Morgunblaðið - 25.03.1979, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979
21
Myndin sýnir Sadat er hann kannaði vígstöðuna við Súez 1971 en
ófriðarhætta var þá sem oftar mikil á þessum stað. Þá sagði Sadat við
hermenn sína: Það er engin von framar um friðsamlega lausn. Því er
ákvörðun okkar að berjast.
varð það mikið blóðbað. Nasser
forseti Egyptalands andaðist og
varaforseti hans Anwar Sadat sett-
ist á valdastól.
1973: Hinn 6. október réðust Sýr-
lendingar og Egyptar á ísrael og
kom árásin svo flatt upp á ísraela að
í fyrstu kom það engum vörnum við.
Árásin var hafin á Yom Kippur,
helgasta degi Israels. Þúsundir
Egypta ruddust yfir svæði í Sinaí.
Þegar Israelar náðu sér á strik
réðust þeir fyrst gegn sókn Sýrlend-
inga en í annarri viku stríðsins var
háður mesti skriðdrekabardagi síðan
í heimsstyrjöldinni siðari í
Sinaí-eyðimörkinni. Egyptum tókst
ekki að brjótast í gegn og komast á
braut og Israelum tókst ekki heldur
að hrekja þá aftur yfir skurðinn.
En síðan sneru ísraelar stöðunni í
styrjöldinni við á tólfta degi með
gríðarlega þungri árás yfir Súez
hinn 16. október og létu ekki staðar
numið fyrr en þeir voru aðeins í 150
km fjarlægð frá höfuðborg Egypta-
lands og einnig tókst þeim að króa
inni þriðja her Egypta í Sinaí.
ísraelar féllust á vopnahlé eftir að
Bandaríkjamenn og Sovétmenn
skárust í leikinn. Vopnahlé var gert
sautján dögum eftir að Egyptar hófu
leiftusóknina eða í sama mund og
Israelar töldu stórsigur innan seil-
ingar. Henry Kissinger þáverandi
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
tókst síðan á hendur það verkefni að
bera boð milli aðila sem lyktaði með
samkomulagi um aðskilnað herja
ísraels og Egypta árið 1974 en árið
eftir tókst að ná fram öðrum áfanga
í aðskilnaði herjanna og var það
einnig fyrir atbeina Kissingers.
ísrael fór þá frá hluta Sinai, þar á
meðal olíusvæðunum við Abu Rudeis
og Bandaríkjamenn höfðu síðan
eftirlit á þessum slóðum.
1977: Eftir kosningarnar í Banda-
ríkjunum stakk Carter forseti upp á
því að Genfarráðstefnan um Mið-
austurlönd yrði kölluð saman á ný en
sú hugmynd fékk daufar undirtektir.
Menachem Begin varð forsætisráð-
herra eftir kosningar í Israel og lauk
þar með stjórn Verkamannaflokks:
ins á ísrael frá stofnun þess. í
nóvember tilkynnti Sadat forseti
skyndilega að hann væri reiðubúinn
að koma til ísraels og ræða frið.
Begin svaraði um hæl með formlegu
boði og hinn 19. nóvember lenti
flugvél Sadats á Ben Gurion-velli og
þrumu lostinn fylgdist mannheimur
með og trúði vart því sem var að
gerast. Begin og Sadat áttu næsta
fund með sér í Ismailia í Egypta-
landi 24. des. sama ár.
Ástæðulaust er síðan að rekja
gang þessara máia þar sem ítarlega
hefur verið frá þeim sagt í fréttum.
Þó er vert að íhuga hversu mjóu
hefur stundum munað að upp úr
slitnaði en nú virðist sem loks sé
landi náð. Margir draga í efa hvort
þessi friðarsamningur muni hafa
raunhæft gildi þegar fram í sækir,
því að í raun og veru hafa
ágreiningsmálin ekki nærri öll verið
leyst. Báðir munu þeir Sadat og
Begin vera á þeirri skoðun að enda
þótt teflt sé á tæpasta vað, sé það
þess virði. Menn um allan heim
binda vonir við þessa sögulegu og
einstæðu gjörð á morgun, binda
vonir við að þar verði um að ræða
varanlegan samning um samskipti
þjóða, en ekki plastfrið sem fánýtur
reyndist. Tækist að koma á friði í
reynd í þessum heimshluta er sann-
arlega nýr tími runninn upp.
h.k.
Jerúsalemsferð Sadats í nóvember 1977 markaði upphafið. Hér er
Egyptalandsforseti með Begin og fleiri fylgdarmönnum í Yad
Washem.
Austurrísk vika
á Loftleióum
Hótel Loftleiðir býður nú til Austurríkis-kynningar
og skemmtikvölda íBlómasalnum dagana 16.—25.
mars nk. Þekktir og vinsælir austumskir þjóðlaga-
söngvarar, Duo Rossmann koma fram og leika og
syngja þjóðlög.
Þá verðurefnt til happdrættis á hverju kvöldi, en auk
þess býður Hótel Loftleiðir aðalvinning sem dregið
verður um í lok kynningarinnar, flugfar til Austurríkis
fyrir tvo.
A austurrísku vikunni fá gestirsmjörþefinn a/Týró/a-
stemmningunni sem ríkir í skíðaparadís þeirri er
hundruð Islendinga hafa kynnsí afeigin raun í skíða-
ferðum Flugleiða til Austurríkis.
Matreitt verður að austurrískum hætti. Matseðill:
WIENER KRAFTSUPPE Vínarkjötseyði
eða TIROLER EGGSPEISE TýrólarEgg
og SCHWEINEKOTELETT AUF SAUER
KRAUT Grísakótiletta með súrkáli
eða WIENER SCHNITZEL Vmarsneið
og SACHERTORTE Sacherterta
eða APFELSTRUDEL Eplakaka
Matarverð er kr. 4.500.00.
Matur framreiddur frá klukkan 19.
Borðpantanirí símum 22321 og 22322.
Verið velkomin,
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
Kassettu
ferðaútvarpstœki
fermingargjöf
sem eru vinsælust
Verö frá
kr.
56.740.-
BUÐIN
/
Skipholti 19,
sími 29800.