Morgunblaðið - 25.03.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979
31
Frá vinnslusal Mjólkurstöðvarinnar, en myndirnar voru teknar er
gestum var sýnd stöðin. Ljósm. Jóhann D. Jónsson.
Ný mjólkurstöð
á Egilsstöðum
NÝBYGGING Mjólkurstöðvar
Kaupfélags Héraðsbúa hefur
verið tekin í notkun, en fram-
kvæmdir við hana hófust sum-
arið 1974 þegar Þorsteinn
Sveinsson kaupfélagsstjóri og
formaður stjórnar Mjólkur-
samlagsins tók fyrstu skóflu-
stunguna. Var húsinu að mestu
leyti komið undir þak fyrir
tveimur árum og hefur siðan
verið unnið að innréttingu og
niðursetning véla undirbúin.
Nýja mjólkurstöðin er um 10
þúsund rúmmetrar að stærð og
er kjallari undir vélasal þar sem
eru geymslur, þvottakerfi fyrir
vélabúnað og frysti- og kælivél-
ar. Vinnslusalur og skrifstofu-
álma eru á einni hæð svo og
aðstaða fyrir starfsmenn.
Mjólkurstöðin notar að mestu
leyti vélakost gömlu mjólkur-
stöðvarinnar og nokkru hefur
verið aukið við. Vinnslan fer
þannig fram að dælt er af
tankbílunum gegnum kælikerfi í
tvo 31 tonns tanka og í vélasal
eru tæki til gerilsneyðingar sem
afkasta 5.000 tonnum á klukku-
stund, tæki til fitusprengingar,
skyr- og súrmjólkurgerðar, skil-
vindur, strokkur og smjörpökk-
unarvélar og vél sem pakkar í 10
lítra kassa. Síðar er ætlað að
taka upp ostagerð. Meðal nýj-
unga er hreinsikerfið, skyr og
súrmjólkurtankar og pökkunar-
vél sem pakkar í fleiri stærðir
en áður og með tilkomu hennar
verða mjólkurvörur fáanlegar í
fernum í stað poka áður. Einnig
eru komin ný tæki til fitumæl-
inga og gerlakönnunar á mjólk.
Mjólkurstöðvarbyggingin er
hönnuð af Teiknistofu SÍS undir
forystu Gunnars Þorsteinssonar
og hefur Trésmiðja Kaupfélags
Héraðsbúa haft umsjón með
framkvæmdum og séð um upp-
slátt og allt tréverk í húsinu.
Völundur Jóhannesson var yfir-
smiður og verkstjóri Hermann
Eiríksson. Mjólkurbússtjóri er
Svavar Stefánsson og eru starfs-
menn alls 10.
Innvegin mjólk til mjólkur-
samlagsins sl. ár var 2.698.000
lítrar og hefur mjólkurmagn
farið hægt vaxandi síðustu fjög-
ur árin. Mikill hluti fer til
neyslu á heimamarkaði og eru
engar birgðir af mjólkurvörum
fyrirliggjandi hjá samlaginu.
Saltinnflutningur frá Sousse og Sfax
INNFLUTNINGUR á salti á vegum
Sjávarafurðadeildar Sambands
íslenskra samvinnufélaga hefur
vaxið jafnt og þétt undanfarin ár.
Árið 1970 nam hann 3.000 lestum,
en varð samtals 16.000 lestir á
síðasta ári. Er hér um að ræða
fiskisalt, og hin sfðari ár einnig
síldarsalt, sem flutt er beint til
kaupenda I hinum ýmsu höfnum
landsins, að þvf er fram kemur í
nýútkomnum Sambandsfréttum.
Samkvæmt upplýsingum
Guðmundar Ibsens hjá Sjávar-
afurðadeildinni er líklegt að saltinn-
flutningur á þessu ári verði svipaður
og hann var í fyrra, en þegar hafa
verið fluttar inn 5.500 lestir. Saltið
kemur að mestu frá Túnis, lestað í
höfnunum Sousse og Sfax.
Verðið á hverri lest af salti er nú
um 16.800 krónur. Eru 70 til 75%
þess verðs flutningsgjöld, og er nú
búist við hækkun saltverðs vegna
áhrifa olíuverðshækkana á
flutningsgjöldin.
Þaóermargt
sem þér líkar vel
íþeim
nýju amerísku
Sparneytin 3.8 lítra 6 cyl. vél.
Sjálfskipting
Vökvcistýri
Styrkt gormafjöórun að aftan og framan
Transistorkveikja
Aflhemlar
Urval lita, innanogutan
Og f leira og f leira
Chevrolet Malibu 4 dr. Sedan kr. 5^400.000.
Þetta er það sem þeir nyju
frá General Motors snúast allir um
Malibu Ciassic 4dr. frá kr. 6.300.000.- Innif. 51itraV& vél.
by General Motors
CHEVWXET
PONTIAC
aosMoenE
8UCK
CADHLAC
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykiavik Simi 38900
Mikil verðlækkun
á kindakjöti
vegna ástands-
ins í íran
Mikil verðlækkun hefur orðið á
kindakjöti á markaði I Evrópu að
undanförnu vegna mikils fram-
boðs frá Nýja-Sjálandi, að því er
haít er eftir Agnari Tryggvasyni
framkvæmdastjóra Búvörudeild-
ar S.Í.S. í nýutkomnu fréttablaði
Sambandsins.
Segir Agnar ástaéðuna vera þá,
að vegna byltingarinnar í íran
hafi kaupendur á nýsjálensku
kjöti þar í landi dregið kaup sín
mikið saman. í staðinn hafa
Nýsjálendingar svo orðið að senda
meira kjöt á Evrópumarkaðinn
með fyrrgreindum afleiðingum.
Á leið í
skóla
gœtið að
bláköld staóreynd
Þaó er bláköld staóreynd aó ullarteppin frá Álafossi eru einhverjar
hlýjustu og bestu væróarvoóirsem til eruá markaónum
, # **»■*»
Tilvalin fermingargjöf
Fæstíótrúlega fjölbreyttu litaúrvali
Á /^lafossbúöin
íslensk gæóavara úr 100 % ull
JL
VESTURGÖTU 2 - SÍM113404
A