Morgunblaðið - 25.03.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979
29
árgerðirnar frá okkur
Range Rover Flaggskip bílaflotans frá okkur. Þennan
bíl þarf ekki að kynna. Hann hefur gert það sjálfur á
holóttum vegum, í torfærum og á borgarstrætum.
Fullkomnasti „jeppi“, sem framleiddur er í heiminum.
Land Roven Allt frá árinu 1947 hefur Land Rover veriö
helsta dráttardýr og flutningatæki í sveitum landsins.
Þolgóður og traustur og einn þarfasti þjónninn.
Rover 3500: Vandaðasti bíllinn á markaðnum. Nánast
tækniundur og það er hreinn unaður aö aka honum.
Þetta er bíll hinna vandlátu.
Austin Mini: Þetta er bíll nútíöar og framtíðar í orku-
kreppu. Fáir standast honum snúning í borgarumferð-
inni. Og eyðslan er svo lítil að hæfir buddu hvers
einasta manns.
Allegro: Allegro er fyrir þá, sem vilja fá mikið fyrir
peningana. Með framhjóladrifi og frábærri fjöörun er
hann traustur í vetrarakstri og á malarvegum. Snar í
snúningum í borg og bæjum.
Allegro Station: Við bendum bara á hinn venjulega
Allegro. Þessi hefur meiri flutningsgetu. Allegro er að
verða sá vinsælasti á markaönum.
R STEFÁNSSON HF.
SÍÐUMÚLA 33 — SÍMI83104- 83105
Spassky efstur, þrátt
fyrir blinda blettinn
Það hefur líklega ekki farið
fram hjá neinum sem fyigst
hefur með skákfréttum á
undanförnum árum hversu
skákviðburðum hefur fjölgað
geysilega. Fyrir 20—30 árum
voru aðeins haldin sárafá
alþjóðleg skákmót á hverju ári
og voru þau þá oftast hefð-
bundnir viðburðir svo sem
Ólympíumót eða liðir í heims-
meistarakeppninni, að
ógleymdum frægum mótum,
svo sem hinu árlega jólaskák-
móti í Hastings.
Nú er hins vegar komið svo,
að árlega eru haldnir tugir
alþjóðlegra skákmóta á ári
hverju og nú eru mótin einnig
orðin sterkari en áður. Skák-
mótið í Bugojno í Júgóslavíu er
t.d. af mörgum talið sterkasta
skákmót sem nokkru sinni
hefur verið haldið.
Nýlega lauk í' Miinchen í
V-Þýzkalandi einu slíku
stórmóti. Meðal þátttakenda
voru þeir Anatoly Karpov,
heimsmeistari, og Boris
Spassky fyrrum heimsmeistari,
auk sterkra stórmeistara á
borð við þá Balashov, Hiibner
og Andersson. Þá var mótið
sérstaklega forvitnilegt fyrir
okkur íslendinga því að báðir
stórmeistarar okkar. þeir
Guðmundur Sigurjónsson og
Fiðrik Ólafsson voru með, en
þeir hafa ekki verið með í móti
síðan á Ólympíumótinu.
Aðstendendum mótsins og
öðrum skákáhugamönnum til
sárra vonbrigða kom þó babb í
bátinn er keppnin var nýhafin.
Tveir þátttakenda neyddust til
þess að hætta keppni, þer
Karpov, sem varð að hraða sér
heim til Leningrad vegna mjög
alvarlegrar veikinda föður síns
og ungverski stórmeistarinn
Adorjan, sem veiktist.
Aðrir þátttakendur héldu þó
áfram keppni eins og ekkert
hefði í skorist, en mótið var
samt ekki nema svipur hjá sjón,
þar sem aðeins voru tefldar sex
skákir í hverri umferð eftir-
leiðis.
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
Framan af hafði Boris
Spassky forystuna, en í tíundu
umferð henti hann stórslys í
skák hans við þjóðverjann Lieb:
Hvítt: Lieb (V-Þýzkalandi)
Svart: Spasski (Sovétríkjunum)
Vínar tafl
1. e4 - e5, 2. Rc3 -Rf6 - 3.
Bc4 - Rc6,
(Afbrigðið 3 ... Rxe4!? 4. Dh5
leiðir til skemmtilegrar svipt-
inga)
4. d.3 - Bc5, 5. f4 - d6, 6. Ra4
Það skiptust á skin og
skúrir hjá Spassky á
Miinchen-mótinu. Hann
var lengi vel efstur. en
mátti að lokum þakka
fyrir að hljóta efsta sætið
á stigum. Blindi blettur-
inn í auga hans kostaði
hann að öllum líkindum
skákina við Lieb.
— Bxgl, 7. Hxgl — Rg4, 8. g3
— exf4, 9. Bxf4 —
Rxh2??
(Hreint og beint ótrúlegt
yfirsjón hjá fyrrverandi heims-
meistara. Spassky hefur
væntanlega þann vafasama
heiður að vera eini skákmaður-
inn sem borið hefur heims-
meistaratign sem hefur leikið af
sér manni i níunda leik. Eftir
9 ... Rge5 hefði svartur haft
ágæta stöðu og skýringin á
afleiknum getur aðeins verið
blindi bletturinn í auga
Spasskys)
10. Dh5 -
Já svona einfalt var nú það.
Svartur getur nú ekki bæði
varið mátið á f7 og valdað
riddarann á h2. Spassky barðist
áfram vonlítilli baráttu í nokkra
leiki, en gafst síðan upp.
Eins og gefur að skilja dró
mjög af Spassky eftir þennan
hrikalega ósigur. V-Þýzki
stórmeistarinn Robert Húbner
tók nú forystuna og á tímabili
leit allt út fyrir heimasigur. En í
síðustu umferð lagði Spassky
Húbner að velli og taldist þar
með sigurvegarinn á mótinu,
þar sem hann hafði hæst Sonne-
born-berger stig af þeim fjórum
sem lentu í efsta sæti.
Lokastaðan í mótinu varð
þannig:
1—4. Spassky (Sovétríkjunum)
53,50 stig, Balashov (Sovét-
ríkjunum) og Andersson
(Svíþjóð) 52,25 stig. Hiibner
(V-Þýzkalandi) 49,50 stig. Allir
þessir hlutu 8 'h vinning af 13
mögulegum. 5. Stean (Englandi)
8 v. 6—7 Robatsch (Austurríki)
og Pachman (V-Þýzkalandi) 7 v.
8—9. Friðrik Ólafsson og
Unzicker (V-Þýzkalandi) 6 *2 v.
10—11. Guðmundur Sigurjóns-
son og Pfleger (V-Þýzkalandi) 6
v. 12. Lau (V-Þýzkalandi) 4 !'2 v.
13. Lieb (V-Þýzkal.) 4 v. 14.
Dankert (V-Þýzkal.) 2 v.
Óneitanlega hefur árangur
þeirra Friðriks og Guðmundar
oft verið betri en í þetta sinn.
Friðrik hafði eins og kunnugt er
engan tíma til undirbúnings, því
að það var ekki fyrr en á síðustu
stundu að hann féllst á að vera
með í forföllum annars stór-
meistara. Guðmundur byrjaði á
því að gera jafntefli við Karpov,
en var síðan svo óheppinn að
Karpov hætti og jafnteflið
strikaðist út. Ymsum öðrum
kom þetta hins vegar vel, t.d.
Balashov sem tapaði í annarrri
umferð fyrir heimsmeistaran-
um. Agætur endasprettur
Guðmundar gefur þó vonir um
að hann verði í góðu formi á ,
Lone Pine skákmótinu, sem
hefst nú um helgina.
Við skulum nú líta á eina
stutta og skemmtilega skák frá
mótinu:
Hvítt: Spassky (Sovétríkjun-
um)
Svart: Pfleger (V-Þýzkalandi)
Caro-Kann vörn
1. e4 — c6, 2. d l - d5.3. Rc3 -
dxe4. 4. Rxe4 — Rd7. 5. Bcl —
Rgf6. 6. Rxf6+ - exf6?!
(Þessi leikur á tæplega við þegar
svartur hefur þegar leikið
Rb8—d7. Sjálfsagt og eðlilegt
var 6 ... Rxf6
7. Re2 - Rb6, 8. Bb3 - Bd6. 9.
c4 - Bc7.10. Bf l - 0-0.
(Eftir 10 .. ,Bxf4 11. Rxf4 De7+
12. De2 — Dxe2, 13. Kxe2 á
svartur fyrir höndum mjög
erfitt endatafl vegna
peðameirihluta hvíts á drottn-
ingarvæng)
11. Bxc7 — Dxc7.12. c5— Rd7.
13. 0-0 - b6. 14. cxb6 -
axb6, 15. Hel - Bb7. 16. Rg3
- Hfe8?.
(Mistök sem gefa hvítum kost á
að gera út um skákina á mjög
skemmtilegan hátt. Rétt var
16.. .g6, því að 17. He7 — Dd6,
18. De2? er hægt að svara með
18.. . Ba6,19. De3 - Re5!)
17. Bxf7+! - Kxf7, 18. Dh5+-
g6,
(Eða 18 ... Kf8, 19. Dxh7 og
svartur á enga haldgóða vörn
gegn hótuninni 20. Rf5. T.d.
20.. . Df4 21. Rf5 - Dg5, 22.
Dh8+ Kf7, 23. Rd6+ o.s.frv.)
19. Dxh7+ - Kf8. 20. h 1
Svartur gafst upp. Hvíut hótar
einfaldlega 21. h5 — gxh5, 22.
Rf5. Varnarleysi svarts er
algjört
Lesendur eru beðnir vel-
virðingar á mistökum sem urðu
við setningu síðasta skákþáttar.
Þar féll niður 40. Leikur svarts:
40.. .dxe5? og skýringin:
(40 . . . Df6+!41. exf6 — exfti mát. jt
Svartur hefur þó ekki enn misst r
endanlega af strætisvagninum) íj