Morgunblaðið - 25.03.1979, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979
13
Þórunn Eiríksdóttir
opnar málverkasýningu
bórunn Eiríksdóttir opnaði
málverkasýningu laugardaginn
24. marz í Sýningarsal Félags
íslenzkra myndlistarmanna að
Laugarnesvegi 112. Sýningin sem
35% aukning
áfrystinguhjá
Sambands-
frystihúsum
Frá áramótum til 10. marz
síðastliðinn nam heildarfryst-
ingin hjá frystihúsum innan
Félags Sambands fiskfram-
leiðenda samtals 5.724 lestum. Er
hér um að ræða 35% aukningu á
magni frá því á sama tíma í
fyrra.
Ef litið er á einstakar tegundir,
þá hefur orðið 31% aukning í
þroski, 46% í ýsu, 31% aukning í
steinbít, 70% aukning á karfa og
ufsafrysting hefur rúmlega
tvöfaldazt.
Frá lögreglunni:
Vitni vantar
að ákeyrslum
RANNSÓKNADEILD
lögreglunnar í Reykjavík hefur
beðið Morgunblaðið að auglýsa
eftir vitnum að eftirtöldum
ákeyrslum. Þeir, sem upplýsingar
geta veitt, eru beðnir að snúa sér
hið fyrsta til lögreglunnar:
Fimmtud. 15. 3.
Ekið á bifreiðina M-1859 Datsun
fólksb. árg. ’73 rauða að lit. Dæld á
hægri framhurð.
Föstud. 16. 3.
Ekið á bifreiðina R- 49585
Mazda 929 árg. ’76 bláa að lit, á
móts við Skaftahlíð 24. Skemmdir
á grilli og ljósramma, einnig á
vinstra framaurbretti. Rauður
litur í ákomu.
Sunnud. 18.3.
Ekið á bifreiðina R-63001 Lada
Sport árg. ’78 gula að lit á móts við
Bárugötu 29 á tímabilinu kl. 24:00
kvöldið áður til kl. 14:00 þ. 18.3.
Vinstri hurð skemmd. Rauður
litur í ákomu.
Sunnud. 18.3.
Ekið á bifreiðina R-40006 Range
Rover græna að lit, á móts við
Gnoðavog 60, á tímabilinu kl.
17:30—18:45. Vinstri hurð dælduð
og rispað afturaurbretti. Blár og
hvítur litur var á ákomustöðum,
blái liturinn neðar.
Mánud. 19.3.
Ekið á bifreiðina G-11056 Lada
Sport mosagræna að lit á Marar-
götu eða Tjarnargötu á mótum
Vonárstrætis á tímabilinu kl.
13:00-17:00. Dæld á vélarloki,
aftan við framhjól.
Mánud. 19.3.
Ekið á bifreiðina R-56027 Simca
sendiferðab. hvíta að lit á móts við
hús nr. 22 við Laugaveg á tímabil-
inu kl. 20:00 þ. 18.3. til kl. 09.00 þ.
19.3. Hægri framhurð og hlið
dælduð og rispuð. Tjónvaldur blá
amerísk fólksb.
Þriðjud. 20.3.
EJkið á bifreiðina R-1106 þar sem
hún stóð á bifreiðastæði baka til
við Landspítalann á tímabilinu kl.
07:00—16.40. Skemmdir á vinstri
hurð.
er sölusýning stendur til 1. apríl
n.k. og er opin virka daga frá
17 — 22 og laugardaga og
sunnudaga frá 14 — 22.
Þórunn stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands í 4
ár, og lauk þaðan kennaraprófi í
myndmennt árið 1970. Frá 1971
hefur Þórunn stundað kennslu.
Þetta er þriðja einkasýning henn-
ar, fyrsta sýningin var haldin 1973
og önnur árið 1976.
A sýningunni eru 23
olíumálverk, sem flest eru máluð á
síðustu tveimur árum. Þórunn
sagði verk sín vera „fantasíur" út
frá litum, þar sem hún notaði
mikið ljós og skugga. Nýjustu
myndirnar væru nokkuð
„figurativar".
Þórunn Eiríksdóttir hjá mynd sinni, er hún sagði að
eiginmaður sinn hefði gefið nafnið „Draumar“.
Fiskinót
brann í
gróðurhúsi
Hveragerði, 23. marz.
ELDS varð vart kl. 4.15 í gróður-
húsaskúr í eigu HallgrímsH.
Egilssonar, gróðurhúsinu
Grímsstöðum.
Skúrinn var notaður sem
geymsla og brunnu þar blómstur-
pottar, gróðurhúsagler og fiskinót,
sem var notuð til þess að breiða
yfir plöntur. Eldurinn magnaðist.
mjög fljótt og læsti sig í ærþggj-
andi gróðurhús í eigu Hallgríms.
Slökkviliðið kom á vettvang og
varnaði frekari skemmdum. Talið
er að um ikveikju hafi verið að
ræða þar sem ekkert rafmagn var í
húsinu og var allt óvátryggt.
-Georg.
MYNDAMOT HF.
PRENTMYNDAGERÐ
AÐALSTRÆTI • SÍMAR: 17152- 17355
?:l^fgjSsf* - * ....
Sparivelta
Jafngreiðslulánakerfi
Samvinnubankinn kynnir nýja
þjónustu, SPARIVELTU,
sem byggist á mislöngurn
en kerfisbundnum sparnaði
tengdum margvíslegum lána-
möguleikum.
Hið nýja spariveltukerfi er í 2 flokkum A og B,
sem bjóða upp á 111 mismunandi lántökuleiðir,
með lánstíma allt frá
3 mánuðum
til 5 ára.
Auk þess
er þátttak-
endum heimilt
að vera með fleiri
en einn reikning í Spariveltu-B
111 sparnaðar-og lántökuleiðir
Lengri sparnaður leiðir til hagstæðara
lánshlutfalls og lengri lánstíma.
Ekki þarf að ákveða tímalengd
sparnaðar umfram 3 mánuði í
A-flokki og 12 mánuði í B-flokki.
f Allir þátttakendur eiga
kost á láni með
hagstæðum
vaxta- og
greiðslukjörum.
Þátttaka í
SPARI-
VELTUNNI
auðveldar
þér að láta
drauminn rætast.
Markviss sparnaður = öruggt lán
LÁNAMÖGULEIKAR MEÐ HÁMARKSSPARNAÐI
SPARIVELTA-A Sparnaðarflokkar: 25, 50 og 75 þús.kr. á mánuði.
Sparnaðar- tímabil Mánaðartegur sparnaður Sparnaður í lok timabils Láns- hlutfall Lán frá Sam- vinnubanka Ráðstöfunarfé með vöxtum Mánaðarleg endurgr. Endurgr. timi
3 mánuðir 4 mánuðir 5 mánuðir 6 mánuðir 75.000 75.000 75.000 75.000 225.000 300.000 375.000 450.000 100% 100% 100% 100% 225.000 300.000 375.000 450.000 454.875 608.875 764.062 920.437 78.108 78.897 79.692 80.492 3 mánuðir 4 mánuðir 5 mánuðir 6 mánuðir
SPARIVELTA-B Sparnaðarflokkar: 15, 25 og 35 þús.kr. á mánuði.
Sparnaðar- tímabil Mánaðarlegur sparnaður Sparnaður í lok tímabils Láns- hlutfall Lán frá Sam- vinnubanka Ráðstöfunarfé með vöxtum Mánaðarieg endurgr. Endurgr. tími
12 mánuðir 18 mánuðir 24 mánuðir 30 mánuðir 36 mánuðir 35.000 35.000 35.000 35.000 35.000 420.000 630.000 840.000 1.050.000 1.260.000 125% 150% 200% 200% 200% 525.000 945.000 1.680.000 2.100.000 2.520.000 982.975 1.664.420 2.677.662 3.411.474 4.165.234 49.819 45.964 55.416 64.777 73.516 12 mánuðir 27 mánuðir 48 mánuðir 54 mánuðir 60 mánuðir
Gert er ráðfyrir 19.0%innlánsvöxtum og 24.69% útlánsvöxtum svoog lántökugjaldi. Vaxtakjöreru háð ákvörðun Seðlabankans.
Upplýsingabæklingur er fyrir hendi í öllum afgreiðslum bankans.
Samvinnubanklnn
REYKJAVfK, AKRANESI, GRUNDARFIROI, KRÖKSFJAROARNESI, PATREKSFIRÐI.SAUOARKRÓKI, HÚSAVfK,
KÓPASKERI, VOPNAFIRÐI, EGILSSTÖOUM. STÖOVARFIRÐI. VlK I MÝRDAL, KEFLAVfK. HAFNARFIRÐI.