Morgunblaðið - 14.03.1979, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979
15
EBE-ríkin draga
úr olíunotkuninni
París, 13. marz. — AP. Reuter.
TVEGGJA daga fundi leið-
toga ríkja Efnahagsbanda-
lags Evrópu, EBE, lauk í
París í dag. Samþykktu
leiðtogarnir að draga úr
olíunotkun í öllum níu ríkj-
um bandalagsins og
minnka innflutninginn á
þessu ári um alls 25 millj-
ónir tonna, eða um 5%, frá
því sem áætlað hafði verið.
Verður heildarinnflutning-
ur landanna níu þá um 500
milljónir tonna.
Að fundinum loknum lýstu leið-
togarnir einnig yfir ánægju með
að hið nýja gjaldeyriskerfi banda-
lagsins, sem nefnt er EMS, hefði
nú formlega tekið gildi í öllum
ríkjum bandalagsins nema Bret-
landi, en í gær var tilkynnt að
kerfi þetta kæmi til framkvæmdar
í dag. Á kerfi þetta að tryggja
jafnvægi í gjaldmiðlum aðildar-
ríkjanna óháð bandaríska dollar-
anum.
Gildistaka EMS hafði engin
áhrif á gengi dollars í dag, og segja
Vilja banna
Síldveiðar
Ósló, 13. marz. —
Frá fréttaritara Mbl.
NORSKIR fiskifræðingar segja
að ekki sé grundvöllur fyrir
veiðum á sfld úr norsk-íslcnzka
sfldarstofninum við strendur
Noregs á þessu ári. Segja fiski-
fræðingarnir að hrygningar-
stofninn hafi minnkað um 40%
við Norður-Noreg.
Á árinu 1978 ráðlögðu fiskifræð-
ingar einnig að síldveiðar yrðu
bannaðar, en þá tóku norsk yfir-
völd þá ákvörðun að heimila tak-
'markaðar veiðar.
Dinesen látinn
Kaupmannahöfn. 12. mara. AP.
DANSKI rithöfundurinn, bóndinn
og verkfræðingurinn Thomas Din-
esen lézt á sunnudag, 86 ára að
aldri.
Dinesen var bróðir rithöfundar-
ins Karen Blixen. Hann eyddi
mörgum æviára sinna í Kenýa.
Einnig barðist hann með Kanada-
her í seinni heimsstyrjöldinni.
Komst hann til metorða innan
hersins og hlaut Viktoríukrossinn
fyrir góða frammistöðu á vestur-
vígstöðvunum.
forsvarsmenn gjaldeyrismarkaða
að tilkoma EMS hafi verið svo
lengi á dagskrá, að ekki sé ástæða
til að ætla að staða dollars breyt-
ist að ráði.
Auk minnkandi olíunotkunar á
þessu ári, ákváðu leiðtogarnir að
vinna að því að gera EBE óháðari
innflutningi á olíu frá framleiðslu-
ríkjunum í OPEC í framtíðinni.
EBE-ríkin flytja nú inn um 54%
þeirrar olíu, sem þar er notuð, en
ætlunin er að minnka innflutning-
inn niður í 50% á. næstu fimm
árum.
Leiðtogarnir voru sammála um
að ríkjandi spenna á olíumarkað-
inum væri hættuleg efnahagsþró-
uninni í heiminum, og skoruðu á
iðnríkin að draga úr eftirspurn-
inni. Einnig hvöttu þeir OPEC-rík-
in til að stuðla að bættri efnahags-
þróun í heiminum með takmörk-
unum á verðhækkunum og stöðug-
leika í framleiðslu. Þá voru þeir
sammála um að stuðla að rann-
sóknum á öðrum orkugjöfum, svo
sem jarðhita, sólarorku, kjarnorku
og kolum.
I sameiginlegri yfirlýsingu leið-
toganna segir að enn verði að
leggja mikla áherzlu á baráttuna
gegn verðbólgu, og reyna að koma
á betra jafnvægi í viðskiptum
ríkjanna.
Fulltrúar OPEC-ríkjanna koma
saman til fundar í Genf mánudag-
inn 26. þessa mánaðar, og létu
fulltrúar á EBE-fundinum í ljós
vonir um að ekki kæmi þá til
frekari verðhækkana á olíu. Sam-
kvæmt útreikningum EBE leiðir
hækkun á verði olíufats frá OPEC
um einn dollar til 3,6 milljarða
dollara hækkunar á olíureikningi
EBE-ríkjanna. Sú hækkun bætti
einnig 0,3% við verðbólguna og
lækkaði hagvöxtinn um 0,4%.
Jimmy Carter forseti biðst fyrir í þjóðargrafreit Gyðinga
á Herzl-fjalli í Jerúsalem og hjá honum standa tvær
lögreglukonur.
1978 — ísraelsmenn gera inn-
rás í Líbanon.
1977 — Misheppnað banatil-
ræði við Sanjay, son Indiru
Gandhi.
1974 — Stjórn Quebec ákveður
að gera frönsku að opinberu
tungumáli.
1965 — ísraelsstjórn ákveður
að taka upp stjórnmálasamband
við Vestur-Þýzkaland.
1945 — Bandaríski fáninn
formlega dreginn að húni á Iwo
Jima.
1917 — Bráðabirgðastjórn
skipuð í Rússlandi — Undan-
hald Þjóðverja til Hindenburg-
línunnar hefst.
1915 — Þýzka beitiskipinu
„Dresden" sökkt.
1912 — Taft forseti bannar
vopnasendingar til Mexíkó.
1848 — Píus páfi IX kunngerir
stjórnarskrá í Róm.
1794 — Eli Whitney fær einka-
leyfi á spunavélinni.
1757 — Byng aðmíráll líflátinn
fyrir vanrækslu sem olli missi
Minorca.
1689 — Þing kemur saman í
Skotiandi og Vilhjálmur og
María lýst konungur og drottn-
ing Englands.
1647 — Frakkar og Svíar und-
irrita Ulm-samninginn við Bæj-
ara.
1558 — Ferdinand I tekur sér
keisaranafnbót án krýningar
páfa.
Afmæli: Albert Einstein, þýzk-
ættaður vísindamaður
(1879—1955) — Johann Strauss
eldri, austurrískt tónskáld
(1804-1849) - Viktor
Emmanúel Italíukonungur
(1820-1878) - Maxim Gorki,
rússneskur rithöfundur
(1868-1936).
Andlát: Friedrich Klopstock,
skáld, 1803 - Karl Marx,
stjórnmálaheimspekingur, 1884
— George Eastman, brautryðj-
andi í ljósmyndun, 1932 —
Aristoteles Onassis, skipakóng-
ur, 1975.
Innlent: Brezk herskip og togar-
ar hverfa úr íslenzkri landhelgi
1960 — Ráðuneyti Steingríms
Steinþórssonar skipað 1950 —
Amerískur varðmaður skýtur
íslending til bana 1942 — Viður-
eign við pólska sjómenn í
Reykjavík 1941 — Hermann
Jónasson forsætisráðherra neit-
ar að leyfa flug Lufthansa til
íslands 1939 — Verkamannafé-
lag Akureyrar setur verkbann á
„Nova“ 1933 — Kristján Jónsson
verður ráðherra 1911 — „Goða-
foss“-smyglið 1962.
Orð dagsins: Vondur friður er
verri en alls enginn friður —
David Lloyd-George, velskætt-*
aður stjórnskörungur
(1863-1945).
Fyrir réttum ellefu árum kom Per Hækkerup til fslands og sótti
þá Pressubali Blaðamannafélags íslands að Hótel Sögu. Var
mynd þessi tekin við það tækifæri. Hækkerup situr hægra megin
og raeðir við dr. Kristinn Guðmundsson fyrrum utanríkis-
ráðherra og sendiherra.
Hækkerup
látinn
Kaupmannahöfn, 13. marz. — AP.
PER Hækkerup efnahagsmála-
ráðherra Danmerkur og fyrr-
um utanríkisráðherra andaðist
snemma á þriðjudagsmorgun
eftir langvarandi veikindi.
Hækkerup var litríkur og
valdamikill maður í stjórnmál-
um í heimalandi sínu undan-
farna tvo áratugi, og þekktur
fyrir starfsorku og lipurð, en
einnig fyrir skopskyn og
óvenjulcga einlægni í samskipt-
um við aðrar þjóðir meðan
hann gegndi embætti utanrikis-
ráðherra á árunum 1962—66.
Ein af kenningum Hækkerups
í utanríkismálum var þessi:
„Stórveldin eru einráð á valda-
sviðinu, en þau þurfa ekki að
hafa neinn einkarétt á góðum
hugmyndum."
Hækkerup átti sæti á Þjóð- '
þinginu danska frá árinu 1950
og var ráðherra í fimm ríkis-
Per Hækkerup.
stjórnum jafnaðarmanna, og
fékk orð fyrir gífurleg vinnuaf-
köst. í fyrra gekkst hann undir
lungnauppskurð, og náði sér
aldrei eftir það.
Ekkja Hækkerups er Grete
Hækkerup, sem lengi hefur átt
sæti á Þjóðþinginu, auk þess
sem hún var um skeið varafor-
seti þingsins.
Þau eignuðust þrjá sonu.
Veður
víða um heim
Akureyri +5 skýjaó
Amsterdam 7 skýjaó
Apena 20 bjart
Berlín 7 skýjað
BrUssel 11 skýjaó
Chicago 2 bjart
Frankfurt 13 skýjað
Genf 15 skýjaó
Helainlci +1 skýjaó
Hong Kong 22 skýjaö
Jóhannesarb. 25 bjart
Kaupmannahöfn 5 skýjaó
Lissabon 1S bjart
London 11 rigníng
Los Angeles 22 skýjaö
Madrid 22 bjart
Miami 22 skýjaó
Moskva 2 skýjað
Nýja Delhi 26 bjart
New York 5 skýjaó
Osló 1 bjart
París 12 rigning
Reykjavík 43 léttskýjaó
Rómaborg 15 skýjaó
San Francisco 22 bjart
Stokkhólmur 3 skýjaó
Sydney 26 bjart
Tókfó 8 rigning
Toronto 410 skýjaó
Vancouver 10 bjart
Vínarbora 12 rianina
Olivia Newton-John.
Olivia
fékk orðu
London 13. marz. AP.
OLIVIA Newton-John, ensk-ástr-
alska Grease-stjarnan, var í dag
sæmd Orðu brezka heimsveldisins
(OBE) og þá hún orðuna af Elísa-
betu Bretadrottningu. Það var
forsætisráðherra Ástralíu, Mal-
colm Fraser, sem tilnefndi Oliviu
til þessa. „Ég var öldungis hlessa
yfir þessu og þegar mér var sagt
frá því fyrst að þetta stæði fyrir
dyrum, hélt ég það væri grín,“
sagði Olivia og bætti við að henni
fyndist gleðilegt að hljóta þessa
sæmd aðeins þrítug að aldri. I hópi
þeirra sem Elísabet drottning
sæmdi og orðu í dag var Gordon
Jackson, leikari í „Húsbændum og