Morgunblaðið - 25.03.1979, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979
Ljósm. Kristján
„Sameiginlegt áhugamálHafn-
fírðinga að vemda Hamarinn”
Mikið er rætt um skipulagsmál í Háínaríirði um þessar mundir, virðist í uppsiglingu deilumál vegna fyrirhugaðra byggingaframkvæmda
emhætta hæjarfógeta Hafqarfjarðar og Skattstofu Reykjanesumdæmis. Bæjarráð hefur samþykkt að heimila hyggingu húsnæðis fyrir þessar
stofnanir á lóðum við Suðurgötu og verður væntanlega fjallað um það mál í bæjarstjórn fljótlega eftir helgi. I umræðum manna á meðal er
bent á hið sérstæða bæjarstæði Hafnarfjarðar og rætt um Fjörðinn, hraunið og ekki sízt Hamarinn, sem setja svip sinn á bæinn og eru margir
þeirra skoðunar að nýbygging við Suðurgötu skyggi á og skemmi útsýni að og frá Hamrinum. Morgunblaðsmenn voru á ferli á Hafnarfirði í
fyrradag og áttu viðtöl við Hafnfirðinga um þessi mál og var mikið um þau talað hvar sem var komið. Höfðu menn á orði að símalínur til
hæjarfulltrúa hefðu verið uppteknar síðustu daga eftir að grein Einars Þ. Mathiesen birtist íMbl. sl. fimmtudag. Fara sjónarmið nokkurra
Hafnfirðinga hér á eftir:
Ekki stórmál ennþá
— Þetta mál er nú svo nýtil-
komið að það er ekki ennþá orðið
að neinu stórmáli og ekki er búið
að kynna það almenningi, sagði
Sveinn Jónsson þar sem við
hittum hann að máli hjá
Rásverki, — en hins vegar er við
því að búast að það verði að eins
konar Seðlabankamáli, því
áreiðanlega verður það að hita-
máli, heldur Sveinn áfram.
Finnst þér að nýta ætti
umræddar lóðir fyrir nýbygg-
inguna?
— Eg held að það sé þegar
búið að Ioka nóg af þarna við
Hamarinn og um það eru
áreiðanlega allir sammála.
Mætti í því sambandi aðeins
minnast á Dvergshúsið sem
þarna er stærst vestan í
Hamrinum og hefði ekki átt að
rísa. Þess vegna finnst mér að
þessar lóðir við Suðurgötu
mættu standa áfram óbyggðar
og væri fremur ástæða til að
nýta þær undir græn svæði.
Sveinn kvaðst ekki vera
„innfæddur" Hafnfirðingur, en
hinsvegar væri kona sín það og
hefði hann kynnt sér nokkuð
þessi málefni. Hann var að því
spurður hvar hægt yrði að stað-
setja skattstofu og fógetaem-
bættisskrifstofu:
— Norðurbærinn er að verða
svo mikið þjónustusvæði að vel
mætti hugsa hér að hafa
umræddar stofnanir þar og jafn-
vel væri ekki óhugsandi að
^kattstofan væri í námunda við
'Reykjanesbraut þar sem hún
þjónar allri byggð suður með sjó.
Hins vegar er ég ekki jafn
hrifinn af þeirri hugmynd að
byggja hús sem þetta við
Fjarðargötu.
Gott að losna við
ljótt hús
Þarna í nágrenninu var Skúli
Valtýsson við störf hjá Glerborg
og var einnig leitað álits hans á
byggingarhugmyndum við
Hamarinn:
— Mér finnst helzt koma til
greina að byggja umrætt hús á
lóðinni nr. 14 við Suðurgötu þar
sem Ásmundarbakarí er nú og
það rifið fremur en að fylla upp
skarðið sem nú er milli þess og
gamla Sýslumannshússins. Hins
vegar verður að taka fram að
þarna á að setja ströng skilyrði
fyrir byggingu og að hún falli vel
inn í umhverfið. Að því tilskildu
að farið væri að skilmálum um
umhverfisviðhorf fyndist mér í
lagi að Ásmundarþakarí, þetta
gamla, ljóta hús, færi og byggt
væri nýtt snyrtilegt hús í stað
þess. Ef svo verður breytist lítið
varðandi útsýni og umhverfi
Hamarsins. En mér finnst ekki
heldur svo fráleit staðsetning við
’Fjarðargötuna og þar væri húsið
e.t.v. ekki háð svo miklum skil-
yrðum sem á hinum staðnum.
Mér finnst rétt að reyna í
lengstu lög að finna þessari
byggingu stað í miðbænum, því
þar er orðin hefð að stofnanir
sem þessar séu í miðbæjarkjarn-
anum, sagði Skúli Valtýsson að
lokum.
Taka þarf tillit
til umferðar
— Ef hægt verður að staðsetja
húsnæði embættisskattstjóra og.
bæjarfógeta á lóð Ásmundar-
bakarís, sem þá færi burtu, álít
ég að byggingin væri í lagi, en
það er auðvitað háð því að
samningar náist við eigendur
bakarísins, sagði Þór Gunnars-
son, sem rætt var við hjá Spari-
sjóði Hafnarfjarðar.
— Hins vegar er ekki hægt að
kaupa Ásmundarbakarí á hvaða
verði sem er, hér er um ónotað
húsnæði að ræða og gamalt og
ekki haft til neinna sérstakra
nota.
— Varðandi staðsetninguna
má segja að talsvert erfitt er að
velja stofnunum þessum nýjan
stað hér í miðbænum ef menn
vilja halda sér við það, því þeim
fylgir mikil umferð og þess
vegna verður að gera ráð fyrir
bílastæðum bæði fyrir starfsfólk
og þá sem eiga erindi við þær.
Það er margt sem mælir með því
að stofnanirnar séu við
miðbæinn, fólk á erindi í
verzlanir og fyrirtæki í grennd-
inni og vill gjarnan geta afgreitt
þessi mál á sama stað. Ef reist
verður nýttskrifstofu húsnæði
hér við miðbæinn verður að
íhuga vel hvernig leysa á
umferðavandann, því nú þegar
annar gatnakerfi miðbæjarins
vart þeirri umferð sem þar er á
háannatímum dagsins.
Virðist eins og
nátttröll
— Mér er ekki um það gefið að
þarna komi eitthvert stórt stein-
hús sem gnæfir yfir umhverfi
sitt eins og nátttröll og ég hélt
að mönnum dyt^bara ekki í hug
að byggja svo *órt hús þarna
sem hugmyndir eru uppi um,
sagði Magnús Jónsson vélstjóri
hjá Norðurstjörnunni.
— Ég hefi það einhvern veginn
á tilfinningunni að sjálfumglaðir
veðurvitar ætli sér að ráðskast
með þennan blett og ég vil benda
mönnum á að íhuga að margt
aðfluttra manna kemur hér við
sögu, en mér finnst að Hafn-
firðingar eigi að fá að ráða því
hvernig fer með svo viðkvæma
staði sem þarna er um að ræða.
Mér finnst ljóst að með því að
byggja skrifstofuhúsnæði milli
Asmundarbakarís og gamla
Sýslumannshússins verði byrgð
útsýn til Hamarsins og frá
honum að nokkru leyti.
—Einnig má benda á, að verði
Sveinn Jónsson
Skúli Valtýsson
Þór Gunnarsson
Erna Fríða Berg