Morgunblaðið - 25.03.1979, Side 32
ALGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JH«r0util>Iabií>
fltattunlifftfrifr
ALGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
jn«r0iml>labib
SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979
Álverið í Straumsvík:
Fyrsti áf angi hreinsi-
búnaðar tilbúinn í maí
Kostnaður við hremsibúnaðinn áætlaður 10.000 milljónir
í ÁLVERINU í Straumsvík er
unnið kappsamlega að því að
setja upp fyrsta áfanga annarrar
tveggja hreinsistöðva, sem settar
verða upp í verksmiðjunni. Þessi
fyrsta eining hreinsistöðvarinnar
kostar uppkomin um 550 milljón-
ir króna en stöðvarnar tvær eru
settar saman úr 8 slíkum eining-
um. Er bygging hreinsistöðvanna
dýrasti hluti hreinsibúnaðarins,
sem verið er að setja upp í
Straumsvík og mun samkvæmt
áætlunum kosta 10.000 milljónir
króna.
Að sögn Pálma Stefánssonar
byggingastjóra ísals er hreinsiaðferð
sú, sem notuð verður í Alverinu,
kölluð þurrhreinsun. Þessi aðferð
hefur rutt sér mjög til rúms á seinni
árum og þykir sú bezta, sem völ er á.
Með þessari aðferð eru fluor og
tjöruefni skilin frá útblæstri verk-
smiðjunnar áður en þau fara út í
andrúmsloftið.
Sjálf aðferðin byggist á þremur
þáttum, yfirbyggingu kerja, afsogs-
stokkum og loks sjálfri hreinsistöð-
unni, þar sem hin eiginlega hreinsun
fer fram. Þegar þessi búnaður verður
allur kominn í gagnið, sem væntan-
lega verður í árslok 1981, mun það
hafa stórlega bætandi áhrif á loftið
inni í sjálfri verksmiðjunni og koma
í veg fyrir mengun andrúmsloftsins.
Hreinsibúnaðurinn verður settur
upp í áföngum. Búið er að byggja
yfir 40 ker af 280, sem eru í notkun í
Alverinu, og gengið hefur verið frá
Veiðavel
innan
um ísinn
MIKILL fjöldi togara hefur
verið á veiðum innan um ísinn á
Skagagrunni síðustu daga og
veitt mjög vel. í gær voru 20
togarar á þessum slóðum.
Sigling fyrir Norðurlandi er
víða tafsöm* vegna hafíssins.
Strandferðaskipið Esja var í gær
að brjóta sér leið gegnum ísinn
útaf Gjögurtá og var ferðinni
heitið til Raufarhafnar. Sóttist
Esju ferðin seint og var meðal-
hraðinn um 4 mílur á klukku-
stund. Þá ætlaði Helgafell að
freista þess að brjótast út úr
Húsavíkurhöfn, en ís hefur lokað
höfninni.
afsogsstokkum. Unnið er að uppsetn-
ingu fyrstu einingar þurrhreinsi-
stöðvar fyrir fyrstu 40 kerin, eins og
að framan greindi og mun stöðin
væntanlega verða tilbúin í maí n.k. í
lok ársins 1980 verður væntanlega
búið að breyta öllum kerjum í skála
tvö, sem verða 160 að tölu þegar
skálinn hefur verið stækkaður um 40
ker, en þær framkvæmdir eru að
hefjast um þessar mundir, eins og
fram hefur komið í Mbl. I árslok
1981 á búnaðurinn allur að verða
kominn upp, búið að byggja yfir 320
ker og setja upp 2 hreinsistöðvar.
Unnið að uppsetningu fyrsta áfanga fyrri hreinsistöðvarinnar. en
stöðvarnar tvær verða staðsettar milli kerjaskálanna tveggja í
Straumsvík. Þessi eining, sem sést á myndinni, mun kosta fullbúin 550
milljónir. LJósm. Emllte.
Minniháttar breyt-
ingar á hafísnum
Helgafellið laust úr ísnum
LITLAR breytingar höfðu orðið á
hafísnum þegar Mbl. hafði sam-
band við fréttaritara sfna á Norður-
og Norðausturlandi sfðdegis f gær
og samkvæmt upplýsingum frá
Ikveikja
á Laugar-
dalsvelli
TALSVERT tjón varð af eldi og
reyk á skrifstofu Laugardalsvall-
arins í fyrrinótt. Vaktmaður
varð var við eldinn og kallaði
hann á slökkvilið.
Allt bendir til þess að um
íkveikju hafi verið að ræða. Ýmsu
lauslegu var safnað í smáherbergi,
þar'á meöal fánasafni vallarins og
síðan borinn að eldur.
Á meðfylgjandi mynd sést Bald-
ur Jónsson vallarstjóri virða fyrir
sér vegsummerk'
Ljósm. Emilfa.
Veðurstofunni hefur hann lftið
hreyfzt á siglingaleiðum, enda
lygnt og ekki búizt við miklum
breytingum á veðri. Nokkrar hafn-
ir eru enn lokaðar, t.d. Þórshöfn, en
fsinn hefur aftur á móti fjarlægst
Húsavfk, Ólafsf jörð og Sigluf jörð.
Samkvæmt upplýsingum Veður-
sofu virðist illa fært fyrir
Siglunes og allt að Rauöanúpi, en
mestur ís virðist vera næst landi og
minna á siglingaleiðum. Nokkurt
ísrek er að Skagafirði, Húnaflóa og
Eyjafirði og virðist sem ísinn reki nú
mest með straumnum og sjávar-
föllum, því veður var stillt á þessum
slóðum í gær. Búizt er við óbreyttu
veðri að mestu, hægri suðlægri átt á
vestanverðu Norðurlandi, en logni
austar.
í Siglufirði var enginn ís þegar
rætt var við fréttaritara um hádegis-
bil, gott veður og bátar farnir að
huga að netum sínum og kvað frétta-
ritari Siglfirðinga manna fegnastir
ef ísinn tæki með eitthvað af elztu
bryggjunum í höfninni sem ónot-
hæfar væru og yllu aðeins slysa-
hættu. Frá Húsavík fengust eftirfar-
andi upplýsingar frá fréttaritara:
í dag er glampandi sólskin á
Húsavík, bjartara yfir öllu en í gær
því hafísinn hefur að mestu rekið út
Skjálfanda, og virðist reka austur.
Helgafellið, sem hér var innifrosið,
komst út í auðan sjó um kl. 11 í
morgun, en Esja sem hér átti að
koma við á austurleið fór framhjá og
vörur settar í land á Akureyri.
Astandið er sýnu verra frá Mánár-
bakka að.sjá, því að það er eins og
þetta austanrek á ísnum hafi lagst
að landi við norðurhluta Tjörness og
við Mánáreyjar, en þar eru hafþök af
ís, eins og Aðalgeir á Mánárbakka
sagði í morgun, frá norðri til austurs
og að sjá virðist Öxarfjörður fullur
af ís.
Enn er þó það mikill ís fyrir utan
höfnina á Húsavík að bátarnir geta
ekki siglt út, en það getur lagast
þegar á daginn líður.
Frumvarp forsætisráðherra enn í nefnd:
Skýrist á morgun, hvort
meirihlutaálit verður til
STÖRF fjárhags- og viðskiptanefnda Alþingis, sem fjalla um frumvarp
forsætisráðherra um efnahagsmál, ganga fremur hægt, en þó er lokið
yfirferð yfir frumvarpið. Á mánudag er ætlunin að Ijúka viðræðum við
samráðsaðila, sem allmargir hafa þegar komið fyrir nefndina. Á föstudag
var ætlunin að fulltrúar ASÍ kæmu fyrir nefndina, en þeir boðuðu forföll á
fimmtudagskvöldið. Munu þeir koma á fund nefndarinnar á morgun,
mánudag.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið aflaði sér í gær, virð-
ist svo sem menn telji að ekkert liggi
á og menn séu að tefja meðferð
frumvarpsins í þinginu. Er búizt við
því að Álþýðusambandið hafi ekki
treyst sér til að koma og fjalla um
frumvarpið fyrr en formannafundur
Verkamannasambandsins, sem hald-
inn var í gær, sé afstaðinn. Fulltrúar
Vinnuveitendasambands íslands,
Sjómannasambands íslands og Far-
manna- og fiskimannasambands Is-
lands hafa allir borið fyrir nefnd-
inni, að ekkert samráð hafi verið við
þá haft um gerð frumvarpsins. Þá
liggur og ljóst fyrir að í frumvarpinu
er kafli, sem erfitt er fyrir Alþýðu-
flokk og Framsóknarflokk að sam-
þykkja, og er það kaflinn um verð-
lagsmál, þar sem stefnu verðlags-
málalaganna frá í fyrra er gjör-
breytt.
Við verðlagsmálaákvæði frum-
varpsins hafa bæði Finnur Torfi
Stefánsson og Halldór E. Sigurðsson
lýst andstöðu sinni og líta sumir
nefndarmenn svo á, að með þeim
ákvæðum sé horfið aftur til grárrar
forneskju í verðlagsmálum. Þá kom
Georg Ólafsson, verðlagsstjóri, fyrir
nefndina og lýsti því, að sér þætti
verölagsmálakaflinn fráleitur, enda
gengi hann beint gegn anda verð-
lagslaganna frá í fyrra.
Þegar rætt var um einstakar
greinar frumvarpsins, hafa menn
rekizt á kafla, sem mjög erfitt er að
framkvæma. Nefndin hefur rætt um
það að gera breytingar á einstökum
greinum, þar sem slíkir kaflar eru
inni. í umræðum um þetta atriði
mun Lúðvík Jósepsson hafa látið að
því liggja, að tækju menn alla
illframkvæmanlega kafla út úr
frumvarpinu, stæði ekkert eftir.
Á morgun, mánudag, mun staðan
innan nefndarinnar skýrast og í ljós
koma, hvort stjórnarsinnar eru til-
búnir að ganga frá einhverju nefnd-
aráliti.
Tillögur formanns og varaformanns VMSÍ;
Draga úr kaupmátt-
arskerdingu láglauna
í verdbótakaflanum
Formannaráðstefna
Verkamannasambands ís-
lands hófst í Dómus Medica
klukkan 13.30 í gær. Fyrir
fundinn voru lagðar
hugmyndir þeirra félaga
Guðmundar J. Guðmunds-
sonar og Karls Steinars
Guðnasonar um breytingar
á verðbótakafla frumvarps
ólafs Jóhannessonar, for-
sætisráðherra.
Samkvæmt uþplýsingum
Morgunblaðsins var inntak
tillagnanna að ná fram
breytingum á verðbótakafl-
anum, þannig að láglaun
verði betur tryggð og að
dregið verði úr kaupskerð-
ingarákvæðum frumvarps-
ins. Þegar Morgunblaðið fór
í prentun, var ekkert vitað
um afdrif tillagnanna á
fundinum, enda hann rétt
nýhafinn.
Flugdeilan:
Viðræður deilu-
aðila um helgina
— Samgönguráðherra og ég
áttum viðræður við flugmenn í
gær til að kynnast þeirra viðhorf-
um og endurmeta stöðuna, sagði
Magnús H. Magnússon félags-
málaráðherra í samtali við Mbl. í
gær.
— Sáttanefndin verður með
þreifingar á stöðunni í dag og á
morgun geri ég ráð fyrir og ræðir
við deiluaðila og verður freistað
þess að ná árangri áður en frestur-
inn rennur út sem er um næstu
helgi.