Morgunblaðið - 27.03.1979, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979
Dæmt í máli Jafnréttisráðs:
Sóknarkonan á að
fá sömu laun og
gæzlumenn í BSRB
DÓMUR var kveðinn upp í gær í bæjarþingi Reykjavíkur í máli aem
Jaínréttisráð höfðaði f.h. Guðrúnar Emilsdóttur starfsmanns við
Kópavogshæli, þar sem þær kröfur voru gerðar að Guðrúnu bæri sömu
laun og þeim karlmönnum, sem vinna við hælið undir starfsheitinu
gæzlumaður og taka laun samkvæmt taxta BSRB, enda sé um sambærileg
störf að ræða þótt Guðrún taki laun samkvæmt taxta Starfsmannafélags-
ins Sóknar, sem er allmikiu lægri. Féllst dómurinn á kröfu Jafnréttisráðs
og jafnframt var fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs dæmdur til þess að
greiða Guðrúnu krónur 450 þúsund með 19% ársvöxtum frá 30. marz að
telja. Telja má víst að dómnum verði áfrýjaö tii Hæstaréttar, en hann er
talinn stefnumarkandi fyrir um 160 konur, sem starfa hjá rfkisspftölun-
um og eins er ástatt með og Guðrúnu.
Málshöfðun þessi var í tvennu
lagi, en tilgangur hennar var að
framfylgja meginstefnu laga nr.
78/1976 um jafnrétti kvenna og
karla, eins og segir í dómnum. I
fyrsta lagi höfðaði Jafnréttisráð
mál vegna Guðrúnar Emilsdóttur og
krafðist þess að það yrði viðurkennt
að Guðrún ætti að hafa sömu laun
Aðalheiður Bjarn-
freðsd. form.Sóknar:
99
Stefnumark-
andi dómur
fyrir aðrar
félagskonur”
„ÞETTÁ er stefnumarkandi
dómur fyrir aðrar Sóknarkon-
ur sem eins er ástatt um,“
sagði Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir formaður Starfsmanna-
félagsins Sóknar, þegar Mbl.
innti álits hennar á niðurstöð-
um dómsins f máli Jafnréttis-
ráðs og Guðrúnar Emilsdótt-
ur.
„Ég gleðst yfir því að réttvís-
in skuli hafa verið réttlát í
þessu tilfelli. Ég tel trúlegt að
dómnum verði áfrýjað en það
er mikilvægt að þær konur hjá
ríkisspítölunum, sem eins er
ástatt fyrir og Guðrúnu, fái
einnig réttlæti í sínum málum.
Þær voru 160 þegar málarekst-
urinn hófst og talan er væntan-
lega svipuð núna. Ég ítreka
ánægju mína með niðurstöðu
dómsins og færi lögfræðingn-
um okkar, Jóni Steinari Gunn-
laugssyni, þakkir fyrir afskap-
lega góða vinnu við rnálið."
og þeir karlmenn, sem vinna sem
gæzlumenn og taka laun samkvæmt
taxta BSRB. í öðru lagi höfðaði
Guðrún sjálf mál gegn ríkissjóði og
krafðist þess að henni yrði greiddur
mismunur á launum samkvæmt
taxta BSRB og Sóknar frá 1. janúar
1977 til dagsins í dag.
í vörn sinni lagði lögmaður ríkis-
ins á það áherzlu að mjög víða í
ríkiskerfinu væri sú regla að greitt
væri eftir mismunandi töxtum, allt
eftir því í hvaða stéttarfélagi hver
starfsmaður væri.
I dómnum er talið sannaö sam-
kvæmt framburði forstöðumanns
Kópavogshælis og starfsmanna-
stjóra ríkisspítalanna að enginn
munur sé á starfi Guðrúnar og
þeirra gæzlumanna, sem miðað er
við í kröfugerðinni. Gildi þar einu
hvort litið sé til menntunar eða
starfsþjálfunar eða álags eða
ábyrgðar. Orðrétt segir í dómnum:
Dómsorð:
Krafa Jafnréttisráðs f.h. Guðrún-
ar Emilsdóttur er viðurkennd á
þann veg að Guðrún eigi rétt á að
um kjör hennar fari að sömu megin-
reglum og kjör þeirra sem vinna
undir starfsheitinu gæzlumaður við
geðhjúkrun á Kópavogshæli.
Stefndi, fjármálaráðherra f.h.
ríkissjóðs greiði stefnanda, Guðrúnu
Emilsdóttur, kr. 450.000,- með 19%
ársvöxtum frá 30. mars 1978 til
greiðsludags og kostnað stefnenda
af málinu þar með taldar kr.
400.000.- í talsmannalaun — allt
innan 15 daga frá lögbirtingu dóms
þessa að telja að viðlagðri aðför að
lögum.
Hrafn Bragason borgardómari
kvað upp dóminn ásamt meðdóm-
endunum Guðríði Þorsteinsdóttur
framkvæmdastjóra BHM og Sigurði
Líndal prófessor.
Lögmaður Jafnréttisráðs og Guð-
rúnar Emilsdóttur var Jón Steinar
Gunnlaugsson en lögmaður ríkisins
var Gunnlaugur Claessen.
Frá borgarafundi Byggðaverndar í Hafnarfirði.
Borgarafundur í Hafnarfirði:
Ljósm. Kristinn.
Skorar á bæjarstjórnina
að úthluta ekki
Málið rætt í bæjarstjórn í dag
FÉLAGIÐ Byggðavernd í Hafn-
arfirði, sem hefur á stefnuskrá
sinni umhverfisvernd og húsfrið-
un gekkst sl. sunnudag fyrir
borgarafundi í Hafnarfirði þar
sem rætt var um fyrirhugaða
lóðaúthlutun fyrir skattstofu og
bæjarfógeta.
Að sögn Eddu Óskarsdóttur
formanns félagsins sóttu um 100
manns fundinn þegar mest var, en
á honum fluttu framsöguerindi
Jóhann Bergþórsson formaður
skipulagsnefndar sem meðmæltur
er úthlutuninni og Einar Th.
Mathiesen sem er henni andvígur.
Kvað Edda síðan hafa farið fram
miklar umræður og fundurinn
staðið í um 3 tíma. Að loknum
umræðum hefðu framsögumenn
síðan haldið stutta tölu. Edda
Óskarsdóttir flutti tillögu á fund-
inum þar sem skorað var á bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar að falla frá
fyrirhugaðri úthlutun. Sagði Edda
að ályktunin hefði verið samþykkt
með yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða og ætti að leggja hana
fyrir bæjarstjórnina í dag, en á
fundi hennar er umrædd úthlutun
til umræðu.
Einar Th. Mathiesen sagðist í
samtali við Mbl. hafa áhuga á að
ná samkomulagi á fundinum um
lengri frest til að kynna hugmynd-
irnar fyrir Hafnfirðingum og að
þeir gætu sagt álit sitt á bygg-
ingarframkvæmdum á þessum
stað.
Isinn rak aftur inn á Sigluf jörð í gær:
Sjómenn misstu grá-
sleppunet undir ísinn
Nokkrar breytingar hafa orðið á
haffsnum sl. sólarhring, og hefur
hann t.d. rekið aftur inn f Sigluf jörð,
en annars staðar virðast fremur
litlar breytingar hafa orðið. Land-
helgisgæzlan flaug ekki fskönnunar-
flug f gær, en samkvæmt upplýs-
ingum sem Mbl. aflaði sér f gær er
siglingaleið úti fyrir Norðuriandi
sæmilega greiðfær f björtu nema
hvað erfitt er fyrir sléttu.
Siglufirði, 26.3.
HAFÍSINN tók að reka aftur inn á
fjörðinn í dag undan norðanáttinni og
olli hann töluverðu tjóni á netum
grásleppukarlanna. Milli 10 og 12
bátar misstu net sín undir ísinn og
missti t.d. einn báturinn 12 trossur og
er tjónið tilfinnanlegt. Þá rakst
trillan Mávur utan í ísjaka og kom að
henni leki, en hún komst til lands af
eigin rammleik.
Fréttaritari.
Húsavik, 26.3.
HAFÍS er ekki á Skjálfanda nema
það sem eftir varð í víkum þegar
meginísinn rak út aðfararnótt laugar-
dags. í víkinni hér framan við höfnina
er dálítið íshrafl en þó fært skipum og
bátum. Litlafellið kom hér inn á
Geir Hallgrímsson um ályktun Verkamannasambands íslands:
Er svanasöngur kröfunn-
ar um samningana í gildi
— ÁLYKTUN Verkamannasam-
bands íslands er svanasöngur
kröfunnar um samningana í
gildi. Tekið er fram um frumvarp
forsætisráðherra: „Ljóst er að sú
nýja skipan á greiðslu vísitölu-
bóta á laun sem ráðgerð er myndi
skerða þá verðtryggingu launa
sem um var samið í sfðustu
kjarasamningum.* í framhaldi af
þessu er gert ráð fyrir því í
ályktuninni að launalækkun
komi niður á almennum verka-
mannatekjum, sagði Geir Hall-
grímsson aðspurður um ályktun
Verkamannasambands íslands er
samþykkt var sl. laugardag.
— Ályktun Verkamannasam-
bands Islands nú er vissulega
athyglisverð, einkum í saman-
burði við ályktanir og aðgerðir
Verkamannasambandsins fyrir
einu ári.
Á sl. ári mótmælti Verka-
mannasambandiö harðlega að
dregið væri úr verðbótagreiðslutn
Geir Hallgrímsson.
á laun til að ná verðbólgu niður.
Nú gerir Verkamannasambandið
beinlínis ráð fyrir og leggur bless-
un sína yfir að launalækkun komi
niður á almennum verkamanna-
tekjum.
A liðnu ári gerði Verkamanna-
sambandið lítið úr ákvæðum
febrúar og máí-laga fyrrverandi
ríkisstjórnar til að vernda hag
hinna láglaunuðu. Nú er lagt til
„að skuli greiða með vísitölubót-
um samkvæmt frumvarpinu sér-
staka fasta launauppbót jafnháa
upp að tilteknu launamarki."
Á sl. ári var mótmælt löggjöf
um fyrirkomulag vísitölugreiðslna
og krafizt þess að fá „samningana
í gildi". Nú er talið sjálfsagt að
ríkisvaldið setji einhliða lög bæði
um grunnkaup og verðbótagreiðsl-
ur og ekki gerð tilraun til frjálsra
kjarasamninga þótt samnings-
tímabilið sé runnið út fyrir 4
mánuðum.
Greinilegar getur Verkamanna-
sambandið ekki ómerkt allar
ályktanir og aðgerðir sínar frá því
í fyrra, en á hinn bóginn eiga
frumvarpssmiðir erfitt með að
taka slíka ályktun til greina þar
sem hún mundi enn frekar út-
vatna áhrif frumvarpsins.
Staðan er sú að hefði
Verkamannasambandið ekki kom-
ið í veg fyrir með skemmdarverk-
um í fyrra að febrúar-maílögin
næðu tilgangi sínum, væri verð-
bólgan komin niður fyrir 30% nú
og unnt að koma henni niður fyrir
20% á þessu ári. Nú er hins vegar
spurningin hvorum megin við 40
prósentin verðbólgan verður á
þessu ári hvort sem efnahags-
frumvarp forsætisráðherra verður
samþykkt óbreytt, breytt eða alls
ekki.
Ályktun Verkamannasambands
íslands ber því ljóst vitni að
forystumeun þess eru að berjast
við sinn eigin draug.
laugardag eftir að hafa legið 3 tíma
hér utan við röndina og losaði olíu.
Togskipið Dagný, sem átti að fara til
Þórshafnar með 180 tonn er að losa
hér í dag 100 tonn og fer með
afganginn til Siglufjarðar. Togarinn
Rauðinúpur kemst ekki til heima-
hafnar, Raufarhafnar, en er væntan-
legur hingað í dag til að losa 140 tonn.
Mannskapur kemur frá Raufarhöfn
til að landa úr skipinu og verður
fiskurinn fluttur á bílum austur.
Atvinna við fiskverkun hefur enn
haldizt, en bátarnir hafa ekki farið á
sjó héðan í viku og útlit ekki gott
meðan nótt.er dimm og ísinn svona
nálægur. Þegar eru 3 bátar farnir
héðan á vertíð suður, Aron,
Kristbjörg og Sigþór, en þeir sem
heima eru hafa í athugun að reyna að
leggja eitthvað af veiðarfærum hér í
flóann þar sem þeir geta fylgst með
og tekið upp á skömmum tíma.
Eitthvað hefur náðst af netum sem
lent höfðu í ísnum, en langt frá þeim
stað sem þau voru í sjó lögð. Til
dæmis var slædd hákarlalína suður
við Kaldbakssker, en henni var lagt
rétt hjá Lundey og allar uppistöður
hafði ísinn skorið af.
Hæg norðanátt hefur verið hér í
dag og ekki uppbirtulegt og
hríðarfjúk.
Fréttaritari
Þórshötn
Höfnin hér er algjörlega lokuð, en
stutt er í auðan sjó hér rétt fyrir utan
og eru menn hálf súrir að geta ekki
komizt með báta sína á sjó. Vinna
hefur ekki verið hér síðustu daga þar
sem bátar fiska ekkert og hefur
Dagný t.d. landað afla á Húsavík og
Siglufirði. Þá kom Hekla ekki hingað
eins og ráðgert var, en skipað var upp
varningi til okkar á Raufarhöfn og
fluttur hingað á bílum.
Grímsey
í Grímsey fengust þær upplýsingar
að íshrafl væri um allan sjó og hefði
sézt nokkuð til þeirra í gærmorgun,
en þegar á daginn leið hefði gert
hríðarmuggu og skyggni því versnað.
Isinn rak nokkuð til baka um helgina,
en hann olli ekki tjóni í höfninni þar
sem vír var strengdur fyrir og það
lítil ferð á ísnum að hann þrýsti ekki
á vírinn af neinum þunga.