Morgunblaðið - 14.03.1979, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979
23
Þrátt fyrir að veikindi Stefáns
höfðu um nokkurn tíma vísað
hvert horfði, varð það okkur,
samstarfsfólki hans, óvæntur og
djúpur sársauki, er lát hans
spurðist.
Stefán var góður starfsfélagi,
glaðlyndur og tryggur og því vina-
margur.
Hann gaf sér tíma til
persónulegra samskipta við vinnu-
félagana, og gott var að eiga hann
að. Stefán var í alla staði traustur
og góður vinur.
Af störfum hans fyrir Olíufélag-
ið h.f., m.a. sem deildarstjóra
birgðabók hands, deildarstjóra
viðskiptabókhalds og aðalgjald-
kera félagsins, má sjá að for-
ráðamenn félagsins báru einnig
fyllsta traust til Stefáns.
Með þessum fátæklegu línum
langar okkur að flytja Stefáni
kærá þökk fyrir ánægjulegar
minningar góðra samstarfsára.
Það sendum við eiginkonu
Stefáns, Aðalheiði Björnsdóttur,
sonum hans, móður og öllu vensla-
fólki hans okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Samstarfsfóík í
Olíufélaginu h.f.
Þegar ég sest niður til að skrifa
minningar og þakkarorð um látinn
vin þá streyma fram í hugann ótal
atvik frá liðnum árum, atvik sem
hafa mótað manns eigin lífsbraut
og þess sem maður er að kveðja.
Ég segi þetta hér og nú vegna þess,
að sá, sem hér er kvaddur, og ég,
sem þessar línur rita, ólumst upp
saman og höfum verið nánir vinir
þar til nú að leiðir skilja um
einhver ár, en enginn veit hvað
góður maður í þess orðs besta
skilningi.
Hendrik kvæntist hálfsystur
minni,. Ágústu M. Gísladóttur frá
Eyrarbakka, 25/10.1925 og bjuggu
þau fyrsta árið á Eyrarbakka, en
síðan í Reykjavík.
Mér var það vel kunnugt, að
hann unni henni hugástum og
taldi það sína mestu gæfu í lífinu
að hafa eignast hana að lífsföru-
naut.
verða mörg nema sá sem öllu
ræður.
Ég sé fyrir mér dalinn okkar
heima á björtum sumardegi um-
girtan stórbrotnum og fögrum
fjallahring, sem heldur verndar-
hendi yfir sínu fólki. Ég sé lítinn
dreng hlaupa um tún og engi ýmist
við störf eða leik. Áin liðast eftir
dalnum og veitir margar ánægju-
stundir við veiðar og leiki. Ég
heyri orð foreldra um að vera
heiðarlegur, duglegur og traustur,
fara vel með öll dýr og málleys-
ingja. Allt þetta mótar ungan
dreng og fylgir honum á lífsbraut-
inni, verður sá stóri fjársjóður
sem hann byggir framtíð sína á.
Ég rek ekki ætt né uppruna
Stefáns því það verður gert af
öðrum, en ég vil með þessum línum
tjá þakklæti mitt og minna fyrir
liðnar samverustundir. Eins og
áður sagði þá ólumst við upp
saman. Ég var svo gæfusamur
eftir að faðir minn dó (en Stefán
bar nafn hans), að við móðir mín
fluttumst á heimili foreldra
Stefáns, en Guðbjörg móðir
Stefáns var systir föður míns og
voru þau mér alla tíð sem ég væri
einn af þeirra börnum og fyrir það
fæ ég aldrei fullþakkað.
Stefán var að eðlisfari sérlega
ljúfur í umgengni, ævinlega hress
og kátur svo manni fannst eins og
ljúfur vorblær færi um þar sem
hann var. Hann var samvisku-
samur og traustur hvar sem hann
fór eða starfaði, enda virtur og
vinmargur.
Það var mikill hamingjudagur í
lífi hans 6. maí 1961. Þá giftist
hann eftirlifandi konu sinni, Aðal-
heiði Björnsdóttur úr Reykjavík
sem reyndist honum í alla staði
traustur og góður lífsförunautur
og kom það best fram í hans löngu
veikindum hvað hún annaðist
hann af miklum dugnaði og nær-
gætni, vakti yfir honum nær dag
og nótt uns yfir lauk.
Þau byggðu sér fallegt heimili á
Safamýri 29 og eignuðust þrjá
drengi, Brynjar 18 ára, sem stund-
ar nám í Verslunarskólanum,
Ingvar 12 ára og Reyni 6 ára.
Margar ánægjustundir höfum
við hjónin átt á heimili þeirra sem
við minnumst með söknuði og
þakklæti. Við þökkum allar sam-
verustundirnar i ferðalögum um
landið, ánægjustundir við lax- og
silungsveiðar. Manni finnst
skuggar sem niðadimmir.
Þannig er það þegar ungir menn
eru kallaðir burt í blóma lífsins.
En við sem lærðum að trúa á guð
vitum að guð leiðir okkur út úr
skugganum og aftur birtir.
Minningin verður björt og fögur,
innilegt þakklæti fyrir samfylgd-
ina, sem mér finnst að hafi gert
mig að betri manni.
-ÍCunni hann mjög vel að meta
hið smekklega og hlýlega heimili,
er kona hans bjó honum og börn-
um þeirra.
Var Hendrik og mjög góður
heimilisfaðir og ásamt eiginkonu
sinni ól hann börn sín upp í
guðsótta og góðum siðum.
Hin ástríku og friðsælu
fjölskyldubönd leiddu til þess, að
heimilið varð honum hjartfólginn
og heilagur griðarstaður, ekki síst
eftir að heilsan fór að bila.
Þau hjónin áttu því láni að
fagna að öðlast nýjan trúarstyrk
og afturhvarf til sannrar trúar er
Hendrik var rúmlega fimmtugur.
Gengu þau þá í Fíladelfíusöfnuð-
inn og hafa verið í honum síðan.
Töldu þau það hafa verið mikið
heillaspor og orðið þeim til
ómetanlegrar hamingju.
Þegar litið er yfir farinn veg
Hendriks, er öruggt að hann á
góða heimkomu hinum megin
grafar, því að til þess hefur hann
unnið með framkomu sinni og
trúarstyrk.
Hin síðari ár hafði Hendrik átt
við nokkurn heilsubrest að stríða,
sem ágerðist heldur með tímanum
og dró hann loks til dauða, enda
var hann þá kominn á níræðis-
aldur.
Hjartað var farið að gefa sig
upp á síðkastið og vár því stutt
tímaspursmál hvenær yfir lyki.
Ég þakka sérstaklega fyrir árin
á Arnarnúp bæði við leiki og í
starfi. Fyrir hönd móður minnar
færi ég fram sérstakar þakkir
fyrir mikla tryggð og vináttu alla
tíð.
Guggu frænku mína bið ég guð
að styðja og veita styrk í sorg.
Heiða mín, það er aðdáunarvert
hvernig þú hefur staðið þig í
þessum erfiðleikum. Þú átt fallega
drengi og góðar minningar um
góðan lífsförunaut, sem léttir þér
biðina.
Guð styðji ykkur á ókomnum
árum.
Markús Stefánsson.
Við fráfall jafn góðs vinar og
Stefáns Kristjánssonar, hljóta að
leita á hugann ótal minningar frá
liðinni tíð.
Við kynntumst Stefáni fyrst, er
við keyptum jarðhæðina í Safa-
mýri 29. Sambýlið við hann og
fjölskyldu hans þar í rúm 9 ár varð
kveikjan að vináttu sem haldist
hefur æ síðan.
Stefán var snyrtimenni svo af
bar og voru þau hjónin mjög
samhent um að fegra heimili sitt
og umhverfi. Óhætt er að segja að
hann hafi verið driffjöðrin í flest-
um framkvæmdum við húseignina
og þar var ekki flanað að neinu.
Allir möguleikar voru þaul-
hugsaðir, þar til fundin var þezta
lausnin. Hann var einnig ólatur að
taka til höndunum og ávallt sat
vandvirknin í fyrirrúmi.
Við minnumst samverustunda
heima og í sumarbústaðnum.
Langra rökræðna yfir kaffibollum,
þar sem víða var komið við, því fá
voru þau mál, sem Stefán lét sig
ekki einhverju skipta. Ævinlega
var hann rökfastur, en tók þó
alltaf fullt tillit til skoðana
annarra.
Stefán var umhyggjusamur
Afmælis- o g
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góöum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein. sem birtast á í
miðvikudagsblaöi, að berast í
síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibréfs-
formi eða bundnu máli. Þær
þurfa að vera vélritaðar og
með góðu línubili.
Þau hjónin eignuðust fimm
mannvænleg börn.sem öll eru á
lífi, en þau eru:
Katrín, ekkja Þorsteins Einars-
sonar, veghefilstjóra og starfs-
manns við trúboðsstarf, en hann
lést af slysförum. Þau eignuðust 8
börn og eru 7 þeirra á lífi.
Sigríður, sem gift er Ingimar
Vigfússyni, verkamanni, en þau
búa í Keflavík, ásamt 5 börnum
sínum.
Gísli, sem er kvæntur
Rannveigu Albertsdóttur og eiga
þau heima að Hallgeirshólum í
Grímsnesi, barnlaus.
Vilhjálmur, kvæntur Ingibjörgu
Ólafsdóttur, en þau búa í Reykja-
vík, ásamt 2 dætrum sínum,
Jenný , gift Guðjóni Jónassyni
rakara, og búa þau í Reykjavík
ásamt 3 börnum sínum.
Ég kveð svo að lokum þennan
gæfusama og góða dreng með
þökkum fyrir ógleymanlegar sam-
verustundir og þá ekki síst, er ég
var óreyndur piltur og hann miðl-
aði mér af svo óeigingjörnum huga
af reynslu sinni, sem ég átti þá svo
lítið af.
Svo þakka ég honum síðast en
ekki síst fyrir órofa vináttu og
tryggð til hins síðasta.
Að lokum bið ég góðan guð að
hugga og styrkja mína ágætu
systur við fráfall góðs eiginmanns.
Ennfremur börn hans og barna-
börn, sem honum var svo annt um.
Þormóður Ögmundsson.
faðir og ekki fóru börn
nágrannanna varhluta af barn-
gæzku hans. Eldri sonur okkar var
tíður gestur á heimili Heiðu og
Stefáns meðan við bjuggum í
Safamýrinni og mætti þar alltaf (
hlýju viðmóti. Þá mun okkur seint
gleymast, hvað yngri sonur okkar
fagnaði honum alltaf innilega,
þegar þeir hittust, og segir það
sína sögu.
Hjálpfús var Stefán með
afbrigðum og þess nutum við í
ríkum mæli, er við reistum okkur
hús í Garðabæ. Þær voru ótaldar
vinnustundirnar, sem hann átti
þar og ekki þurfti að kvarta yfir
handbragðinu.
Þannig var Stefán, ávallt boðinn
Þórey var fædd 3. október 1897
að Ánastaðakoti á Mýrum. Þaðan
flyst hún með foreldrum sínum að
Hömrum í sömu sveit og dvelst
með þeim uns hún giftist 1919.
Maður hennar var Jón Ólafsson
frá Húsavík eystra, fæddur 18.
apríl 1893. Hann lést 1944. Þau
hjón eignuðust tvær dætur,
Guðbjörgu og Guðnýju, og þótt
þær væru af barnsaldri við lát
föður síns, þurfti þó að sjá
heimilinu farborða. Af reisn og
myndugleik gekk Þórey til móts
við þau umskipti og nýtti allan
þann styrk, sem hún hafði yfir að
ráða, til umhyggju fyrir dætrum
sínum og helgaði þeim alla sína
krafta, eins og sönn móðir hlýtur
ávallt að gera þegar heill og
hamingja barna hennar er í veði.
Hún vann því bæði utan og innan
heimilisins af dugnaði og myndar-
skap og skilaði þannig sínu hlut-
verki með mikilli sæmd.
Það létti þeim mæðgum mikið
hinn þunga róður að nokkrum
árum eftir fráfall Jóns, flyst
bróðir hans, Berg Ingimann, á
heimili þeirra og varð þeim mikil
stoð og gleði.
Að því kom að sjálfsögðu, að
dætur Þóreyjar giftast og stofna
sitt eigið heimili- Guðbjörg giftist
Einari Eyjólfssyni, kaupmanni, og
eiga þau 5 börn. Guðný giftist
Gunnari Einarssyni, húsgagna- og
innanhússhönnuði, og eiga þau 4
börn.
Lífsferill Þóreyjar tekur nú aðra
stefnu. í stað þess að vera dætrum
sínum fyrirvinna flyst hún í skjól
hjá þeim og tekur við ömmu-hluU
verkinu, sem hún rækti af mikilli
fegurð og umönnun. Það eru því
fagrar og uppbyggjandi minningar
sem öll þessi ungmenni eiga um
þessa sómakonu, sem gældi við
þau og leiðbeindi þeim. Árin liðu
og Þórey tók erfiðan sjúkdóm og
varð að leggjast á sjúkrahús.
og búinn og sístarfandi, meðan
heilsan leyfði. Og svo sannarlega
stóð hann sig eins og hetja í
erfiðum veikindum, sem drógu
hann til dauða langt fyrir aldur
fram. Þá naut hann umhyggju
eiginkonu sinnar og sona, sem
stóðu við hlið hans, þar til yfir
lauk.
Það er mikil eftirsjá í slíkum
manni, sem Stefán var, og víst er
að Heiða og synirnir þrír sjá á bak
góðum og ástríkum heimilisföður.
Við viljum að lokum votta þeim,
aldraðri móður og öðrum ættingj-
um okkar dýpstu samúð og vonum
að góður guð gefi þeim styrk á
þessum erfiðu tímamótum.
Ninna og Haddi.
Það urðu henni sex erfið ár að
komast frá sjúkrahúsinu til graf-
arinnar. Það varð dapurlegt
sjónarspil dætrum hennar og
öðrum ættmennum að svo tíguleg
og tápmikil kona skyldi beygð
undir svo mikið álag. Dætur
hennar vitjuðu hennar dag hvern
meðan báðar máttu, en hinn 25.
janúar s.l. varð sú eldri að flytja
að beði móður sinnar lát þeirrar
yngri. Guðný varð bráðkvödd þann
dag, langt um aldur fram.
Það er naumast hægt að leiða
hugann að því, hverjum sársauka
slík fregn veldur aldurhniginni
móður á banabeði. En nú er hún
sjálf laus úr viðjum þessa dapur-
leika. Við felum hana Guðdómin-
um og biðjum allar góðar vættir að
vísa þeim mæðgum veg til þeirrar
fullkomnunar, þar sem Guð og
menn mætast á sömu skör.
Við flytjum þeim báðum þakkir
fyrir það líf sem þeim auðnaðist að
lifa hér meðal okkar. Minningin
um það er hugljúf, vermir og lýsir,
uns við sjálf höfum stigið hin
sömu skref á sömu leið.
Gunnar G. Einarsson.
Fagna endurskipu-
lagningu flokksstarfsins
STEFÁN Snæbjörnsson var kjör-
inn formaður Sjálfstæðisfélags
Garðabæjar og Bessastaðahrepps
á aðalfundi félagsins sem haldinn
var nýlega. Auk Stefáns voru
kosin í stjórn þau Bergþór Úlf-
arsson, Björn Pálsson, Einar
Ólafsson og Margrét Thorlacius.
Birgir Isl. Gunnarsson fyrrv.
borgarstjóri flutti erindi á fundin-
um um skipulag og starfsemi
Sjálfstæðisflokksins. Á fundinum,
sem var vel sóttur, urðu miklar
umræður um flokksstarfið og þró-
un stjórnmála siðustu mánuði.
Fundurinn samþykkti eftirfarandi
ályktanir:
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags
Garðabæjar og Bessastaðahrepps,
haldinn 28. febr. 1979, fagnar
þeirri endurskipulagningu flokks-
starfsins, sem unnið hefur verið að
og telur hana nauðsynlegan und-
anfara þeirrar sóknar, sem nú er
hafin til sigurs fyrir stefnumálum
flokksins.
Fundurinn telur, að sú efna-
hagsstefna, sem flokkurinn hefur
nýlega kynnt, feli í sér þá endur-
reisn í anda frjálshyggju, sem
stefna beri að.
Fundurinn leggur áherslu á, að
áfram verði unnið að markvissri
stefnumótun á öllum helstu svið-
um þjóðmála og undirbúningi
lokið það fljótt að Landsfundur
verði bær um að leggja síðustu
hönd á stefnuskrá flokksins.
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags
Garðabæjar og Bessastaðahrepps
fagnar framkomnu frumvarpi
Ragnhildar Helgadóttur varðandi
friðhelgi einkalífs og skorar á
alþingismenn að samþykkja frum-
varpið á þessu þingi.
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags
Garðabæjar og Bessastaðahrepps,
haldinn 28.2 1979, beinir því til
þingmanna Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi að þeir taki
kjördæmamálið sem fyrst upp á
alþingi til að leiðrétta hið hróplega
ranglæti, sem íbúar Reykjanes-
kjördæmis mega búa við og setur
þá skör lægra en aðra landsmenn.
Þórey Jónsdóttir
—Minningarorð