Morgunblaðið - 27.03.1979, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 27.03.1979, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979 7 Misgengi skoöana Fyrstu vikurnar eftir kosningasigur AlÞýðu- flokksins í vori liðins árs vóru tímar fagurra fyrir- heita. Eitt fyrirheit var Þó öðrum stærra: að vinna bug á verðbólgunni. Ekki fór heldur á milli mála að AlÞýðuflokkurinn stefndi; Þá í „nýsköpunarstjórn", Þ.e. samstjórn alira flokka nema Fram- sóknarflokksins, sem lík- legastan farveg fyrir heil- brigða efnahagsstefnu. En Það verður oft lítið úr Því högginu sem hátt er reitt. Það urðu örlög AlÞýöuflokksins að lúta forystu Framsóknar- flokksins í nýrri vinstri stjórn. Sú stjórn er enn í leit að efnahagsstefnu, enda hefur skoðanalegt mis- gengi stjórnarflokkanna í Þeim málum veríð með Þeim ósköpum, að jarð- hræring ir Kröflusvæðis hafa gjó.samlega fallið í skuggan, fréttalega séð. Þinghússórói, landris og landsig stjórnarinnar og kvikuhlaup milli ping- flokka og Þrýstihópa út í bæ hafa sett svip sinn á Þjóðlífið — meöan beðið hefur verið efnahags- stefnunnar — og verð- bólgan vaxið í lundi bið- stöðunnar. Fæöing frumvarps AlÞýöuflokkurinn sá, seint og um síðir að ekki mátti við svo búið standa, og að hefja varð atlöguna að verðbólg- unni. Lagöi hann fram frumvarp um efnahags- aðgerðir, aö vísu ekki á AIÞingi heldur i AlÞýðu- blaðinu. Hann samdi og nokkurs konar „aðgerða- almanak“ fyrir ríkis- stjórnina sem að vísu ekkert var gert með. AIÞýðubandalagið lét sér fátt um finnast en for-l sætisráðherra skipaði ráðherranefnd. Hún bjó mál í hendur ráðherran- um, sem „betrumbætti" niðurstööur og lagði fram í ríkisstjórn sem drög að efnahagsfrumvarpi. Þar Þróuöust mál í sam- komulag — að Því er virtist. Forsætisráðherra hefur margítrekað, að hann hafi lagt fram á AlÞingi efnahagsfrumvarp í Þá veru, sem samkomulag hafi verið orðið um í ríkisstjórn. Ráðherrar AlÞýðuflokks hafa staö- fest að svo hafi verið. Ráðherrar AlÞýðubanda- lags fengu hins vegar bágt fyrir samÞykki sitt hjá formanni flokks Þeirra, Lúðvíki Jóseps- syni, sem fylgdi ákúrum sínum eftir með pví að knýja athugasemdir við frumvarpið fram hjá forystu ASÍ. Þegar hér var komiö lýstu stjórnar- sinnar í AlÞýðu- og Fram- sóknarflokki Því yfir, að spurningin um fram- haldslíf stjórnarínnar væri ekki spurning um efnahagsmálaágreining samstarfsflokkanna, heldur spurning um framvindu ágreínings innan Alpýöubandalags- ins. Aö komast aftan aö veröbólgunni! Ráðherraarmur AlÞýðubandalagsins, sem halda vill ráðherra- dómi í lengstu lög, tefldi nú Verkamannasam- bandinu fram gegn ASÍ— bragöi flokksformanns- ins. Vóru nú snöggsoðnar tillögur í mínútugrilli Guðmundar J. Guðmundssonar, sem verða eiga einhvers kon- ar Filippseyjamixtúra fyr- ir stjórnarsamstarfiö. Hvern veg til hefur tekizt er of snemmt að spá um. Ljóst er Þó að Þær verð- bólgubremsur, sem verða áttu meginefni frumvarpsins í öndverðu, hafa hver af annarri verið teknar úr sambandi. Haldi áfram sem horfir verður lokasáttin — ef hún Þá finnst — víðs fjarri Þeim verðbólgu- hömlum, sem heila málið snerist Þó um. Fari svo er fátt eftir orðið af stórum orðum á „stund sigursins". Eða hefur AlÞýðuflokkurinn aöeins breytt um bar- dagaaðferð, fundið nýja leið að markinu, sem hann hét að stefna að? Þá kemur í hugann eitt af Ijóðum Steins Steinars, sem hafði Þaö að inntaki, að ef nógu hratt væri hopað undan pví, sem barist væri gegn, kæmist maður, vegna lögunar jarðar, aftan aö andstæð- ingnum. Það er máske meining núverandi stjórnarflokka að komast aftan aö verðbólgunni með Því að henda öllum verðbólguhömlum út úr endanlegu „sátta- og samlyndisfrumvarpi" stjórnarinnar? TOPPFUNDUR Hótel Esja - Sími 82200 m n Við leyfum okkur að mæla með Skálafelli, salnum á 9. hæð á Hótel Esju. Þar eru smekklegar innréttingar og þægileg aðstaða hvort sem hópur- inn er stór eða smár. Útsýnið er marg- rómað. Við sjáum um fjölbreytta þjónustu í mat og drykk. Leitið upplýsinga - tímanlega. Kynning, blaðamannafundir, mót- tökur og aðrar álíka samkomur eru fastur liður í starfi margra fyrirtækja, félaga og reyndar sumra einstaklinga. Oft kostar nokkur heilabrot og fyrir- höfn að finna hentugan og vistlegan stað við slík tilefni. Enda er mikils um vert að staðarvalið takist vel. LIMK Hobby plöturnar ásamt fylgihlutum, svo sem lömum, hillutöppum, samsetningartöppum, bor- settum og skúffum. Mjög hagstætt verö. Til sölu á Klapparstíg. ^TpSr Timburverzlunin Volundur hf. KLAPPARSTIG 1. SIMI 18430 — SKEIFAN 19. SIMI 85244 Sá mesl seldi áreftirár Einholti 6. Sími 18401.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.