Morgunblaðið - 14.03.1979, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979
19
Friðrik Sophusson;
Aðflutningsgjöld af að-
f öngum iðnf yrirtæk ja í
samkeppni við erlenda
aðila verði felld niður
„Aðflutningsgjöld falli endan-
lega niður af aðföngum þeirra
iðnfyrirtækja, sem stunda fram-
leiðslu til útflutnings eða eiga í
beinni samkeppni við vörur og
þjónustu sem heimilt er að flytja
til landsins, eða óbeinni
samkeppni, þegar heimili er inn-
flutningur, sem komið getur f
stað innlendrar vöru eða þjón-
ustu samkvæmt almennu mati
notenda viðkomandi vöru.“ —
Framangreind atriði eru megin-
efni frumvarps til laga sem
Friðrik Sophusson (S) hefur lagt
fram á Alþingi. Meðflutnings-
menn Friðriks eru þingmenn-
irnir Arni Gunnarsson, Ingvar
Gíslason og Kjartan Ólafsson,
einn úr hverjum
stjórnarflokkanna.
Aðalefni tillögunnar er svohljó-
andi, orðrétt:
„Aðföng (hráefni, hjálparefni,
rekstrarvörur, umbdðir, vélar,
tæki, þ.m.t. flutningstæki til flutn-
inga innan verksmiðjulóða, hlutar
til véla og tækja, áhöld hvers
konar og varahlutir) þeirra iðn-
fyrirtækja, sem stunda fram-
leiðslu til útflutnings eða eiga í
beinni samkeppni við vörur og
þjónustu (viðgerðir og verktöku),
sem heimilt er að flytja til lands-
ins, eða óbeinni samkeppni, þegar
haimill er innflutningur, sem kom-
ið getur í stað innlendrar vöru eða
þjónustu skv. almennu mati not-
enda viðkomandi vöru. Samkvæmt
skilningi þessa töluliðar merkir
orðið gjöld í tollskrá, toll, sölu-
skatt, vörugjald og jöfnunargjald
eftir því sem við á.
Fjármálaráðuneytið setur nán-
ari reglur um framkvæmd ákvæða
þessa töluliðar að höfðu samráði
við iðnaðarráðuneyti og samtök
iðnaðarins."
í ítarlegri greinargerð sem fylg-
ir frumvarpinu er gerð grein fyrir
efni þess, þar sem meðal annars er
sagt, að nú sé fjármálaráðuneyt-
inu heimilt að endurgreiða eða
fella niður framangreind gjöld
samkvæmt nánari reglum um
framkvæmd er ráðuneytið setji.
Flutningsmenn vilja að í stað
þessara ákvæða flytjist þau í aðra
grein og beri yfirskriftina „Toll-
frjáls innflutningur" og verði þar
sérstakur töluliður.
I greinargerð frumvarpsins er
einnig skýrt frá túlkun og fram-
kvæmd núgildandi skipunar, og
tekin dæmi um núverandi skipan.
Þá er í tveimur köflum greinar-
gerðarinnar sérstaklega fjallað
um tæknivæðingu og lækkun vöru-
verðs, og tekjutap ríkissjóðs:
Þáttur í tæknivæðingu
og lækkun vöruverðs
Á siðustu mánuðum hefur mikið
verið rætt um nauðsyn framleiðni-
aukningar á Islandi. Margir eru
hræddir við notkun þessa orðs, þar
sem þeir telja framleiðniaukningu
hafa í för með sér ómannúðlega
meðferð vinnuafls og framleiðslu,
framleiðslunnar vegna. Hér er um
mikinn misskilning að ræða, þar
sem framleiðniaukning getur og á
að hafa í för með sér aukin
lífsgæði, hærri laun, og bætt
vinnuskilyrði
Eitt af þeim atriðum, sem hér á
landi hafa staðið í vegi fyrir
aukinni framleiðni, eru háir tollar
á tækjum til flutninga innan
verksmiðja. Afleiðing þessa er sú,
að vörur eru fluttar til með hand-
afli eða á annan frumstæðan hátt,
sem krefst verulegrar áreynslu af
hálfu starfsmanna. Með nútíma
flutningatækjum, svo sem lyftur-
um, færiböndum og hlaupaköttum,
má auðvelda þessa flutninga til
muna. Afleiðingar þessar eru eft-
irfarandi:
1. Bætt vinnuaðstaða vegna
minnkaðs líkamlegs álags á starfs-
menn.
2. Starfsmenn eyða meiri tíma við
framleiðslu, en við það eykst fram-
leiðnin.
Friðrik Sophusson.
3. Sá tími, sem það tekur að
fullgera hverja einingu af vörunni,
styttist, þar sem varan kemst án
tafar frá einni aðgerð til annarar.
Við það, að framleiðslutíminn
styttist, minnka birgðir ófullunn-
inna vara, en verðgildi ófullunn-
inna vara í iðnaði er um 30
milljarðar króna. 10% stytting
framleiðslutíma vegna bættra
flutninga getur því sparað 3
milljarða í birgðum.
Af þessu er ljóst að rétt er að
hvetja fyrirtæki til að koma sér
upp nútíma flutningskerfum, en
það má gera með niðurfellingu
tolla á slík tæki. Enn fremur má
benda á, að tollaniðurfellingin
hlýtur að lækka vöruverðið og
kemur því neytendum til góða.
Tekjutap ríkissjóðs
Erfitt er að áætla hugsanlegt
tap ríkissjóðs, ef frumvarpið nær
fram að ganga. Talnalegar upplýs-
ingar um innflutning eftir toll-
skrárnúmerum eru fyrir hendi, en
þau aðföng, sem hér um ræðir,
falla undir tollskrárnúmer, sem að
verulegu leyti innifela vörur til
annara notenda en iðnfyrirtækja.
Af þessum sökum er torvelt að fá
upplýsingar um innflutt aðföng til
iðnaðar í þessum tollskrárnúmer-
um, en það talnaefni verður að
liggja fyrir, ef unnt á að vera að
reikna út beint tekjutap ríkissjóðs.
Þegar litið er yfir þá vöruflokka,
sem þetta frumvarp snertir, er
ljóst að ríkissjóður missir ekki
stóran spón úr aski sínum, þótt
hann verði af þessum tekjum.
Bæði er um tiltölulega fá toll-
skrárnúmer að ræða og lítinn
innflutning aðfanga til iðnaðar í
hverju tilviki. Þessi aðflutnings-
gjöld skipta ríkissjóð þannig
óverulegu máli, en þar sem þau
leggjast mjög ójafnt á iðnaðar-
fyrirtæki geta þau bitnað illa á
einstökum fyrirtækjum og iðn-
greinum. Þá má ennfremur benda
á að öflun þessara tekna hefur
kostað ótaldar vinnustundir
starfsmanna ráðuneyta og fyrir-
tækja á s.l. árum.
Lárus Jónsson:
Samræm-
ing og efl-
ing út-
flutnings-
starfsemi
LÁRUS Jónsson (S) mælti í fyrra-
dag fyrir tillögu, sem hann flytur
ásamt Sverri Hermannssyni (S)
um samræmingu og eflingu út-
flutningsstarfsemi. Tillagan fel-
ur í sér að gerð verði úttekt á
skipulagi og aðstöðu útflutnings-
verzlunar landsmanna og að leit-
að verði leiða til þess að efla og
samræma útflutningsstarfsemi
fyrir fslenzkar framleiðsluvörur
og þjónustu. Um úttekt þessa,
samræmingu og eflingu útflutn-
ingsstarfsemi skal hafa samráð
við þá aðila sem nú annast út-
flutning og markaðsstarfsemi.
I þessu sambandi skal leggja
áherzlu á eftirfarandi:
1. að kanna hvort rétt sé og
hagkvæmt að koma á fót sam-
starfi allra aðila, sem vinna að
útflutningsstarfsemi, m.a. í því
skyni að stuðla að á skipulegan
hátt almennri kynningu á ís-
lenskum vörum og þjónustu
erlendis og þjálfun starfsfólks,
sem vinna mun að hvers konar
útflutningsstarfsemi;
2. að marka enn frekar þá stefnu í
skatta- og tollamálum, svo og
annarri opinberri fyrirgreiðslu,
sem auðveldar íglenskum út-
flytjendum samkeppni á erlend-
um mörkuðum;
3. að kanna hvort rétt sé og
hagkvæmt að samræma eða
sameina starf utanríkis- og
viðskiptaráðuneytis á sviði út-
flutningsstarfsemi og efla starf
utanríkisþjónustunnar í
markaðsmálum.
Gagnl<vœmt
traust
Sparilánakerfi Lands-
bankans hefur frá byrjun
áriö 1972, byggst á gagn-
kvæmu trausti bankans
og viðskiptavinarins.
Ef þú temur þér reglu-
semi í viðskiptum, sýnir
Landsbankinn þér traust.
Landsbankinn biður
hvorki um ábyrgðarmenn
né fasteignarveð.
:inu skilyrðin eru reglu-
lundinn sparnaður,
eglusemi í vióskiptum,
— og undirskrift þín og
laka þíns.
tiðjið Landsbankann
im bæklinginn
im sparilánakerfið.
Sþarígársöfiiun tengd réttí til lán
itixi
Sparnaður Mánaðarleg
þinn eftir innborgun
Sparnaður í
lok tímabils
Landsbankínn Ráðstöfunarfé
lánar þér þitt 1)
Ménaðarleg
endurgreiðsla
Þú endurgreiðir
Landsbankanum
hámarksupphæö
12 mánuöi
18 mánuði
24 mánuöi
25.000
25.000
25.000
300.000
450.000
600 000
300 000
675.000
1.200 000
627.876
1.188.871
1.912.618
28.368
32.598
39.122
á12 mánuðum
á 27 mánuöum
á 48 mánuðum
1) í tölum þessum er reiknað með 19% vöxtum af innlogðu fé, 24% vöxtum af lánuðu fé, svo og kostnaði vegna lántöku. Tölur þessar geta
breytzt miðað við hvenær sparnaður hefst. Vaxtakjör sparnaðar og láns eru háð vaxtaákvörðun Seðlabanka íslands á hverjum tíma.
LANDSBANKENN
Sparilán-lryggmg í framtið