Morgunblaðið - 25.03.1979, Side 1
72 SÍÐUR
71. tbl. 66. árg.
SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Gálginn blasir
við Ali Bhutto
DamaxkuH, Kairó, Beirut 24. marz AP.
ANDREI Gromyko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, kom í óvænta
heimsókn til Damaskus í morgun til viðræðna við forystumenn þar
um Miðausturlandadeiluna. Utanríkisráðherra Sýrlands fagnaði
Gromyko á flugvellinum. Þessi ferð Gromykos til Sýrlands þar sem
látin hefur verið í ljós eindregnust og harðskeyttust andstaða
samningagjörð Egyptalands og lsraels, þykir athyglisverð og fáir
telja að hún sé fyrir tilviljun farin. í tilkynningu Sanafréttastofunn-
ar segir að auk þess að raéða við Assad forseta og fleiri forvígismenn
sé ekki útilokað að Gromyko hitti Yasser Arafat, leiðtoga PLO.
Frá Beirut í Líbanon bárust
þær fregnir í morgun, að Afafat
hefði sagt í dag að skilyrt boð
Carters um samvinnu við PLO
væri í athugun og yrðu ekki gefin
svör við því fyrr en að grand-
skoðuðu máli. í orðsendingu sinni
sagði Carter að stjórn hans •
myndi fáanleg til þess að hafa
bein samskipti við PLO ef sam-
tökin viðurkenndu tilverurétt
ísraels með því að samþykkja
samþykkt Sameinuðu þjóðanna,
sem kölluð hefur verið 242. grein.
Sadat forseti Egyptalands fór
árla laugardags áleiðis til Banda-
ríkjanna. Hann ákvað að hætta
við að koma við á Spáni í leiðinni
eins og upphaflega hafði verið
áformað. Hannn sagði við frétta-
menn við brottförina frá Kairó að
hann væri glaður í sinni yfir því
að fara þessa sögulegu ferð.
I Washington sat Moshe Dayan
utanríkisráðherra Israels á
fundum allan laugardag til þess
að fara yfir orðalag samningsins
milli þjóðanna, svo að ekkert færi
milli mála og gæti valdið misklíð
á síðustu stundu.
FÆRÐIN
Ljósm: Emilía
Rawalpindi, 24. mars, AP, Reuter.
HÆSTIRÉTTUR í Pakistan vís-
aði í dag á bug áfrýjun lífláts-
dóms yfir fyrrverandi forsætis-
ráðherra landsins, Zulfikar Ali
Bhutto. Dómstóllinn mæltist jafn-
framt til þess að Zia-ul Haq
yfirherforingi endurskoðaði
hvort mildun dómsins kæmi til
greina.
Eina von Bhuttos, er setið hefur
í fangelsi síðan í fyrravor, virðist
sú að heimsleiðtogar eins og
Carter Bandaríkjaforseti,
Breshnev, forseti Sovétríkjanna,
Kurt Waldheim, aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna, og Jóhannes Páll
VI taki upp hanskann fyrir hann.
Pakistanska herstjórnin hefur gef-
ið í skyn, að hún búist ekki við
meiri háttar vandræðum þótt
dauðadómi yfir Bhutto yrði full-
nægt. Margir eru hins vegar ann-
arrar skoðunar í ljósi þess að
Bhutto var um árabil eini stjórn-
málaskörungur þjóðarinnar, er
naut almenns fylgis. Hefur ríkis-
stjórnin ekki linnt áróðursstríði
sínu í fjölmiðlum í þeim tilgangi
að ófrægja Bhutto, er sakaður
hefur verið um að láta myrða
pólitískan andstæðing 1974.
Zia yfirherforingi hefur áður
látið svo um mælt, að hann muni
ekki láta tilmæli erlendra aðila
hafa minnstu áhrif á sig. Sagði
hann að heimsleiðtogar myndu
aðeins ganga bónarveg fyrir
stjórnmálamann úr þeirra eigin
stéttarfélagi ef þeim fyndist hon-
um ógnað.
Gromyko til Sýrlands
París, 24. marz. AP.
GEYSIHÖRÐ átök lög-
reglu og stjórnleysingja í
mótmælaaðgerðum
stálverkamanna gegn
frönsku stjórninni í gær
leiddu til þess að 131
lögreglumaður og slökkvi-
liðsmaður slasaðist og auk
þess 100 þátttakendur í
mótmælaaðgerðunum að
sögn lögreglu.
Þetta eru talin hörðustu
óeirðir sem hafa orðið í
París síðan í stúdentaupp-
reisninni 1968. Skemmdar-
verk voru unnin á um það
bil 54 verzlunum enda þótt
tjónið væri lítið í flestum
tilfellum, aðallega brotnar
rúður.
Verkalýðssambandið
GCT sem kommúnistar
stjórna skipulagði mót-
mælaaðgerðirnar og kallaði
þær „hergönguna til
Parísar". Það segir að félag-
ar í sambandinu hafi á
engan hátt verið viðriðnir
óeirðirnar og skellir skuld-
inni á fámenna hópa sem
hafi viljað trufla friðsam-
legar mótmælaaðgerðir.
Aðgerðirnar voru skipu-
lagðar til að mótmæla fyrir-
hugaðri endurskipu-
lagningu Raymond Barres
forsætisráðherra á bág-
bornum stáliðnaði Frakka.
Atvinna um það bil 35.000
verkamanna er í hættu.
Sadat til New York —
JárnfrúBreta
blœs til orrustu
Solihuil, EnKlandi,
24. marz, Reuter.
LEIÐTOGI stjórnarandstöðu í
Bretlandi frú Thatcher, virðist
hafa tekið til óspilltra málanna
í kosningabaráttu þeirri, er
margir telja að fyrir dyrum
standi í Bretlandi. í ávarpi er
„járnfrúin" flutti miðnefnd
Ihaldsflokksins í dag réðst hún
harkalega á stefnu Callaghan-
stjórnarinnar í skattamálum
og viðvíkjandi verkalýðsfélög-
um og Efnahagsbandalaginu.
„Hverri viku er á glæ kastað,"
sagði Thatcher „og tefur að
landi þessu sé komið á réttan
kjöl á ný.“
Geysihörð
átök í París
La Malfa
í lífehættu
Róm, 24. marz. Reuter.
UGO La Malfa, aðstoðar-
forsætisráðherra í nýju
stjórninni, sem tók við
völdum á Ítalíu fyrir
aðeins þremur dögum,
fékk hjartaáfall í dag og
líðan hans er alvarleg að
sögn lækna hans.
La Malfa er leiðtogi
Lýðveldisflokksins sem er
smáflokkur. Hann reyndi
árangurslaust að mynda
ríkisstjórn þegar fyrsta
stjórnarmyndunartilraun
Giulio Andreottis úr flokki
kristilegra demókrata fór
út um þúfur eftir fall
minnihluta stjórnar hans
31. janúar sl.
Arás á
Mósambík
Maputo. Möoambik, 24. marz. AP.
RÍKISSTJÓRNIN í Mósambík
skýrði frá því í dag, að árás hefði
verið gerð á eldsneytisgeymslu-
stöð skammt frá annarri stærstu
borg landsins, Maputo, og tjónið
er metið á um það bil 1300
milljónir íslenzkra króna.
Rhódesíumenn hafa gert margar
árásir á bækistöðvar skæruliða
Roberts Mugabes í Mósambík,
síðast á birgðastöðvar í Chokwe
um 160 km. frá Maputo í síðustu
viku. En talsmaður í Salisbury
kvaðst ekkert vita um árásina i
dag.
Hœna
varp
vísdóms-
eggi
Bogota, 23. mars, Reuter.
IIÆNUEGG, sem sagt er að
beri skilaboð um ragnarök.
hefur verið sent
rómversk-kaþólskum
biskupi og landbúnaðarsér-
fræðingum til athugunar.
Það var bóndakona í þorp-
inu Tebaida í Kólumbíu, er
eggið fann, er hún vitjaði
hænsna sinna fyrr í vikunni.
Utan á skel eggsins mátti lesa
í upplyftu letri orðin: Dóms-
dagur — Iðrist — Guð.
I felmtri sínu tók konan
eggið til sóknarprestsins, er
úrskurðaði að biskupinn í
Armeníu-héraði yrði að
leggja dóm á fyrirburðinn.
Kólumbíumenn eru nú sem á
nálum og bíða eftir niður-
stöðu biskups og vísinda-
manna.