Morgunblaðið - 25.03.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.03.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979 Húsnæðismálastjórnarlán: Full verðtrygging og 1 og 3 % vextir? Dr. Gnnir G. Sehram Jónas Biamaaon Geir Hallfrímsson Ráðstefna um mótun íslenzks þjóðfélags Ung stúlka horfir í gegnum eina af myndum Leifs Breið- f jörðs úr steindu gleri. Vetrarmynd lýkur í kvöld SÝNINGUNNI Vetrarmynd í Norræna húsinu lýkur í kvöld, en þar sýna 7 málarar verk sín, þeir Jóhannes Geir, Þorbjörg Höskuldsdóttir, Baltasar, Bragi Hannesson, Leifur Breiðfjörð, Hringur Jóhannesson, og Magnús Tómasson. Sýningin hefur verið fjölsótt og margar myndir hafa selzt. Nafn piltsins, sem lézt í Hrís- ey á fimmtudag PILTURINN, sem lézt í Hrísey síðastliðinn fimmtudag, hét Vilhjálmur Kritinn Guðjónsson. Hann var tæplega 14 ára gamall, fæddur 15.5. 1965. Hann átti heima á Sólvallagötu 3 í Hrísey. Pilturinn var í fríi frá skóla á fimmtudaginn og í vinnu í fisk- vinnslustöð KEA í Hrísey er fiskikassastæða hrundi ofan á hann. „Þungu skref- in” ráðherrans í hlaðvarpanum í Morgun- blaðinu í gær birtust 9 ráðherravísur Brynhildar H. Jóhannsdóttur sem hún flutti í þingmannaveizlunni í síðustu viku. í fyrstu vísu bálksins féll niður eitt orð, „þungu" í vísunni um Hjörleif Guttormsson. Birtum við vísuna hér rétta: Iðnaðar á brautum brðttum blða Hjörleifs þungu skrefin. Fyrirtækin fölna af sköttum, fögur heit f rindinn gefin. Það fðr alveg sem við sögðum og séð var fyrir í þá veru þðtt beitt sð luensku og kynjabrögðum þá kviknar ekki á Hjörleifs peru. Steinbarn og aprílgabb í GREIN minni í gær um apríl- gabb stjórnar BSRB og tveggja ríkisstjórna urðu tvær meinlegar prentvillur. Raunar var villan ein, fen hún mun hafa þótt svo góð að þörf væri á að endurtaka hana. Ég hafði ritað steinbarn, en það varð sveinbarn. Er ég leit þetta í blaðinu kom mér í hug vísa er gamall félagi minn, Þorsteinn Ö. Stephensen, kastaði eitt sinn fram í gamni í samkvæmi: Áður en ég til grafar geng girnist ég að eiga með þér vænan. vaskan dreng og við honum gangast mega. Ég vil ekki gangast við þessu sveinbarni Morgunblaðsins. Það er samt hægara pælt en kýlt að lesa prófarkir. Vona að lesendur hafi ráðið í hið rétta orð: steinbarn. Einn stafur getur skipt sköpum um skilning. Svo var t.d. í frásögn dagblaðs er nefndi Þorgils skarða Þorgils skaða. Það var skaði. Aðalatriðið er samt að við: Segjum nei við aprílgabbi BSRB stjórnar og ríkisstjórnarinnar. Pétur Pétursson þulur. Innri-Njard- víkursókn INNRI-NJARÐVÍKUR* KIRKJA. —■'Sunnudagaskólinn verður í safnaðarheimilinu kl. 13.30 í dag og klassisk messa verður í kirkjunni kl. 14 í dag. MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær samband við Magnús H. Magnússon félagsmáiaráðherra og innti hann álits á hinum nýju lánakjörum Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og hvort hann hygðist beita sér fyrir breytingum á lánakjörum lána Húsnæðismálastjórnar rfkisins. „Mér finnast þessi lán verslunar- manna mjög skynsamleg," sagði ráðherrann, „og þetta er ekki ósvipað og við höfum rætt um og stefnum að í þessum málum, þ.e. full verðtrygg- ing og 3% vextir annars vegar og hins vegar full verðtrygging og 1% vextir til þeirra sem hafa hingað til SAMKVÆMT þeim nýju reglum sem teknar hafa verið í gildi varðandi bflanotkun og bflakaup ráðherra geta þeir nú valið um það að hafa bfl í rfkiseigu ein- göngu til embættisstarfa eða eiga bfl sem ríkið greiðir rekstrar- kostnað af og við kaup á eigin bfl geta ráðherrar fengið allt að 3 notið kjara verkamannabústaða og annarra íbúða á þeim grundvelli. I þessum lánum yrði útreiknuðum vöxtum og borgunum deilt á tímann. Varðandi þessi lán til verka- mannabústaða erum við langt komnir, má segja að allt sé tilbúið nema fjáröflunin og hún er að vísu mjög stór liður miðað við full lán yfir alla línuna, eða um 15—20 milljarðar á ári, en þessum breyting- um þarf að koma á í sambandi við lífeyrissjóðakerfið. Hins vegar held ég að lán Húsnæðismálastjórnar í dag séu svipuð og þessi nýju kjör hjá verzlunarmönnum." millj. kr. að láni hjá ríkissjóði á venjulegum lánakjörum banka. Þær reglur sem voru í gildi í þessum efnum gerðu ráð fyrir að ráðherrar gætu keypt bíl á þriggja ára fresti þar sem aðflutningsgjöld voru felld niður og var þetta í gildi í eitt ár eftir að ráðherrar létu af störfum. Sjálfstæðisflokkurinn heldur n.k. laugardag 31. marz ráðstefnu um framtíðarsýn og langtfma mark- mið fyrir mótun íslenzks þjóð- félags. Ráðstefnan verður sett kl. 9 af Geir Hallgrímssyni formanni Sjálfstæðisflokksins og kl. 9:15 kynnir Jónas Bjarnason formaður Akureyri 25. marz. SIGTRYGGUR Júlíusson opnar málverkasýningu í Gallerf Háhól í dag kl. 15. betta er fyrsta einkasýning Sigtryggs, en hann hefur áður tekið þátt í samsýn- ingum og er kunnur listmálari starfshóps drög að markmiðum. Gunnar G. Schram greinir frá leiðbeiningum fyrir starfshópa, en Gunnar er jafnframt ráðstefnu- stjóri. Starfshópar munu síðan starfa til kl. 14:30 og verða niður- stöður þeirra þá kynntar og lýkur ráðstefnunni með almennum um- ræðum. hér um slóðir. Á sýningunni eru rúmlega 60 vatnslitamyndir og eru þær allar til sölu. Sýningin verður opin til 1. apríl kl. 15—22 um helgar og 20—22 virka daga. 3 milljón króna ráð- herralán til bílakaupa Sv.P. Sé fram á 20% kjara- rýmun hjá sjómönnum á minni skuttogurum - segir Matthías B jarnason alþingismaöur „Mér ifzt illa á þessar ráðstafanir f heild,“ sagði Matthfas Bjarnason alþingismaður, er Mbl. spurði hann f gær áiits á þeim aðgerðum til að takmarka heildarþorskaflann við 280 til 290 þúsund tonn, sem Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráðherra skýrði frá f frétt f Mbl. f gær. „Sjávarútvegsráðherra óskaði eftir þvf við stjórnmálaflokkana að þeir tilnefndu fulltrúa f samráðsnefnd til að móta sameiginlega stefnu. Þessi nefnd hélt fjóra fundi, en ég var fulltrúi Sjálfstæðisflokksins f nefndinni, Lúðvfk Jósepsson var fyrir Alþýðubandalagið, Vilhjálmur Hjálmarsson fyrir Framsóknarflokkinn og ólafur Björnsson fyrir Alþýðuflokkinn,“ sagði Matthfas. „Á einn fundinn var ég nú ekki boðaður, sem sögð voru mistök og hafa vafalaust verið það. Og á síðasta fundinn mætti Vilhjálmur Hjálmarsson ekki, en við Lúðvík Jósepsson lýstum því yfir, að við vildum taka upp veiðibönn með skipuðum hætti og voru á síðast- liðnu ári, en vildum þó þyngja þau til muna. Sjávarútvegsráðherra gaf okkur til kynna að það kæmi ekki til greina. Þá voru uppi hugmyndir um að setja togara í 150 daga veiðibann. Þær hugmyndir er hægt að ræða nánar siðan. Það sem mér finnst einkenna þessi mál er það ráðleysi, sem hefur verið. Vetrarvertíðin er langt komin. Þorskaflinn hefur farið fyrstu tvo mánuðina um 20.000 tonn framyfir það sem hann var í fyrra og margt bendir til þess, þótt ég geti ekkert um það fullyrt fyrr en skýrslur liggja fyrir, að þessi afli verði jafnvel um 35.000 tonnum meiri fyrstu þrjá mánuði ársins en sömu mánuði í fyrra. Að því er sjávarútvegs- ráðherra segir sjálfur er það ætlun hans að minnka veiðina miðað við fyrra ár niður í 280 til 290 þúsund lestir. Ef við tökum meðaltalið þarna og höldum okkur við 285 þúsund lestir, þá er um að ræða samdrátt, sem nemur 35.000 tonnum. Það þýðir að níu mánuði ársins á að minnka þorskveiðina um 70.000 lestir miðað við árið 1978. Það sér það hver heilvita maður, hversu alvarlegar afleiðingar það hefur fyrir ákveðna landshluta þar sem fólkið byggir líf sitt og afkomu á togara- útgerð einni saman. Það er ekki mikið í aðrar veiðar að fara og það er sjáanlegt, að ef sjávarútvets- ráðherra heldur sig við þetta, eftir að hafa setið aðgerðarlaus í næstum þrjá mánuði, þá verður að grípa til enn frekari ráðstafana á haustmánuðum. Hvar verður atvinnulíf landsmanna þá? Ég vek líka athygli á því að það er einnig látið í veðri vaka að skattleggja eigi þorskveiðarnar. Fyrst á að draga þær verulega saman og síðan á að skattleggja þær. Mér virtist það koma fram í sjónvarpsþætti í gærkvöldi, að Landssamband íslenzkra útvegs- manna sættir sig við þessar aðgerðir, en mér sýnist á L.Í.Ú., eða þeir sem þar ráða ríkjum, sýni ekki öllum meðlimum sínum sömu sanngirni. Það fer ekkert á milli mála að undanfarið hafa verið gerðar miklar ráðstafanir til að draga úr sókn í þorskinn og beina mönnum í aðra fiskstofna. Það var ekki lítið átak að koma sumarloðnuveiðun- um á, koma skipum þar úr þorsk- veiðum, og mikið hefur verið gert til að glæða áhuga manna á kolmunnaveiðum. Allt er þetta gert til að draga úr sókninni í þorskinn og skapa aukin verkefni á öðrum sviðum. Þannig verðum við auðvitað að halda áfram, en það sem þjóðin hlýtur að gera kröfu til er að aðgerðirnar komi nokkurn veginn jafnt niður á öllum, sem hlut eiga að máli. Ég sé fram á það, að hér sé um eða yfir 20% kjararýrnun að ræða hjá til dæmis sjómöhnum á minni skut- togurun, sem mest og aðallega hafa stundað þorskveiðar. Ég er hræddur um að það myndi eitthvað syngja í öðrum, ef þeir ættu að taka slíka kjaraskerðingu á sig. Og þegar fiskverð hækkaði síðast, sem var nú ekki að meðal- tali nema um 1,9%, þá var verð á þeim fisktegundum, sem sjávarút- vegsráðherra hvetur nú til auk- innar sóknar í, látið standa í stað, eins og verð á karfa og grálúðu. Ég tek undir þau orð formanns L.Í.U. í sjónvarpsþætti í gær- kvöldi, að það er þjóðfélagslegt vandamál, hvernig fram úr þess- um málum er ráðið. Ég sé þó enga ástæðu til þess að byrja á því að skera niður þorskveiðarnar, og síðan skattleggja þær til að halda uppi öðrum veiðum. Mér finnst nokkuð annað viðhorf ríkja gagn- vart landbúnaðinum. Menn tala þar um að reyna að koma til móts við erfiðleika bænda, sem ég tel sjálfsagt, en gagnvart sjávarút; veginum ráða allt önnur viðhorf. í efnahagsmálafrumvarpi Ólafs Jóhannessonar er gert ráð fyrir því að taka upp nokkurs konar skatt á veiðar í fiskstofna, sem eru fullnýttir eða ofnýttir. Slíkt hlýt- ur að leiða algert hrun yfir útgerð- ina og sjómennina. Ég skil hreint ekki, hvað þeir eru að fara þarna. Ég hefði talið það skynsamlegra fyrir sjávarútvegsráðherra að leita samstarfs við aðra þing- flokka en að hafa menn uppi á móti þessum aðgerðum. Ég tel að þegar í upphafi árs hafi átt að draga verulega úr Matthías Bjarnason netaveiðinni, en ekki bæta við hana. Við verðum líka að hugsa um það, að sá fiskur, sem kemur á land, sé unninn með þeim hætti, að sem mestur afrakstur verði. Það hefur ekki verið gert. Það eru í fjölmörgum verstöðvum miklir erfiðleikar á því að vinna þennan mikla afla, sem kemur á land, og úr honum verður ekki annað en verðminni framleiðsla. í öðru lagi tel ég að aðgerðir hefðu átt að koma jafnt niður á bátaflota sem togaraflota. Ég hefði getað hugsað mér það, að 30-daga stoppið sem sett var á togara í fyrra, væri nú lengt um 50% og ekki hefði verið tekið sem hlé frá veiðum, ef togarar eða önnur fiskiskip, sigla með aflann. Þessi mikli samdráttur sem verður á þorskveiðunum meðan ekkert liggur fyrir um það hvernig eigi að verðbæta þann fisk, sem nú er ekki fullnýttur, þá liggur það fyrir að svo mikill samdráttur verður á vinnu í landi, að þegar til dæmis skólafólkið kemur á vinnu- maflcaðinn, þá kemur það ekki til með að fá vinnu, eins og það hefur haft. Það er auðvitað fáránlegt að hugsa sér að það sé hægt að fiska eftir því, hvað mikið er hægt að vinna frá klukkan 8 til 5, eins og kom fram hjá fiskifræðingnum í sjónvarpsþættinum í gærkvöldi. Eiga þá sjómenn á línubátunum að kasta fiskinum aftur í sjóinn? Eða eiga þeir að hætta að draga línuna og geyma hanna þar til næsta dag? Eiga togarasjómenn, ef þeir komast í fisk, að hætta veiðum, þegar aflinn er orðinn einhver ákveðinn fjöldi af kössum méð fisk um borð? Þetta er ekki eins og einhver birgðageymsla við iðnað í landi. Það er alveg merki- legt hversu margir menn eru glámskyggnir í þessum efnum. Þeir skilja hreint ekki gang fisk- veiða. Ég er hræddur um að fólk eigi eftir að fá að finna fyrir afleiðing- um þessara aðgerða. Ég er hins vegar ekki búinn að sjá það, að ráðherrar, alþingismenn eða embættismenn sætti sig við yfir 20% lækkun á tekjum, eins og sjómönnum er bersýnilega ætlað að gera með þessum aðgerðum," sagði Matthías Bjarnason. Málverkasýning á Akureyri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.