kom þá í ljós að hafísinn hefur færst ískyggi- lega nálægt iandinu í norðan- áttinni undanfarna daga. Nú eru hins vegar líkur á veður- breytingum, að sögn Guðmundar Hafsteinssonar og gæti farið svo að hafísinn fjarlægðist landið aftur á næstu dögum. Allþéttur ís, 1/10—3/10 að þéttleika, var í gær um 5 sjómílur norður af Horni, 20 mílur norður af Skagatá, 7 mílur norður af Rifstanga og 8 mílur norður af Langanesi. Stakir jakar og smá spangir voru á öllum siglingaleiðum út af Norðurlandi frá Staumnesi Kirkjuvikan á Akureyri í KVÖLD verður föstumessa, þar sem sr. Pétur Þórarinsson á Hálsi prédikar, en sr. Birgir Snæbjörns- son þjónar fyrir altari. Ingibjörg Siglaugsdóttir flytur bæn og Sum- arrós Garðarsdóttir les úr Píslar- sögunni. Sungið verður úr Passíu- sálmunum og Jakob Tryggvason leikur á orgelið. skyld og eru skattlögð eða skattfrjáls á sama hátt og bankainnstæður. Skírteinin eru nú gefin út í fjórum verðgildum 10.000, vann GUÐMUNDUR Sigurjónsson vann Þjóðverjann Harlad Lieb auðveld- lega og Friðrik Ólafsson gerði jafntefli við Bretann Stean á alþjóð- lega skákmótinu í Miinchen f gærkvöldi. Önnur úrslit urðu þau að Balashov vann Pfleger, Dankert vann Unzicker, Spassky og Anderson gerðu jafntefli og sömuleiðis Robatsch og Pachman. að Langanesi og því þarf að sigla þar um af varúð. Samkvæmt upplýsingum Guðmundar Hafsteinssonar bárust fregniraf ís frá mörgum veðurathugunarstöðvum í gær, t.d. var hafís orðinn landfastur við Grímsey austanverða. 50.000,100.000 og 500.000 krón- um og skulu þau skráð á nafn. Sérprentaðir útboðsskilmál- ar fást hjá söluaðilum, sem eru bankar, sparisjóðir og nokkrir verðbréfasalar í Reykjavík. Lieb Staðan í mótinu er þessi: Hubner 8 vinningar, Anderson 8, Spassky og Balashov 7.5, Stean, Pachman, Robatsch 6.5, Unzicker og Friðrik 6, Pfleger og Guðmundur 5.5, Lau 4.5, Lieb 4 og Dankert 2 vinninga. Hubner og Lau sátu yfir í gær. Guðmundur Slgurjónsson Leiðrétting í FRÁSÖGN Morgunblaðsins í gær af setningarræðu Guðmundar H. Garðarssonar á ráðstefnu SVS sl. laugardag féll niður hluti tilvitnunar í Bjarna Benediktsson. Kafli úr ræðu Guðmundar með þessari tilvitnun fer því hér á eftir á ný. Morgunblaðið biður velvirðingar á þessum mistökum: „Undir öruggri forustu Bjarna Benediktssonar, þáver- andi utanríkisráðherra, sameinuðust lýðræðisflokkarnir þrír, Alþýðuflokkurinn, Fram- sóknarflokkurinn og Sjálf- stæðisflokkurinn, um það á Al-, þingi, 30. marz 1949, að ísland skyldi gerast stofnaðili að Atlantshafsbandalaginu. Þegar umræður fóru fram um þessi mál á Alþingi í marz 1949, sýna ummæli Bjarna Benedikts- sonar glöggt mikla framsýni og djúpan skilning á framtíðar- hagsmunum og öryggi íslenzku þjóðarinnar í vályndum heimi, þegar hann segir: „Meginþorri íslendinga er staðráðinn í að taka þátt í þessum frjálsu samtökum frjálsra þjóða. Með því auka þeir öryggi landsins, styðja að vaxandi velmegun og frelsi og umfram allt gera sitt til að friður megi haldast í heiminum." Þetta voru orð að sönnu. Þá sem nú sameinast lýð- ræðisflokkarnir þrír um þessa stefnu í varnar- og öryggis- málum. Þessi ráðstefna er liður í því að árétta þessa samstöðu, sem skiptir sköpum fyrir frelsi og sjálfstæði íslenzku þjóðarinn- ar.“ Hafís á siglingaleið- um útaf Norðurlandi Guðmundur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.